8. Hjónin voru að horfa á sjónvarpið.Eiginmaðurinn djöflaðist í fjarstýringunni:
Golf....klám...golf...klám...g
olf...klám...golf..
Konan frekar pirruð:"Hættu þessu fikti og stilltu bara á klámrásina,
þú veist hvernig á að spila golf "!!!

9. Guðmann hringdi í forstjóra ÁTVR um miðnætti og spurði klukkan hvað búðin opnaði. Ekki fyrr enn klukkan 9 í fyrramálið sagði forstjórinn pirraður!! Nokkrum tímum seinna hringir hann aftur, ofurölvi og spyr " Hvunrr í fjand... opniiiiiið essa búð" Þér verður nú ekki hleypt inn í þessu ástandi segir forstjórinn. É atla eki innnnn, é þarf komast út!!:)

10.Eiginkonan við eiginmanninn: „Ég vildi að ég væri dagblað, því þá væri ég í höndum þínum allan daginn.“ Eiginmaðurinn svarar að bragði: „Ég vildi líka að þú værir dagblað. Þá fengi ég nýtt blað á hverjum degi.

11.Nýjar rannsóknir sýna að það þarf nákvæmlega 8,5 sm lengd og 5,4 sm breidd til að fullnægja þörfum hverrar konu !!

Það kom einnig í ljós í sömu rannsókn að það skiptir ekki máli hvort kortið er frá VISA eða MASTERCARD ;-)

12. Það var svo kalt , ég sá lögfræðing labba á Laugarveginum með hendurnar í eigin vösum!!

13. Hitti múslima um daginn, hann sagðist eiga allan kóraninn á DVD. Ég spurði hvort hann gæti brennt disk fyrir mig. Þá varð fjandinn laus.

14. Lögregluþjónn á mótorhjóli kom að manni sem var hlekkjaður, kviknakinn, í faðmlögum við stórt tré...
Hann stígur af hjólinu og gengur að manninum og spyr hvað sé í gangi...
"Þetta er versti dagur í lífi mínu" kjökraði maðurinn, "ég tók upp puttaling á Vesturlandsveginum og hann rændi mig, bölvaður, bílnum, veskinu og fötunum og svo hlekkjaði hann mig hér..."
"Hmmm... Nei greinilega ekki þinn dagur."
Sagði lögregluþjónninn og renndi niður buxnaklaufinni...

15.Eiginmaðurinn spyr konuna: " Hvað myndir þú gera ef ég myndi vinna í lottó?" Konan: " Nú taka helminginn og flytja út!"..Eiginmaðurinn: " flott..Ég var að vinna 1.200 kall. Hér er 600 kall..og drullaðu þér svo út!!