Home Page Image

  • Börn:
  • Ásdís Hvönn & Katrín Edda
    Ásgeir Skarphéðinn
    Brynjar og Eyþór
    Friðrik & Embla
    Inga Bríet og Kristinn Tjörvi
    Ingveldur Birna Matthíasdóttir
    Ingvar Daði
    Karen Emma
    Kristín Helga
    Magnea & Tumi
    María
    Tómas Emil

  • Vinir:
  • Björn Hjaltason
    Diljá
    Freyr
    Jósi
    Lella
    Nanna
    Siggi Palli
    Sigurgeir
    Svavar Knútur
    Snorri Hergill
    Þóra

     



    Bergur útskrifast

    25. desember 2009

    Aðfangadagur var notalegur hérna á Rauðalæknum þó krakkarnir væru mjög spenntir fyrir því að fá að opna gjafirnar. Þau fengu margt fallegt og við líka og við erum mjög þakklát fyrir allt. Vonandi voru allir ánægðir með það sem við gáfum.

    Við erum nýkomin heim úr tveimur jólaboðum og erum svo södd að tilhugsunin um mat er nánast óbærileg, en samt virðist alltaf vera pláss í maganum fyrir meira.

    Í dag byrjuðum við daginn á að fara til foreldra minna í síðbúinn hádegisverð þar sem margar kræsingar voru í boði. Við vorum allt of sein vegna þess að fröken Ingveldur harðneitaði að fara í spariföt. Á endanum leyfðum við henni að fara í fötum að eigin vali, svo við kæmumst nú að heiman.

    Þaðan fórum við til Mumma og Siggu og þar var stór hluti föðurfjölskyldunnar samankominn. Alltaf gaman að koma þangað, mikið spjallað og hlegið. Krakkarnir höfðu næga leikfélaga í báðum boðunum og tíminn var fljótur að líða.
    Á morgun hittist móðurfjölskyldan mín hjá Rúnu frænku. Það verður örugglega gaman eins og alltaf. Farið í leiki og síðan má fólk troða upp ef það vill. Bergur segist vilja syngja Maístjörnuna og sýna leikrit. Við sjáum til hvort það verði af því.

    Við settum inn myndir frá því í gærkvöld. Þar má sjá hvað krakkarnir voru ánægðir með allar gjafirnar, svo sæt og fín.


    17. desember 2009

    Ingveldur var mjög dugleg í klippingu í dag, sat stillt og prúð allan tímann. Ekki reyndist nauðsynlegt að taka mikið af hárinu en það sést þó að hún hefur farið í klippingu.
    Ingveldur er hálfhrædd við köttinn í næsta húsi, en þetta er vinalegur svartur skógarköttur sem kemur yfirleitt hlaupandi þegar hann heyrir í krökkunum. Hann kemur líka þegar við opnum útidyrahurðina. Ingveldur hleypur alltaf aftur inn og tekur sveig framhjá kettinum, en stundum harkar hún af sér og klappar honum.
    Á leiðinni á leikskólann fyrr í vikunni sagði hún við mig: ,,Mamma hlauptu. Kisa kemur," og hljóp sjálf á harðaspretti út á leikskóla.
    Á morgun er jólatrésskemmtun bæði hjá Bergi og Ingveldi. Þau mega fara í sparifötum í skólann og leikskólann, en það er sennilega vissara að láta þau ekki fara of fín, því þau verða að geta leikið sér.
    Við fengum okkur myndavél í dag fyrir inneignarkortið sem við fengum í brúðkaupsgjöf. Það útskýrir hversvegna myndgæðin á nýjustu myndunum í myndaalbúminu eru mun betri en á þeim sem þar voru fyrir.


    15. desember 2009

    Ingveldur fékk tíma í klippingu á fimmtudaginn þannig að hún verður fín fyrir jólin. Ég fékk tíma hjá hárgreiðslukonunni minni sem hefur klippt mig í 8-9 ár. Hún á líka börn þannig að Ingveldur átti alla hennar samúð.
    Þeir sem vilja sjá klippinguna sem hún fékk hjá Bergi hafa því tækifæri til þess í dag eða á morgun. :)
    Um daginn fékk ég nokkra litla hluti úr geymslunni hjá foreldrum mínum. Þetta voru smáhlutir sem ég átti þegar ég var lítil. Þeirra á meðal var lítið jesúbarn í jötu, en ég man ekki hvar eða hvenær ég fékk það. Ingveldur var mjög hrifin af ,,litla barninu" og sérstaklega af geislabaugnum sem jesúbarnið var með yfir höfðinu. Svo hrifin var hún af geislabaugnum að hún sleit hann af og tróð á fingurinn á sér. Jesúbarnið fékk síðan að sofa í rúminu hennar um nóttina.


    14. desember 2009

    Ingveldur er mjög hrifin af afmæliskortunum sínum, sem hafa öðlast ígildi bóka hjá henni. Eitt kortið er með glimmer framan á og hún heldur mikið upp á það. Kallar það prinsessubókina sína. Ég las fyrir hana afmæliskveðjuna sem stóð skrifuð í því og hún leit á mig og sagði: ,,Ég á afmæli í mars!" Gott að hún hefur það á hreinu.
    Í gær var hún að leika sér á sparkbílnum og var með dúkkuna sína aftan á. Dúkkan datt af og Ingveldur kallaði í móður sína: ,,Viltu taka dúkkuna. Hann er dauður."
    Ingveldur er mjög mikil dama. Í gær vildi hún fara í rúmið með armband, hring á fingri og í Hello Kitty inniskónum sínum. Henni fannst hún svakalega fín.
    Í hvert skipti sem hún fer í kjól eða sér mömmu sína í kjól vill hún dansa. Hún vill hins vegar alls ekki dansa ef hún er ekki í kjól. Hún er stundum svolítill sérvitringur.


    13. desember 2009

    Bergur og Ingveldur voru í jólasveinaleik inni í herbergi í kvöld á meðan ég pakkaði inn nokkrum jólagjöfum. Bergur kemur nokkru síðar fram og segir:,,Sjáðu mamma hvað ég er með flott skegg." Ég lít upp og sé að skeggið virðist vera alvöruhár. Sítt hár. Hann sér að mér líst ekki á þetta og hleypur inn í herbergi og felur sönnunargagnið, sem hann reyndar sýnir mér síðan þegar ég bið hann um það. Í lófanum var hann með litla hárkúlu, sem ég spurði hann hvar hann hefði fengið. Hann náði ekki að svara áður en litla systir hans, sem þar til þá hafði haldið sig til hlés, sagði: ,,Bergur var að klippa mig." Og var hæstánægð með það.
    Við getum verið ánægð með að hafa farið í fjölskyldumyndatöku í síðustu viku.


    7. desember 2009

    Bergur vaknaði með heljarinnar hálsríg en harkaði af sér skóladaginn því farið var í Laugardalinn í dag með kakó, smákökur og vasaljós.
    Eftir skóla var síðan strákaafmæli hjá einum bekkjarfélaganum. Þar sem hann var enn með hálsríg í lok dagsins þótti okkur vissara að láta kíkja á hann. Læknirinn sagði að þetta væri ekkert alvarlegt, og reyndar nokkuð algengt hjá börnum á hans aldri.
    Bergur sagði honum að hann vildi verða læknir en að hann ætlaði að vera með lokað á laugardögum. Lækninum leist vel á það og sagði Bergi að hann væri skemmtilegur strákur.


    1. desember 2009

    Bergur tók sig til, steig upp á stól íklæddur lopapeysu og hóf upp raust sína syngjandi Maístjörnuna föður sínum til undrunar og gleði. Hann hefur nefnilega ekki verið mikið fyrir það að syngja fyrir okkur áður.
    En þarna var hann og fór með öll erindin eins og hann hefði aldrei gert neitt annað og stoltur faðir sem hlustaði.

    Nú er hann inni í herbergi syngjandi systur sína í svefn, búinn með "lilla lagið" úr Dýrunum í Hálsaskógi, Maístjörnuna, & bíbí & blaka.

    B.G.


    25. nóvember 2009

    ,,Ís og allir búnir að skreyta fyrir jólin! Þetta er besti dagur lífs míns," sagði Bergur glaður í aftursætinu á leiðinni heim í dag.
    Ísinn var í verðlaun fyrir að vera dugleg í bólusetningu gegn svínaflensu. Ég fékk að skreppa úr vinnunni og hitti mömmu og börnin á heilsugæslunni, en mamma var það góð að ná í börnin fyrir mig.
    Þegar við vorum komin inn á heilsugæsluna sagði Bergur að hann vildi vera sprautaður síðastur. Ég byrjaði til að sýna að þetta væri ekkert mál. Ingveldur var hrædd á meðan hún var sprautuð og grét.
    Bergur sat í fanginu á ömmu sinni á meðan og hún sagði að hann hefði dregið ermina meira niður og sagst ætla frekar að koma á morgun. Hann var síðan algjör hetja og grét ekkert þegar hann var sprautaður. Kveinkaði sér ekki neitt.
    Við settum upp lítið gervijólatré á kommóðunni inni hjá börnunum. Bergur bætti skrauti á tréð og Bjössi bjó til stjörnu úr pappír sem Bergur litaði gula. Litli jólaálfurinn okkar er gjörsamlega að farast úr spenningi og hlakkar mikið til jólanna.


    21. nóvember 2009

    ,,Það er að kvikna í, það er að kvikna í! Það er að brenna, það er að brenna!" Söng Bergur hástöfum í Bónus í dag og fékk aðra í búðinni til að brosa.
    Jólaföndur og laufabrauð á morgun.


    20. nóvember 2009

    Við ákváðum að skella okkur í bíó klukkan sex í kvöld með börnin. Við sáum A Christmas Carol (Jólasögu eftir Charles Dickens) í þvívídd með íslensku tali og skemmtum okkur mjög vel. Krakkarnir urðu hræddir á nokkrum stöðum en komust yfir það fljótt. Ingveldur var mjög hrifin, benti á skjáinn og hrópaði upp það sem hún sá. Við reyndum að sussa á hana og hún mundi að hafa hljótt í nokkrar mínútur áður en hún byrjaði aftur að kalla. Hún hefur bara farið einu sinni áður í bíó og það var líka á mynd í þrívídd, Ísöld 3. Bergur hefur farið oftar í bíó og kann reglurnar betur. Við þurftum því ekkert að hafa áhyggjur af honum.
    Eftir bíó náðum við í pizzu í kvöldmatinn. Mjög góður dagur.
    Á sunnudaginn er jólaföndur í skólanum hjá Bergi og síðan laufabrauðskurður með stórfjölskyldunni. Það verður gaman.


    19. nóvember 2009

    ,,Sjáðu mamma! Þarna er litla systir mín!" hrópaði Ingveldur glöð þegar við vorum að skoða saman myndir af henni nokkurra mánaða gamalli í kvöld.


    15. nóvember 2009

    Bergi fer sífellt meira fram í lestrinum og heimanámið gengur núna hratt og örugglega fyrir sig.
    Það styttist í aðventuna og jólaundirbúningurinn fer að fara á fullt. Í gær hittumst við systkinin með börnin og föndruðum aðeins saman. Vonandi gefst tækifæri til að föndra meira saman síðar.
    Við erum búin að kaupa meirihlutann af jólagjöfunum sem betur fer. Þannig er hægt að slappa meira af í desember og hitta ættingja og vini.
    Ég er búin að lofa Bergi að við bökum saman piparkökuhús og að við búum til jólanammi. Það verður gaman.
    Ég skannaði tvær teikningar eftir Berg og setti inn í myndaalbúmið um daginn. Hann er orðinn mjög klár að teikna, að minnsta kosti eru myndirnar hans alltaf skemmtilegar.


    9. nóvember 2009

    Bergur fór í karate í dag. Við vorum svolítið sein fyrir þannig að ég lagði bílnum og við gengum rösklega í átt að húsinu. ,,Mamma, ertu ekki að gleyma einhverju?" spyr þá Bergur á hlaupunum. Ég spyr hvað það geti verið og hann segir: ,,Löggan segir að þegar maður gengur á götunni eigi maður alltaf að leiða foreldrið sitt. Hvað heldurðu að löggan segði við þig núna?" Ég var sem sagt ekki að leiða hann og gat því ekki sagt annað en að löggan yrði varla ánægð með mig.
    Bergur tekur framförum í karate, þó hann segi að sér finnist ekki gaman í því. Hann er alltaf að læra meira af reglunum, aðallega með því að brjóta þær...hehehe. Ekkert alvarlegt samt. Reglurnar felast aðallega í því að fara ekki út úr salnum án þess að spyrja um leyfi, gjamma ekki fram í og hneigja sig bæði við komuna inn í salinn og þegar farið er út. Þeir sem koma of seint verða að krjúpa rétt innan við dyrnar, snúa fram í salinn og rétta upp annan handlegginn. Þannig verða þeir að sitja þangað til kennarinn, eða sensei-inn, leyfir þeim að koma inn.
    Ingveldur fór í tveggja og hálfs árs skoðun í morgun og gekk glimrandi í þeim hluta sem ég bjóst ekki við að hún myndi geta. Hún vildi hins vegar ekki taka þátt í því sem ég var viss um að hún gæti. Hún fékk því falleinkunn..hehehe. Hjúkrunarfræðingurinn ætlar að fá upplýsingar frá leikskólanum um hreyfiþroskann, því ekki er hægt að taka mömmuna á orðinu. Þá er betra að treysta á hlutleysið frá leikskólanum. Ekki er langt síðan við fórum í foreldraviðtal á leikskólanum og þá fékk Ingveldur glimrandi umsögn. Við höfum því engar áhyggjur af þroska hennar. Deildarstjórinn á deildinni hennar segir að hún skilji orsök og afleiðingu, sem sé óvenjulegt fyrir börn á hennar aldri og að hún sé mjög skýr.


    3. nóvember 2009

    Svanhvít, nýi kennarinn hans Bergs, hringdi áðan til að láta vita hvernig honum gengi í skólanum. Hann er víst ánægður í nýja bekknum, virkur í tímum og leikur við hina strákana í bekknum. Hann hefur samt ekki hætt að leika við Gumma og Bjart, þannig að breytingin hefur ekki eyðilagt vináttu þeirra, sem er gott.
    Mamma hans Bjarts hringdi í gær og sagði að Bergur hefði neitað að hætta að vera vinur Bjarts þegar Gummi lýsti því yfir að hann væri hættur að vera vinur Bjarts og vildi að Bergur gerði það líka. Það er gott að vita að Bergur lætur vini sína ekki stjórna sér.


    29. október 2009

    ,,Oh, hvað þetta er yndislegt. Viltu gera svona handa mér?" sagði Bergur þegar við sátum saman fjölskyldan og horfðum á matreiðsluþátt Jóhönnu Vigdísar, sem að þessu sinni var að búa til heitan brauðrétt. Ég sagðist geta gert það og sneri mér að pabba hans til að segja eitthvað við hann. Þá kallar Bergur: ,,Mamma fylgstu með, svo þú getir lært þetta." :)
    Ingveldur, eða Lína langsokkur eins og hún kallar sig, vildi fá tígó í hárið og fór síðan inn í stofu þar sem hún söng hástöfum ein með sjálfri sér. Hún heldur mikið upp á bleika kærleiksbjörninn sinn þessa dagana og kallar hann herra Níels.
    Mamma hans Sigurjóns hringdi í mig síðdegis og sagði að Sigurjón væri miður sín því það væru bara stelpur væntanlegar í vinahópinn hans. Bergur átti að vera í vinahópnum en er nú kominn í annan því hann er kominn í nýjan bekk. Vinahóparnir eru skipulagðir af foreldrum og öllum bekkjunum skipt upp í jafnstóra hópa. Hver hópur á að gera eitthvað skemmtilegt saman tvisvar í mánuði. Bergur var meira en til í að fara til Sigurjóns og redda partýinu.
    Bergi líkar ágætlega í nýja bekknum þó hann hafi sagst vilja vera áfram í 1.L á leiðinni heim úr skólanum í dag. Bjössi segir að hann hafi verið ósáttur við komuna í skólann í morgun og haft allt á hornum sér. Hinir krakkarnir í bekknum buðu honum öll góðan daginn og stelpurnar voru víst mjög hrifnar af því að sjá að hann væri kominn í þeirra bekk. Hann var hinsvegar hinn ljúfasti á leiðinni heim og okkur finnst hann vera betri í skapinu. Vonandi heldur þetta svona áfram.
    Bergur er búinn að velja sér nýtt nafn eina ferðina enn. Núna vill hann heita Jón. Eins og Jón spæjó. Um daginn svaraði hann ekki kennaranum nema hún kallaði hann Hógar og ekki alls fyrir löngu heimtaði hann að fá að heita Gyrðir. Sem betur fer er hann sáttur við að heita Bergur Kári, svona yfirleitt.


    26. október 2009

    Bergur var orðinn svo veikburða og lasinn í gærkvöldi að við þorðum ekki annað en að hringja eftir lækni. Hjúkrunarfræðingur hjá 1770 hafði spurt okkur út í einkennin og var farin að spyrja út í einkenni fyrir heilahimnubólgu. Það gerði mömmu hans meira hrædda. Læknirinn kom, skoðaði Berg og útilokaði heilahimnubólgu - sem betur fer. Hann sagði að Bergur væri líklega með svínaflensu, það væru ca. 60% líkur á því. Læknirinn lét okkur fá samheitalyf tamiflu og fór.
    Í dag var Bergur orðinn hitalaus og ef hann verður það líka á morgun getur hann sennilega farið í skólann á miðvikudaginn.
    Ég setti inn þrjár af myndunum frá ljósmyndaranum.


    25. október 2009

    Bergur er orðinn hálfslappur og Bjössa líka. Vonandi eru þeir ekki að fá svínaflensuna. Við allavega krossum fingur.
    Ég setti tvær myndir til viðbótar á myndasíðuna. Myndalbúmið neitar að taka við sumum myndunum og vill engar frá ljósmyndaranum. Þær eru sennilega of stórar.


    23. október 2009

    Við erum búin að setja nokkrar myndir úr brúðkaupinu á myndasíðuna. Nanna á allan heiðurinn af þeim og við þökkum henni kærlega fyrir allar fallegu myndirnar. Fleiri myndir gætu ratað inn á síðuna.
    Við erum líka búin að fá myndir frá ljósmyndaranum en þær eru of stórar til að setja á myndasíðuna.


    22. október 2009

    Bergur er búinn að fara til hjúkrunarfræðingsins í hæðar-og þyngdarmælingu. Hann er orðinn 118 cm hár og 20,4 kg. Hann er með fullkomna sjón og heyrn.
    Fleiri fréttir af Bergi. Skólastjórinn ákvað í gær að flytja Berg og Gumma í sinnhvorn bekkinn. Þeir trufla hvorn annan of mikið. Við hittum nýja kennarann áðan og leist vel á hana. Hún er ákveðnari en fyrri kennarinn. Vonandi líst Bergi jafn vel á hana, þegar hann fer í heimsókn í bekkinn á eftir. Hann byrjar í 1.K á miðvikudag, eftir vetrarfrí.


    19. október 2009

    Ingveldur er öll að koma til og sennilega var þetta slæm flensa þó ekki megi útiloka svínkuna. Hún er aftur farin að reyna að skipa okkur fyrir verkum, sem eitt og sér er mikið batamerki.


    16. október

    Ingveldur er að öllum líkindum með svínaflensu. Hún veiktist snögglega í gærkvöldi. Blossaði upp hiti, svo er hún orðin hás og með þvílíkt nefkvef.
    Stílar, drekka og sofa er það sem er í gangi núna hjá henni, en í þessum rituðum orðum þá steinsefur hún uppi í rúmi.
    Fréttum það í morgun þegar við hringdum á leikskólann að það er búið að greina tilfelli þar sem svínaflensu. Líkurnar benda þar af leiðandi sterklega til þess að þetta sé svínflensan.

    B.G.
    Sonur okkar var að koma heim úr skólanum með skilti sem hann hafði búið til. Á því stendur skýrum stöfum ,,Vanhæf ríkisstjórn." Hann sagðist ætla að taka það með sér næst þegar eigi að mótmæla. :p


    12. október 2009

    Okkur hjónin langar til að þakka öllum fyrir að vera með okkur á brúðkaupsdaginn. Bæði veislan og athöfnin heppnuðust jafn vel og við vonuðumst eftir. Við þökkum kærlega fyrir okkur. :)


    8. október 2009

    Salurinn verður skreyttur á morgun. Við sóttum lykilinn í kvöld og stefnum á að byrja að skreyta upp úr hádegi. Síðan gerum við ráð fyrir liðsauka síðdegis og miklu stuði að sjálfsögðu! ;)
    Það eina sem er eftir er að kaupa blómvönd fyrir kirkjuna og gosið. Það er allt og sumt, nema auðvitað að eitthvað hafi gleymst. Það eina sem er á dagskránni á morgun er að skreyta og það ætti ekki að taka mikinn tíma. Ekki má síðan gleyma því að við tökum létta æfingu á morgun. :)


    7. október 2009

    Nú er allt að verða klárt fyrir brúðkaupið. Við fáum lykilinn að salnum á morgun og getum byrjað að skreyta á föstudaginn. Herborg og Bjössi Hjalta komu í kaffi í gærkvöldi og við ræddum aðeins veislustjórn og annað skemmtilegt. Við Herborg prófuðum líka skreytiefnið og það kom mjög vel út og passar vel við árstímann. Við erum orðin mjög spennt. :)
    Við erum búin að setja nokkrar nýjar myndir á myndasíðuna. Þar á meðal er mynd af Bergi í karate og nokkrar af honum og vinum hans á skólalóðinni.


    5. október 2009

    Nú er innan við vika í brúðkaupið og næstum allt tilbúið. Stærstu verkefnin sem eru eftir eru að kaupa ljósbleika eða hvíta skó handa Ingveldi og rautt bindi handa Bergi. Það virðist hins vegar vera lítið um drengjabindi á höfuðborgarsvæðinu.
    Lífið gengur sinn vanagang. Bergi gengur vel í karate og Ingveldur er búin að pikka upp nokkrar karateæfingar.


    24. september 2009

    Bjössi á afmæli í dag og af því tilefni setti ég kerti á afmælisköku sem við borðuðum í eftirrétt í kvöld. Bjössi leyfði síðan Bergi að opna pakkann frá okkur.
    Það styttist í brúðkaupið og nánast allt er tilbúið. Við viljum minna fólk á að staðfesta við okkur í síðasta lagi á morgun, svo við getum látið kokkinn vita um endanlegan gestafjölda.


    20. september 2009

    Á leiðinni heim úr leikskólanum á föstudag sagði ég Bergi að það væri að koma fasteignasali til að skoða íbúðina okkar. Bergur spurði þá hvort hann ætlaði að búa í íbúðinni okkar og ég sagði nei. Maðurinn ætlaði að auglýsa íbúðina okkar til sölu og ef einhver vildi kaupa hana, þá myndum við flytja annað. ,,Jess, þá fæ ég trampólín og kisu!!" hrópaði Bergur þá glaður. Mamma hans áttaði sig hins vegar ekki alveg á samhenginu þarna á milli...hehehehe.


    12. september 2009

    Bergur okkar er orðinn sex ára. Það er eins og það hafi gerst í gær að við fengum hann oggoponsulítinn í fangið. Hann er byrjaður í skóla og gengur alveg ágætlega.
    Við héldum tvískipta afmælisveislu en drógum aðeins úr umfanginu. Það var aðallega til að létta mér lífið því á laugardagskvöldið var árshátíðin í vinnunni hjá mér. Engu að síður náðum við að bjóða nánustu fjölskyldu í hádegismat á laugardag og á sunnudeginum var hér hressilegt strákaafmæli. Bergur fékk margar gjafir og var ánægður með þær allar og þakkaði vonandi vel fyrir sig. :)
    Bergur er líka byrjaður í karate og á auðvelt með að fylgja kennaranum, eða sensei-inum eftir. Í næsta tíma ætti hann að fá karate-búninginn sem hann hefur beðið spenntur eftir.


    30. ágúst 2009

    Það eru 12 strákar í bekknum hans Bergs og hann er þegar farinn að kynnast nýjum vinum. Einn þeirra heitir Alex og á heima nokkrum húsum frá okkur. Okkur fannst skrýtið að hafa ekkert séð hann fyrr og töldum að það hlyti að skýrast af því að hann hefði verið á öðrum leikskóla en Bergur. Mamma hans kom í dag að leita að honum og sagði okkur að þau væru tiltölulega nýflutt í hverfið. Þau bjuggu áður í Vesturbænum eins og við og eru líka fallin fyrir þessu hverfi.


    29. ágúst 2009

    Bergur var svo upptekinn af því að leika við vini sína í dag að við Ingveldur fórum bara tvær með mömmu, Herborgu, Ingu og Kristni á myndlistarsýningu Guðfinnu frænku. Myndirnar voru mjög fallegar og Ingveldi fannst gaman að skoða þær á milli þess sem hún borðaði saltstangir.
    Ingveldur heldur áfram að vilja gera allt sjálf. Það nýjasta er að hún neitar konunum á leikskólanum að hjálpa sér á klósettinu. Hún vill fá að þurrka sjálf. :p


    28. ágúst 2009

    Nú þegar styttist í afmæli Bergs eru sennilega margir farnir að velta fyrir sér hvað væri sniðugt að gefa honum í afmælisgjöf. Hann vantar ýmislegt t.d. húfu, vettlinga, ullarsokka, flíspeysu og pollagalla. Allt þetta er orðið of lítið eða slitið. Hann langar auðvitað í allskonar dót og þá eru traktorar og bílar mjög ofarlega á óskalistanum. Hann leikur sér líka mikið með playmo.


    27. ágúst 2009

    Fyrsti skóladagur Bergs í gær gekk vel að öðru leyti en því að kennarinn hans færði hann og Gunnar Eystein að kennaraborðinu því þeir töluðu of mikið saman. Það var reyndar bara ágætt að hann var færður því hann sneri áður að veggnum og þurfti að horfa á töfluna frá hlið. Núna er hann á besta stað í stofunni..hehehe.


    23. ágúst 2009

    Bergur hefur ekki viljað fara að sofa síðustu tvö kvöld nema móðir hans syngi fyrir hann Maístjörnuna. Það kom mömmunni skemmtilega á óvart að hún kann öll þrjú erindin. Lagið er bara ansi viðeigandi um þessar mundir. Það verður bara að segjast eins og er.
    Kisu líkar vel hjá okkur. Hún sést ekki allan daginn, því hún felur sig inni í geymslu þar sem krakkarnir ná ekki til hennar. Fyrst þegar þau eru sofnuð kemur hún trítlandi fram. Hún hefur samt enga ástæðu til að óttast krílin okkar því Bergur kann alveg að umgangast ketti og Ingveldur verður hrædd ef kettir koma of nálægt henni. Hún heldur einhverra hluta vegna að kettir séu spenntir fyrir skónum hennar.
    Ingveldi gengur vel í aðlögun og er farin að hafa meiri áhuga fyrir því að láta setja teygjur í hárið á sér. Hún bað meira að segja pabba sinn um að setja í sig tíkó í vikunni og hann lét sig hafa það. Þetta kom bara mjög vel út hjá Bjössa - leyndir hæfileikar þar. :)


    20. ágúst 2009

    Ingveldur er byrjuð í aðlögun á leikskólanum og gengur vel. Hún er auðvitað löngu tilbúin til að fara á leikskóla og eina ástæðan fyrir því að hún er ekki nú þegar á leikskóla er sú að við vildum engan annan leikskóla. Bergur hefur verið mjög góður við Ingveldi og duglegur að sýna henni um á leikskólalóðinni. Síðasti dagurinn hans á leikskólanum er á morgun og fyrsti dagurinn í grunnskóla er á miðvikudag.
    Ég var í fríi í dag og gat því farið með börnin og hitt Einar, Elínu, Regínu, Herdísi, Patty og Elínu systur hans Gumma í Fjölskyldu-og húsdýragarðinum. Við enduðum síðan daginn á því að fara og fá okkur kaffi og köku í Súfistanum í Iðuhúsinu en Patty fullyrti að kökurnar þar væru æði. Það reyndist rétt. Bjössi kom síðan og hitti okkur þar eftir að hafa farið með köttinn hans Bjössa Hjalta heim til okkar. Kisa verður í pössun hjá okkur næstu daga. Greyið reyndi að láta sem minnst fara fyrir sér þangað til börnin voru sofnuð.


    9. ágúst 2009

    Við höfum skemmt okkur æðislega vel í sumarfríinu. Við fórum á mjög skemmtilegt ættarmót á Leirubakka (við erum strax farin að hlakka til næsta), gistum þar eina nótt í tjaldi (allt of langt síðan síðast) og keyrðum í hádeginu daginn eftir beinustu leið vestur á Þingeyri. Þar gistum við í viku hjá Elínu og Einari vinum okkar.
    Á Þingeyri fengum við að kynnast því hvernig það hljóti að vera að búa í kommúnu því fleira fólk var í húsinu á sama tíma og við. Þarna voru Gummi og Patty, Binna og Arnór (9 ára sonur hennar) og Gunnar. Það var alltaf mikið fjör bæði á morgnana og um kvöldmatarleytið. Við spiluðum, spjölluðum saman yfir varðeldi og sykurpúðum og fórum til Ísafjarðar að fylgjast með mýrarboltamótinu.
    Bjössi er byrjaður í vinnunni eftir sumarfrí, Bergur á að byrja á leikskólanum á morgun og ég í vinnunni á miðvikudag. Ingveldur byrjar síðan í aðlögun á mánudaginn eftir viku. Síðan styttist í að hann Bergur okkar byrji í skólanum. Ég verð sem betur fer á seinni vakt fyrsta daginn þannig að ég get fylgt honum í skólann. Ætli við förum ekki á morgun að kaupa handa honum skólatösku.
    Við erum alltaf að bæta í albúmið, þannig að best er að velja ,,last uploads" í listanum vinstra megin. Þannig sjást þær myndir sem síðast voru settar inn. Við erum nefnilega líka að bæta við nokkurra mánaða og jafnvel nokkurra ára gömlum myndum.


    23. júlí 2009

    Ingveldur er mjög skýr, ákveðin og skemmtileg stelpa. Þegar hún kom inn í eldhús í vikunni sagði ég við hana: ,,Þarna ertu, gullið mitt!" Þá svaraði hún: ,,Ég heiti Ingveldur." Kjáni get ég verið...hehehe.
    Bjössi fór í morgun og keypti dýnu í neðri kojuna fyrir Ingveldi. Þegar ég var að kyssa systkinin góða nótt segi ég við Ingveldi að hún sé orðin svo stór stelpa. Þá svarar Ingveldur: ,,Ég er tveggja ára."
    Um helgina förum við á ættarmót í fjölskyldu Bjössa og við hlökkum mikið til. Bergur hefur ekki talað um annað en tjaldið alla vikuna. Eftir ættarmótið förum við beinustu leið vestur....gaman, gaman. :)


    14. júlí 2009

    Við erum búin að njóta síðustu daga saman í sumarfríi, sem reyndar byrjaði með þvílíkri bongóblíðu að maður fór inn til að kæla sig niður. Foreldrar mínir eru búnir að taka fram uppblásnu sundlaugina og ef veðrið verður áfram svona býst ég ekki við öðru en að hún verði í garðinu fram að hausti. Bergur og Ingveldur eru alveg jafn spennt fyrir sundlauginni og það þarf eiginlega að neyða Ingveldi upp úr þegar komið er að því að fara heim.
    Við erum búin að plana ferðalög sumarfrísins. Við förum á ættarmót í föðurfjölskyldu Bjössa í lok júlí og þaðan beinustu leið vestur á firði, uppáhaldslandshlutann okkar. Þangað til er planið að vera sem mest í sundlaugunum, hjólatúr eða að gera annað skemmtilegt saman fjölskyldan.
    Ingveldur hefur tekið vaxtarkipp og þykir frekar löng, sérstaklega leggjalöng. Ég keypti t.d. buxur handa henni í númer 98 og þær áttu að vera kvartbuxur, en reyndust vera nánast hnébuxur á henni.


    8. júlí 2009

    Á föstudag er síðasti dagurinn á leikskólanum hjá Bergi og minn í vinnu fyrir sumarfrí. Hann fer þangað á leikskólann í nokkra daga eftir fríið og nær að sýna Ingveldi um.
    Þau láta oft svo fyndna hluti út úr sér. Um daginn vorum við fjölskyldan í hjólatúr og fórum alla leið þangað sem skemmtiferðaskipin eru. Eitt stórt skip var við Skarfagarða og við hjóluðum þar fram hjá. Bergur stoppaði til að laga hjálminn sinn og einn áhafnarmeðlimanna notar tækifærið og smellir af honum mynd. Þegar við hjólum af stað spyr Bergur: ,,Hversvegna er þessi maður að taka mynd af ókunnugu fólki?" Hann gat ekki skilið hversvegna einhver maður sem hann hafði aldrei séð vildi eiga mynd af honum.
    Ingveldur er mikill spekingur. Einn daginn í síðustu viku vorum við úti og hún var í kerrunni. Ég sá hund og sagði ,,Sjáðu Ingveldur! Voffi!" Hún leiðrétti auðvitað móður sína og sagði ,,Nei, hundur." Hvernig datt mér í hug að nota svona smábarnaleg orð við hana. Hún er nú orðin tveggja ára .... hehehehe.
    Litla stelpan okkar er farin að segja nafnið sitt. Hún vildi aldrei segja það og kallaði sig Kalla ef hún var spurð. Ætli hún hafi ekki viljað ná því alveg réttu áður en hún færi að segja nafnið sitt opinberlega. Núna þegar hún er spurð að nafni segir hún hátt og snjallt: ,,Indeddur!"


    25. júní

    Ljósleiðari kominn í gang.
    Nýr eldveggur kominn upp og stilltur, albúmið ætti því að vera orðið aðgengilegt aftur og hraðara.

    Við vorum að skipta um internetþjónustuaðila. Heimasíðan er komin með nýja slóð. ->www.simnet.is/xanthos<- mun því brátt hætta að virka.
    Ný slóð er http://internet.is/xanthos

    B.G.


    24. júní

    Var að færa albúmið yfir á aðra tölvu.
    Gagnagrunnur og myndir eru komin yfir og eru keyrandi á uppfærðu gallery.
    Ef linkarnir til þess að komast inn í albúmið (Myndaalbúm & myndin af okkur) eru ekki að virka. Þá þarftu að reloada" (endurhlaða) síðuna hjá þér.

    Það er gert með því að ýta á "reload" takkann á vafranum eða með því að halda inni "ctrl" takkanum og ýta á "F5" takkann.
    Einnig ætti hraðinn að aukast á myndasíðunni um leið og ljósleiðarinn hérna á heimilinu fer í gang.

    Þeir sem hafa verið að nýta sér vefsvæði hér hjá mér, þá er það ekki virkt eins og er.
    Ætti að vera búinn að færa það yfir í kvöld eða á morgun.

    B.G.


    21. júní 2009

    Ég fór með börnin í nýju Álftaneslaugina í dag. Laugin er mjög flott og rennibrautin enn stærri en hún var á myndinni í blaðinu. Ég fór eina ferð með börnin í henni og var örugglega hræddust af okkur þremur því við fórum svo hratt. Við steyptumst síðan á bólakaf úr rennibrautinni og það fyrsta sem Ingveldur sagði við mig var ,,ekki aftur." Bergur fór því einn aðra ferð, rosalega hugrakkur. Við Ingveldur biðum hans fyrir neðan.
    Þegar við komum upp úr biðu okkar skilaboð frá Herborgu um boð til þeirra í grillaða pizzu. Við stóðumst ekki boðið og borðuðum ljúffengar pizzur í góðum félagsskap.
    Ég setti nýjar myndir á síðuna.


    17. júní 2009

    Hæ hó og jibbí jei og jibbí jei - það er kominn sautjándi júní!!!
    Við fórum auðvitað niður í bæ í skrúðgöngu, börnin fengu blöðru, popp, kandífloss og sleikjósnuð og gátu ekki orðið klístraðri. Bergur fékk líka að hoppa og skoppa í hoppikastala í Lækjargötunni. Við hittum fullt af fólki sem við þekkjum og nokkra sem við höfum ekki séð lengi.
    Um kaffileytið kíktum við snöggvast á Bjössa og Lísu og dáðumst að dóttur þeirra. Ég kíkti síðan örstutt með börnin til foreldra minna í vöfflukaffi og við komum síðan heim tímanlega í grill a la Bjössi. Fullkominn endir á frábærum degi.
    Ég setti nokkrar myndir inn á myndasíðuna.


    14. júní 2009

    Ég fór í dag með börnin að hitta aðra þremenninga úr móðurættinni minni. Við hittumst á Kaffi Flóru í Grasagarðinum, spjölluðum og borðuðum góðan mat. Þó það hafi rignt í morgun var veðrið orðið það gott þegar við hittumst að við enduðum á að borða úti. Þetta var mjög skemmtilegt.
    Ég tók nokkrar myndir og setti nokkrar á myndasíðuna. Aðrar setti ég á Facebook síðuna mína.


    5. júní 2009

    Ingveldur fékk að prófa hjólið hennar Ingu á pallinum heima hjá henni í dag. Hún lærði að hjóla undur fljótt og var strax farin að hjóla sjálf án þess að ég héldi við hana. :)
    Ég setti inn mynd af hreykinni hjólastelpu.


    3. júní 2009

    Bergur útskrifaðist formlega frá Laugaborg í dag og tímamótunum var fagnað í safnaðarheimili Laugarneskirkju. Foreldrar drengjanna komu með brauð og foreldrar stelpnanna komu með kökur. Kokkur leikskólans bauð síðan upp á matarmikla og góða súpu. Krakkarnir tóku lagið fyrir foreldrana og fengu síðan afhentan geisladisk með myndbandi sem tekið var í útskriftarferðinni í síðustu viku. Við horfðum saman á það í kvöld fjölskyldan og skemmtum okkur mjög vel. Þá sem langar til að sjá það eru velkomnir í heimsókn. :) Þetta er virkilega skemmtileg hugmynd að gera svona myndband og við erum mjög þakklát fyrir það. Það verður líka gaman fyrir Berg að eiga þetta þegar hann verður stærri.
    Bergur kom með mér að ná í Ingveldi og á leiðinni tilbaka sagði hann allt í einu. ,,Þórey vill giftast mér en ég vil ekki giftast henni." Ég spurði hann hversvegna ekki en fékk ekkert svar. Þá spurði ég hann hvort Þórey væri skotin í honum og hann neitaði því. ,,Hversvegna vill hún þá giftast þér?" spurði ég þá forvitin. ,,Af því að hún elskar mig."


    1. júní 2009

    Við fórum í eins árs afmæli Rakelar Söru í dag og það var svo gott veður að við gátum setið úti á palli. Þórunn sló sjálfri sér við og var með meistaralega flotta marsípantertu, sem ég fattaði ekki að taka mynd af. Ég náði hins vegar nokkrum myndum af krökkunum og er búin að setja á myndasíðuna.


    31. maí 2009

    Bergi leist eitthvað illa á fiskbollurnar sem voru í kvöldmatinn og sagði: ,,Mamma, þegar þú og pabbi verðið gömul, þá ætla ég að elda handa ykkur kjöt, rófur og gulrætur. Hlakkarðu ekki til?" Einn greinilega að gefa í skyn að það yrði eitthvað betra á boðstólunum ef hann sæi um eldamennskuna.

    Ég fór með Ingveldi á Læknavaktina í gær og hún reyndist vera með sýkingu í hálsinum, sem skýrði útbrotin á hökunni á henni og á bossanum. Hún fékk meðal sem henni þykir sem betur fer gott á bragðið.
    Maí er á enda og á morgun verður Rakel Sara, bróðurdóttir mín, eins árs. Ótrúlegt hvað tíminn líður hratt.


    29. maí 2009

    Ingveldur var heima í dag með flensu. Litla greyið gubbaði í gær eftir að hún kom heim frá Tótu og var sjóðandi heit. Bjössi gaf henni stíl áður en hún fór að sofa, sem náði greinilega að slá niður hitanum því hún var mun hressari þegar hún vaknaði í morgun. Ég var með hana heima fyrir hádegi í dag og saman tókum við leikherbergið þeirra í gegn (ég tók til og hún lék sér með dótið). Við tókum líka smá dans við lögin í Morgunstund KK á Rás 1 í morgun, en Ingveldi finnst gaman að dansa. Bjössi var síðan með hana eftir hádegi.
    Ég skaust úr vinnunni til að ná í Berg og fara með hann heim. Hann fór auðvitað beint út að hjóla með vinum sínum.


    26. maí 2009

    Bergur er núna í útskriftarferð frá leikskólanum og verður á ferðalagi í allan dag. Hann er orðinn svo stór, litli drengurinn okkar. Hann er líka orðinn svo sjálfstæður. Þegar hann kemur heim af leikskólanum fer hann yfirleitt strax aftur út á hjólinu, sem hann getur nú hjólað á án hjálpardekkja. Yfirleitt eru þeir tveir saman í hjólatúr, hann og Gummi. Kannski þeir hjóli samferða í skólann í haust.
    Bergur spurði mig um daginn hvort hann mætti breyta nafninu sínu í Gyrðir (sem er nafn á einum af vinum Tomma Togvagns, sem er í miklu uppáhaldi). Ég sagði honum að ef hann vildi ennþá heita Gyrðir þegar hann fermist, þá megi hann breyta nafninu sínu. Nú er bara að bíða og sjá hvort hann láti verða af því.
    Á morgun verður vorhátíð á leikskólanum en þá gefst foreldrum kostur á að skoða hvað börnin hafa verið að gera yfir veturinn. Foreldrar elstu barnanna eiga að leggja til tvær kökur á kökubasarinn og ég er búin að baka eina franska súkkulaðiköku og ætla að bæta annarri við í kvöld þegar ég er búin að vinna. Ekki datt mér í hug að ég færi í þennan pakka, þ.e. að baka fyrir kökubasar. Fyndið.


    24. maí 2009

    Ég fór með börnin í sund á föstudaginn með Herborgu og hennar börnum. Við fórum í Salalaug, því þar er góð innilaug ef það skyldi vera of kalt fyrir Kristin litla. Á leiðinni þangað hlustuðum við á útvarpið í bílnum og þegar gott lag með Clash byrjaði í útvarpinu hækkaði ég og raulaði með. Allt í einu heyrist í Bergi í aftursætinu: ,,Mamma, ekki giftast þessum manni." ,,Þessum í útvarpinu?" spyr ég og þegar hann jánkar því spyr ég hann afhverju ekki. Þá svarar hann að ég eigi að giftast pabba hans. Þar hafið þið það.
    Veðrið var æðislegt í byrjun vikunnar en á föstudaginn var aðeins byrjað að kólna þannig að við vorum mest í innilauginni. Við Bergur fórum skjálfandi tvær ferðir í rennibrautinni og vorum fegin að komast aftur í innilaugina til hinna. Á leiðinni heim var þögn svolitla stund í bílnum, enda allir dasaðir eftir sundið. Allt í einu spyr Ingveldur litla ,,Eru ekki allir í stuði?" Góð byrjun á helginni.


    21. maí 2009

    Ingveldur er án efa þrjóskasta barn í heima, enda grínumst við með það foreldrarnir að hún hafi þrjóskuna hans Bjössa og ákveðnina mína. Ég var algjör frekjudolla þegar ég var lítil en vona að það hafi elst af mér (að minnsta kosti kannast enginn við það að ég sé frek í dag). Ingveldur neitar að leyfa okkur að hjálpa sér eins og það felist einhver uppgjöf í því að játa að hún geti ekki gert hlutina sjálf. Hún neitar til dæmis að viðurkenna að hún kunni ekki ennþá að renna upp rennilás og að hún sé ekki með það á hreinu hvernig setja eigi spennur í hárið. Hún getur þó gert ýmislegt, eins og að klæða sig sjálf í og úr fötum.
    Ingveldur vill líka hafa stjórn á öllu og öllum og heldur að hún geti ráðskast með okkur þrjú eins og henni sýnist. Hún skipar okkur skammlaust fyrir en lítið er samt um að henni sé hlýtt. Að minnsta kosti vill enginn kannast við það hér.


    20. maí 2009

    Við fórum í Laugarnesskóla í gær á kynningu á starfi skólans. Við komum örlítið of seint því við þurftum að sækja börnin, þannig að við fengum okkur sæti aftast. Bergur var svo lesinn upp og fór með hinum krökkunum að vinna í hópastarfi á meðan við foreldrarnir hlustuðum á fyrirlestra skólastjórans og yfirkennarans. Bjössi þurfti að fara í vinnuna aftur en við mæðgur sátum áfram. Allt í einu byrjar Ingveldur að hósta og áður en ég veit af gubbar hún af miklum krafti. Ég reyndi að snúa henni strax þannig að gubbið færi í gólfið, en mikill hluti af því fór yfir hana og mig. Allir í kring voru snöggir til og sóttu pappír og létu vita þannig að innan skamms voru komnar tvær konur með moppur að þrífa gólfið. Ingveldur var hin rólegasta og var hrósað fyrir það af nálægum foreldrum.
    Í kaffipásunni spjallaði ég við aðra foreldra og komst að því að hér í nálægum húsum búa jafnaldrar Bergs, sem við höfum aldrei hitt því þeir eru á öðrum leikskólum. Skólastjórinn sagði í ræðunni sinni að raðað verði í bekkina eftir búsetu, þannig að bekkjarsystkin búi nálægt hver öðru. Það er mjög skynsamlegt, því þannig ná þau frekar að kynnast og geta þá frekar verið samferða í og úr skólanum.
    Ég hringdi í Bjössa í kaffipásunni og bað hann um að koma með föt handa mér og Ingveldi. Þegar við komum aftur fram í hreinum fötum var Bergur kominn tilbaka. Mig langaði í annan kaffibolla áður en við færum, þannig að ég hellti mér í bolla úr stórum þrýstibrúsa. Bergur komst að brúsanum án þess að ég sæi til og ætlaði að fá sér kaffi, en misreiknaði greinilega fjarlægðina milli brúsans og bollans því hann fékk sjóðandi heitt kaffi yfir litla fingurinn á sér og emjaði eins og hann væri skaðbrenndur. Við fórum og kældum fingurinn en hann var aumur fram á kvöldið, greyið. Þetta slys varð þó til þess að við hittum skólastjórann, yfirkennarann og húsvörðinn í skólanum. Þau voru vingjarnleg og sögðu Bergi að ,,fall væri fararheill." Við skulum vona að það sé satt. :)
    Dagurinn endaði þó á góðum nótum því Siggi kom og grillaði með okkur. Það var orðið ansi langt síðan hann sást hér síðast, enda mjög upptekinn af því að dúxa í skólanum. :)
    Ég setti nýjar myndir í albúmið.


    17. maí 2009

    Það var eins og að vakna í útlöndum þegar við fórum á fætur í morgun. Úti var sól og blíða og fólk úti um allt í stuttbuxum. Við ákváðum því að byrja daginn á því að fara í sund. Það er alltaf betra að fara í sund að morgni til því þá eru ekki jafn margir. Krakkarnir skemmtu sér konunglega. Bergur lék sér í litlu rennibrautinni, því einhverra hluta vegna er búið að fjarlægja þá stóru. Hann er orðinn mjög þorinn og renndi sér á maganum og afturábak. Bergur skemmti sér líka við það að hlaupa yfir göngubrúna og stökkva út í laugina hinum megin. Við fylgdumst auðvitað vel með honum því hann er ekki orðinn syndur, þó hann þykist vera það.
    Bergur og Bjössi slógu garðinn saman, en það er eitt af því skemmtilegasta sem hann gerir með pabba sínum. Við Ingveldur settumst hvor á sinn stólinn í horninu á garðinum og fylgdumst með.
    Við kíktum síðan í kaffi til foreldra minna og fórum aðeins í sólbað á pallinum. Bjössi kaus þó frekar að vera í forsælunni. Daginn enduðum við á því að grilla hamborgara, fyrsti grillmaturinn af vonandi mörgum í sumar.
    Ég setti nýjar myndir á myndasíðuna.


    16. maí 2009

    Dagurinn í dag var mjög skemmtilegur og viðburðaríkur. Við fórum í sannkallað stórfjölskylduferð í Þjóðleikhúsið að sjá Kardimommubæinn í boði foreldra minna. Mjög rausnarlega boðið því í hópnum voru, auk okkar og foreldra minna; Herborg, Inga, Ingvar og Karen. Við skemmtum okkur rosalega vel en eftir leikhúsið þurftum við að rjúka í afmæli til Regínu, sem er fimm ára í dag. Veðrið var mjög gott þannig að meirihluta afmælisins vorum við annaðhvort úti á svölum eða úti í garði.
    Eftir afmælið komu Einar, Elín með Regínu og Herdísi í Júróvísjón partý til okkar. Hingað komu líka Linda og Óskar með krakkana sína og Gummi, barnasegull, sem þurfti að verjast börnunum allt kvöldið, þau sóttu svo í hann. Við pöntuðum pizzur, drukkum bjór og átum snakk. Bergur, Gummi og Regína léku sér úti og nutu þess að fá að vaka lengur en venjulega. Frábær dagur í alla staði.


    12. maí 2009

    Bergur fékk í dag bréf frá Laugarnesskóla þar sem honum og foreldrum hans er boðið að koma og skoða skólann í næstu viku. Við förum að sjálfsögðu með, enda held ég að mamman sé meira spennt fyrir skólagöngunni framundan en sonurinn...heheheh.
    Það er nú annars meira hvað næsti laugardagur verður skemmtilegur hjá okkur fjölskyldunni. Við förum ásamt foreldrum mínum, Herborgu og systkinabörnunum að sjá Kardimommubæinn, okkur er síðan boðið í afmæli Regínu og um kvöldið keppir Ísland í Júróvísjón!! Svaka stuð framundan greinilega.


    11. maí 2009

    Gutti afi á afmæli í dag og við óskum honum til hamingju með daginn!
    Síðustu dagar hafa liðið hjá mjög hratt og enginn tími gefist til að skrifa á heimasíðuna, eða leiðrétta hvimleiða villu sem hékk hérna inni í tæpa viku. Hún hefur nú verið leiðrétt. :)
    Við fengum foreldra mína í mat í gærkvöldi og höfðum það huggulegt yfir fínu glasi af suður-afrísku rauðvíni.
    Eitt skemmtilegt að lokum:
    Ingveldur var að leika sér að því að brölta í sófanum í gærkvöld á meðan við Bjössi vorum að tala saman. Hún stoppaði allt í einu stuttlega, leit á pabba sinn og kallaði: ,,Flottur pabbi!" Hún á eftir að snúa honum í kringum sig, það held ég að sé nokkuð ljóst...hehehehe.
    Ég setti nokkrar nýjar myndir í albúmið.


    5. maí 2009

    Þórunn mágkona sagði um daginn að Ingveldur minnti sig á sögupersónu úr bók eftir Astrid Lindgren. Þá dettur henni helst í hug Lotta, sem kunni víst að hjóla þegar aðrir sáu ekki til, og fleiri hetjur. Mamma segir mikið til í þessu bæði útlitslega auk þess sem Ingveldur sé með ákveðnari börnum. Hún telur sig t.d. vera aðstoðarkonu dagmömmunnar en varla eina af börnunum, enda reynir hún að hafa vit fyrir þeim. Þegar ég sótti hana í dag ætlaði Hugi, einn af strákunum, að ganga niður stigann þegar dagmamman sá ekki til, en Ingveldur togaði létt í hann og sagði honum að þetta mætti hann ekki gera. Síðan gekk hún sjálf hróðug niður stigann af miklu öryggi.


    4. maí 2009

    Ég fór með krakkana í sund í dag í Salalaug í Kópavogi. Bergur byrjaði strax að kafa en Ingveldur ríghélt um hálsinn á mér, alveg logandi hrædd. Klukkustund síðar var hún hinsvegar farin að svamla um ein í handakútum, hæstánægð, á milli þess sem Bergur dröslaði henni fram og tilbaka um laugina. Ingveldur er svo þrjósk að hún neitar að gefast upp, jafnvel þegar hún er jafnhrædd og hún var í dag. Þessvegna var ég viss um að ef hún fengi bara smá tíma til að jafna sig, þá myndi hún verða örugg með sig.
    Gullmoli frá Bergi:
    Til að komast hjá því að vera úti í rigningunni á leikskólanum í dag, sagðist Bergur vera með ofnæmi fyrir rigningu.


    3. maí 2009

    Við fórum í góðan hjólatúr meðfram sjónum í dag. Við keyptum hjólavagn fyrir rúmu ári síðan og börnin sátu saman í honum aftan í hjólinu hans Bjössa. Þessi hjólavagn hefur reynst mjög góð fjárfesting. Það var dálítið rok og súld annað slagið sem gerði hjólatúrinn bara meira frískandi. Við hjóluðum út að Sólfarinu þar sem við stoppuðum og köstuðum steinum í sjóinn, en það er eitt af því sem Bergi finnst skemmtilegast að gera. Á leiðinni heim söng Bergur fyrir okkur Öxar við ána af miklum krafti og fyllti okkur þjóðarstolti, en ekki veitir af á þessum síðustu og verstu. Við tókum slatta af myndum sem við erum búin að setja inn á myndasíðuna. Einnig erum við loksins búin að tæma myndavélina þannig að nýjar myndir eru í nánast öllum möppum frá áramótum.
    Smá gullmoli í lok dags:
    Þegar ég var að kyssa Berg góða nótt datt mér í hug að segja honum frá því að ég hefði séð það í tölvunni minni að það væri kominn annar Bergur Kári. ,,Hvernig er hann á litinn?" spurði hann þá og átti væntanlega við hárlitinn.
    Ég var sem sagt að skoða í Þjóðskránni um daginn og tékkaði á nöfnum barnanna. Þegar við gáfum Bergi nafn var enginn sem hafði nokkurn tíma áður heitið þessum tveimur nöfnum saman, samkvæmt Íslendingabók. Það fannst mér sérstakt. Núna er Bergur kominn með nafna og það finnst honum skemmtilegt.


    1. maí 2009

    Ingveldur er búin að vera erfið alla morgna í þessari viku og verið ósátt við allt sem við höfum viljað klæða hana í og heimtað að fara í kjól. Hún neitaði hins vegar að fara í alla þá kjóla sem henni voru sýndir. Þangað til í gær, þegar henni tókst loksins að sýna móður sinni nákvæmlega hvaða kjól hún vildi fara í. Fröken Ingveldur Birna fór sem sagt í síðkjól til dagmömmunnar í gær, heiðgulum kjól með pallíettum og tjullpilsi. Til að fullkomna lúkkið var hún með sólgleraugu, alpahúfu og í gúmmítúttum með blómamynstri. Rosaleg pæja! Þegar Bjössi sótti Ingveldi til dagmömmunnar var honum sagt að litla krílið hefði verið yfir sig ánægt í kjólnum allan daginn. Ég tók myndir og setti á myndasíðuna, að sjálfsögðu.
    Í dag er fyrsti maí. Það verður spennandi að sjá hversu fjölmenn kröfugangan verður. Ætli það mæti fleiri niður í bæ í dag en fara til að horfa á GayPride gönguna?


    28. apríl 2009

    Ingveldur var ennþá vakandi þegar ég kom heim úr vinnunni í kvöld og kallaði í mig þegar hún heyrði í mér. Hún heimtaði síðan kossa og faðm, sem hún fékk auðvitað. Eftir knúsið skoðaði hún hringana mína og sagði: ,,Fínn hringur. Pabbi er líka með hring." Hún er svo athugul þetta litla krútt. Ingveldur tekur til dæmis alltaf eftir því þegar ég set upp eyrnalokka, kannski af því að ég nota þá sjaldan.


    24. apríl 2009

    Bergur var í fríi á leikskólanum í dag og fór með pabba sínum í vinnuna. Þar var hann þægur og góður, enda finnst honum mjög gaman að vera í pabbavinnu. Ég sótti hann niður á höfn þegar ég var búin að vinna en þar voru þeir feðgar að vinna í skipum Hafró. Bergur kom svo með mér til tannlæknis þar sem hann beið rólegur eftir mér og dundaði sér við að bursta tennurnar í veltenntum froski (sjá myndir).
    Kosið verður til Alþingis á morgun og við ætlum að taka daginn snemma og kjósa áður en ég fer í vinnuna í fyrramálið. Það verður spennandi að sjá hvað kemur upp úr kjörkössunum og hvort leiðtogaumræðurnar í sjónvarpinu hafi snúið afstöðu einhverra.
    Smá gullkorn frá Bergi.
    Leiðtogafundurinn var nýbyrjaður og neðst í hægra horninu var kona á fullu að túlka á táknmáli. Bergur benti á hana og hrópaði: ,,Sjáðu mamma! Barnaefnið er að byrja!" Fyrir þá sem ekki vita þá eru táknmálsfréttir alltaf á undan barnatímanum á virkum dögum.


    20. apríl 2009

    Við fórum í glæsilega fermingarveislu til Svövu Rósar í gær og skemmtum okkur mjög vel. Bergur og Ingveldur voru í miklu stuði og léku sér við frændsystkini sín, Maríu, Tómas Emil og Ingu Matthíasdóttur. Við tókum slatta af myndum, sem eru komnar í albúmið.


    17. apríl 2009

    Þá tíu daga sem liðið hafa frá því við skrifuðum síðast höfum við gert margt skemmtilegt. Við átum yfir okkur af páskaeggjum, fóru í páskakvöldverð til Herborgar og fjölskyldu og í glæsilega fermingarveislu Jónasar frænda.
    Ingveldur bætir stöðugt við orðaforðann. Á skírdag kom hún upp í til mín, faðmaði mig og sagði: Ég elska þig. Algjör rúsína. Hún virðist ekki ætla að slaka neitt á ákveðninni. Allir morgnar í þessari viku hafa hafist á baráttu við Ingveldi, sem vill aldrei fara í það sem búið er að velja á hana. Yfirleitt tekur styttri tíma bara að leyfa henni að velja þetta sjálfri.
    Í kvöld förum við fjölskyldan í matarboð, á morgun förum við sennilega með fleira barnafólki í Öskjuhlíð, Bergur fer í afmæli á sunnudagsmorgun og þaðan með okkur í fermingu Svövu Rósar. Stuð helgi framundan.


    7. apríl 2009

    Herborg kíkti í heimsókn fljótlega eftir að ég kom heim með börnin. Bergur, Inga og Ingveldur voru ekki búin að leika sér lengi þegar Bjartur bankaði upp á og slóst í leikinn. Hér var því fjör og gaman þegar Bjössi kom heim úr vinnunni.
    Á morgun verður líka gaman því þá ætlar Jóhanna, æskuvinkona okkar Herborgar að koma í heimsókn með börnin sín tvö og hitta mig og Herborgu og okkar börn. Við hittumst síðast heima hjá Jóhönnu fyrir rúmu ári og skemmtum okkur við að rifja upp gamlar minningar.

    Við erum búin að setja fullt af nýjum myndum inn á myndasíðuna. Þær eru frá öllum tímum. Margar þeirra tóku foreldrar mínir heima hjá sér; þær myndir fengum við úr þeirra tölvu.


    6. apríl 2009

    Síðasta laugardag skemmtum við fjölskyldan okkur rosalega vel í góðum félagsskap. Um miðjan daginn hittum við Einar, Elínu og dætur þeirra Regínu og Herdísi Ingibjörgu (2 vikna) og Lindu og Óskar og þeirra börn, Karítas, Gumma og Gísla í Laugardalnum. Þar spjölluðum við saman og gengum um í góða veðrinu. Þegar allir voru orðnir kaffiþyrstir buðu Linda og Óskar hópnum heim til sín í kaffi. Við skemmtum okkur svo vel saman að við Bjössi vorum ekki komin heim fyrr klukkan var langt gengin í tólf á miðnætti. Í millitíðinni höfðu þau boðið öllum hópnum í kvöldmat, mjög rausnarlegt fólk. Bergur varð eftir því hann fékk leyfi til að gista hjá Gumma. Ingveldur náði hins vegar að halda sér vakandi allt kvöldið og var orðin svo þreytt undir það síðasta að hún sofnaði í fanginu á mér þegar við gengum heim.
    Við höfum sagt frá því áður hvað Ingveldur er hrifin af dúkkunni sinni. Hún fer ósköp vel með hana og vill að við gerum það líka. Einn daginn þegar við Ingveldur fórum á bílnum út í fiskbúð ætlaði ég að láta dúkkuna standa á milli framsætanna þar sem Ingveldur gæti séð hana. Ingveldur tók það ekki í mál. Auðvitað átti dúkkan að sitja á bílstólnum hans Bergs. Þegar ég ók af stað hrópaði Ingveldur á mig að spenna dúkkuna í öryggisbelti. Ég varð því að gjöra svo vel að stoppa bílinn og spenna á hana beltið. Allt fyrir friðinn og þessa litlu elsku.


    29. mars 2009

    Við náðum að gera ansi margt í dag. Daginn byrjuðum við á því að fara í stuttan göngutúr með krakkana á snjósleðanum. Bergur og Ingveldur dunduðu sér síðan við að mála á plastflöskur þangað til kominn var tími til að drífa sig út í bíl, því ætlunin var að skoða þýska skólaskipið Gorch Foch í dag. Búið var að auglýsa að fólk mætti koma um borð í skipið í dag. Við tókum nokkrar myndir sem við erum búin að setja inn á síðuna.
    Ingveldur klæðir sig núna alveg sjálf í ullarsokka og stígvélin og passar vel upp á það áður en hún fer í stígvélin að fara ekki í krummafót. Hún getur líka klætt sig í buxur og næstum því í úlpu. Rosalega dugleg. Bergur skrifar nafnið sitt mjög vel og greinilega, reyndar uppi um alla veggi.

    Í lokin læt ég flakka fyndna sögu af Bergi. Bjössi fór út á lífið með vinnufélögunum á föstudagskvöldið beint eftir vinnu. Þegar leið að kvöldmat spurði Bergur hvar pabbi sinn væri. Þegar ég sagði honum að hann væri með vinum sínum, svaraði Bergur: ,,Já, ég hef farið á "vanhæf ríkisstjórn!"" Bjössi sprakk úr hlátri þegar ég sagði honum þetta. Drengurinn heldur greinilega að það eina sem pabbi hans geri með vinum sínum sé að mótmæla. Hehehehehe.


    28. mars 2009

    Afi í réttó á afmæli í dag!!! Til hamingju með daginn!!
    Ég var að vinna, eins og venjulega þegar eitthvað skemmtilegt er að gerast, þannig að ég fékk að skjótast örstutt til að óska pabba til hamingju með afmælið. Bjössi kom með börnin og var áfram eftir að ég fór. Það var gott að komast aðeins, þó ekki hefði verið nema stutta stund. Bergur og Ingveldur skemmtu sér auðvitað vel með frændsystkinunum.
    Margt hefur gerst frá því síðast var skrifað á síðuna. Um síðustu helgi fór ég með Lovísu í helgarferð til Nönnu í London. Við stukkum á afmælistilboð IcelandExpress og gistum heima hjá Nönnu. Ferðin heppnaðist mjög vel, eins og við var að búast. Mjög langt er liðið síðan við gerðum eitthvað þrjár saman. Þetta var nánast eins og að vera aftur komin í menntó, en þegar við vorum síðast saman í London vorum við í öðrum bekk og árið var 1996. Hehehehe. Við Lovísa slepptum okkur auðvitað ekkert í búðunum, enda var gengið óhagstætt, heldur gerðum meira af því að skoða markaði og hvíla okkur annað slagið inni á pöbbum yfir einum köldum. :) Við vorum líka menningarlegar (haha) því við fórum og sáum Grease (við fengum miða á kostakjörum og sátum í röðinni sem var lengst frá sviðinu, alveg uppi í rjáfri, en skemmtum okkur mjög vel.
    Það hefur verið á dagskránni lengi að fara saman tvö ein í helgarferð. Vonandi gefst okkur tækifæri til þess sem fyrst. Nema að það verði fyrr af strákaferðinni sem Bjössi og vinir hans verið með á prjónunum ansi lengi.


    10. mars 2009

    Hlaupabólan virðist vera að ganga yfir. Kremið hefur náð að þurrka vel upp bólurnar og engar nýjar bólur virðast vera að spretta fram. Við sjáum því fram á að geta haldið upp á afmælið hennar næsta sunnudag, fólk getur allavega frekar gert ráð fyrir því að veislan verði þann daginn. Undirbúningurinn krefst mikillar skipulagningar því ég verð bæði að vinna á föstudag (kl.8-20) og á laugardag. Ef við höldum ekki upp á afmælið á sunnudag þá þurfum við að bíða með það fram til síðustu helgarinnar í mánuðinum því þarnæstu helgi fer ég í stutta helgarferð til London með Lovísu. Við ætlum loksins að láta verða af því að fara að heimsækja Nönnu.
    Bergur var á þriðjudaginn var hálfan daginn í grunnskólanum. Núna virðist skólinn ekki lengur jafn ógnvekjandi og hann segist hafa skemmt sér vel. Hvað ég vildi hafa verið fluga á vegg í skólastofunni. Bergur litli grunnskólanemi - ekki langt að bíða.

    Smá viðbót: Rétt í þessu var Ingveldur að segja: Takk fyrir mig mamma! Hún er mjög kurteist barn...hehehehe. Hún er líka byrjuð að segja Guð hjálpi þér þegar einhver hnerrar. Mjög sætt.


    6. mars 2009

    Mamma: Ertu búin að kúka Ingveldur?
    Ingveldur: Nei, bara prumpa.
    Hún er orðin svo skýr þessi litla elska. Hún meira að segja lætur vita þegar hún þarf nýja bleyju. Þá skríður hún upp í sófa og leggst á bakið. Minnir svolítið á Berg.
    Ég sá fyrstu hlaupabólurnar í andliti hennar í morgun, þannig að ljóst er að ekki verður af afmælisveislunni á sunnudag. Við erum ekki viss um meðgöngutímann, þannig að ætli það sé ekki best að fresta veislunni fram að mánaðamótum til öryggis. Yngsta barnið hjá Tótu, hann Bjarni litli, sem er rétt innan við eins árs, hefur verið heima með hlaupabólu í tæpar tvær vikur. Þannig að Ingveldur er annað barnið til að smitast í hópnum. Tímasetningin er að minnsta kosti góð því ég er í fríi á mánudag og get þá verið með henni. Við skulum vona að þetta gangi hratt yfir og án þess að hún finni mikið fyrir þessu greyið.


    4. mars 2009

    Ingveldur Birna er 2 ára í dag!!! Ótrúlegt en satt.
    Litla dúllan okkar er byrjuð að tala út í eitt (þó foreldrarnir og Bergur skilji kannski best það sem hún segir), hún kann að hoppa, kyssa og segja ,,r" í ákveðnum orðum, eins og ,,eyra" og ,,Dóra" (Dora the explorer). Hún er líka komin með æði fyrir Hello Kitty.


    1. mars 2009

    Við kíktum á bókamarkaðinn í Perlunni í dag en hættum við að skoða því það voru svo margir þarna. Í staðinn fórum við upp á útsýnispallinn og fórum í túristagírinn, tókum myndir á milli þess sem krakkarnir hlupu hringinn. Þaðan fórum við til foreldra minna og komum rétt mátulega í nýbakaða skúffuköku og æðislega döðlutertu. Þvílík tímasetning!!
    Ég var að setja inn nýjar myndir. Þar á meðal myndir af krökkunum á öskudaginn. Þá sótti ég krakkana snemma og fór með þau í IKEA, því mér sýndist að þar væri eina dagskráin sem gerði ráð fyrir að foreldrar kæmust með börnin sín eftir vinnu. Þar fékk Bergur tækifæri til að slá köttinn úr tunnunni og börnin sátu fyrir á skemmtilegri öskudagsmynd. Ég ætla að fá að skanna hana inn í vinnunni og setja hana síðan á myndasíðuna.


    24. febrúar 2009

    Ég fór með börnin í saltkjöt og baunir til foreldra minna í kvöld en Bjössi þurfti að vinna lengur. Þórir bróðir, Ingvar og Karen voru líka í mat, þannig að það var mikið fjör.
    Á leiðinni heim var ég að segja frá Bergi frá því að Inga frænka hans hefði verið að kaupa fyrir hann gallabuxur í Ameríku. Eftir stutta þögn, spurði Bergur: ,,Er Inga að kaupa handa mér gamlar buxur?"
    Ég var að setja inn myndir sem ég fékk hjá foreldrum mínum en þær voru teknar á síðustu þremur árum eða svo. Til að skoða þær þarf að velja nýjustu myndir (last uploads).


    23. febrúar 2009

    Amma í Svíþjóð á afmæli í dag - Til hamingju með daginn, vonandi hefurðu það gott í dag! Ég fór í morgun og sendi afmælisgjöfina út. Við vorum sein að senda gjöfina af óviðráðanlegum ástæðum sem ekki er hægt að segja frá án þess að kjafta frá gjöfinni... Það er skemmtilegt að segja frá því að þegar ég ók síðan frá pósthúsinu var sænskt lag í útvarpinu.
    Ingveldur er búinn að taka upp nýja stæla, þ.e. að segja ,,hey!" áður en hún bendir á hitt og þetta. ,,Hey! Skór!" ,,Hey, Bergur" osfrv. Það fer kannski að líða að því að hún fari að taka lagið Hey með Pixies!
    Ég fékk boðsmiða á frumsýninguna á Kardimommubænum á laugardaginn og tók Berg með mér. Þar vorum við ásamt forseta Íslands og svokallaðri ,,elítu" landsins, sem gerði leikhúsferðina enn fyndnari en hún hefði annars verið. Okkur Bergi fannst leikritið mjög skemmtilegt. Sérstaklega þegar ræningjarnir komu hlaupandi framhjá okkur niður tröppurnar, en við vorum alveg við ganginn. Bergi fannst líka mjög fyndið þegar Jónatan smakkaði á sápunni og var á sætisbrúninni alveg að drepast úr spenningi þegar kviknaði í turninum hans Tóbíasar. Uppselt er á sýninguna út maí, en þá ætlum við að fara aftur með foreldrum mínum, Herborgu og kannski Þóri. Bjössi ætlar að koma með í það skiptið. Verst að ég fékk bara tvo boðsmiða, það hefði verið gaman að fara öll. Kannski við tökum Ingveldi með líka.
    Eftir leikhúsferðina fórum við Bjössi með krakkana heim til foreldra minna en þar áttu þau að sofa um nóttina. Upphaflega planið var að halda partý, en þegar til kom reyndust flestir vinir okkar veikir, erlendis, óléttir eða með önnur plön. Partýinu var því frestað en í staðinn höfðum við það huggulegt bara tvö. Við fórum út að borða og í bíó. Mjööööög langt síðan við höfum gert eitthvað saman bara tvö og algjörlega nauðsynlegt að gera þetta annað slagið.
    Daginn eftir fórum við að sækja börnin en enduðum á að vera nánast frá hádegi og framyfir kvöldmat hjá foreldrum mínum. Við hámuðum í okkur rjómabollur og borðuðum síðan öll saman kvöldmat. Mjög góð helgi!


    20. febrúar 2009

    Hann Bergur okkar uppgötvaði óhugguleg útbrot á mittinu á sér í vikunni. Ég pantaði tíma fyrir hann hjá lækni sem eftir stutta skoðun úrskurðaði að þetta væri ,,ristill." Slík útbrot orsakast af því að erfðaefni hlaupabólu er enn í líkamanum og eru algengari hjá öldruðum. Læknirinn sýndi mér að útbrotin tengjast taug sem útskýrir hversvegna hann finnur svona til í útbrotunum, litla greyið. Hann lét mig kaupa krem og verkjalyf og nú þurfum við bara að bíða og sjá hvort útbrotin fari ekki.


    12. febrúar 2009

    Þó það sé aðeins einnar gráðu frost í dag er mjög kalt og ekki spennandi að vera mikið úti við. Þessvegna leyfði ég krökkunum að horfa á Póstinn Pál þegar við komum heim í dag. Þetta er náttúrulega þáttur sem ég horfði á þegar ég var krakki þannig að ég gat ekki annað en raulað með upphafslaginu. Eða réttara sagt reyndi það því ég var búin að syngja tvær línur þegar elskulegur sonur minn krafðist þess að ég hætti því. ,,Mamma, lofaðu að syngja ekki með." Ég er greinilega stórsöngkona, eða þannig.
    Tveir vinnudagar eru eftir í vikunni hjá mér því ég þarf að vinna á laugardaginn líka þó ég hafi verið að vinna um síðustu helgi. Það er vegna þess að ég byrjaði á nýju vaktaplani á mánudag og það er til mikilla bóta. Nú er ég aldrei að vinna lengur en til hálf níu á kvöldin og aldrei á sunnudögum. En þar sem ég er að vinna á laugardaginn verður ansi léleg mæting héðan í afmælin sem verður haldið upp á þennan dag. Haldið verður upp á afmæli Ingu og Kristins, barna systur minnar og síðan heyrðum við af því í gær að okkur væri líka boðið í afmæli Ingu hennar Hrafnhildar sem haldið verður þann dag á sama tíma.
    Síðan fer að styttast í að litla Ingveldur okkar verði tveggja ára, ótrúlegt en satt. Hún er meira að segja nærri búin að ná því hvernig á að bera fram err, nokkuð sem ekki öll börnin á deildinni hans Bergs eru búin að ná. Hún segir til dæmis Dóra (í Dora the explorer teiknimyndinni - sem hún er mjög hrifin af án þess að hafa séð einn einasta þátt) og eyra með fínu err-hljóði. Hún verður líka færari í að gera sjálfa sig meira skiljanlega með hverjum deginum. Núna í kvöld kom hún til dæmis til mín og sagði: ,,Ég vil fá sokka" alveg jafn skýrt og það er skrifað. Hún babblar auðvitað líka stundum eitthvað óskiljanlegt, enda ekki orðin tveggja ára, en hún er sérlega skörp stelpa.
    Hún hefur líka mjög sterkar skoðanir á því hvaða fötum hún er í. Alla vikuna hefur Bjössi þurft að berjast við hana því hún hefur verið ósátt við það sem hann hefur valið á hana. Helst af öllu vill hún velja fötin sín sjálf. Henni finnst meira að segja gaman að skoða föt í búðum.
    Ég var að setja inn fullt af nýjum myndum og reyndar eldri myndum líka.


    11. febrúar 2009

    Inga, dóttir Hrafnhildar og Matta, á eins árs afmæli í dag. Til hamingju með daginn! Af því tilefni fórum við Bergur og Ingveldur heim til þeirra með pakka en þau voru því miður ekki heima. Þau voru sennilega á leið heim úr vinnu. Nágranni þeirra var allavega svo almennilegur að hleypa okkur inn svo við gætum hengt pakkann á hurðarhúninn. :) Vonandi líkar henni pakkinn.
    Á leiðinni sagði ég Bergi að við áttum einu sinni heima í hverfinu. Það fannst honum skrýtið. Þegar ég spurði hann hvort hann vildi að við byggjum ennþá í þessu hverfi sagðist hann ekki vilja það. Ástæðan? Allur morgunmaturinn er heima. :)
    Önnur góð af Bergi. Ég kalla hann oft hjartað mitt þegar ég er að knúsa hann og segja honum hvað hann er nú frábær. Um daginn svaraði hann: ,,Mamma, ef ég er hjartað þitt, þá er ég slímugur." Ég hugsa að ég noti önnur orð yfir væntumþykju framvegis....hehehehe.
    Ingveldur heldur áfram að vera jafn ákveðin og alltaf. Þrjóskan virðist líka vera að aukast og hún virðist ófær um að viðurkenna að hún hafi rangt fyrir sér. Hún er til dæmis búin að telja sjálfri sér trú um að hún geti reimað húfuna á sig og rennt upp úlpunni. Þrautalendingin er oft að láta Berg renna fyrir hana upp úlpunni því hún neitar að gefast upp. :) Hún er líka óð í hverskyns sósur, sem getur verið mjög fyndið. Það er sama hvað við setjum mikla sósu á diskinn hennar, alltaf biður hún um meira. ,,Meiri sósu!!"


    9. febrúar 2009

    Við ákváðum að það væri best að halda Ingveldi heima í dag því hún hefur verið svo kvefuð. Hún var líka heima í gær en fer til Tótu á morgun. Síðdegis náðum við að leggja okkur saman mæðgurnar og höfðum báðar gott af því.
    Í hvert sinn sem við sækjum Berg á leikskólann hefjast samningaviðræður á milli strákanna því allir vilja fara eitthvað í heimsókn. Bergur fékk að fara í heimsókn til Ísaks eftir leikskólann í dag og Ronja er búin að panta að fá hann í heimsókn á morgun.
    Bergur fór í bekkjarmyndatöku nýlega á leikskólanum og þá voru teknar passamyndir í leiðinni. Allt í einu uppgötvuðum við að passamyndirnar voru horfnar. Bergur var efstur á lista grunaðra um að láta myndirnar hverfa, en hann hefur neitað því staðfastlega. Við viljum auðvitað eiga passamynd af honum og þessvegna hringdi ég á ljósmyndastofuna og pantaði nýjar myndir.


    5. febrúar 2009

    Ég tók mér loksins tíma í að læra að setja myndir inn í myndaalbúmið og er búin að setja slatta af nýjum myndum inn.


    2. febrúar 2009

    Jæja, þá er kominn febrúar og við mæðgur erum hér tvær einar heima. Bergur fékk að fara heim með Einari Sveini, en mamma hans bað um að fá að taka hann með sér heim. Ágætt þegar barnið manns er svona eftirsóknarverður félagsskapur.
    Ingveldur er alltaf að bæta við orðaforðann og er núna fær um nokkrar langar setningar. ,,Ég vil fá svona" ,,Ég vil fá líka, ég vil lesa bók, ég vil drekka, ég vil fá glas, ég vil borða, má ég fá? og margar aðrar. Hún notar með öðrum orðum persónufornafn um sjálfa sig, sem sennilega skrifast á að hún á erfitt með að segja nafnið sitt. Það kemur allt saman. Hún er mjög klár, sjálfstæð og lætur sko ekki vaða yfir sig. Ef einhver þykist ætla að stjórna henni eða rífa eitthvað af henni er hún fljót að svara fyrir sig.


    26. jan 2009

    Til hamingju Íslendingar.
    Sú stjórn sem hafði að sjónarmiði einkavinavæðingu á kostnað almennra hagsmuna er fallin.

    B.G.


    22. janúar 2009

    Ég er orðlaus yfir því fylgi sem Framsóknarflokkurinn virðist vera að fá nú í skoðanakönnunum.
    Er fólk virkilega svo fljótt að gleyma því sem þessi flokkur hefur gert. Heldur fólk virkilega að sonur eins mesta spillingarkonungs í sögu framsóknarflokksins hafi eithvað nýtt fram að færa og geti kallast "nýtt blóð" eða "endurnýjun".

    Hér er smá listi yfir "afrek" Framsóknarflokksins svona til upprifjunar.

    .
    .
    .

    Eftir atburði næturinnar þar sem ofbeldisfólk og ólánsseggir sem voru að mæta á mótmæli til þess eins að skapa óróa og æsa upp fólk þá rakst ég á þetta:

    -------------------------------------
    "Engin mótmæli föstudagskvöld eða laugardagskvöld. Látum ekki djammmenninguna blandast mótmælunum og byltinguna blandast fylleríi.

    Látið ganga sem víðast."

    Siggi pönk
    -------------------------------------

    sjá nánar hér
    B.G.

    p.s.
    Lét loks verða af því að stilla eldvegginn(eftir smá spark) svo að albúmið er aftur orðið aðgengilegt.


    16. janúar 2009

    Mánuðurinn hálfnaður og lífið gengur sinn vanagang. Reyndar eru börnin ennþá svolítið morgunsvæf en þau höfðu góða afsökun í morgun. Í gær fórum við nefnilega í mat til Einars, Elínar og Regínu og skemmtum okkur mjög vel. Við vorum ekki komin heim fyrr en klukkan var langt gengin í tólf. Bæði Bergur og Regína heimtuðu að fá að gista saman og þau fá það örugglega þegar þau verða stærri. Elín er komin með mjög myndarlega kúlu og það gæti farið svo að barnið fæðist á afmælisdaginn hennar Ingveldar. Afmælin verða að minnsta kosti á svipuðum tíma.
    Við höfum auðvitað gert ýmislegt frá því skrifað var síðast á síðuna, en þegar líður svona langt á milli er erfitt að setja sig í stellingar og rifja upp. Læt ég þetta vera til áminningar fyrir okkur svo við verðum nú duglegri að skrifa. Við erum með fullt af myndum á myndavélinni sem ég vona að rati inn á síðuna á næstu dögum.


    6. janúar 2009

    Börnin eru enn á hátíðartíma, ef svo má að orði komast. Það er engin leið að draga þau á fætur á skikkanlegum tíma. Við erum í fyrsta lagi komin út á leikskóla klukkan tíu. Í morgun var sérstaklega erfitt að vekja fröken Ingveldi. Þegar hún loksins rumskaði, settist hún upp og sat nokkra stund með lokuð augun. Þegar ég tók hana fram úr og yfir í hjónarúmið þá skreið hún bara undir mína sæng og þóttist ætla að halda áfram að sofa þar. Hún fékk það þó ekki greyið. Börnin geta þó verið ánægð með að þessa vikuna er ég á kvöldvakt þannig að það er ekkert stress á heimilinu á morgnana. Allt ætti að vera komið í eðlilegt horf í næstu viku.
    Í gær var frí hjá Bergi á leikskólanum. Hann eyddi deginum í vinnunni hjá pabba sínum og fékk að fara með honum í eitt rannsóknarskipanna. Bergur var að sjálfsögðu klæddur eins og sjóræningi og fékk að setjast við stýrið eins og alvöru skipstjóri. Þetta fannst honum auðvitað stórskemmtilegt og fer með bréf um ævintýrið á leikskólann á morgun.


    2. janúar 2009

    Gleðilegt ár!!!! Nú er árið 2008 liðið í aldanna skaut og aldrei það kemur tilbaka. Sem betur fer...heheheh.
    Framundan er stórár hjá fjölskyldunni. Í haust byrjar Bergur Kári í grunnskóla og þá verða líka 10 ár liðin frá því við Bjössi kynntumst. Að hugsa sér. Við Bjössi vorum einmitt að tala saman um þetta í gær og okkur finnst árin hafa flogið hjá, enda höfum við skemmt okkur vel saman. Tólfti september er okkar dagur. Þann dag byrjuðum við saman og þann dag trúlofuðum við okkur ári síðar og þremur árum eftir trúlofunina fæddist Bergur á þessum degi. Við höfum samt ekki hugsað okkur að gifta okkur þennan dag. Ætli við tökum ekki einhvern annan dag í það.
    Við lentum í vandræðum með Ingveldi í dag því pössunin datt upp fyrir. Ég var því heima með hana fyrir hádegi og reyndar Berg líka því við fórum svo seint á fætur að við vorum ekki komin út á leikskóla fyrr en klukkan hálf tólf. Síðan er ég svo heppin að eiga góða mömmu af því hún tók sér frí eftir hádegi til að hafa Ingveldi hjá sér. Ingveldur skemmti sér vel í eltingarleik með ömmu sinni og annað skemmtilegt. Bjössi og Bergur sóttu hana svo á leiðinni heim af leikskólanum.
    Á morgun förum við í fjölskylduboð í Laugarneskirkju. Það jólaboð var áður alltaf á jóladag en síðustu tvö árin hefur það verið í kirkjunni eftir jól.