Vetrarheims kattarækt - Vetrarheims cattery
Vetrarheims ræktunin er staðsett í Reykjavík á Íslandi og er í eigu lítillar fjölskyldu, við heitum Vilma, Sesselía og Leó. Við höfum verið virkir félagsmenn í Kynjaköttu, kattaræktarfélagi Íslands, síðan 1994. Við erum einnig stofnfélagar og mjög virk í Skógarkattaklúbbi Íslands, sem var stofnaður árið 2000.
Köttum frá okkur fylgir ættbók frá Kynjaköttum. Heilbrigðisvottorð útgefið af dýralækni, auk þess sem kettlingarnir hafa verið bólusettir og ormahreinsaðir. Kettlingarnir yfirgefa ekki heimilið fyrr en í fyrsta lagi 12 vikna. Ættbókin frá Kynjaköttum sýnir forfeður kattarins, lit hans, nafn, skráningarnúmer og ræktanda. Ættbókin er trygging fyrir því að um hreinræktaðan kött sé að ræða, en aðeins er hægt að fá skráða ættbók fyrir kettlinga ef báðir foreldrar hafa fullgilda alþjóðlega ættbók.
Kynjakettir eru aðilar að FIFe, alþjóðlegum ræktunarfélgi og fylgja ströngum skráningar og ræktunarreglum þeirra. Þá gefur FIFe einnig út ákveðna staðla um útlit katta. Allir félagsmenn Kynjakatta verða að fylgja reglum FIFe, sem settar eru með það að leiðarljósi að rækta heilbrigða ketti og stuðla að því að vernda ræktunarketti. Eftirlit með ræktun og reglur sem koma í veg fyrir ofnotkun ræktunardýra eru stór kostur þess að vera í ræktunarfélagi.
Skógarkattaklúbbúr Íslands er áhugamannaklúbbur eigenda Norskra skógarkatta. Klúbbmeðlimir þurfa ekki að vera félagsmenn í Kynjaköttum, það er nóg að elska tegundina Norska skógarketti. Klúbburinn er rekinn án allra hagnaðarsjónarmiða og er innganga öllum að kostnaðarlausu. Klúbburinn rekur öfluga heimasíðu þar sem reglulega eru birtar greinar tengdar kattahaldi, öll got klúbbmeðlima eru auglýst og hægt er að skoða myndir af öllum skógarköttum á Íslandi. Þá er einnig á síðunni skemmtilegt spjallsvæði þar sem hægt er að hafa samband við aðra kattaeigendur.
Kattarhald og ræktun er aðaláhugamál okkar. Við reynum að vera virk í félagsstarfi bæði Kynjakatta og Skógarkattaklúbbsins, enda er mikið um að vera á báðum stöðum og við höfum að kynnast fullt af skemmtilegu fólki þar. Við sækjum einnig sem flestar kattasýningar Kynjakatta með kettina okkar, en þær eru hápunktar ársins. Á kattasýningunum safna kettirnir sér stigum uppí titla og keppa innbyrðis eftir flóknum reglum.
Haustið 2005 fór hluti af Skógarkattaklúbbi Íslands til Svíþjóðar og Noregs til að kynna sér kattarækt þar og einnig til að fara á stóra alþjóðlega kattasýningu. Við kynntumst dásamlegu fólki í Svíþjóð sem tók sérstaklega vel á móti okkur og fræddi okkur um ræktun þar. Ferðin var okkur ómetanleg og við munum örugglega minnast hennar með gleði um ókomna tíð.
Kettirnir okkar eru stór hluti af lífi okkar og eru meðlimir í fjölskyldunni. Þeir fá að njóta sín sem einstaklingar, og eru ekki hafðir í búrum. Aðeins Mía fær að fara laus útí garð, en við erum ekki hlynnt lausagöngu katta og förum því út með hina kettina í beisli. Já, kettir geta lært að fara í beisli! En þeir vekja venjulega athygli, stígsporandi um í beislum. Þær hafa allar mismunandi skapgerð og því reynum við að koma sem mest á móti þörfum þeirra. Endilega kíkið við á síður þeirra og kynnist þeim betur.