Í minningu

GIC. Vintergæk Felis Jubatus

Fædd 09.09.1994
Látin 2002
Litur / EMS Hvít / NFO w
Kyn Læða
Titill Alþjóðlegur stórmeistari (GIC)

Vintergæk fluttist til okkar frá Danmörku. Hún var einstök, bæði í útliti og einnig sem einstaklingur. Hún var skjannahvít með falleg ljós blá augu, sem er mjög sjaldgæft fyrir heyrandi ketti. Hún var mjög sjálfstæð og ákveðin dama, höfum aldrei kynnst öðrum eins persónuleika. Vintergæk tók uppá alls konar hlutum (t.d. standa uppá bakinu á fólki á meðan skipt var á kasanum sínum) og vildi alltaf hafa hlutina eftir sínu höfði. Hún er ættmóðir allra hvítra skógarkatta á Íslandi og var einstaklega góð móðir.

Vintergæk skipaði stóran sess í fjölskyldunni okkar og við söknum hennar mikið.

 

Eva

Fædd ekki vitað
Látin 2005
Litur Skærgul
Kyn Kvenkyns
Tegund Gári

Eva ákvað sjálf að flytja til okkar, við fundum hana á bílastæði við Smáralind og tókum hana með okkur heim. Þrátt fyrir leit fundum við ekki hennar fyrra heimili - og henni virtist líða vel hjá okkur svo hún flutti inn. Eva var hið mesta "glæfrakvenndi" og lenti í ýmsum ævintýrum. Trúls og Gabríel elskuðu hana báðir og gerðu ýmislegt til að vinna ástir hennar. Eva var snillingur að brjótast útúr búrinu og lenti einu sinni í orðsins fyllstu merkingu í klónum á Míu. Þrátt fyrir að slasast þónokkuð við það, náði hún sér á strik aftur og við trúum því að hún hafi verið orðin háöldruð þegar hún lést. Hún náði svo sannarlega að setja sinn svip á heimilið og það er tómlegra án hennar.

 

Doffý

Fædd 2003
Látin 2005
Litur Hvít og svört
Kyn Kvenkyns
Tegund Kanína

Doffý var skemmtileg kanína. Henni fannst gaman að leika við kettina og hoppa um hvort sem var á stofugólfinu eða útí garði. Hún og Millie náðu vel saman, en enginn elskaði Doffý samt jafnmikið og Vetrarheims Atlas, hann svaf hjá henni sem kettlingur og eyddi löngum stundum í að þvo henni um eyrun. Doffý átti lítið beysli eins og kisurnar sem hún notaði oft þegar hún fór út í garð að leika. Því miður lést hún alltof ung eftir stutt en erfið veikindi, það var sorgarstund þegar við þurftum að kveðja hana, en í staðin minnumst við litlu hoppana hennar um stofuna.

 

Fjöður

Fædd árið 2000
Látin árið 2007
Litur Bláyrjótt
Kyn Kvenkyns
Tegund Gári

Fjöður flutti til okkar árið 2004 ásamt sambýlisfugli sínum, honum Gabríel. Fjöður var frekar feiminn fugl og svolítið til baka. Enda fékk hún kannski ekki alveg að njóta sín innan um hina ærslabelgja-fuglana okkar. Hún var róleg - en tók nú samt stundum undir stórsöng "strákanna"