Ibiza 2004
Ég og Vífill fórum frá Benidorm
á afmælisdeginum mínum 5.ágúst :) kl. 7-8 um morguninn,
Fyrst fórum við í leigubíl uppá lestarstöð og svo þaðan í lest til bæjarins
Denia.
Man ekki alveg hvað lestaferðin tók langan tíma en það var kannski 1 - 1
½ klst en þar beið
okkar stærðarinnar og flott ferja...Herjólfur hvað ?!?
Ferjan fór frá Denia kl. 11:00
og tók ferðin með ferjunni um 2 tíma og vorum við að deyja því
okkur hlakkaði svo mikið til að sjá Tiesto og Paul Van Dyk að spila á Amnesia!
:)
Og svo líka að hitta Ástmar og Gunnhildi en þau komu frá Mallorca til að sjá Paul Van Dyk og Dj Tiesto.
Þau vissu reyndar ekki að
Vífill væri að koma því upphaflega ætlaði Stebbi Orlandi að koma en
hann var þreyttur og hefði ekki meikað allt þetta djamm og svefnleysi :)
Já við fórum þangað spes ferð
til þess að sjá besta dj-ana í heimi, Dj Tiesto valinn besti DJ-inn
síðustu 3 ár og Paul Van Dyk búinn að vera í topp 5 síðustu árin og ekki var það
leiðinlegt að ég átti afmæli þennan dag!!!
BARA snilld! :)
Var þessi ferð geðveikislega
skemmtileg og ég ætla að reyna að fara þangað aftur
einhvern tímann
á næstu árum.
Það er svo mikið sem ég gæti
sagt frá hvað gerðist bara á þessum 24-30 tímum sem
við vorum á Ibiza og á leiðinni heim þannig að ég ætla bara að skrifa svona
"glósur" :)
- sumir voru vel í glasi
aðrir meira
einhvern gaur settist í
tröppurnar við hliðina á okkur á
Amnesia og tók
upp skóinn sinn og tók úr
honum nokkrar töflur og fór svo
sumir héldu að við áttum að
flýta okkur á Privilege til að geta náð rútunni til að missa ekki
af ferjunni tilbaka til Denia
Privelege er stærsti klúbburinn í heimi
ég og Vífill vorum á Privilege í 5-10 mín.
einhver spánjóla skrattadjöfull tók utan um mig! sjá mynd neðar á síðunni...
Vífill bullaði all svakalega í Englendingum sem við hittum á leiðinni á Privilege
Vífill bullaði enn meira (á dönsku) við Danina sem við hittum í rútunni á leiðinni á Amnesia
Ástmar missti myndavélina mína á einhverjum bar á Ibiza!
sumir héldu að ég væri Spánverji og bulluðu við mig á spænsku
sumir reyndu að sofna á steinsteyptri stétt
einhverjir áttu mjööög lítinn pening eftir
ég og Vífill gátum splæst saman í lítið Snickers og 2 lítra vatnsflösku :)
einhverjir voru eins og
rónar að leita að peningum í Denia á meðan
það verið að bíða eftir lestinni
þurftum að bíða eftir lestinni í laaangan tíma
Lag með Dj Tiesto LIVE á AMNESIA...hlustiði á
stemmninguna!! :)
--->
Tiesto Live at Amnesia 05-08-2004
<--- LAG
Video frá skemmtistaðnum AMNESIA á IBIZA!!!
ÝTTU
HÉR
TIL AÐ NÁ Í ÞAÐ!!!! :)
<---
VIDEO

Úff!!! Þvílíkar gellur frá skemmtistaðnum Pacha að auglýsa :)
Ég í góóóðum fíling á afmælisdeginum :)
Sjáiði kroppinn á henni! ;)

Vífill,Ástmar og Gunnhildur á IBIZA!! :)
Ég,Vífill og Gunnhildur á San Antoni ströndinni á Ibiza

Á skemmtistaðnum Amnesia á Ibiza

Ekki mikið pláss þarna..."frammi" voru um 2 þús.
manns

Smá lasershow í gangi á Amnesia :)

Geislinn græni...
Reykmaskínan farin í gang! Massíf stemmning þegar það kvikindi fór í gang :)

Sko, það gera þetta margir! :)

Vífill í góðum gír á Privilege

Eins og þið sjáið að þá var ég mjög hissa þegar
einhver Spánverji kom
og vildi vera með í myndatökunni! Tekið á Privilege.

Á leiðinni tilbaka til Benidorm (Denia)

Ég á leiðinni heim frá Ibiza...váá það sem maður var þreyttur!
Kl. er þarna 17:06 þann 6.ágúst...
Hérna fyrir neðan eru nokkrar myndir sem ég fann á netinu sem teknar eru af
Amnesia! :)

Massíf stemmning! Flott ljósashow í gangi...

Þar sem þessi bláu ljós eru, eru DJ-arnir að spila

Tekið af Cream kvöldi. Við fórum einmitt á svoleiðis :)

Tiesto og Paul Van Dyk spiluðu á Cream kvöldunum í fyrra....kannski aftur í ár
:)

Alltaf pakkað á Cream kvöldunum.

Stemmari!! :)

Flott ljósashow

Enn og aftur flott ljósashow!