Saga
Schnauzer kemur upprunalega frá Þýskalandi og dregur nafn sitt af þýska orðinu "schnauze" sem þýðir trýni. Fyrr á tímum var hann notaður til að veiða mýs og önnur nagdýr á bóndabæjum í suðurhluta Þýskalands. Virðing hans jókst þegar hann fluttist til kastala aðalsins til að vernda kóngafólkið fyrir meindýrum og hafa sést myndir af honum á frægum málverkum. Dverg schnauzer er ræktaður út frá standard schnauzer og er talið að affenpincher og poodle séu þær tegundir sem notaðar voru til að ná þeim árangri að minnka hann. Í dag er dverg schnauzer fyrst og fremst tryggur fjölskylduhundur og hefur veiðistyrkur hans snúist upp í tryggð og hollustu við manninn.
Líkamsbygging og feldur
Dverg schnauzer er kröftugur og vöðvastæltur hundur. Hann er næstum kassalaga þar sem lengdin samsvarar hæð hans. Samræmi í byggingu skiptir meira máli en litur og aðrir fegurðareiginleikar. Hann er stór hundur í litlum líkama og er oft hugrakkari en margar aðrar stærri tegundir. Stærð hans er 30 - 35 cm á herðakamb og þyngd 4,5 - 7 kg. Litaafbrigðin eru salt/pipar, einlitur svartur, svartur/silfraður og einlitur hvítur. Dverg schnauzer er með dökk brún augu, augabrýr sem teygja sig fram á trýnið, þéttan, grófan feld á baki og niður á læri, mjúk hár á fótum og skegg sem nær frá augum og fram á trýni. Einn af hans helstu kostum er að hann fer ekkert úr hárum, en það þarf að reyta hann og snyrta að minnsta kosti 3 – 4 sinnum á ári. Það ætti alls ekki að klippa eða raka feldinn, þá missir feldurinn þá eiginleika sem ætlaðir eru fyrir tegundina. Kemba þarf hundinum nokkrum sinnum í viku til að koma í veg fyrir flóka, sérstaklega á fótum og undir armkrókum.
Dverg schnauzer, ásamt standard schnauzer og risa schnauzer eru þær tegundir sem orsaka minnst óþægindi hjá þeim sem eru með ofnæmi vegna eiginleika feldsins. Samt sem áður er ekki hægt að segja að einhver hundategund sé góð fyrir fólk með ofnæmi. Ólíkar tegundir hafa ólík áhrif og ætti alltaf að taka með fyrirvara.
Heilsufar
Dverg schnauzer er almennt mjög heilsuhraust tegund. Arfgengur augnsjúkdómur PRA hefur greinst í tegundinni og leiðir til blindu, en mjög fá tilfelli greinast í löndunum í kringum okkur og ekkert tilfelli hefur greinst hér á landi. Nauðsynlegt er þó að láta augnskoða öll ræktunardýr á 1 1/2 - 2 ára fresti.
Skapgerð
Dverg schnauzer er skynsamur og greindur og þarf mikla athygli og kærleiksríkt uppeldi. Hann er hlýðinn og fljótur að læra, trúr, fjörugur og blíður. Árvekni hans gerir hann að frábærum varðhundi og er hann mjög hugaður, en þrátt fyrir hugrekki hans er hann ekki árásargjarn. Gelt í dverg schnauzer er fyrst og fremst einstaklingsbundið, en reikna má með að hann muni gera viðvart þegar til dæmis einhver hringir dyrabjöllunni. Tegundin er yfirleitt varkár gagnvart ókunnugum og er þetta hundur sem samþykkir almennt ekki hvern sem er. Það má samt alls ekki rugla því saman við hræðslu gagnvart ókunnugu fólki.
Dverg schnauzer er aktívur hundur og finnst gaman að leik. Hann er líflegur og orkumikill þegar hann er úti en rólegur inni. Hann stendur sig vel í hundafimi og annarri þjálfun og venjulegt heimilislíf á líka vel við hann. Hann er góður barna- og fjölskylduhundur. Fullorðinn hundur sem hefur aldrei hitt börn getur verið varkár gagnvart börnum og þarf tíma til að venjast þeim. Dverg schnauzer sem elst upp með börnum, elskar börn. Hann er alhliða hundur sem passar flestum fjölskyldum og mismunandi lífsmunstri einstaklinga.
Fengið af http://internet.is/kolskeggur