Hvolpaflokkur 4-6 mánaða og 6-9 mánaða:
Í hvolpaflokki er ekki gefin einkunn. Þeir geta hins vegar fengið heiðursverðlaun sem þeir fá ef þeir þykja efnilegir. Ef fleiri en einn hvolpur er sýndur er hvolpunum raðað í sæti. Svo keppa besti rakkinn og besta tíkin um hvort þeirra komist áfram og keppi í besta hvolpi sýningar.
Ungliðaflokkur 9-15 mánaða:
Í ungliðaflokki er hundinum gefið einkunn. Ef hann fær aðra eða þriðju einkunn hefur hann lokið keppni. Ef hann fær 0. eink. þá er ekki hægt að dæma hann af einhverjum ástæðum (t.d. bítur dómara). Ef hundurinn fær fyrstu einkunn keppir hann um sætaröðun við hina hundana sem fengu fyrstu einkunn. Þegar búið er að raða hundunum í sæti eru veitt heiðursverðlaun. Það er misjafnt hversu margir fá heiðursverðlaun og stundum fær þau engin. Ef ungliðinn fær heiðursverðlaun keppir hann áfram í opnum keppnisflokki en hinir hafa lokið keppni.
Unghundaflokkur 15-24 mánaða:
Í þessum flokki eru alveg sama skipulag og í Ungliðaflokki.
Opinn keppnisflokkur 24 mánaða og eldri:
Sama gildir með einkunnirnar hér en þegar búið er að gefa einkunnir koma Ungliðarnir og Unghundarnir sem fengu heiðursverðlaun og keppa við þá hunda sem fengu 1. einkunn í opnum keppnisflokki um sætaröðun. Þegar búið er að raða í 1-4 sæti getur hundurinn í fyrsta sæti fengið meistararstig og hundarnir í 2-4 sæti meistarefni.
Meistaraflokkur:
Í þessum flokki keppa þeir hundar sem þegar eru orðnir íslenskir meistarar. Þeim er raðað í 1-4 sæti. Ef þeir fá meistarefnis borðann (dómarinn telur þá verðuga meistara), halda þeir áfram og keppa við hundana sem fengu meistarstig eða meistarefni í Opnum keppnisflokki um besta rakka tegundar.
Öldungaflokkur:
Þeir öldungar sem fá 1. einkunn er raðað í sæti og ef þeir fá heiðursverðlaun eða meistaraefni þá bætast þeir líka í hópinn sem keppir um besta rakka tegundar.
Þetta er auðvitað allt eins hjá tíkunum. Þegar er svo búið að velja besta rakka og bestu tík, keppa þau um besta hund tegundar. Besti hundur (og tík) tegundar getur fengið alþjóðlegt meistarstig (sé um alþjóðlega sýningu að ræða) og vara alþjóðlegt meistarastig.
Besti hundur tegundar keppir svo í tegundahópi þar sem er raðað í 1-4 sæti. Sá hundur sem verður í fyrsta sæti í tegundahóp keppir svo um besta hund sýningar.
Svo kemur smá útskýring á öllum borðunum:
Hvolpaflokkur:
Þátttökuborði: bleikur og fjólublár
1. sæti: bleikur og rauður
2. sæti: bleikur og ljósblár
3. sæti: bleikur og gulur
4. sæti bleikur og grænn
Allt hitt:
1. einkunn/1.sæti: rauður
2. einkunn/2. sæti: blár
3. einkunn/3. sæti: gulur
4. einkunn/4. sæti: grænn
Besti hundur tegundar: rauður og gulur
Annar besti hundur tegundar: hvítur og grænn
Meistarastig: íslensku fánalitirnir
Meistarefni: bleikur
Meistaranafnbót: rauður og grænn
Heiðursverðlaun: fjólublár
Alþjóðlegt meistarstig: hvítur
Heiðursverðlaun fyrir afkvæmaflokk: hvítur/fjólublár
Heiðursverðlaun fyrir ræktunarflokk: hvítur/fjólublár
Þátttökuborði í meistaraflokki: rauður og hvítur