Hinn Ótrúlegi Vefheimur Stefáns
Forsíða Til Baka

Áhersluþættir í kosningastefnuskrá skoska Verkamannaflokksins 2003.

Inngangur:

Skoski Verkamannaflokkurinn hefur yfirleitt verið sterkasti flokkur Skotlands og verið með meirihluta á skoska þinginu síðan það var endursett 1999. Þá hlaut hann 56 þingsæti af 129 1 en tapaði svo 6 sætum 2003, en var engu að síður stærsti flokkurinn. 2 En fyrir hvað stóð flokkurinn í kosningunum 2003? Hverjar voru áherslur hans? Vildi hann sjálfstæði, heimastjórn eða jafnvel hverfa aftur til skipulagsins fyrir heimastjórnina? Hvað taldi hann helst að þurfi að bæta í samfélaginu? Er honum hugleikinn almenningsþjónusta líkt og heilbrigðiskerfið og skólakerfið? Hvað hyggst hann að hafast í efnahagsmálum, glæpum og refsingum og álíka? Er flokkurinn með umhverfisvæna stefnu? Síðast en ekki síst má svo spyrja, hvernig er útlitið hjá flokknum fyrir kosningarnar 2007? Þar sem svo langt er í þær er staðan auðvitað óljós og ekki mikið að marka skoðanakannanir ennþá en þær geta að minnsta kosti gefið smá vísbendingu um stöðu flokksins og álits almennings á honum. En til að skilja áherslur flokksins verður að fyrst að skoða hvernig ástandið var í Skotlandi fyrir kosningarnar.

 

Aðstæður í Skotlandi fyrir kosningar:

Heimastjórn komst á í Skotlandi árið 1999 og var þá haldið þar þing í fyrsta sinn síðan Skotland gekk í Breska sambandið árið 1707. Það var því aðeins liðið eitt kjörtímabil frá setningu skoska þingsins þegar kosningar voru haldnar 2003. Eins og fyrr getur var Verkamannaflokkurinn þar stærstur og hafði því farið fyrir stjórn landsins síðan heimastjórnin komst á. Hann var því að nokkru leiti dæmdur út frá ástandinu í Skotlandi, en það var ekki ákjósanlegt. Skotland hafði átt í vök að verjast í þó nokkurn tíma, skoskur iðnarður fór að lenda undir fyrir Kína, Indlandi og fleiri löndum þegar hnattvæðing tók að aukast. Þær ástæður, sem og fleiri, gerðu það að verkum að efnahagsástandið í landinu var ekki í sem bestu standi. En þar fyrir utan var staða Skotlands fyrir kosningarnar 2003 sú að heilsa Skota var verst allra þjóða í Vestur-Evrópu, skólaganga gekk illa, ólæsi og skróp plöguðu menntakerfið, þriðja hvert hjónaband endaði í skilnaði og svarti markaðurinn og glæpir, svo sem eiturlyf, okurlán og vændi, voru á mikilli uppleið og farnir að teygja sig yfir í löggildan iðnað. 3 Skoski Verkamannaflokkurinn var vissulega búinn að reyna að berjast gegn þessu ástandi, og ýmis svið þjóðlífsins höfðu vissulega skánað þó að árangur baráttu flokksins væri misjöfn.

Ýmis vandamál steðjuðu einnig að flokknum, stríð Bush og Blairs í Írak var neikvæður þyrnir í augum margra og tengt í gegnum Blair við skoska flokksbræður hans. Mörgum Skotum fannst flokkurinn líka ekki hafa efnt loforð sín um styttingu biðtíma á spítölum og baráttu gegn glæpum. Því einbeitti flokkurinn sér að stefnum sem hann gat staðið við í stefnuskrá sinni 2003. Við það varð hún frekar flöt og óspennandi í margra augum. Mörgum fannst vanta í hana allar stórar hugmyndir um framtíðarsýn, stefnu og trú. „Appalled Downing Street officials privately asked, ‘Where is the vision?'“ 4 Sumir vilja jafnvel meina að þessi þurrleiki hafi átt þátt í dræmri aðsókn í kjörstaði, en hún fór ú 59% 1999 í 49% 2003.

 

Hvað sem því líður þá voru helstu baráttumál flokksins uppbygging efnahagsins, endurbætur á almenningsþjónustu og samfélagsúrbætur en flokkurinn segir í kosningastefnuskrá sinni frá 2003 að aðaláherslur hans liggi í uppbyggingu efnahagsins því bættur efnahagur sé forsenda til uppbyggingar almenningsþjónustu, bættrar stöðu lágstéttarinnar og styrk samfélagsins í heild. 5

 

Uppbygging skosk efnahags:

Í stefnuskránni segir flokkurinn að til þess að efla efnahaginn þurfi að auka þekkingu og því ætli flokkurinn að vinna með fyrirtækjum til að auka rannsóknir og þróun til að auka afköst. Einnig ætli hann að vinna með borgunum 6 til að styrkja efnahag þeirra og nágranna þeirra þar sem best liggur fyrir hjá þeim. Hann hyggst svo stofna árlegt „Business Forum“ þar sem fyrirtæki og stjórnmálamenn geti unnið saman að hugmyndum til að auka efnahagslegan vöxt í landinu. Einnig ætlar hann að auka þekkingu með átaki í skólum. 6 Árið 2006 ætlar hann að hafa aukið útgjöld til skólanna um 15%. Með þessu aukna fjárframlagi á að bæta uppbyggingu skólanna og auka jafnræði í inntöku í háskólana. 7

En rannsóknir og þekking er ekki nóg heldur þarf pening líka og því ætlar flokkurinn að auðvelda fólki lántökur til stofnunar eða stækkunar fyrirtækja sem og að hvetja erlenda fjárfesta til að auka fjárfestingar sínar í landinu. Þar að auki ætlar hann að setja upp svokallaðan „ Business Start Up Fund“ til að styrkja viðskiptahugmyndir með sem minnstri skriffinnsku. Einnig ætlar hann að betrumbæta lög um gjaldþrot til að auka jafnvægið „ between supporting business risk and protecting the rights of those who lend or are owed money. “ Hann ætlar að koma á laggirnar þremur stofnunum „Intermediary Technology Institutes“ sem eiga að vinna í að koma rannsóknum og uppfinningum í ný fyrirtæki og auka þannig gróða landsins. Þar að auki planar hann að halda áfram að styrkja ferðamannaiðnaðinn, sem flokkurinn segir stærstu atvinnugrein landsins og hafi gefið 4,2 milljarða punda arð árið 2001.Þeir vilja breyta iðnaðinum frá því að vera árstíðabundinn yfir í að vera árið um kring. 8

Flokkurinn gerir sér grein fyrir því að þó uppbygging hafi orðið í landinu og ástand atvinnuleysis skánað hafa svæði orðið útundan og því hyggst hann styrkja landbúnað, fiskeldi, fiskveiðar, skógrækt og skógarhögg. Einnig ætlar hann að dreifa meira um landið opinberum störfum. 9 Flokkurinn ætlar líka að vinna í að bæta samgöngukerfi landsins og þá öll kerfin, vegakerfi, lestarsamgöngur, skipasamgöngur og flugsamgöngur. Hann ætlar með þessu að tengja saman allt landið og auka með því hag afskekktra staða. Með þessu telur hann að dreifbýlin njóti betri hagvaxtar. 10

Annað vandamál steðjar reyndar að efnahag landsins en það er að fólksfækkun er í landinu og þjóðin að verða eldri. Því ætlar flokkurinn að reyna að halda hæfu fólki í landinu sem og að hvetja hæft fólk frá örðum löndum að koma þangað til vinnu. 11

 

Skólakerfið:

Eins of fyrr kom fram telur flokkurinn aukna menntun grunnskilyrði bætts efnahags og því ætlar hann að tryggja að útgjöld til skólamála fari yfir 4 milljarða punda. 12 Hann telur þó ekki nóg að auka fjárframlög til skólanna og því vill hann gera breytingu þeim líka. Hann lofar ókeypis leikskólum fyrir 3-4 ára en þar er grunnur skólakerfisins lagður. 13 Hann ætlar að breyta skólakerfinu og námsáætlunum svo að nemendur hafi meira val og geti því náð langt á þeim sviðum er til þeirra höfða. 14 Hann hyggst einnig hjálpa nemendum að ná betri árangri í skólum með því að auka eftirlit og stuðning við nemendur, kennara og skóla sem og að auka bein afskipti af þeim. 15

Eins og allir vita eru heilsusamir nemendur duglegir nemendur og því ætlar flokkurinn að viðhalda svonefndum morgunverðarklúbbum og gefa 1. og 2. árs nemum ávexti í von um að hjálpa þeim að byggja upp heilbrigðari lífsstíl. Hann ætlar og að minnka álagið á 5-14 ára og tryggja að allir læri lifandi evrópskt tungumál og læri í að minnsta kosti eitt ár á hljóðfæri. Einnig ætlar hann að styrkja nema á aldrinum 16-19 til náms sem erfitt eiga með að sjá fyrir því sjálfir. Hann ætlar að fjölga kennurum um 2500 og vinna í að fækka fjölda nemenda á kennara. Hann ætlar að eyða 1.9 milljörðum punda í að uppfæra og bæta 200 skóla fyrir 2006 og lofar 300 til viðbótar fyrir 2009. Hann ætlar að betrumbæta reglugerðir um börn með sérþarfir í námi. Hann ætlar að auka samband skóla og heimila svo foreldrar og forráðamenn geti haft meiri afskipti af námi barna sinna. Einnig ætlar hann að tryggja að allir skólar bjóði upp á félagsstarf utan skólatíma, svo sem íþróttaklúbba og fleira. 16

 

 

 

 

Heilbrigðiskerfið:

Í heilbrigðismálefnum ætlar flokkurinn að auka ríkisútgjöld um 30%, 17 stytta biðlista, fjölga hjúkrunarfræðingum, til að mynda með því að hækka laun þeirra, 18 og reyna að stilla heilbrigðiskerfinu svo upp að ekki þurfi að sækja langt alla þjónustu þess því oft getur sá tími sem tekur að flytja sjúkling verið spurning um líf eða dauða. Því til viðbótar ætlar hann að nota 30 milljónir punda á ári í að koma upp 1000 aðhlynningarheimilum fyrir fólk sem er eð yfirgefa spítala svo það geti verið nærri fjölskyldu og vinum. Hann ætlar og að sjá öldruðum fyrir ókeypis umönnun. 19 Einnig ætlar hann að breyta löggjöf um lyfseðilsskyld lyf sem hann telur bæði flókin og úrelt. En flokkurinn vill ekki bara reyna að bæta heilbrigðiskerfið heldur vill hann ráðast á vandamálið við rætur sínar. Hann ætlar að gera það með því að kynna heilbrigt líferni fyrir börn sem og fullorðna. Hann ætlar að kynna heilbrigt mataræði, í samstarfi við verslanir og matreiðslumenn, íþróttir og heilsusamlega hreyfingu í gegnum skólana og svo hefur hann gefið 100.000 börnum undir 5 ára aldri tannbursta og tannkrem. 20

 

Samfélagsúrbætur:

Flokkurinn telur einnig mikilvægt að bæta samfélagið í heild sinni og hefur nokkrar hugmyndir um hvernig því skal háttað. Því ætlar hann að vinna með einkageiranum til að tryggja 70% þjóðarinnar aðgangi að Internetinu, 21 styrkja og bæta barnavernd í landinu með nýjum reglugerðum og úrbótum í stofnunum á því sviði, auka fjármagn til samfélagsþjónustu, svo sem til eldri borgara, og láta fólk sem vinnur á því sviðið vera í nánara sambandi við mennta- og heilbrigðiskerfið og bæta með því stöðu barna sem og aldraðra. Því til viðbótar ætlar hann að auka ókeypis ferðir aldraðra og fatlaðra. 22

Flokkurinn státar sig af því að þriðjungur barna og helmingur ellilífeyrisþega sem bjuggu undir fátæktarmörkum árið 1999 hafi verið kominn á upp yfir þau 2003. En nú ætli hann að hjálpa fólki sem er plagað af mörgum lánum, ætlar að kynna sanngjarnari lán og vinna í vernd gegn árásum okurlánara. Því til viðbótar ætlar hann að styrkja stöðu „crofters“.

Á menningarsviðinu áætlar flokkurinn að endurskipuleggja menningarstofnanir og stofnsetja eina menningarstofnun fyrir landið allt, sem á að vinna með hinum sem fyrir eru. Hann hyggst líka styrkja menningarmál, til að mynda með nýju þjóðleikhúsi en einnig með því að styrkja menningarvinnu sveitar- og bæjarfélaga. Þar að auki lofar hann að bæta íþróttaaðstöðu landsins, t.d. með byggingu sex alhliða íþróttaaðstaðna, þar á meðal eina innanhús. Því til viðbótar ætlar hann að setja 87 milljónir punda í nýtt „physical education and sport programme“ fyrir landið. 23

Aðrar samfélagsúrbætur sem flokkurinn hyggst leggjast í er til dæmis í lögkerfinu og í lögreglunni sjálfri. Hann hyggst auka tölu lögreglumann og sérfræðinga í samvinnu við lögregluna, eins og fjármagn leyfi, herða eiturlyfjaeftirlit og refsingu við eiturlyfjasölu, sérstaklega nærri skólum og örðum stöðum þar sem börn eru nærri, setja 20 mílna hámarkshraða við skóla landsins, herða refsingar við heimilisofbeldi og barnaklámi, breyta löggjöf svo að það verið ólöglegt að leita til vændiskona, reyna að berjast gegn kynþátta- og trúarhópahatri, auka aðgerðir gegn andfélagslegri hegðun, draga úr losun sorps á götum og úti í náttúrunni, draga úr veggjakroti, t.d. með því að banna sölu á spreybrúsum til allra yngri en 18, endurbæta reynslulausnakerfið til að verja samfélög og fórnarlömb glæpa og koma á laggirnar nefnd sem á að vega og meta refsingar og lengd dóma yfir gervalt Skotland. Því til viðbótar kemur ný stofnun sem á að hámarka not refsinga, endurhæfingar og verndar í réttarkerfinu. 24

Hvað umhverfismál varðar hyggst flokkurinn bæta sorpuhirðu og betrumbæta endurvinnslukerfið, þá sérstaklega fyrir bæi og fyrirtæki. Einnig ætlar hann að draga úr bílamengun með notkun tækja sem draga úr útblástri, tryggja svæði fyrir villt líf, herða lög um eftirlit með matvælaframleiðslu og halda varkáru sjónarhorni á erfðabættri uppskeru. Svo hyggst hann stofna strand-þjóðgarð sem á að vera jafn evrópskum þjóðgörðum hvað varðar hreinleika og er einnig með áætlanir uppi um að vinna með bresku stjórninni í að auka hlutfall endurnýtanlegra orkugjafa í landinu upp í 40% fyrir árið 2020. 25 Að lokum lofar hann svo að vera duglegir að kynna Skotland í Evrópu styrkja stöðu þess, bæði innan Bretlands og Evrópu í heild. 26

 

Sjálfstæði, heimstjórn eða sameining:

Í stefnuskrá flokksins er hvergi minnst á breytingu á stjórnarháttum landsins og er því nokkuð óhætt að álykta að hann vilji ekki gera breytingu á því skipulagi. Það er einnig nokkuð ljóst að hann vill ekki snúa aftur til ástandsins eins og það var fyrir heimastjórn þar sem flokkurinn á stóran þátt í því að heimastjórn var komið á laggirnar og voru svo til allir flokkar, að Íhaldsflokknum undanskildum, fylgjandi heimastjórninni. En ef flokkurinn vildi sjálfstæði myndi hann án efa tala um það í stefnuskránni. Það er líka nokkuð ljóst að breski hlutur flokksins myndi stórtapa á því að Skotland fengi sjálfstæði þar sem stór hluti atkvæða hans hefur ætíð komið þaðan.

Á heimasíðu flokksins er líka grein, augljóslega andsvar gegn nýlegum skoðanakönnunum sem sýna aukið fylgi Þjóðarflokksins sem sagt verður frá í næsta kafla. Í þessari grein talar John Reid, þingmaður Verkamannaflokksins, um að skyldleiki Skota við England sé meira en nokkurn tímann fyrr og ef Skotland yrði sjálfstætt yrðu margir að velja á milli ensk eða skosks vegabréfs. Hann talar líka um efnahagslegar ástæður, það að skilja við Bretland myndi þýða lítinn skoskan efnahag, sér þensluvexti og sér banka og það myndi leiða af sér mikinn óstöðugleika. Hann vitnar svo í Jim Sillars; „To try to separate the Scottish economy from the United Kingdom would be like trying to separate again the kernel from the great Oak.“ Reid telur að aðskilnaður myndi valda óöryggi í heilbrigðiskerfinu, við ellilífeyri og velferðarkerfi og heldur áfram að nefna margar ástæður gegn aðskilnaði. 27 Það er því nokkuð ljóst að skoski Verkamannaflokkurinn vill ekki sjálfstæði, hann er augljóslega sáttur með heimastjórnarfyrirkomulagið eins og það er.

 

Staða flokksins í dag:

Samkvæmt nýlegum skoðanakönnunum er fylgi skoska Þjóðarflokksins SNP að aukast allverulega, á meðan er Verkamannaflokkurinn að tapa fylgi. Í kosningunum 2003 hafði Verkamannaflokkurinn 34,89% í einmenningskjördæmunum og 29,30% í fjölmenningskjördæmunum. Á sama tíma hafði Þjóðarflokkurinn 23,77% í einmenninskjördæmum og 20,86 í fjölmenningskjördæmum. Í skoðanakönnun sem gerð var 1. nóv. 2006 var fylgi Þjóðarflokksins komið upp í 32% í einmennings og 28% í fjölmennings og í annarri könnun 27. nóv. Var fylgi hans komið upp í 34% í einmennings og 31 í fjölmennings. Í skoðanakönnuninni 1. nóv. var fylgi Verkamannaflokksins fallið niður í 30% í einmenningskjördæmum og 28% í fjölmenningskjördæmum. Ef marka má könnunina, sem þó ber að taka með vafa þar sem langt er í kosningar, er Verkamannaflokkurinn orðinn minni en Þjóðarflokkurinn. Fylgi flokksins féll svo en meir í könnuninni 27. nóv., og var þá aðeins 29% í einmennings og 26% í fjölmenningskjördæmum. Þetta myndi þýða að fjöldi þingmanna Þjóðarflokksins væri komið upp í 43, 16 fleiri en í kosningunum 2003, en þingmannafjöldi Verkamannaflokksins kominn niður í 38, fækkað um 12. 28

Hvort að hægt sé að útskýra þetta fall í fylgi flokksins sem óánægju með störf hans er engu að síður vafasamt, sérstaklega þar sem fylgistapið fer svo til allt til Þjóðarflokksins sem berst fyrir sjálfstæði landsins. Samkvæmt könnun frá 1. nóv. 2006 eru 51% þjóðarinnar fylgjandi sjálfstæði og hefur það ekki mælst hærri síðan árið 1998 29 og er það því hugsanlega alveg jafn líkleg ástæða fylgistapsins eins og óánægja með flokkinn. Það mætti jafnvel færa rök fyrir því að flokkurinn hafi staðið sig það vel í að bæta efnahag landsins að fólk treysti sér almennt meira í sjálfstæði en áður. Þau rök eru þó allt eins vafasöm. Eitt er víst, að ef fylgið breytist ekki mikið fram að kosningabaráttunni þá verður sjálfstæði Skotlands eitt af baráttumálum.

 

Niðurstöður:

Í kosningabaráttunni 2003 virðist skoski Verkamannaflokkurinn aðalega hafa staðið fyrir efnahagslegum umbætur landsins, bæta viðskiptaumhverfið og styrkja fyrirtæki í landinu. Hann vildi líka reyna að dreifa auðnum meira um landið og draga úr fátækt afskekktra svæða. Þetta hugðist hann gera með því að reyna að auka þekkingu og þar af leiðandi bæta menntakerfið. Hann hugðist og styrkja efnahaginn með því að auðvelda lántökur. Til þess að styrkja fátæk svæði hugðist hann styrkja staðbundinn iðnað, svo sem landbúnað og fiskeldi, og bæta samgöngukerfi landsins.

En hann var með aðrar áherslur líka og almenningsþjónusta og samfélagsúrbætur voru honum hugleiknar. Hann hugðist til að mynda að gera endurbætur á skólakerfinu með því að reyna að láta námið höfða meir til nemenda, auka eftirlit með skólum, koma á nánari tengslum kennara og foreldra og forráðamanna svo þeir gætu tekið virkari þátt í námi barnanna og svo framvegis. Hann ætlaði ok að styrkja heilbrigðiskerfið, stytta biðlista eftir aðgerður hjá spítölum landsins, dreifa læknisþjónustunni betur svo ekki þyrfti að leita langt yfir skammt og fleira. Hann hugðist einnig efla lögregluna með því að auka lið hennar og herða refsingar við ýmsum glæpum. Hann vildi efla menningarstarfsemi eins og leikhússtarfsemi og því um líkt sem og að gera betrumbætur á sviði íþrótta. Þá eru þeir og með hugmyndir um umhverfisvernd, stofna strand-þjóðgarð, bæta sorphirðu og endurvinnslu, vinna í að fá meira af endurnýtanlegum orkugjöfum og fleira. Þessar áherslur eru þó ekki áberandi hjá flokknum og virðast ekki vera hátt skrifaðar og því varla hægt að segja að flokkurinn sé með mjög umhverfislega hneigður.

Það er nokkuð ljóst að flokkurinn vill halda heimastjórninni tiltölulega óbreyttri og er alfarið á móti sjálfstæði. Þetta er hugsanlega stór þáttur í minnkandi fylgi flokksins, sem að mestu virðist hafa flust yfir til skoska Þjóðarflokksins. Einnig er mögulegt að minnkandi fylgi flokksins sé vegna óánægju fólks með störf hans en það er ómögulegt að geta sér til um það. Eitt er víst að ef fylgi flokkanna helst óbreytt, miðað við skoðanakannanirnar sem gerðar hafa verið upp á síðkastið, er útlitið ekki bjart fyrir flokkinn og spurning hvor við fáum að sjá sjálfstætt Skotland innan nokkurra ára.

 

 

Heimildaskrá:

Allardyce, Jason; „Scotland 2003: The Election Campaign and the Political Outcome.“ The Scotman Guide to Scottish Politics . 2. útgáfa. Matthew Spicer ritstýrði Edinburgh 2004.

Harvie, Christopher; Scotland and nationalism. Scottish society and politics 1707 to the present . 4. útgáfa. London 2004.

http://www.scottishlabour.org.uk/ -> News -> Speeches -> Speech to Scottish Conference by the Home Secretary, the Rt. Hon. John Reid MP Sunday 26. November 2006. 30. nóv.

http://www.scottishlabour.org.uk/ -> Policy -> Manifesto -> Scottish Labour – On your side -> Click here 10. nóv.

http://www.scottish.parliament.uk/ -> MSPs -> MSPs by Party. 30. nóv.

http://www.scottish.parliament.uk/ -> MSPs -> Scottish Parliament Fact Sheet -> MSPs: Historical Series -> MSPs by Constituency and Region: Session 1. 30. nóv.

http://www.alba.org.uk/ -> 2007 Holyrood elections -> Recent opinion polls -> ICM Holyrood Polls 30. nóv.

1. http://www.scottish.parliament.uk/ -> MSPs -> Scottish Parliament Fact Sheet -> MSPs: Historical Series -> MSPs by Constituency and Region: Session 1.

2. http://www.scottish.parliament.uk/ -> MSPs -> MSPs by Party.

3. Harvie, Christopher; Scotland and nationalism. Bls. 247.

4. Allardyce, Jason; „Scotland 2003: The Election Campaign and the Political Outcome.“ Bls. 2.

5. http://www.scottishlabour.org.uk/ -> Policy -> Manifesto -> Scottish Labour – On your side -> Click here -> Chapter 1 – Building Scotland's Economy.

6. http://www.scottishlabour.org.uk/ -> Policy -> Manifesto -> Scottish Labour – On your side -> Click here -> Chapter 1 – Building Scotland's Economy.

7. http://www.scottishlabour.org.uk/ -> Policy -> Manifesto -> Scottish Labour – On your side -> Click here -> Investing in Scotland's People.

8. http://www.scottishlabour.org.uk/ -> Policy -> Manifesto -> Scottish Labour – On your side -> Click here -> Supporting Business.

9. http://www.scottishlabour.org.uk/ -> Policy -> Manifesto -> Scottish Labour – On your side -> Click here -> Growth for All of Scotland.

10. http://www.scottishlabour.org.uk/ -> Policy -> Manifesto -> Scottish Labour – On your side -> Click here -> Investing in Infrastructure.

11. http://www.scottishlabour.org.uk/ -> Policy -> Manifesto -> Scottish Labour – On your side -> Click here -> Growth for All of Scotland.

12. http://www.scottishlabour.org.uk/ -> Policy -> Manifesto -> Scottish Labour – On your side -> Click here -> Building Excellent Public Services.

13. http://www.scottishlabour.org.uk/ -> Policy -> Manifesto -> Scottish Labour – On your side -> Click here -> Excellent Schools.

14. http://www.scottishlabour.org.uk/ -> Policy -> Manifesto -> Scottish Labour – On your side -> Click here -> Choice for Pupils.

15. http://www.scottishlabour.org.uk/ -> Policy -> Manifesto -> Scottish Labour – On your side -> Click here -> The Highest Standards for All.

16. http://www.scottishlabour.org.uk/ -> Policy -> Manifesto -> Scottish Labour – On your side -> Click here -> Creating Opportunity.

17. http://www.scottishlabour.org.uk/ -> Policy -> Manifesto -> Scottish Labour – On your side -> Click here -> Building Excellent Public Services.

18. http://www.scottishlabour.org.uk/ -> Policy -> Manifesto -> Scottish Labour – On your side -> Click here -> Improving Scotland's Health Service.

19. http://www.scottishlabour.org.uk/ -> Policy -> Manifesto -> Scottish Labour – On your side -> Click here -> Patients First.

20. http://www.scottishlabour.org.uk/ -> Policy -> Manifesto -> Scottish Labour – On your side -> Click here -> Promoting Good Health.

21. http://www.scottishlabour.org.uk/ -> Policy -> Manifesto -> Scottish Labour – On your side -> Click here -> Investing in Infrastructure.

22. http://www.scottishlabour.org.uk/ -> Policy -> Manifesto -> Scottish Labour – On your side -> Click here -> Caring for Children and Young People og http://www.scottishlabour.org.uk/ -> Policy -> Manifesto -> Scottish Labour – On your side -> Click here -> Our Quality of Life.

23. http://www.scottishlabour.org.uk/ -> Policy -> Manifesto -> Scottish Labour – On your side -> Click here -> Celebrating Scotland's Culture.

24. http://www.scottishlabour.org.uk/ -> Policy -> Manifesto -> Scottish Labour – On your side -> Click here -> Safer, More Secure, og http://www.scottishlabour.org.uk/ -> Policy -> Manifesto -> Scottish Labour – On your side -> Click here -> Safer Communities, Safer Streets.

25. http://www.scottishlabour.org.uk/ -> Policy -> Manifesto -> Scottish Labour – On your side -> Click here -> Protecting the Environment, Delivering Environmental Justice.

26. http://www.scottishlabour.org.uk/ -> Policy -> Manifesto -> Scottish Labour – On your side -> Click here -> Chapter 4 - Building a Confident, Democratic Scotland.

27. http://www.scottishlabour.org.uk/ -> News -> Speeches -> Speech to Scottish Conference by the Home Secretary, the Rt. Hon. John Reid MP Sunday 26. November 2006.

28. http://www.alba.org.uk/ -> 2007 Holyrood elections -> Recent opinion polls -> ICM Holyrood Polls

29. http://www.alba.org.uk/ -> 2007 Holyrood elections -> Recent opinion polls -> ICM Holyrood Polls