| Hiv veiran, alnæmi:
Alnæmi er alvarlegur sjúkdómur sem hefur breiðst út um allan heim frá þí í byrjun níunda áratugar síðustu aldar. Alnæmi orsakast af veiru sem nefnist HIV og smitast frá einum einstaklingi til annars við ákveðnar aðstæður.
HIV (Human Immunodeficiency Virus) er veira sem berst milli einstaklinga með sæði, leggangaslími og blóði og brýtur niður ónæmiskerfi líkamans á löngum tíma. Einstaklingar með HIV verða venjulega ekki veikir fyrstu árin eftir að þeir smitast, en smám saman vinnur veiran á vörnum líkamans og skemmir ónæmiskerfið. Þeri sem smitaðir eru af HIV eru alltaf með veiruna í líkamanum og geta smitað aðra það sem eftir er ævinnar.
Alvarlegasta stig sjúkdómsins nefnist alnæmi eða AIDS (Acquired Immunodeficiency Syndrome). Einstaklingar með HIV fá alnæmi þegar ónæmiskerfi líkamans er orðið það veikt að það getur ekki lengur barist gegn smiti af ýmsum sýklum. Alnæmi myndast smám saman hjá einstaklingum með HIV ef þeir fá ekki lyfjameðferð. Vanalega líða 8 – 10 ár frá smitun þar til alnæmisstigi er náð en þessi tími er þó mjög mislangur hjá einstaklinum og lyfjameðferðin lengi hann umtalsvert.
HIV getur smitast við óvarðar samfarir konu og karls eða tveggja karla. Hver sem er getur fengið HIV ef hann eða hún hefur kynmök við smitað fólk. Smit á sér stað við beina snertingu við veiruna í genum blóð, sæði eða leggangaslím. HIV getur smitast frá karli til konu, frá konu til karls og frá karli til karls. Meiri líkur eru á smiti ef annar eða báðir aðilar hafa aðra kynsjúkdóma. Munnmök geta líka valdið smiti, það er að segja ef snerting verður milli kynfæra og muynns/tungu. Þetta á sérstaklega við ef rispur eða sár eru í munni eða á kynfærum. Einnig er smithætta ef notaðar eru sprautur eða sprautnálar semmengaðar eru af HIV, við blóðgjöf ef blóðið er sýkt og frá móður til barns á meðgöngu, við fæðingu eða brjóstagjöf. HIV smitast samt ekki við venjulega umgengni, í gegnum heilbrigða húð, með lofti og vatni, með flugnabiti, mat og drykk eða glösum og diskum og öðru þess háttar. Það smitast heldur ekki með sængum, handklæðum og þess háttar, af salernissetum eða baðkörum, með kossum, hnerrum, hósta, svita hori, tárum eða handabandi þrátt fyrir sterkar goðsagnir. Á Íslandi ber ekki að óttast smit á sjúkrahúsum eða heilsugæslustöðvum, hvort sem verið er að gefa eða þiggja blóð þar se allt blóð er skimað fyrir HIC og sprautur og nálar sótthreinsaðar og eingöngu notaðar einu sinni. Slíkt gæti þó gerst í Afríku eða öðrum þriðja heims ríkjum.
Áhrifamesta vörn gegn smiti er smokkurinn. Hann getur einnig komið í veg fyrir aðra kyndjúkdóma og er auk þess góð getnaðarvörn. Pillan og lykkjan eru aðeins getnaðarvarnir og veita enga vörn gegn kynsjúkdómum.Lyfjameðferð barnshafandi kvenna með HIV dregur verulega úr hættu á að barn smitist og til að koma í veg fyrir slík smit er mikilvægt að móðirin komi í reglulegt eftirlit.
Það er ekki til bóluefni geng HIV sem kemur í veg fyrir smit og heldur ekki til lyf sem útrýma veirunni úr líkamanum og er því ekki hægt að lækna sjúkdóminn í dag. Aftur á móti eru til lyf sem hamla fjölgun veirunnar í blóðinu. Lyfin verja ónæmiskerfi líkamans með því að draga úr veirumagninu í honum. Lyfjameðferðin heldur HIV-sýkingunni í skefjum, dregur úr hættu á smiti, lengir líf og bætir lífsgæði sýktra. Þeir sem sýkjast af HIV og eru þess vegna með skert ónæmiskerfi þola illa almennar sýkingar, en til eru lyf til að meðhöndla þær. Mikilvægt er að greina HIC eins fljótt og auðið er til þess að rétt lyfjameðhöndlun geti hafist um leið og nauðsyn krefur. Notkun lyfja við HIV krefst reglubundins eftirlits læknis. Allir sem greinast með HIV-smit fá slíkt eftirlit auk ráðgjafar og meðferðar hjá sérfræðingum. Læknismeðferð, rannsóknir og lyf vegna HIV-sýkingar eru sjúklingum að kostnaðarlausu. Þótt öflug lyfjameðferð gegn HIV sýkingu hafi komið til sögunnar greinast sjúklingar enn með alnæmi og enn látast sjúklingar úr sjúkdómnum. Sumir þola ekki lyfjameðferð og hjá öðrum verka lyfin ekki vegna þess að veiran hefur myndað ónæmi gegn þeim. Lyfjameðferð er ævilöng og reynist mörgum erfið. Meðferðin er jafnframt afar dýr þjóðfélaginu. Forvarnir eru því ætíð nauðsynlegar. Auk lyfja getur lífsstíll einstaklinga með HIV-smit haft áhrif á framvindu sjúkdómsins. Hugarfar og afstaða til sjúkdómsins og kringumstæðna sinna skipta miklu og mikilvægt er einnig að góð samvinna takist við þá sem sinna meðferð sjúklings. Með því aukast líkur á því að fólk með HIV geti búið við góða heilsu í mörg ár.
Eftir smitun af HIV myndar líkaminn mótefni gegn veirunni. Þessi mótefni geta þó ekki eytt veirunni úr líkamanum en þau nýtast til að greina sýkinguna. Mótefni mælast ekki í blóðinu fyrr en 3-6 vikum eftir smit. Til að greina mótefnin er tekið blóðsýni úr handlegg og innan viku fást niðurstöður úr blóðrannsókninni. Ef prófið er jákvætt þarf annað blóðsýni til staðfestingar. Öllum er frjálst að fara í HIV-mótefnapróf. Það felur jafnframt í sér að enginn er settur að tilefnislausu í blóðrannsókn gegn vilja sínum og allir sem fara í blóðrannsókneiga að fá upplýsingar um hvað í henni felst. Barnshafandi konum stendur til boða að fara í slík próf í mæðraeftirliti. Allir sem telja sig geta hafa smitast af HIV ættu að fara í slíka blóðrannsókn.
Í byrjun ársins 2003 hafði greinst 161 einstaklingur með HIV á Íslandi frá því faraldursins varð fyrst var fyrir rúmum tveimur áratugum. Alls hafa 53 greinst með alnæmi og 36 látist af völdum þess. Frá árinu 1993 jókst árlegur fjöldi smitaðra en frá árinu 1996 hefur dregið úr fjölda þeirra sem greinast með alnæmi og látast af völdum sjúkdómsins. Á síðustu árum voru flestir þeirra sem greindust gagnkynhneigðir. Þetta er ganstætt því sem var í upphafi alnæmisfaraldursins, en þá voru flestir hinna sýktu samkynhneigðir karlar sem talið var að hefðu smitast við kynmök. Flestir þeirra sem greinast með smit eru á aldrinum 25-29 ára og flestir sem greinst hafa með alnæmi eru á aldrinum 35-39 ára.
Á heimsvísu er HIV og alnæmi miklu stærra vandamál en hér á landi. Á undanförnum tuttugu árum hafa meira en 60 milljónir manna sýkst af HIV um heim allan. Talið er að 42 milljónir karla, kvenna og barna séu lifandi með HIV-smit eða alnæmi í upphafi ársins 2003 og meira en 20 milljónir hafi látist vegna sjúkdómsins. Það jafngildir því að 1,2% jarðarbúa frá 15 ára aldri séu smitaðir af HIV og alnæmi. Talið er að einungis 10-20% smitaðra viti að þeir gangi með smit. Á árinu 2002 sýktust 5 milljónir manna í heiminum og rúmlega 3 milljónir létust af völdum alnæmis. Aldrei hafa jafn margir látist á einu ári af völdum sjúkdómsins. Í sumum heimshlutum er alnæmi ein algengasta dánarorsökin. Meðalævilengd fólks hefur því í sumum löndum lækkað um 10 ár eða svo. Rúmlega 70% fullorðinna og barna, sem nú eru smituð af HIV í heiminum, búa í Afríku. Hæsta smitunartíðnin er aftur á móti í Suðaustur-Asíu og fyrrum Sovétríkjunum. Alnæmi er ekki aðeins mikið heilbrigðisvandamál í heiminum heldur hefur sjúkdómurinn jafnframt valdið umtalsverðri samfélagslegri röskun og efnahagslegri afturför. HIV-sýking er algengust meðal ungs fólks, sem hefur víðtæk áhrif á þann hluta samfélagsins sem er virkastur í framleiðslu og atvinnulífi hverrar þjóðar. Fátæt breiðist út og vex af völdum faraldursins víða um heim.
Fjöldi tilkynntra einstaklinga með HIV smit, fjöldi greindra sjúklinga með alnæmi og fjöldi sjúklinga sem látist hafa af völdum alnæmis. 31. desember 2003
Tafla 1 |
Fjöldi tilkynntra einstaklinga með |
Fjöldi greindra sjúklinga með |
Fjöldi sjúklinga sem látist hafa af |
|
HIV smit miðaður við 31.12.03 |
alnæmi (AIDS) miðaður við 31.12.03 |
völdum alnæmis miðaður við 31.12.03 |
Ár |
Karlar |
Konur |
Samtals |
Karlar |
Konur |
Samtals |
Karlar |
Konur |
Samtals |
1983 |
1 |
0 |
1 |
0 |
0 |
0 |
0 |
0 |
0 |
1984 |
0 |
0 |
0 |
0 |
0 |
0 |
0 |
0 |
0 |
1985 |
15 |
1 |
16 |
1 |
0 |
1 |
1 |
0 |
1 |
1986 |
11 |
2 |
13 |
3 |
0 |
3 |
0 |
0 |
0 |
1987 |
4 |
1 |
5 |
1 |
0 |
1 |
2 |
0 |
2 |
1988 |
10 |
3 |
13 |
3 |
2 |
5 |
1 |
1 |
2 |
1989 |
5 |
1 |
6 |
3 |
0 |
3 |
0 |
0 |
0 |
1990 |
5 |
0 |
5 |
3 |
0 |
3 |
4 |
1 |
5 |
1991 |
8 |
2 |
10 |
6 |
2 |
8 |
2 |
0 |
2 |
1992 |
10 |
1 |
11 |
3 |
0 |
3 |
2 |
0 |
2 |
1993 |
2 |
1 |
3 |
6 |
1 |
7 |
7 |
1 |
8 |
1994 |
6 |
2 |
8 |
5 |
1 |
6 |
4 |
1 |
5 |
1995 |
5 |
2 |
7 |
4 |
0 |
4 |
3 |
0 |
3 |
1996 |
4 |
2 |
6 |
3 |
0 |
3 |
1 |
0 |
1 |
1997 |
8 |
1 |
9 |
1 |
0 |
1 |
1 |
0 |
1 |
1998 |
5 |
3 |
8 |
2 |
0 |
2 |
0 |
0 |
0 |
1999 |
7 |
5 |
12 |
0 |
0 |
0 |
1 |
0 |
1 |
2000 |
7 |
3 |
10 |
1 |
0 |
1 |
1 |
0 |
1 |
2001 |
9 |
2 |
11 |
1 |
0 |
1 |
0 |
1 |
1 |
2002 |
5 |
2 |
7 |
0 |
0 |
0 |
0 |
0 |
0 |
2003 |
6 |
4 |
10 |
1 |
0 |
1 |
0 |
0 |
0 |
Samtals |
133 |
38 |
171 |
47 |
6 |
52 |
30 |
5 |
35 |
|