Hinn Ótrúlegi Vefheimur Stefáns
Heim Jútúb Meðmæli Mómentið Myndir Mæspeis Tilvitnanir Tónhornið Trúbadorar Wikihvað

Wikipedia hvað?:

Ekki eftir mig:

Trúmál Íslendinga. Áhugaverð skýrsla bandaríska sendiráðsins um stöðu trúmála á Íslandi. Fengið af síðu þeirra, örlítið stytt. (3 bls.)

Háskólaritgerðir:

Arabar og aðrir múslímar í íslenskum miðaldarritum. Gert fyrir áfangan Heimsmynd Íslendinga 1100-1400 í október 2006. Verið að skoða miðaldarrit og athuga hvernig talað er um araba, múslíma og íslam. Mest allt unnið upp úr riddarasögum. (15. bls)

Austurvegur og tenging við norræna menn. Gert fyrir áfangan Heimsmynd Íslendinga 1100-1400 í desember 2006. Verið að skoða ferðir norrænna manna í austur og hvernig þeir sáu löndin það. Mikið verið að vinna upp úr fornum riddarasögum og konungssögum og þess háttar. (19. bls.)

Áhersluþættir í kosningastefnuskrá skoska Verkamannaflokksins 2003. Gert fyrir áfangan Þættir úr sögu Skotlands í desember 2006. Verið að skoða stefnuskár flokksins og athuga hverju hann var að berjast fyrir árið 2003. (9. bls)

Feður Upplýsingar. Hér er spurt hvort rétt sé að fullyrða að John Locke og Isaac Newton séu upphafsmenn Upplýsingarstefnunnar sem var allsráðandi í Evrópu á 18. öld. Gert fyrir Mannkynssögu II (tímabilið um 1500 til 1815), yfirlitsáfanga í upphafi sögunáms í Háskóla Íslands desember 2005. (5 bls.)

Fyrri heimsstyrjöldin á Íslandi. Ritgerð um áhrif fyrri heimsstyrjaldarinnar á Ísland gerð fyrir Íslands- og norðurlandasögu III (1830-1939). vor 2006 (7 bls.)

Héraðsstjórn á Íslandi frá Jónsbók til 1830. Ritgerð um hreppa á Íslandi gerð fyrir Íslands- og norðurlandasögu II (1550-1830) í sagnfræðiskori Háskóla Íslands vorið 2006. (8 bls.)

Menntakerfi verður til. Gert fyrir áfangan Vísindi, tækni og nývæðing í desember 2006. Verið að skoða uppbyggingu skiplagðs menntakerfis á Íslandi upp úr aldamótunum 1900 og þá sérstaklega sýn Guðmundar Finnbogasonar, sem var helsti hugsuðurinn bakvið það. (13. bls.)

Póstmódernismi á Íslandi. Ritgerð um póstmódernisma á Íslandi með sérstaka áherslu á umræðu sem myndaðist um hann vegna greina í Lesbók Morgunblaðsins rétt fyrir aldamót. Gert fyrir Íslands- og norðurlandasögu IV (1939 til dagsins í dag). vor 2006. (10 bls.)

Saladín. Fjallað um Saladín, Kúrda sem náði völdum í Egyptalandi og Sýrlandi og hrakti krossfarana frá Helga Landinu. Skrifað í of miklum flýti og er að mestu úrdráttur úr bók sem var skrifuð af samtímamanni Saladíns. Þung í yfirlestri en kannski áhugaverð. Gerð fyrir Mannkynssögu I (tímabilið upphaf - sirka 1500 e.kr.) í Háskóla Íslands haust 2005. (7 1/2 bls.)

Menntaskólaritgerðir:

Ásatrúin í lífi víkinga. Hér er fjallað um tilbeyðsluvenjur víkinga og var ritað fyrir áfangan Sag3036 í Menntaskólanum við Hamrahlíð vorið 2004. (6 bls.)

Búddhismi & Hindúismi. Hér er reynt að svara því Hvað Búddhimsi erfði úr Hindúisma? Það er talsvert, enda er hann sprottinn þar upp úr. Þetta var skrifað fyrir fjölgyðistrúasögu í Menntaskólanum við Hamrahlíð haus 2004. (5 bls.)

Constantínus. Flavíus Veleríus Constantínus var keisari í Róm, flutti þungamiðju ríkisins þaðan til Konstantínópel (Istanbul) og kom á kristni. Þetta er umfjöllun um hann (ekki ritgerð) sem var skrifuð fyrir Ítalíusögu í Menntaskólanum við Hamrahlíð haustönn 2004. (4 bls.)

Fornsaga. Hér er að finna örstutt yfirlit yfir yfirráð yfir miðausturlöndum frá Súmerum um 4000 f. kr. til falls Aust-Rómverska ríkisins 1453 e. kr. Væntanlega skrifað fyrir Sag1036 sem hefur þá verið hvað, um það bil haust 2000. (2 bls.)

Fyrstu fjórir Kalífarnir. Hér er fjallað um fyrstu fjóra Kalífana sem stórnuðu Arabíu eftir fráfall Múhammeðs og gerðu bæði landið og trúnna að því sem hún er. Skrifað fyrir sögu mið-austurlanda í Menntaskólanum við Hamrahlíð haust 2003. (6 bls.)

HIV veiran. Lauslega fjallað um HIV og alnæmi og smit á Íslandi. Gert fyrir lif1036 í Menntaskólanum við Hamrahlíð vor 2004. (2 bls.)

Hubble & stjörnukerfin. Hér er fjallað um Edwin Hubble (faðir nútíma stjörnufræði) og flokkun stjörnukerfa. Gert fyrir stjarneðlisfræðiáfangan í Menntaskólanum við Hamrahlíð haust 2004. (3 bls. )

Juan Perón. var "fasista"leiðtogi í Argentínu og yfirleitt vinsæll (eiginmaður Evitu Perón sem er hvað frægari í dag "þökk sé" Andrew Lloyd Webber og Madonnu) Skrifað í miklum flýti, mjög óvandað og léleg lesning. Skrifað fyrir sögu rómönsku ameríku í Menntaskólanum við Hamrahlíð vor 2003. (3 bls)

Mannsæðustu skjálftar heims. Hér eru skoðaðir 10 mannskæðustu skjálftar sögunnar og bornir saman við 5 mannskæðustu skjálfta 20. aldar. Gert fyrir náttúruhamfarajarðfræði í Menntaskólanum við Hamrahlíð haust 2004. (8 bls)

Overconsumption and overusage of resources. Hér er um að ræða fyrirlestur og skýrslu fyrir áfangan Ens4136 í Menntaskólanum við Hamrahlíð (þar af leiðandi á ensku) haustið 2004. Hér er fjallað lauslega um ofnotkun á landi, grunnvatni, fiski og hráefnum. Auk þess er farið í eyðingu votlendis og minnkunar á fjölbreytni lífs. (3 bls.)

Prómóþeifur. Örstutt um gríska þursinn Prómóþeif/Prometheus. Lesið yfir slideshow-i sem var flutt í fjölgyðistrúarbragðasögu í Menntaskólanum við Hamrahlíð haust 2004. (1 bls.)

Saraþústra. Um Saraþústra, "trúarhöfund" Persa. Frá honum er komu englar, djöfullinn og hugmyndin um paradís í kristni og gyðingdóm, sem og hugmyndin um lokauppgjör góðs og ills, betur þekkt sem Armageddon. Skrifað fyrir fjölgyðistrúarbragðasögu í Menntaskólanum við Hamrahlíð haust 2004. (2 bls.)

Trúarbrögð forn-Kína. Hér er mjög stuttlega minnst á trúarhugsun forn-kínverja, sem margt hvað er enn að finna hjá þeim. Gert fyrir fjölgyðistrúarsögu í Menntaskólanum við Hamrahlíð haust 2004. (1 1/2 bls.)

Yfirtaka Bandaríkjanna á Texas. Hér er texti sem lesinn var yfir fyrirlestri um yfirtöku Bandaríkjanna á Texas frá Mexico og stríði við þá. Fyrirlesturinn var fluttur í sögu rómönsku ameríku í Menntaskólanum við Hamrahlíð vor 2003. (2 bls.)