Hinn Ótrúlegi Vefheimur Stefáns
Heim Jútúb Meðmæli Mómentið Myndir Mæspeis Tilvitnanir Tónhornið Trúbadorar Wikihvað

Mómentið:

Ef þú vilt benda á eitthvað sniðugt forrit, biðja um óskalag eða misstir af einhverju talaðu þá við mig hér og ég redda þessu.
|

Lag mómentsins:

The Clash - Know Your Rights. Snilldarlag með einum af bestu textum sem ég hef heyrt, veit ekki af hverju ég elska svona pólítíska texta þegar ég þoli varla pólítík.

Black Sabbath - War Pigs. Annað snilldarlag sem ég dýrka með frábærum pólítískum texta.

Bob Dylan - Blowin' in the Wind. Fyrst að talað var um pólítísk lög verður þetta bara að koma, eitt þekktasta pólítíska lag allra tíma.

Forrit mómentsins:

Firefox 2.0 er nýkominn út. Hann er málið, sérstaklega ef þú ert enn að bulla í Internet Explorer, sem er auðvita bara heimska. (erl. niðurhal)

Fyrrverandi lög mómentsins:

ATH. að fyrrverandi lög mómentsins hafa verið tekin af síðunni vegna plássleysis en ef þú hefur misst af einhverju sendu mér þá línu og ég redda málunum fyrir þig.

Alphaville - Forever Young. Skemmtilega 80's legt lag. Þetta er á trrúbadorasíðunni minni svona upp á gannið en Kristinn þekkti það ekki svo ég ákvað að henda því hingað líka.

Booker T. and the MG's - Green Onions Annað klassískt bíómyndalag, blúsaður bakgrunnur en soldið ég veit ekki hvað, Funk? yfir. Allavegana sama hvað þetta er, þetta er flott.

Dire Straits - Sultans of Swing. Svakalega flott lag sem kom snilldar hljómsveit á kortið.

The Doors - Roadhouse Blues. Þetta er eitt af uppáhalds lögunum mínum. Alger snilld

George Baker Selection - Little Green Bag Snilldarlag sem var gert ódauðlegt í mynd Tarantinos Resevior Dogs.

Howlin' Wolf - Highway 49. Skemmtilegur blús frá gömlum, góðum og þéttum blúsara. Can you feel it baby, yeah!

John Lee Hooker - Boom Boom. Hér höfum við alvöru blús af bestu gerð, flottur rythmi, flott sóló og skemmtileg laglína. Alger snilld.

Kool & The Gang - Jungle Boogie. Ég veit ekki hvort þetta er Boogie eða Funk eða hvað en shit svona er kool. Þetta rúllar.

Pink Floyd - Hey You! Þetta lag er svo svalt. Ég fæ alveg hroll þegar ég virkilega hlusta á það. Eitt flottasta lag ever. Ég trúi því ekki að það vilji enginn fara með mér á tónleikana, viðurkenni að þeir eru soldið dýrir en þeir eru algjörlega þess virði.

The Stranglers - Skin Deep. Veit ekki með ykkur hin en mér finnst þetta svalt lag. Kristinn sagði Golden Brown betra en ég segi að þetta lag sé málið.

Uriah Heep - July Morning. Minnir mig mjög á Deep Purple og alls ekki síðra.

Fyrrverandi forrit mómentsins:

Hér gildir það sama og með fyrrverandi lög mómentsins, þ.e.a.s. með forrit sem ég er að geyma sjálfur, forrit sem eru geymd annarstaðar verða enn með linka og lenda þau efst til að forðast rugling.

ABC [Yet Another Bittorrent Client]. Bittorrent forrit sem er frekar imbahelt, einfalt og gott. Bittorrent er aðferð til að deila efni og skrám fyrir þá sem ekki vita það. Ættuð að geta lesið ykkur eitthvað til hér (enska). (erl. download)

Adobe Audition v. 1.0 er upptökuforrit þannig að ef þú vilt nota það þarftu að eiga mic. Forritið bíður upp á fullt af möguleikum og er mjög gott. Þetta er krakkað og þú þarft að download nokkrum fælum, Abcpy.ini, Adobe Audition 1.0.msi, Data1.cab, setup.exe, SN.txt og SN.txt.bak

AntiVir. Ókeypis vírusvörn fyrir tölvuna þína. Þó það sé ókeypis er það alveg nógu gott og að lítill eftirbátur rándýru vírusvarnanna. (erlent niðurhal)

DCf++ 7.5 Þessi nýja útgáfa af dc er alger snilld, hún býður upp á segmented download sem þýðir að maður getur sótt sama file-inn frá mörgum í einu, sem gefur þ.a.l. meiri hraða.

FileZilla. Helvíti flott FTP forrit sem ég mæli með að fólk kíki á ef það hefur einhver not fyrir svoleiðis. Ókeypis og flott. (erlent download)

Guitar pro 4. Geðveikt forrit sem hjálpar manni að læra á gítar. Komin nýrri útgáfa en ég á hana ekki. (ekki á síðunni lengur)

VLC (Video Lan Client). Þessi spilari spilar svo til alla videofæla sem þér gæti dottið í hug og hann er ókeypis. (erl. download)