| Stefán mælir með að þú skoðir:
Ég hef lagt það á mig að skoða netið og ef ég finn eitthvað sem mér finnst fólk verða að sjá fær það þann heiður að fá link á sig hér. Ef þið sjáið eitthvað sem ykkur finnst að ætti að vera hér megið þið endilega benda mér á það í kommentkerfinu.
|
Nýjar uppástungur:
Eldri uppástungur:
Adrenalínfíkill. Okey þetta myndband er allt of langt og ég nennti ekki að horfa á það allt en það er fyndið til að byrja með og eitthvað segir mér þessi api sé adrenalínfíkill.
Bad Guys. Skemmtilega súrar flash-myndir.
Brackenwood. Hver myndi trúa að þetta væri gert á flash, og launalaust. Þvílík gæði, alveg ótrúlegt.
Ekki vera of fljótur að dæma. Það er víst auðvelt að misskilja svona. Hvernig maður sleppur við að borga hóru. Alveg frábærlega fyndið.
Irving. Félagslega hefta býflugan.
Jay & Silent Bob. Sena sem eydd var úr myndinni, I wonder why. Kanar og Bretland.Kanar kenna öðrum Könum hvernig skuli hegða sér í Bretlandi.
Of fljótur að fagna. Djöfull held ég að hann hafi verið í góðu skapi eftir þetta.
On the Moon. Allt getur gerst á tunglinu. Skemmtileg flash-sería. Retarded animal babies. Margir saka þetta um að vera stolið frá Happy tree friends og það er svosem eitthvað til í því en þetta er engu að síður enn fyndnara.
Tarantino hjá O'Brian. Ef að það er einhver sem er enn ekki búinn að sjá þetta þá er mjög gaman að horfa á þetta og gaman að hugsa til þess hvað fólk getur brugðist of harkalega við.
Tomorrow's Nobodies. Þættir um nokkra skrítna vini. Oft mjög fyndnir. Ef ykkur langar að hlæja smá er ekki úr vegi að tékka á þessu.
WTF??? Það er það eina sem hægt er að segja yfir þessu, kellingar eru sumar hverjar alls ekki heilar á geði og Tyra Banks er greinilega ein þeirra. You are a Fucking Moron. Já fræga fólkið getur stundum verið vitlaust, sem og aðrir. Þessi snilldarsería segir okkur frá öllu því heimskulega sem við gætum hafa farið á mis við.
Öfgahægri kanar að tala illa um Kanada. Fólk getur verið svo skemmtilega heimskt að það er ekki nokkru lagi líkt. Jesús. ATH. konan sem talar fyrst er líka á tilvitnanasíðunni. |