Ég var aðeins að flétta í gegnum www.midi.is til að sjá hvaða tónleikar væru væntanlegir hér heima. Það var að vísu ekkert minnst á neitt eftir 31. maí en eftirtaldir tónleikar virðast stærstir og áhugaverðastir fyrir einhverja, þó það sé bara 2 þarna sem ég hafi áhuga á.
Blúshátíð í Reykjavík 2007 3-6. apríl Á víð og dreif en aðalega á Domo samt. http://www.blues.is/dagskra.htm Þarna er að finna dagskrána og um flytjendur. Snilldarhátíð sem maður verður eiginlega að kíkja á. Meiri upplýsingar og miðasala hér.
Deep Purple og Uriah Heep 27. maí Laugardalshöll http://www.myspace.com/uriaheep Snilld sem felst allir þekkja. Ég er búinn að kaupa 2 miða á þetta. Ef einhverjir hafa áhuga á að koma með mér endilega hafið þá samband. Annars eru þið bjánar. Annars er nóg til af miðum enn (held ég) svo að ef að fleiri en 1 hafa áhuga þá er væntanlega hægt að kaupa fleiri. Smá meiri upplýsingar og miðasala hér.
Að þessu undanskildu er ég virkilega að íhuga að kíkja á Roskilde-festival í sumar. Þið getið fundið upplýsingar um hana hér. Hljómsveitalistinn, sem er ekki nærri tilbúinn, er mjög efnilegur, Beastie Boys, Red Hot Chili Peppers, The Who og fleira og fleira.
Endilega láta mig vita hvað ykkur finnst, seinasta grein fékk enginn komment þrátt fyrir að vera einstaklega gáfulega og flott (þó ég segi sjálfur frá ;). Hún fékk ekki einu sinni komment fyrir fáranlega málfræði, enskuslettur eða stafsetningarvillur. Skammist ykkar.
|
Þriðjudagur, 27. mars, 2007 Paranoia
Ég er búinn að vera að velta svoldið fyrir mér paranoiu. Eins og við vitum öll þá hefur hún alveg ótrúlegan eyðingarmátt og það þarf ekkert að fara nánar út í það. En hún hefur líka alveg ótrúlegan kraft í höndum pólitíkusa sem geta notað hana til að sefja múginn og komast upp með næstum hvað sem er. Í dag það Íslamskir hryðjuverkamenn, eins og við vitum öll, sem eru notaðir til að fóðra paranoiu almúgans og kúga þannig lýðinn. Þessi "hryðjuverkaógn" var "fundin upp" fljótlega eftir fall Sovétríkjanna sem var paranoiufóðrið þar á undan, eða kommúnistar réttara sagt. Kommúnistar voru alveg svakalega lengi fóðrir, allt frá byltingunni í Rússlandi árið 1917 og jafnvel fyrr. Að vísu kom smá pása í það þegar Nasistar og fasistar tóku yfir sem helsta paranoiufóðrir á seinni styrjaldarárunum. En við sjáum á þessu að þessi paranoiutaktík er orðin helvíti gömul og alls ekki hugarsmíð Bush eða ríkisstjórnar hans. Hann hefur samt nýtt sér hana til ýtar, sem Clinton gerði t.d. ekki jafn mikið af, enda held ég að Repúblikanar hafi í gegnum tíðina verið duglegri við að ýta undir paranoiu Bandaríkjamanna en Demókratar hafa verið.
Mér fannst aftur á móti mjög áhugavert þegar ég komst að því hvað helsti paranoiuvaldurinn var fyrir byltinguna í Rússlandi. Getið þið giskað á það? Það var ekkert annað en Anarkistar, en um aldamótin 1900 var mikill ótti við alþjóðlegar Anarkistahreyfingar sem hlýddu engum lögum unnu markvisst að því að fella stjórnir landa og koma á Anarakistastjórnum þar, líklegast með blóðugum byltingum. Þetta alþjóðlega kerfi átti að vera svo dreyft og búið að skjóta svo föstum rótum að einstök ríkisvöld áttu að vera valdlaus gegn ógninni. Hljómar kunnuglega, right? Minnir talsvert á umræðuna um kommúnismann hér fyrr á öldinni.
En þar sem einstaka ríkisvöld voru varnarlaus "varð" að gera eitthvað í málunum. Það þurfti að koma á alþjóðalögreglu sem ynni við að sporna gegn þessum að mestu ímynduðu ógn Anarkistahreyfinga. Þar af leiðandi var hin heldur vafasama stofnun Interpol stofnuð. Það hlaut að vera einhver svona skýring á bak við þá sögu eins og flestar aðrar alþjóðastofnanir. Ótrúlegt hvað fólk getur látið plata sig út í með því einu að pólitíkusar og "the liberal media" máli upp mjög ýkta og mjög svart-hvíta mynd. Svo ég vitni í texta á mjög lélegu lagi "Paranoia, sweet destroyer."
|
Sunnudagur, 25. mars, 2007 Bloggvikuklúður!
Jæja verður maður ekki að útskýra af hverju bloggvikan klikkaði hjá mér. Það er mjög einföld ástæða á því, á fimmtudaginn fór ég í skólann rétt fyrir átta um morguninn, ég var í skólanum til hálf fimm eins og venjulega, þá brunaði ég niður á Hlöllabáta og byrjaði að vinna þar klukkan 5. Ég var að vinna til 3 um nóttina, kom ekki heim fyrr en hálf 5, þar sem ég kíkti á íbúðina sem ég er að fara að flytja í eftir vinnu,og var þá of þreyttur til að blogga, þar með var bloggvikan ónýt. Ég hefði reyndar heldur ekki getað bloggað á föstudeginum þar sem ég svaf til 5, þá stökk ég í sturtu og skutlaði mömmu minni svo á fyllerí. Fyrst ég var þá kominn niðrí bæ á annað borð ákvað ég að hitta félaga mína sem voru í vísindaferð hjá framsóknarflokknum. Ég kom svo ekki heim fyrr en rúmlega 5 um morguninn. :P
Okey, fimmtudagurinn var semsagt mjög busy eins og þið lásuð, en hann var samt verri en þið getið ímyndað ykkur. Á miðvikudaginn vaknaði ég um hádegi, fór í skólan kl. 3, fór til félaga minns að gera verkefni eins og ég sagði í seinasta bloggi, og kom heim um miðnætti, þegar heim kom gat ég ekki sofnað. Ég var vakandi alla nóttina og fór því að dunda mér við að horfa á snilldarþættina Dexter (mæli með þeim). Svo fór ég ósofinn í skólann. Þurfti semsagt að vaka frá 12 á miðvikudegi til rúmlega 5 á föstudagsmorgni. Á fimmtudeginum flutti ég framsögu, gekk ágætlega en hefði án efa gengið betur ef ég hefði verið sofinn. :P En ekki nóg með það, það var meira að skemma hjá mér framsöguna. Á miðvikudaginn borðaði ég morgunmat/kvöldmat klukkan 6 um kvöldið, svo borðaði ég næst klukkan 7 á fimmtudagskvöldið í vinnunni þannig að ég var með mjög lágan blóðsykur þegar ég flutti þetta. Svo vildi reyndar svo til að næst þegar ég borða var klukkan 8 á föstudagskvöldið, og þá byrjaður að drekka, sem gerði fylleríið mjög ódýrt, en ég varð samt ekkert mjög ruglaður. Jæja er þetta ekk nóg af útskýringum?
|
Miðvikudagur, 21. mars, 2007 Þriðji dagurinn í bloggviku
Reyndar er klukkan 5 mínútur yfir miðnætti þegar ég skrifa þetta en ég var bara að koma heim úr skólanum svo ég hafði ekkert tækifæri til að gera þetta fyrr. Ég er búinn að vera að vinna í 20 mínútna framsögu sem ég á að flytja um mansal. Vissuð þið til dæmis að þessar konur eru fæstar plataðar út í vændi, miðað við rannsóknir eru þær flestar með talsverða vitneskju um út í hvað þær eru að ganga, þó að þær geri sér vissulega ekki grein fyrir því hversu slæmt þetta á eftir að verða.
Kennarinn tók það reyndar sérstaklega fram að hann vildi ekki fyrirlestur um Britney Spears þannig að ég ákvað að enda á því að birta mynd af Justin Timberlake og bjóðast til að svara öllum spurningum um hann sem fólk gæti haft. Svo er ég búinn að liggja yfir bio-um um hann og svona (eða þannig). Í undirstöðuatriðum er það eina sem ég get sagt ykkur um þennan mann er að einhvern tíman í fyrndinni var hann með Britney Spears, hann var í hommalegu boy-bandi sem hét N'sync og aðal áhrifavaldur hans í tónlistinni er víst enginn annar en Michael Jackson sem er talsvert vit í þegar maður skoðar taktana hans JT og hlustar á það hvernig hann syngur háu tónanna. Var þetta ekki áhugavert og fróðlegt?
Ég var reyndar ekki að læra allt kvöldið, ég endaði það á að horfa á The Rocky Horror Picture Show, brillíant. Susan Sarandon er í dag langfrægust af leikurunum í henni en var að mínu mati lang lélegasti leikarinn í myndinni. Tim Curry var geðveikt góður, það vita nú margir hver hann er, en hann er samt ekki nærri jafn frægur, að minnsta kosti ekki í dag. Jæja, komið gott, enjoy.
|
Þriðjudagur, 20. mars, 2007 Bloggvikan flýgur af stað
Jæja þá er kominn dagur tvö í hinni alræmdu bloggviku sem Kristinn fann uppá í fyrra en Krizzi var að endurvekja núna. Fyrir þá sem lesa ekki bloggin þeirra þá snýst bloggvikan um það að blogga einu sinni á dag í heila viku, hver frærsla verður að vera alvöru færsla, ekki eitthvað svona "ég vaknaði í morgun og fór í skólann." Í dag er semsagt dagur 2 og strax veit ég ekki hvað ég á að segja. Hmm ... Þeir semvita það ekki þá er ég orðinn vefstjóri hjá sagnfræðinemendafélaginu Fróða. Það er vægast sagt vanþakklát vinna, að setja inn allar þessar tilkynningar (sem hvort eð er eru sendar í tölvupósti, og að senda inn allar myndinrnar sem eru teknar á djömmunum okkar, sem tekur dágóðan tíma. Vanþakkláta fólk, ég fæ ekki einu sinni bjór í verðlaun. Iss.
Jæja, ég veit ekki hvað ég á að segja meira, enda vill ég ekki gera þau mistök að klára allt sem ég hef að segja á einum degin, þá á bloggvikan nú eftir að ganga frekar illa. Annars ætla ég að enda hér á Videoi sem ég sá á Youtube, sæmilega fyndið og geðveikt vel klippt að mínu mati, en nú skulið þið dæma um það sjálf.
|
Mánudagur, 19. mars, 2007 Yfirlit yfir góða þætti, þriðji hluti
Oz 9 af 10.
Um fangelsið Oz og fangana þar, daglegt líf, innbyrðis átök og átök við fangaverðina. Leiknir dramaþættir, svakalega vel gerðir og flottir.
Prison Break 8.5 af 10.
Maður fer í fangelsi til að brjótast út með bróður sinn sem bíður eftir dauðarefsingu þar. Gífurlega spennandi þættir en verða svoldið langdregnir, strax í fyrstu seríu var maður farinn að hugsa "hversu mikið getur farið úrskeiðis áður en allt klúðrast?".
Robot Chicken 7.5 af 10.
Einstaklega súrir þættir gerðir með dúkkum og leikfangaköllum. Hálfgerður scetchaþáttur. Svo sem lítið um þessa þætti að segja, enginn söguþráður eða neitt svoleiðis.
Rome 9 af 10.
Dramaþáttur sem gerist í Róm hinni fornu. Fyrsta sería segir frá því hvernig Sesar kemst til valda og er drepinn. Önnur sería sem er í gangi núna er um hvernig Oktavíanus (Ágústus) kemst til valda. Einstaklega vel gerðir, flottir og raunverulegir þættir. Mæli Hiklaust með þeim.
The Simpsons 8.5 af 10.
Um feitan heimskan mann og fjölskyldu hans. Oft drepfyndnir en þættirnir geta verið mjög misgóðir. Þið vitið öll hvað þetta er.
South Park 10 af 10.
Fjórir 8 ára (síðar 9 ára) vinir frá smábænum South Park í Colorado. Einstaklega kjaftforir og mjög sick strákar sem lenda í súrum ævintýrum, oft með social commentery. Þið vitið líka alveg hvað þetta er, enda eru þætta bestu þættir í heimi og Tray Parker er hetjan mín.
Tripping the Rift 7.7 af 10.
Teiknimynd. Geimvera, vélmennið hans, kynlífsvélmennið hans, frændi hans og aðstoðarflugkapteinn eru saman á skipi og lenda í ýmsum ævintýrum. Oft verið að gera grín að frægum myndum og þáttum sem gerast í geimnum, t.d. Star Wars, Star Trek, 2001... og fleiri.
The Venture Brothers 7.7 af 10.
Teiknimynd um 2 bræður og föður þeirra sem er misheppnaður vísindamaður og svo lífvörðinn hans sem er ódrepanlegur og óendanlega sterkur. Teiknimyndastíllinn er í anda Johnny Quest ef einhver man eftir því en söguþráðurinn er allt öðruvísi, svo súr húmor og viljandi misheppnaðar persónur.