Hinn Ótrúlegi Vefheimur Stefáns
Forsíða

Mánudagur, 28. maí, 2007
Tónlist

Eins og þið vitið flest þá er ég tónlistarnörd og ég verð að segja ykkur að á fimmtudaginn var fór ég á helvíti góða tónleika á Kaffi Hljómalind. Þar var Kristinn félagi minn að spila og var bara þvílíkt að brillera. Ég verð að viðurkenna að hann spilar tónlist sem ég myndi aldrei hlusta á en nú er ég búinn að heyra hann spila þetta og djöfull er hann fært tónskáld. Hann er tónLISTAMAÐUR, og ég var alveg að fíla þetta í botn. Takk fyrir geðveika tónleika Kristinn. Hann er með myspacesíðu ef þið viljið tékka á honum.

Á föstudaginn var ég svo niðrí bæ að skemmta mér og hitti þar vin "sambýlismanns" míns, og hann tók munnhörpusóló fyrir mig. SHITTURINN er það eina sem ég get sagt. Við stóðum á miðjum Laugarveginum og hann bara dregur upp munnhörpuna og fer að djamma í blússtíl. Það var svo mikið stuð að ég trúi því ekki. Djöfull langar mig að læra á munnhörpu, brilliant hljómfæri.

Í gær fór ég svo á Deep Purple/Uriah Heep tónleika. Uriah Heep byrjuðu á að spila í klukkutíma og þó að þetta væru einstaklega hallærislegir gamlir karlar þá skemmti ég mér konunglega. Tónlistin var góð en mér fannst að vísu vanta stemmingu í salinn. Þeir virstust nú samt vera að fýla sig þarna, enda algjörlega washed up og því örugglega ekki vanir meiri stemmingu en þetta upp á síðkastið. Svo tók Deep Purple við og þó að söngvarinn þar sé búinn að missa hæfileikann til að taka hæstu nóturnar og var aðarlega að rembast þegar hann var að reyna við þær þá var það snilld og salurinn, sem byrjaði full rólega, var kominn á geðveikt skrið undir lokinn og allir virtust skemmta sér konunglega. Gítarleikarinn var helvíti góður og sýndi það, svo kom líka hljómborðssóla, á meðan fóru hinir af sviðinu að hvíla sig aðeins, og helvítis húmoristi var hljómborðsleikarinn, tók eitthvað svona rokk/psychadelic sóló sem breyttist svo yfir í Mozart og eitthvað fleira klassískt, svo, viti menn, kom bara íslenski þjóðsöngurinn inn í þetta hjá honum, sem er að vísu lögbrot en hljómaði engu að síður mjög vel. Þegar hljómsveitinn hætti svo brutust út þvílík fagnaðarlæti í salnum og auðvitað urðu þeir að spila aðeins meira fyrir okkur. Bassaleikarinn byrjaði á bassasólói og svo allt í einu í miðju bassasólóinu fattaði fólk hvaða lag hann var að spila og byrjaði að syngja bassalínuna með, nema hvað að salurinn var svo hávær að hann náði nokkurn veginn að yfirgnæfa bassaleikarann, sem hætti þá að spila og lét okkur syngja línuna, svo join-aði hljómsveitin og geðveikt stuð. Einstaklega góðir tónleikar, þrátt fyrir háan aldur og einstaka hallærisleg 80's rokklög. Skemmti mér konunglega. Vil bara þakka fyrir mig, góð helgi tónlistarlega séð.

Í kvöld klukkan 21. verður svo hljómsveitin The Orange Affair að spila á Classic Rokk. Þetta er mjög góð classic/psycadelic rokkhljómsveit en hún verður að spila á blúskvöldinu, sem Classic rokk hefur haldið á hverjum mánudegi í vetur. Þetta er að vísu seinasta blúskvöldið í bili en ég mæli með því að allir sem geti kíki á þetta. Það vill svo til að ég þekki söngvarann, sem er einstaklega góður rokksöngvari, mikill kraftur í röddinni. Þeir eiga líka myspacesíðu en seinast þegar ég tékkaði á henni þá voru enginn hljóðdæmi inn á henni. Því miður kemst ég ekki á þessa tónleika þar sem ég er að fara að vinna klukkan 18 en ég sé þá vonandi síðar. Hmm, við nánari athugun virðist mér myspace síðan þeirra ekki vera til lengur svo að ég get þar af leiðandi ekki linkað á hana. Oh well.

Jæja er þetta ekki orðið nóg.

|


Föstudagur, 18. maí, 2007
Topp 3 leiðinlegustu myndir í bíóhúsi.

Ég er ekkert búinn að segja lengi, enda var ég bara í prófum og læti, þá vildi maður ekki gefa sér tíma í þetta kjaftæði, en nú eru þau búinn og enn vantar mig sumarvinnu. Svo er peningurinn minn líka löngu þrotinn. En nóg af kvarti. Nei veistu, ég ætla að kvarta meira. Ég fór í bíó í kvöld (það er fimmtudagskvöld), sá Spiderman 3. GUÐ MINN GÓÐUR, þetta er 3 leiðinlegasta mynd sem ég hef séð í bíó, þess vegna ætla ég að gera topp 3 lista núna og segja aðeins frá hverri mynd fyrir sig, for your enjoyment. ATH. þetta er ekki topp 3 leiðinlegustu myndir sem ég hef séð heldur aðeins þær sem ég fór á í bíó og eyddi því annað hvort 800 kr. eða 900. kr í að sjá :(

Númer 1:

Shijie (The World). Kínversk mynd sem hefur fengið mjög góða dóma. Sá hana á filmfestivali fyrir 2 árum minnir mig. Skildi hvorki upp né niður í söguþræðinum, ég þekkti ekki aðalleikarana í sundur svo ég vissi ekkert hver var hvað sem gerði söguþráðin enn flóknari og það gerðist aldrei neitt í myndinni. Í hléi löbbuðu svona 80% bíógesta út og hátindur myndarinnar var að einhver í salnum hraut eiginlega allan tímann, og það hátt, yfirgnæfði flest öll hljóð. Myndin kostaði mig 800. kr. að sjá en hún er -10.000 kr. virði, það er, það þyrfti að borga mér a.m.k. 10.000 kr. til að horfa á hana aftur, myndi ekki gera það fyrir minna.

Númer 2:

King Kong. Þá á ég við Peter Jackson útgáfuna, sem flestir voru að fýla og er líka að fá góða dóma en djöfull hata ég þessa mynd. Það gerist ALDREI neitt, það er endalaust af hallærislegri vælu og já, þrír klukkutímar af kvöl og pínu. Þetta er actually eina myndin sem ég hef stungið upp á að labba út af. Svo leiðinleg var hún. Kostaði mig 800 kr. að sjá hana en hún er -5000 kr. virði.

Númer 3.

Spiderman 3 er eins og ég sagði áðan þriðja versta mynd sem ég hef séð í bíó og það er að mestu út af sömu ástæðum og King Kong. Gerist bókstaflega ekkert í myndinni, endalaust mikið af vælu, ÓTRÚLEGA mikið af hallærislegum atriðum, sérstaklega þegar Peter Parker á að vera svalur. Það sem þessi hefur þó framyfir King Kong er að á meðan King Kong var 3 tímar of kvöl og pínu þá var Spiderman 3 bara tveir og hálfur tími af eintómum leiðindum. Ég var að berjast við að halda mér vakandi þegar svona einn og hálfur tími var búinn af myndinni, samt var ég ekki vitund þreyttur þegar ég fór á hana. Í mesta bardagaatriðinu, sem var auðvitað aðalspennuatriði myndarinnar þá var ég meira að segja farinn að hugsa, "á ég að pína mig lengur eða á ég bara að leggja mig?" Þessi mynd kostaði mig 900 kr. að sjá (meira en hinar vegna hækkunnarinnar) en er jafn mikið í mínus og King Kong -5000 kr. virði að sjá. EKKI FARA Á ÞESSA MYND Í GUÐANNA BÆNUM.

That is all, nú er bara að sjá hversu margir eru ósammála mér.

|