| mánudagur, 29 janúar, 2007
Bloggerfree!!!
Jæja þá er ég búinn að setja alla síðuna upp sjálfur án þess að nokkuð styðjist við draslkerfið blogger. Gerði örlitlar breytingar á síðunni og setti gömul blogg upp einn mánuður saman, plús forsíðan með 5 nýjustu færslunum. Langmesta vesenið var samt komment-kerfið, ég get ekki notað það sama og var í blogger svo ég endurpóstaði öllum kommentum sem ég hafði fengið, sem tók tíman sinn. Svo bætti ég við ritgerðunum mínum frá haustönninni minni og setti loksins inn nýja hljómsveit í tónhornið. En já ég ekki á nokkurn hátt líst því fyrir ykkur hvað það er gott að losna loks við blogger, það er nú meira helvítis draslið.
|
sunnudagur, 14 janúar, 2007
Gleðilegt ár
Jæja, búinn að vera óduglegur að blogga, en ég er að vinna í að setja þessa síðu upp alveg sjálfur og losa mig við blogger, enda er ég kominn með ógeð af því helvítis drasli. Það er þó nokkur vinna þar sem ég er með um 100 gömul blogg, sem ég ætla að færa yfir á nýju síðuna mína. Hún er með örlitlum útlitsbreytingum en svo litlum að þið takið varla eftir því. Allavegana, þau ykkar sem ég hef ekki hitt á þessu ári og lesið þetta, sem eru ekki mörg held ég, þá ætlaði ég að óska ykkur gleðilegs nýss árs.
Ég veit ekki alveg hvenær nýja síðan verður klár en þið skulið bíða spennt ;)
| |