Hinn Ótrúlegi Vefheimur Stefáns
Forsíða

miðvikudagur, 21 febrúar, 2007
Yfirlit yfir góða þætti, annar hluti.

Afsakið hvað þetta er búið að vera lengi að koma, fyrst kom dauði í fjölskyldunni og svo varð ég geðsjúklega veikur, komst varla fram úr rúminu og lífði á þrælsterkum vekjatöflum, en nú er það að baka, *knock on wood*. Ég er líka búinn að dragast helvíti mikið afturúr í skólanum á þessum tíma og því verð ég örugglega ekki duglegur í náinni framtið heldur en þið verðið bara að sætta ykkur við það, enjoy.

Dexter 9 af 10
Leiknir þættir sem eru byggðir á frægri skáldsögu. Þeir segja frá Dexter Morgan sem vinnur við "forensics" hjá löggunni. Hann er blóðsérfræðingur og er mikið að eltast við raðmorðingja, tvistið er að hann er sjálfur raðmorðingi. Feikna góðir þættir. (Fyrsta sería kláraðist fyrir jól úti í BNA)

Dilbert 7.5 af 10
Um Dilbert, engineer sem vinnur í svona cubical og á mjög bágt í vinnunni. Þekkt teiknimyndasería í dagblöðum. Þið hljótið að vita hvaða sögur þetta eru, ekkert allt of fyndnar er ágætar samt.

Drawn Together 8.5 af 10
"Fyrsta teiknaða raunveruleikasería í heimi" eins og þeir segja. Um mjög ólíka teiknimyndakaraktera sem allir búa saman í húsi vegna þess að það er raunveruleikaþáttur sem þau eru að taka þátt í. Oft geðveikt súrt og stundum mjög fyndið.

Family Guy 9.7 af 10
Teiknimynd um feitan fávita sem býr í Road Island. Vita allir hvað þetta er. Hann fékk alltaf 10 af 10 hjá mér en mér finnst hann hafa dala svoldið eftir að hann kom aftur og hefur því lækkað aðeins í einkunn.

Father of the Pride 7.8 af 10
Ótrúlega vel teiknaðir þættir um hvít ljón sem eru að vinna í galdrasýningum Sigfrieds og Roys í Las Vegas. Var bara gerð ein sería, ekki af því að þetta hafi verið óvinsælt heldur af því að hver þáttur var svo ÓGEÐSLEGA dýr að það bara borgaði sig ekki.

Futurama 9 af 10
Frá framleiðendum Simpsons. Fry ferðast til ársins 3000 og lendir í ótrúlegustu og heimskulegustu ævintýrum. Margir kvarta yfir því að ég gefi þeim betri einkunn en simpsons eiga eftir að fá en það er vegna þess að það voru bara gerðar 5 seríur (tæknilega séð 4, fimmta var bara þættir sem ekki komust inn) og því mun minna af leiðinlegum þáttum sem simpsons hefur gert mikið af seinustu árin og þar sem ég gef einkunn fyrir þættina í heild þá dregur það niður einkunn simpsonþáttanna, þó bestu simpsons séu betri en bestu futurama.

Harvey Birdman: Attorney at Law 8.3 af 10
Birdman, gömul ofurhetja frá Hanna Barbara, hefur lagt hetjustörf á hilluna og er nú lögfræðingur og er að verja aðrar gamlar Hanna Barbara hetjur í réttarsalnum. Skemmtilega mikil steypa. Hef reyndar bara séð fyrstu 2 seríurnar ne þær eru fleiri.

Heroes 10 af 10
Fjallar um venjulegt fólk sem hefur fengið ekki svo venjulega hæfileika, ofurkrafta if you will, vegna breytinga í genamenginu. Þættirnir sýna svo þegar það er að uppgötva krafta sína og læra á þá. Genafræðingur er að leita að þeim sem og einhver mjög undarlegur maður sem enginn veit mikið um, þar til síðar. Þess til viðbótar er annar að elta þau uppi og drepa þau. Geðveikir þættir, til að byrja með sagði ég já þeir eru góðir en mér finnst samt eitthvað vanta, núna finnst mér það ekki lengur. SNILLD.

How I Met Your Mother 8.5 af 10
Leiknir þættir um mann sem er að segja börnunum sínum söguna þegar að hann hitti móður þeirra. Hann er alveg hræðilega ýtarlegur og er basicly bara að segja þeim sögur af sjálfum sér og vinum sínum þegar hann var rúmlega tvítugur. Mjög fyndinn á köflum og alveg þess virði að horfa á. Fer samt stundum út í smá vælu og skítur sig þannig í fótinn.

|


mánudagur, 5 febrúar, 2007
Yfirlit yfir góða þætti, fyrsti hluti.

'Allo! 'Allo! 8 af 10
Eldgamlir leiknir breskir grínþættir um René, franskan kaffihúsaeiganda í seinni heimsstyrjöldinni. Þjóðverjarnir eru mikið að drekka á kaffihúsinu hans og hann hefur því mikil samskipti við þá, misgóð. Svo er franska andspyrnuhreyfingin að neiða hann til að hjálpa sér. Hann er líka kvennabósi og "sefur" hjá báðum gengilbeinunum sínum. Klassaþættir.

American Dad 8 af 10
Teiknimynd frá sama og Family Guy. Um Stan Smith, republikana sem er að vinna hjá CIA og er mjög hægrisinnaður. Hjá honum býr frekar heimsk eiginkona, vinstrisinnuð hippa-dóttir, sonur sem gerir allt eins og pabbi sinn, geimvera sem bjargaði lífi Stans og þau eru nú að fela frá CIA og talandi gullfiskur með heila úr austur-þýskum skíðakappa.

Aqua Teen Hunger Force 8 af 10
Teiknimynd um Franskar kartöflur, mjólkurshake og kjötbollu sem er spæjarar en eru samt aldrei að spæjast neitt. Aleger sýra. Carl, sem er nágranni þeirra og leigusali er líka einstaklega heimskur, eins og ALLIR í þessum þáttum, og örugglega með loðnari mönnum sem þú sérð í sjónvarpi.

Arrested Development 10 af 10
Leiknir þættir um fjölskyldu sem rekur húsasmíðafyrirtæki en faðirinn lendir í fangelsi. Miðsonurinn tekur það á sig að reyna að halda fjölskyldunni saman, þrátt fyrir að vera sá eini með nokkra heilastarfsemi. Vil ekki lýsa þáttunum of mikið til að skemma þá ekki en þetta eru með fyndnustu leiknu þáttum sem ég hef séð.

The Black Adder 9.5 af 10
Gamlir leiknir þættir með Rowan Atkinson (Mr. Bean). 4 seríur sem gerast allar á merkum tímum í breskri sögu, og fylgjast með Edwin Black Adder á þessum tímum. Fyrsta gerist eftir bardaga Ríkarðs 3. og Henry Tudors, næsta undir Elísabetu I, næsta undir Georgi II og loks í fyrri heimsstyrjöldinni. Vandaðir og flottir þættir.

Black Books 8.5 af 10
Leiknir breskir grínþættir um mjög sérvitran bóksölueiganda sem hatar fólk, mjög misþroskaðan aðstoðarmann hans og skrítna vinkonu þeirra sem rekur búð við hliðina á þeim. Öll drekka þau mjög mikið og eru yfirleitt í black-outi.

The Boondocks 8.7 af 10
Teiknimynd um svarta bræður sem flytja með afa sínum í ríkra manna hvítingahverfi. Afinn er að reyna eins og hann getur að falla inn í samfélagið, eldri bróðirinn er svona revolutionari svertingi, Dr. Martin Luther King er fyrirmynd hans, yngri bróðirinn er steríótýpískur rapparasvertingi. Oft mjög góð ádeila í þessum þáttum, og mikið af rastistabröndurum. Svakalega vandaðir og góðir, þó að söguþráðurinn gangi oft fram yfir húmorinn.

The Critic 7.3 af 10
Teiknimynd frá sumum af sömu framleiðendum og Simpsons. Um Jay Sherman, kvikmyndagagnrýnanda, feitan og ógeðslegan, og í raun mjög vandræðalegan. Hann hatar svo til allar myndir.

|