Hinn Ótrúlegi Vefheimur Stefáns
Forsíða

Þriðjudagur, 28. ágúst, 2007
Spekúlasjón

Ég var að velta fyrir mér eftir umræðu við Kristinn, Atla og Heiðar á kaffihúsi í gær, af hverju er betra að lesa bækur en að horfa á kvikmyndir? Er þetta ekki bara eitthvað íhald í fortíð og snobb? Hvað er betra við það að hafa lesið góðan slurk af heimsbókmenntunum en að hafa séð væna sneið af sígildum kvikmyndum og brautryðjendaefni af þeim toga. Ég er búinn að sjá ágætis magn af slíku efni en verð að viðurkenna að ég hef lítið lesið af heimsbókmenntunum. Að vísu er ég svoldið skrítin með það að ég nenni yfirleitt ekki að lesa skáldsögur, las 1984 og Animal Farm og varð fyrir miklum vonbrigðum með báðar. Hef lítið annað lesið. Ég nenni aftur á mót að lesa áhugaverðar fræðibækur, þegar sá andi leggst yfir mig, sem ég verð að viðurkenna að er ekki nógu oft. En okey, þar af leiðandi hef ég eitthvað vit á gildi meistaraverka kvikmyndasögunnar en ekki mikið vit á meistaraverkum bókmenntasögunnar þannig að ef einhver vill útskýra fyrir af hverju snobbliðið telur kvikmyndasögunna óæðri. Já meirihluti kvikmynda er sori, en á ekki það sama við um meirihluta bókmennta? Fjöldaframleitt rusl, hannað til að selja sem flest eintök. Ég veit að margir benda á að bókmenntirnar séu ekki jafn bundnar af lengd né tæknigetu eins og kvikmyndirnar en í staðinn getur kvikmyndinn stimjúlerað fleiri skylningarvit í einu, með tónum, myndum og orðum. Þannig að bæði hefur kosti og galla. Hví er þá annað talið betra en hitt.? Er einhver ósammála mér um að þetta eigi að vega jafnt? Er það ekki bara snobb, hlutdrægni og vitleysa? Endilega komið með ykkar skoðun, helst rökstudda.

|