| þriðjudagur, 10 október, 2006
Enn einn hver er maðurinn.
Þar sem ég gat svarið hjá Eið ætla ég að prufa þetta aftur. Eins og vanalega hef ég ekki hugmynd hvort þetta verður erfitt eða ekki svo við byrjum á fáum vísbendingum. Þessi svarti karlmaður er fæddur og uppalinn í Bandaríkjunum. Fæddur og látinn á 20. öld. Þessi maður hafði gífurleg áhrif en fæstir sem urðu fyrir áhrifum frá honum vita/vissu hvað hann hét og enn síður að þeir hefðu orðið fyrir áhrifum frá honum.
|
|