Hinn Ótrúlegi Vefheimur Stefáns
Forsíða

laugardagur, 25 nóvember, 2006
Í fréttum er þetta helst.

Ég er búinn að setja link á systur mína hérna til hliðar, loksins og ég er alltaf að update-a tónhornið, einu sinni í viku. Ég breytti líka skipulagi síðunnar þannig að hver færsla hefur sína eigin síðu, þið komist á hana með því að klikka á titilinn eða fara í "Síðustu færslur" neðst á síðunni. Með þessu getið þið linkað beint á þessar áhugaverðu færslur mínar. ;) Annars er ekkert nýtt á síðunni. Ég er farinn að lesa mbl helvíti mikið núna. Fín síða. Það sem mér fannst áhugaverðast þar núna er:

1 Stofnun á vegum Sameinuðu þjóðanna segir að Ísraelar hafi komið fyrir jarðsprengjum meðan á stríði þeirra við Hizbollah stóð í sumar. Þeir komust að þessu þegar 2 evrópskir sérfræðingar og líbanskur herlæknir særðust á svoleiðis í gær. Suðurhluti Líbanons er reyndar allur útí jarðsprengjum sem Ísraelar komu fyrir árið 2000 þegar þeir yfirgáfu Líbanon eftir 18 ára hersetu. Ekki nóg með það heldur hafa amk 24 látist af klasasprengjum eftir að stríðinu lauk í sumar, en Ísraelar vörpuðu víst um milljón slíkum sprengjum úr lofti á meðan stríðinu stóð.

2 Sambandssinnaður öfgamaður á Norður-Írlandi var handtekinn fyrir að reyna að drepa 5 manns, þar á meðal 2 leiðtoga Sinn Fein flokksins, sem berst fyrir sjálfstæði landsins. Það eru greinilega ekki bara aðskilnaðarsinnar sem eru árásargjarnir. :P

3 Það er stríð í Karamoja héraði í Úganda. Hefur einhver ykkar heyrt af því? En í gær drápu úganskir hermenn 55 óbreytta borgara í þessu héraði þegar þeir áttu að afvopna stríðsmenn. Yfrimaður mannréttindamála hjá SÞ, Louise Arbour, lýsti þessu yfir og segir hermenn beita óþarfa ofbeldi og sakar yfirvöld Úganda um að sinna ekki skyldu sinni í að vernda óbreytta borgara. Varnarmálaráðherra Úganda segir það synd að SÞ fjalli ekki um mannréttindbrot stríðsmannanna í þessu héraði, en þeir gangi um og nauðgi konum, myrði fólk og ræni því. Fólk hafi dvalið í flóttamannabúðum í yfir 40 ár. Hann segir og að borgararnir hafi fallið í skotbardögum hermanna og stríðsmanna og sé neikvæður en órjúfanlegur hluti svona stríðs.

4 Dagblöð í Belgíu hafa kært Google fyrir brot á höfundarréttarlögum. „Google sýgur upp innihald annarra vefsíðna og afritar það til birtingar á sinni síðu,“ og það segir lögfræðingur Belgísku dagblaðana skýr brot á höfundarrétti. :D

5 Forsetisráðherra Palstínu sagði í gær að herská samtök landsins hefðu ákveðið að hætta að skjóta heimatilbúnum eldflaugum á Ísrael ef það hætti hernaðaraðgerðum á Vesturbakkanum og Gazasvæðinu. Talsmaður Olmerts forsætisráðherra Ísraels sagði tilboðið fráleitt. Samtök Palestínumanna hafa oft komið sér saman um að hætta aðgerðum gegn Ísrael ef Ísraelsher svari í sömu mynt. Ekki hefur þó tekist að koma í veg fyrir átök.

Af innlendum fréttum er það helst að Landssamband sjálfstæðiskvenna hefur áhyggjur af því að framboð Árna Johnsen eigi eftir að draga úr fylgi við flokkinn og EES gæti verið í hættu því Norðmenn eru að íhuga að neita nýrri reglugerð sem gæti gert það að verkum að ESB dragi úr samvinnu við EFTA eða hætti því jafnvel alveg. MBL.is er mjög fín síða, sé eftir því að hafa ekki lagt það í vana minn að lesa hana fyrr. :P

|


þriðjudagur, 21 nóvember, 2006
Sólarraforkuver

Var að lesa grein á Mbl.is þar sem sagt er frá því að Kínverjar séu að undirbúa byggingu eins stærsta sólarraforkuvers í heimi. Það eigi að framleiða 100 megawött og mun byggingin kosta um 765 milljónir dala. Í seinasta mánuði tilkynntu Ástralir víst þeir ætli að byggja stærsta sólarraforkuver heims sem á að framleiða 154 megawött. Til samanburðar skoðaði ég hvað Kárahnjúkavirkjun á að framleiða mikið, en það mun vera um 690 megawött og kostaði ekki nærri jafn mikið svo að sólarraforkan á greinilega langt í land ennþá, því miður.

Kínverjar eru samt að þessu af því að þeir menga mest allra þjóða á eftir Bandaríkjunum og brenna mestu koli allra og eru að reyna að bæta það í samhengi við Kyoto-samkomulagið. Ástralar neituðu aftur á móti að undirrita Kyoto-samkomulagið en eru að þessu vegna þess að þeir hafa fengið mjög slæma umfjöllun í umhverfismálum, bæði heima fyrir og í alþjóðapressunni.

Það er gott að sjá að það sé þróun á umhverfisvænum orkugjöfum og maður vonar að bygging svona stórra sólarraforkuvera geri það að verkum að þau þróist hraðast og bætist, því þau eiga greinilega langt í land. Svo má alltaf vona að ekki líði á löngu þar til þau geti tekið við af umhverfisspillandi raforkuverum, a.m.k. að einhverju leiti.

|


fimmtudagur, 16 nóvember, 2006
ERROR!!!

Ég var að dunda mér við það um daginn að ljúga að fólki að það móðguðust sumir. Því voru það tæknileg mistök, ég ætlaði engan að móðga, bara ljúga smá.

Ég stal peningum en það voru líka bara tæknileg mistök.

Ég kýldi gaur um daginn, ... Tæknileg mistök.

Ég smyglaði inn eiturlyfjum og gaf 5 ára barni þau. Það óverdósaði og drapst. Tæknileg mistök, hélt það væri 6.

Ég skaut mann í andlitið. Tæknileg mistök, ætlaði bara að skjóta hann í hjartað.

Ég sendi her til að drepa tugi barna, kvenna og karla, allt saklausa borgar. Tæknileg mistök, my bad.


Ef þú skildir ekki vita hvað ég er að tala um þá var ég að horfa á fréttirnar um daginn og þá var verið að segja frá árás Ísraela á borg á Gaza-svæðinu þar sem tugir saklausra borgara var slátrað og hvað segir sendiherra Ísraels á Íslandi? Tæknileg mistök, sorry, en ekki dæma okkur, þetta er Arabadjöflunum að kenna.

Næsta frétt var svo um Árna Johnsen sem var að tryggja sér að komast á þing á næsta ári. Hann var spurðum um glæpi sína, sem sagt að hafa stolið milljónum og logið um það. Hvað segir hann? Tæknileg mistök. Virðist vera fullkominn afsökun fyrir hverju sem er, ótrúlegt hvað fávitarnir, þ.e. alþýða manna, sættir sig við.

Ég vil enda á að segja að glæpamenn eiga ekki heima á þingi og þessi hvítþvottur var enganvegin skiljanlegur þó hann hafi verið löglegur. En ég efa að það hafi verið löglegt með svona misnotkun í huga. Svo vil ég enn og aftur undirstrika það að ég viðurkenni ekki tilverurétt Ísraelsríkis, þó að allir í heiminum (nema Hamas) virðist gera það, meira að segja "Arabadjöflarnir".

|


föstudagur, 10 nóvember, 2006
Íslendingar eru víst fífl!!!

Vegna titilsins búast örugglega flestir við að ég sé að fara að tala um þessa útlendingar/rasismi en svo er ekki, þó að það sé góð vísbending um fullyrðinguna. Það sem ég er að tala er eitthvað sem ég hef mynnst á áður. Þið munið öll eftir Jay Leno þegar hann gekk um Los Angeles og spurði fólk spurninga og maður hló og hló og hugsaði með sér, "Stupid Yankee Motherfuckers". En svo komst ég að því að Íslendingar eru ekkert skárri, gátu ekki svarað einföldustu spurningum. Þegar ég var að tala um þetta við félagana tóku þeir ekkert allt of vel í þetta og spurðu, "hvað eru svona týpikal spurningar sem allir ættu að vita?" Ég er auðvitað svo dofinn að mér datt ekkert í hug en nú var ég að lesa Blaðið í dag, sem er btw. að breytast í DV sýnist mér, og sá þá einmitt dæmið sem ég var að leita að. Þar voru 5 ungir Íslendingar spurði 5 auðveldra spurning. Þau eru nafngreind og mynd með en ég ætla bara að kalla þau 1-5. Þetta voru spurningarnar:

Fyrsta spurning:
Hvað heitir höfuðborg Belgíu?
1 "Ég ólst upp í Bandaríkjunum og við lærðum svo lítið um Evrópu. Held samt að það sé Brussel."
2"Ég veit það ekki"
3"Brussel"
4"Góð spurning. Ég segi pass"
5"Ég hef ekki hugmynd"

Önnur spurning:
Hver skrifaði Heimsljós?
1"Ég hef ekki hugmynd. Íslensk bók?"
2"Ég veit það ekki."
3"Arnaldur Indriða."
4"Pass"
5"Ég veit það ekki."

Þriðja spurning:
Hvers konar dýr er Guffi í Andrés Önd?
1"Æ, er hann ekki bara svona einhver freakish samsuða frá Disney."
2"Æ, ég veit það ekki."
3"Hundur"
4"Veit það ekki."
5"Hann er hundur."

Fjórða spurning:
Hvað heitir Sauðárkrókur á ensku?
1"Fyrir mér hljómar þetta bara eins og crocodile."
2"Veit það ekki heldur."
3"Southkroke"
4"Veit það ekki."
5"Bara Sauðárkrókur."

Fimmta spurning:
Hvenær var heimsstyrjöldin síðari?
1Vantar svarið einhverra hluta vegna
2"Æ, ég veit það ekki heldur."
3"1939-1945."
4"Mig minnir að hún hafi hafist 1941 og endað 1955."
5"Æ, ég man það ekki. Ætli hún hafi ekki byrjað bara 1882."

Númer 3 var sá einni sem hafði eitthvað vit, með 3 af 5, hinir eru hálfvitar. Vitið þið kannski ekki svörin? Ef svo er þá eru þau auðvitað: 1.Brussel, 2.Halldór Laxness, 3.Hundur, 4. Sauðárkrókur og 5. 1939-1945.

Spurningin um Sauðárkrók er reyndar trick-spurning og því möguleiki að einhver hafi kveikt seinna en allt hitt er eitthvað sem allir íslendingar vita, eða svo hélt ég. Sumir svara reyndar Haag sem höfuðborg Belgíu en það var spurningin sem flestir voru með ótrúlegt en satt. Hvað finnst ykkur er þetta ekki nægileg sönnun eða hvað. Og það er bannað að benda á að ég sé hálfviti líka af því að ég kann ekki að skrifa, deslexían er fullkominn afsökun á því fyrir mig.

Allaveganna, niðurstaða mín er eitthvað sem ég hef haldið lengi, það eru ekki bara redneck kanadjöflar sem eru fífl, FÓLK ER FÍFL.

BTW. ég eyddi musicvideobloggunum út af blogginu þar sem að þau voru helvíti þung og gerðu þ.a.l. síðuna þunga. Þau eru nú komin í nýjan lið hér til vinstri, Tónhornið .

|


miðvikudagur, 08 nóvember, 2006
Trend í uppsiglingu!

Rakst á sniðugan leik á síðunni hans Atla en hann er svona:

IF YOUR LIFE WAS A MOVIE, WHAT WOULD THE SOUNDTRACK BE?
So, here's how it works:

1. Open your library (iTunes, Winamp, Media Player, iPod, etc)
2. Put it on shuffle
3. Press play
4. For every question, type the song that's playing
5. When you go to a new question, press the next button
6. Don't lie and try to pretend you're cool...

Opening Credits:
Pink Floyd - Childhood's End (Byrjar drungalega meðan verið er að kynna prodúserana, svo byrjar lagið allt í einu. Gæti verið þegar skjárinn hættir að vera svartur og myndir byrja. Helvíti kúl)

Waking up:
Stevie Ray Vaughan - Boot Hill (Svalur hress nútíma-blús. Ég er greinilega hress þegar ég vakna.)

First Day At School:
Amazulu - Montego Bay (Ég hef ALDREI heyrt þetta lag áður. Örugglega verið í möppu sem ég downloadað undir nafninu Best of the 80's. En miðað við lagið virðist ég ganga í skóla á Jamaika á níunda áratugnum.)

Falling In Love:
Deep Purple - Fireball. (Haha, á ekkert sameinglegt með ást, sem hlýtur þá að túlkast sem að ég eigi ekkert sameiginlegt með ást :P)

Fight Song:
Jeff Buckley - Kick Out the Jams (Helvíti kúl og skemmtilega aggressive)

Breaking Up:
Sonic Youth - Cinderella's Big Score (Þetta break-up hefur greinilega gert mig hálf-brjálaðan. Mellowdramað skín í gegn, en samt hresst svo mér virðist nokk sama)

Prom:
Jason Donovan - Any Dream Will Do. (Mjög rómó prom en einstaklega hallærislegt. Aldrei heyrt lagið áður, örugglega haldið að ég væri að dl Donovan en ekki Jason Donovan.)

Life:
Stanley Myers - Cavatina (Veit ekki hvað framleiðendur Deer Hunter myndu segja yfir því, þar sem þetta lag er aðalnúmerið í þeirri mynd. En miðað við lagið var líf mitt MJÖG sorglegt og hægt.)

Mental Breakdown:
Upplyfting - Rababara Rúna (Hver er ekki sammála því að það tengist mental breakdown.)

Driving:
Karlakór Rangæinga - Þú Álfu Vorrar Yngsta Land (Ég hlýt að vera gamall karl í lopapeysu og keyrandu um sveitir Íslands á gömlum LandRover :D)

Flashback:
David Bowie - Love You Till Tuesday (Fjörugt lag sem tengist flashbacki vissulega)

Getting Back Together:
The Beatles - Eight Days a Week (Óendanlega viðeigandi)

Wedding:
System of a Down - Hypnotize (Hún hefur ekki viljað mig svo ég hef þurft að dáleiða hana. Ég virðist líka vera reiður út í stjórnina þegar ég gifti mig.)

Birth Of Child:
Mannfred Mann - Blinded By the Light. (Flott lag en veit ekki hvað það tengist barnseignum. Eina leiðinn sem ég get skilið þetta er semsagt að barn mitt verði svo bjart og fagurt að ég fá ofbirtu í augun, sem er svosem skiljanlegt miðað við hver pabbinn er.)

Final Battle:
Disturbed - Sacred Life (Mjög grimmt nú-metallag. Ég virðist vera hnakki með aflitað hár að berjast í kung-fu stæl í lokabardaganum.)

Death Scene:
Týr - Ormurinn Langi (Færeyingar virðast hafa haldið hátið þegar ég dey, en samt smá drungalegur blær yfir hátíðinni.)

Funeral Song:
The Beatles - Magical Mystery Tour (Væri viðeigandi ef það væri ekki svona fjörugt. Ég meina hver veit hvað gerist þegar maður deyr? Svo sannarlega Magical Mystery Tour, nú eða rotnun í jörðinni, you never know.)

End Credits:
Amboy Dukes - Journey to the Center of the Mind (Þriðja lagið sem ég hef aldrei heyrt áður. ég download-aði möppu sem hét Top 500 Rock and roll songs og þetta var númer 488. Ekkert varið í þetta lag og því kannski mjög viðeigandi þar sem mynd um líf mitt yrði það örugglega líka.)

Þetta soundtrack er bara að mestu nokkuð gott, mun betra en ég þorði að vona þar sem ég á svo mikið af krappi í tölvunni. Stundum pössuðu löginn svo vel að mig grunaði meðan ég var að þessu að fólk myndi halda að ég væri að svindla en svona er þetta. Nú mátt þú endilega gera þetta líka. Og endilega segja mér hvort þið mynduð kaupa þetta soundtrack???

|


laugardagur, 04 nóvember, 2006
Uppfærslur og lagfæringar

Búinn að vera að dunda mér við síðuna í dag. Setti inn rauðan lit á linka og á headerinn. Mjókkaði borderin úr 10px niður í 5px. Lagaði linkinn á myndasíðuna, sem hefur ekki virkað síðan þeir uppfærðu serverana hjá sér. Bætti loksins inn myndunum frá Egilsstöðum og lýsi hverri og einni. Fjölgaði síðunum sem ég mæli með undir "Góðar síður" og tók eina út. Bætti inn link á mæspeis síðuna sem ég upp færði templetið á líka. Uppfærði Mómentið síðuna og eyddi út skvísu mómentsins. Uppfærði Meðmælasíðuna. Endilega látið mig vita hvað ykkur finnst, er t.d. ljótara að hafa rauða litinn eða er það skárra? Endilega koma með feedback.

Svo bloggaði ég líka musicvideobloggi 5 í morgunn, sem ég reyni að gera hverja helgi en enginn virðist nenna að skoða svo það er hugsanlega meira fyrir mig en ykkur.

Allavegana, hvað finnst ykkur???

|