Hinn Ótrúlegi Vefheimur Stefáns
Forsíða

föstudagur, 31 mars, 2006
Fallinn með 4.9

ég er falinn, sem betur fer. enda hef ég mun mikilvægari hluti að gera en þetta bull. ástæan fyrir að ég féll var samt sú að ég sofnaði klukkan 7 og var að vakna. :P

(titillinn er íslenskt lag ef einhver er forvitinn. man samt ekki með hverjum)

|


miðvikudagur, 29 mars, 2006
fimm

Þar sem enginn kvartaði yfir því að seinasta færsla var 10 mínútum of sein þá verð ég víst að halda áfram :P

Hvað skal fjalla um í kvöld? Það kemst því miður lítið annað en ritgerðir fyrir í höfðinu á mér núna enda þarf ég að skila 3 ritgerðum á næstu 1 1/2 viku.

Það er alveg ótrúlegt hvað virðist hægt að gera í flashi orðið, skoðið til dæmis þetta , þetta er SVAKALEGA vel gert, sérstaklega miðað við að þetta er bara einhver gaur út í bæ.

Einu sinni var ég líka að tala um að það væri mjög áhugavert video á huga um öfga-hægrisinnaða kana sem voru að tala illa um kanada. Hér er það. Glöggir menn taka kannski eftir því að konan sem er að tala þarna fyrst er líka á quote-a síðunni minni. Dr. Laura :)

Þið munið væntanlega öll eftir fárinu sem varð eftir að Tarantino var í spjallþætti Conan O'Brian's. En hafið þið séð þetta viðtal? Ef svarið er nei þá er það að finna hér . Mér finnst nokkuð greinilegt að maðurinn er að miklu leiti að ýkja og grínast, auðvitað, Conan O'Brian er þannig þáttur. Alger óþarfi að vera að taka þetta eitthvað alvarlega.

Gæti svo sem bennt á fleira áhugavert en þetta er komið gott er það ekki? Ciao
Lagalistinn. Jamm þið fáið lagalista núna, húrra :D
I Walk the line - Johnny Cash
Folsom Prison Blues - Johnny Cash (ef eitthvað er að marka myndina Walk the Line þá er þetta fyrsta lagið sem hann samdi.)
Ring of fire - Johnny Cash (þetta lag er eftir June Carter, seinni eiginkonu hans, ef eitthvað er að marka myndina)

|


numero 4.

Nú veit ég ekkert hvað ég á að segja, látum okkur sjá... Á um daginn sá ég grein í annaðhvort fréttablaðinu eða blaðinu sem var að tala um það að póstmodernískar bíómyndir væru að deyja, jafnvel dauðar (nennti ekki að lesa alla greinina) og pólítískar myndir teknar við, og þeir settu mark þessa atburðar við 11. sept 2001. Þeir töluðu um Tarantino og einhvern annan, man ekki hvern, sem boðbera póstmodernisma. Mér hefði aldrei dottið í hug að hann væri það en jæja. Í tíma á mánudaginn var svo fyrir tilviljun verið að fræða okkur um hvað póstmodernismi snérist, hvar hann spratt upp og hvaða áhrif hann hefur haft. Póstmodernismi spratt upp í bókmenntafræðideildum í háskólum í Bandaríkjunum og breiddist fljótlega í aðrar greinar, hann kom fljótt til Evrópu en var lengi að koma til Íslands. Hann minnti mig um mjög á venjulega efasemdahyggju og hún hafði mest áhrif á sagnfræðina. Nú er það trú sagnfræðinga að þeir geti ekki komist að hinum raunverulegu sögulegu atburðum, aðeins reynt að komast eins nálægt þeim og hægt er. Það sem ég ætlaði aftur á móti að fjalla um var að póstmodernimsi er hápólitískur, snýst nokkurn vegin um að gagnrýna valdið, staðlaðar kennsluaðferðir og svo framvegis. Eins og kennarinn sagði þá eru/voru póstmodernistar oft uppgjafarMarxistar sem fengu nóg af alhæfingarkenningum og vilja ekki alhæfingar um neitt, þeir vilji basiclly smáar brotóttar kenningar. En spurningin sem ég ætlaði að koma með er að ef póstmodernismi er svona pólitískur hvernig er þá hægt að segja að póstmodernískar myndir séu dauðar og pólitískar myndir hafi tekið við?

Lagalistinn:
Alexis Korner - She fooled me
Alexis Korner - Operator (vá þessi söngur minnir mig á Robert Plant)
Alexis Korner - I got a woman (Gaman að bera þetta saman við upprunalegu Ray Charles útgáfuna, held að minnsta kosti að þetta sé sama lagið)

Djöfull ég var svo lengi að skrifa þetta að klukkan er nokkrar mínútur eftir miðnætti, vona að þetta sleppi. Bless í bili.

|


mánudagur, 27 mars, 2006
Færsla hin þriðja.

Ég var að horfa á mynd á skjá einum í gær (ég sem hef ekki horft á sjónvarp í ár og aldir). Að sjá allar þessar washed up stjörnur sem maður hefur ekki séð í fleirri ár, og öll ung. Enda var þetta myndin sem gerði flest þeirra fræg. Þarna var: Emilio Estevez , Rob Lowe , Demi Moore , Andie MacDowell , Judd Nelson , Andrew McCarthy , Ally Sheedy , Mare Winnigham . Estevez, Moore, McCarthy og Sheedy eru interestingly enough öll fædd 1962, Nelson og Winnigham '59, McDowell er svo elst, fædd '58 og Rob Lowe yngstur fæddur '64. Þau eru öll að leika 22 ára krakka sem eru basiclly að fatta að þau eru orðin gömul. Myndin er gerð 1985 þannig að aldurinn passar ágætlega. Einhverjir gáfaðir eru ef til vill búnir að fatta hvaða mynd þetta er en ég efast samt einhvern veginn um það, myndin heitir St. Elmo's Fire . 7 manna vinahópur, nýbúinn með Háskóla (veit aldrei hvernig ég á að þýða College) er að berjast við það að fullornast. Vandamál þeirra er að þau eru öll self-centered og obnoxius. Þetta er plotoutline-ið. Maður gat ekki tengt sig við neinn karakter því þau voru öll óheilbrigð, sækó er jafnvel betra orð. Mjög óraunverulegir og þ.a.l. illa skapaðir karakterar. Ekki var sagan skemmtilegri. En einhverja hluta vegna tókst henni samt að vekja upp hjá mér fortíðarþrá. Ég hata fortíðarþrá. Kannski var það það að myndin er um vini sem ákveða að stick together no matter what, kannski er það það að þetta eru allt leikarar sem maður þekkti sem krakki en hefur ekki séð í háa herrans tíð, eða samspil beggja. Allavegana ég hata fortíðarþrá, þá líður mér illa í hjartanu, fæ þrýsting á bringuna og andardrátturinn verður þungur. Kannast einhver við þetta eða er ég kannski líka sækó? Myndin fær 4.5 af 10 fyrir að vera frekar leiðinleg og illa skrifuð (að mínu mati) en var samt vel leikin og ágætlega gerð, handritið og sagan skipta bara svo miklu máli, að minnsta kosti hjá mér.

Þetta varð ekki nein smá umræða um eina mynd. Oh well. Þið fáið engan lagalista núna. Þið verðið að læra að hætta að treysta á hann Stebba til að segja ykkur hvað er gott og reyna að finna ykkar eigin smekk, þess vegna ætla ég að gera smá óreglu á lagalistan svo að þið getið ekki treyst á hann lengur.

Tata.

|


sunnudagur, 26 mars, 2006
Færsla 2!!!

Þeir sem vita það ekki þá er ég að taka áskorun um að ég verði að blogga eina færslu á dag í heila viku. Seinasta færsla var sú fyrsta í þeirri röð, þetta er önnur. Það er örugglega bara ein ástæða fyrir að ég nenni þessu og það er að ég ætti að vera að skrifa ritgerðir (í fleirtölu) sem ég nenni auðvitað ekki.

Ritgerðin sem ég er að vinna í núna er um héraðsstjórn á íslandi á 16-19 öld. Reyndar byrja ég að tala um 1281 þegar Jónsbók var sett því að það skipulag hélst lítið breytt þangað til á 18. öld og svo var því breytt aftur í byrjun 19. aldar og eftir þær breytingar hættir ritgerðin.

Næsta ritgerð verður svo um efnahags- og atvinnumál Íslands í fyrri heimsstyrjöldinni og ætla ég þá að leggja sérstaka áherslu á viðskipti Íslands við Dani, Breta og Þjóðverja. Ég er ekki mikið byrjaður að lesa um þetta ennþá en mér sýnist að verslun við dani hafi að mestu hætt þarna og við farið að auka verslun við bæði Þjóðverja og Breta en lennt í einhverju veseni með þessi viðskipti við Þjóðverja þar sem þeir voru "óvinurinn". Er ekki 100% viss með það samt.

Ég er ekki alveg búinn að ákveða hvað þriðja ritgerðin verður um. Fyrst langaði mig til að skrifa um hið svokallaða "villta vinstri" á 8. áratugnum, eða var það á þeim 9.? en ég fann engar heimildur um það svo að nú er ég að hallast aðeins á það að skrifa um Borgaraflokkinn sem var frekar skammlífur í stjórnmálum á 9. áratugnum. Af hverju ætli samtímasaga snúist alltaf næstum eingöngu um pólitík?

Jæja er þetta ekki komið gott?
Lagalistinn:
Ask - The Smiths
Boy with the thorn in his side - The Smiths
How soon is now - The Smiths

þangað til á morgun (vonandi) Tata.

|


laugardagur, 25 mars, 2006
Stolin hugmynd.

Ég vaknaði í morgun og fékk mér bjór. Framtíðin er óviss og endirinn er ávallt nærri. Situr á garðabekk, lítur á litlu stelpurnar með illt í huga. Farðu af skýinu mínu. Við komum frá landi íss og snjós, með miðnætursólinni og hverunum. Svo, svo þú heldur að þú þekkir himnaríki frá helvíti. Bláan himin frá sársauka. Trú þín var sterk en þú þurftir sönnun. Líttu í augu mín og þú sérð hver ég er. Ég heiti Lúsifer vinsamlegast taktu í hendi mér. Helvíti er ekki slæmur staður, helvíti er héðan til eilífðar. Ég er á hraðbraut til helvítis. Mamma, ég var að drepa mann. Setti byssu mína að höfði hans, tók í gikkin, nú er hann dauður. Hefurðu rennt fingrum þínum niður vegginn og fundið hárin á hálsinum rísa þegar þú leitar að ljósinu? Stundum þegar þú ert hræddur um að kíkja í hornið á herberginu. Þú skynjar að eitthvað horfir á þig.

(ef þið takið ekki eftir því þá var þemað merki þess hvernig endirinn er nærri)

Lagalistinn:
Roudhouse Blues - The Doors
Aqualung - Jethro Tull
Get off of my cloud - Rolling Stones
Imigrant song - Led Zeppelin
Wish you were here - Pink Floyd
Hallelujah - Leonard Cohen/Jeff Buckley
Nativity in black - Black Sabbath
Hell ain't a bad place - Iron Maiden
Highway to hell - AC/DC
Bohemian Rapsody - Queen
Fear of the dark - Iron Maiden
(Var einhver sem tók ekki eftir tengslum lagalistans og textans fyrir ofan fyrr en hann las þessa setningu? Ef svo er skal sá hinn sami segja það í kommentunum til að hljóta sérstök "I'm an idiot" verðlaun. Ef einhver getur bent á villur í textanum (annað en stafsetningarvillur) fær sá hinn sami sérstök "I always have to butt in" veðrlaun) Ciao.

|


föstudagur, 10 mars, 2006
Tónleikar sumarsins!!!

Nei sko, undur og stórmerki, ég nenni að blogga, en það er örugglega bara af því að ég á að vera sofandi. Ég er búinn að vera að skoða hvað er í gangi í tónleikum núna og í sumar. Þetta er það sem ég hef fundið ennþá.

12. 3 á Nasa. The Bad Plus . Óhefðbundin jazzhljómsveit. Fann ekki mikið um þá. Helst þá linkurinn hér að framan og á www.event.is en þar er líka hægt að kaupa miða. Getur reyndar líka keypt miðan hér .

Miðaverð er aðeins 3.300 kr + 250 kr miðagjald og mjög takmarkað magn miða er í boði.

ATH: Aðgöngumiðar fást ekki endurgreiddir. Ölvun ógildir miðann.
Hljóð- og myndupptökur óleyfilegar með öllu.
20 ára aldurstakmark



13. 3. á Nasa. José Gonzales . Veit lítið um hann. Hann er svona Sadcore, Indie Rock, Slowcore
Ef þú vilt kíkja á lag með honum mæli ég með að skoða Crosses.
Frekari upplýsingar:
www.destiny.is
www.jose-gonzalez.com

Getur keypt miða á hann og lesið þig aðeins til um hann hér . Hann kostar 2.500kr.

22. 3 á NASA. Laibach . Industrial, Alternative Pop/Rock, Conceptual Art, Noise, No Wave, Avant-Garde. Veit ekkert meira um þessa hljómsveit. Get ekki einu sinni mælt með lagi til að skoða með þeim.

Miðaverð er 2.990 kr. + 230 kr. miðagjald.

20 ára aldurstakmark

Getur keypt miða og lesið þig til um þá hér . Samt örugglega meiri upplýsingar á fyrri linknum (klikkið á nafnið þeirra).

06. 4. á Nasa. dEUS . Alternative Pop/Rock, Neo-Prog, Experimental Rock. Stórir á 10 áratugnum, Belgískir. Eiga nokkur flott lög, getið kíkt til að mynda á Suds & Soda sem er örugglega frægasta lagið þeirra.

Verð: 2500 kr + 200 kr miðagjald.

Ef greitt er með Svarta Kortinu:
2000 kr + 200 kr miðagjald

Frekari upplýsingar:
www.deus.be
www.destiny.is

Getið keypt miða og lesið örlítið um þá hér (meiri upplýsingar á hinum linkunum).

14. 4. í Háskólabíó. Ray Davies . Ef þú veist ekki hver það er þá var hann aðal lagahöfundur, söngvari og rythma-gítarleikari í snilldarbandinu The Kinks. Ef þú þekkir þá ekki er úr mörgu að velja, þú þekkir örugglega You Really Got Me, Lola og fleirri.

Verð:
Svæði A 13.900 kr + 490 kr miðagjald
Svæði B 9.900 kr + 490 kr miðagjald
Svæði C 6.900 kr + 490 kr miðagjald

Sendingargjald:
530 kr. sent í ábyrgðarpósti.

Þetta er því miður mjög dýrt, það dýrt að maður þarf að hugsa sig um en um að gera að velta þessu í alvöru fyrir sér.
Getur keypt miða hér eða hér .

03. 5 í Laugardalshöllinni. Iggy & the Stooges . Snilldarband. Þó að punk-hljómsveitir vilji kannski ekki viðurkenna það þá hafa þær allar "stolið" einhverju frá The Stooges. Ef þú þekkir það ekki skaltu skoða lög eins og 1969, No Fun og fleirra.

5.300kr. í stæði 6.300kr. í sæti. Miðasala í Mál & menningu, Laugarvegi 18 eða hér .

17. 5 á Nasa. CocoRosie . Veit ekkert hvað þetta er. 2 systur, þær eru að spila Indie Rock, Trip-Hop, Indie Electronic, Post-Rock/Experimental, Dream Pop. Veit að þær hafa unnið með Antony úr Antony and the Johnsons. Þið getið fundið upplýsingar, tóndæmi o.fl. hér . Veit ekkert meira.
ATH: Aðgöngumiðar fást ekki endurgreiddir. Ölvun ógildir miðann.
Hljóð- og myndupptökur óleyfilegar með öllu.


Verð : 3400 kr + 250 kr miðagjald.

Getið keypt miða hér .

23. 5 í Laugardalshöllinni. Ian Anderson . Maðurinn bak við Jethro Tull . Aqualung er geðveikt lag sem allir ættu að þekkja en satt að segja þá veit ég ekki um neitt annað sem þeir hafa gert sem er þess virði að minnast á. Reyndar ekki búinn að kynna mér það mikið.
Frekari upplýsingar:
www.performer.is
www.jethrotull.com
Verð:
A Svæði salur: 8900 kr + 490 kr miðagjald.
B Svæði salur: 7900 kr + 450 kr miðagjald.
C Svæði pallar: 5900 kr + 390 kr miðagjald. (ath góð staðsetning en ekkert bak)
D Svæði Stúka: 5500 kr + 390 kr miðagjald.
Getið keypt miða hér .

04. 6 á Nasa. Sleater-Kinney . Þrár stelpur, indie, hafa komið fram með U2 og Pearl Jam to name some, of þreyttur til að hugsa meira um það. Lesið þið bara linkinn. Miðaverð 2500kr + 200kr miðagjald. Miðasala hér .

09. 6 í Laugardalshöllinni. Zappa plays Zappa . Frank Zappa var auðvitað snilli, en þetta er ekki hann þar sem hann er dauður, heldur sonur hans. Hann er með einvalalið með sér, t.d. Steve Vai, einn besta gítarleikara heims. Zappa gerði allskyns tónlist, hvað frægast svona fyrir almenning er örugglega lagið hans Bobby Brown. Þið getið lesið um þessa tónleika hjá rr (fyrsti linkurinn). Get hvergi fundið neitt um verð, hvar miðasölur verða né hvenær þær hefjast.

12. 06 í Egilshöll. Stærsti viðburður ársins, Roger Waters , aðalmaðurinn á bak við Pink Floyd . Samdi stóran hluta verka þeirra og svona. Í fyrri hluta dagskrárinnar spilar hann ýmis lög frá ferlinum, þar á meðal vel þekkta hljóma frá fyrstu árum Pink Floyd, hluta af ?The Wall?, ógleymanleg lög af "Animals," "Wish You Were Here," og "The Final Cut"; ásamt atriðum úr sólóferli Waters, svo sem "Amused To Death" og "The Pros and Cons of Hitch Hiking." Í annari lotu spilar hann svo Dark Side of the Moon í heild sinni og ef til vill meira. Það verður geðveikt show, til að mynda vídeómyndir á stórtjaldi, margvísleg leikhústilbrigði og hljómeffektar.

Maður veit varla hvaða lög maður á að benda á þau eru svo mörg, Money, Wish you were here, Another Brick in the Wall, Hey You, See Emily Play, Time og endalaust meira. Þessir tónleikar verða án vafa svakalegir.

Miðaverð er 8900 í A svæði og 7900 í B svæði +550kr miðagjald. Þið getið keypt miða hér en miðasala hefst á miðvikudag eða fimmtudag, man ekki alveg hvort. Ef þú mætir ekki verður þú verri maður fyrir vikið.

Ég veit ekki um neitt meira, sleppti reyndar tónleikum Lisu Ekdahl , Katie Melua , Joanna Newsom og Miriam Makeba þar sem ég reiknaði með að enginn hefði áhuga á þeim. Ef þið vitið um eitthvað endilega bendið mér á það. Nú er ég bara oðrinn helvíti sáttur með þetta blogg og ekki nema 3 tíma vinna sem fór í það. Hvað finnst ykkur?

P.s. enginn lagalisti þar sem ég nefndi fullt af góðum lögum hér að ofan.

|


miðvikudagur, 08 mars, 2006
Leti

Ég nenni ekki að blogga núna, og hef ekki nennt því í rúman mánuð :P

|