Hinn Ótrúlegi Vefheimur Stefáns
Forsíða

föstudagur, 19 maí, 2006
Ný síða

Jæja ég held að nýja síðan sé loksins tilbúin. Ég byrjaði á að setja hana hér www.internet.is/svalm/tilraun því að ég myndi vilja fá ykkur til að skoða og gagnrýna, það er alltaf eitthvað sem má fixa og ég vil að þið bendið mér á það. allar undirsíður virka og svona, skoðið þær líka.

Þetta varð miklu meiri vinna en ég hélt því að ég byrjaði að byggja síðuna upp með layer-um sem virkaði fínt í dreamweaver (forritið sem ég notaði til að gera síðuna, þó ég hafi mikið bara skrifað html-ið beint inn) og líka í Firefox. Svo þegar ég opnaði síðuna í IE þá var allt í köku þar. Ég reyndi að fixa það en gafst svo upp og setti síðuna upp sem table í staðinn. Þar af leiðandi þurfti ég að hanna síðuna svo til upp á nýtt. Svo var ég svo gáfaður að tékka ekki á villum í html-inu í template-inu fyrr en eftir að ég var búinn að gera allar 26 síðurnar sem eru þarna. Þar af leiðandi þurfti ég að laga allar villur sem ég fann, sem voru þónokkrar, 26 sinnum :P

Þetta er semsagt búinn að vera geðveik vinna og hefur örugglega tekið svona 30 klukkutíma eða eitthvað álíka.

Endilega ekki hika við að gagnrýna ef ykkur finnst hún ljót eða finnið galla eða what ever, þess vegna er ég að setja hana svona upp, til að fá gagnrýni.

Nóg í bili. Bless.
Lagalistinn:
Jimmy D Lane - Boom Boom (oh þessi maður er snilldar gítarleikari. shit. Svona á blús að vera)
Robert Johnson - Sweet Home Chicago (Robert Johnson, sem er í 27 klúbbnum, dó 1938 og var þá bara búinn að taka upp rúmlega 20 lög og öll í hræðilegum gæðum, og var ekki búið að gefa það út. Engu að síður er hann blúshetja, mótaði stefnu sem blúsinn átti eftir að fara í og er hetja margra gítarleikara, t.d. Eric Clapton. Hann er líka snilli.)
Sonny Boy Williams - Bring It On Home (Þið þekkið þetta lag örugglega sem Led Zeppilin lag en svona var það upprunalega. Svalur Blús.)

|


laugardagur, 13 maí, 2006
Prófin búinn!!!

Jæja þá eru mothafucking prófin loksins búinn (þó mig gruni að ég eigi eitthvað eftir að stússast í sumarprófum, ef ekki vegna falls, þá að minnsta kosti til að bæta einkunn, ekki viss samt, ég veit aldrei hvernig mér gekk í prófi). Engu að síður, prófin eru búinn og nú á ég ekki eftir að lesa bók eins lengi og ég get. Ég er algerlega búinn að lesa yfir mig. Undanfarinn mánuð er ég búinn að lesa svona u.þ.b. 4500 bls. og bara seinustu tvær vikurnar las ég um 3000 bls. (blaðsíðufjöldi er ágiskun en örugglega nærri lagi. mér finnst það mikið miðað við að ég les svona 15-18 bls/klst pásur ekki með talið) Samt las ég ekki helming af því sem ég átti að lesa fyrir þessa áfangan, og þá er ekki með talið það sem sniðugt var að lesa. Eins og þeir segja, það les ENGINN sagnfræðinemi allt sem mælst er til að lesið sé, maður verður að læra að sigta út, bæði það sem maður hefur áhuga á og það sem maður veit að kennarinn er að fíla og kemur þar af leiðandi á prófi. Samt, ég hata lestur, jafnvel meir en ég hata að gera ritgerðir, sem er mikið. Ég er farinn að halda hvort ég hafi valið vitlaust nám :P (nem hvað mér finnst þetta þó áhugavert). Maður verður líka svo vitur þegar maður er vel að sér í sögu, hún er svo yndislega mikið trivial based knowledge.

Jæja ég er ekki búinn að sofa í rúman sólarhring svo gn.
Lagalistinn:
Enginn lagalisti, ég er of þreyttur.

|