fimmtudagur, 29 júní, 2006 Trúarpróf, Syd Barret og David Hasselhoff.
Ég tók trúarprófið aftur um daginn þar sem mér finnst að trúarhugmyndir mínar séu búnar að gjörbreytast. Ég vissi að Agnosticism væri búinn að rísa upp úr öllu valdi en að öðru leiti kom mér á óvart hve lítið hafði breyst (miðað við prófið).
You scored as agnosticism . You are an agnostic. Though it is generally taken that agnostics neither believe nor disbelieve in God, it is possible to be a theist or atheist in addition to an agnostic. Agnostics don't believe it is possible to prove the existence of God (nor lack thereof).
Agnosticism is a philosophy that God's existence cannot be proven. Some say it is possible to be agnostic and follow a religion; however, one cannot be a devout believer if he or she does not truly believe.
agnosticism 100%
Islam 96%
Buddhism 79%
atheism 79%
Paganism 71%
Satanism71%
Judaism 46%
Hinduism 42%
Christianity 29% Linkur á prófið
Annars var ég búinn að fá hugmynd að gera video-fæla blogg en Atli og Heiðar eiðilögðu það eiginlega. En ég ætla bara samt að gera það þar sem ég fékk þessa hugmynd áður en þeir blogguðu um sama efni, þó að þeir hafi ekki sett myndbönd með, (Atli reyndar linkaði á eitt). Reyndar verður síðan mín örugglega helvíti þung núna þannig að þetta eru kannski mistök að gera þetta svona, ef svo er þá kvartið þið bara og ég eiði þessu út og breyti í línka. Enoy.
Annars vegar ætla ég að heiðra hinn nýlátna snilling Syd Barret með 3 góðum myndböndum með honum:
Arnold Layne - Pink Floyd
See Emily Play - Pink Floyd
Helvíti skemmtilega gert myndbandi við Bike - Pink Floyd. Teiknimyndir (mest anime) sem er búið að klippa við lagið. Snilld.
Svo ætla ég að gera svipað við David Hasselhoff, ekki af því að hann er nýbúinn að eiga afmæli eins og Atli gerði heldur af því að nokkrum dögum fyrr sá ég nýtt snilldarmyndband með honum og sá að hann er geðveikur húmoristi sem á skilið smá viðurkenningu.
Nýja myndbandið, Jump in my car:
Og jafnvel enn betra myndband með honum, Hooked on a feeling:
|
Veikindi.
Já já, nú er maður búinn að vera veikur síðan á mánudagskvöldið en maður verður samt eitthvað að dunda sér. Ég er búinn að update-a meðmæla síðuna og mómentið síðuna. Svo var ég líka búinn að gera svona smá svolítið á trúbadorasíðunni en enginn hefur minnst einu orði á það. Svekkelsi. Ég fann ekkert guitar pró tab fyrir Bubbalagið svo ég bjó til eitt sjálfur. það er nokkuð nærri lagi. Annars já, endilega komið með komment, uppástungur og gagnrýni því ég er nú að reyna að gera þessa síðu svolítið áhugaverða. Að öðru leiti þá tókst mér að laga útlitið í Internet Explorer, það virkaði allt fínt í Firefox svo að þeir sem nota hann sjá enga breytingu. Helvítis IE sýndi þetta samt asnalega en eftir um klukkutíma vinnu tókst mér að laga þetta. Annars veit ég ekki hvað meira ég á að segja svo ég segi bara:
Þangað til næst, Adios.
Lagalistinn:
Er ekki lagalistinn orðinn óþarfur þegar ég er A) með lög til niðurhals á mómentið síðunni og B) með lög með gripum og tabi á trúbadorasíðunni? Hvað finnst ykkur?
|
föstudagur, 16 júní, 2006 Mánudagurinn 12 júni!!!
Um fimmleitið hringi ég í systur mína, þar sem enginn annar týmdi að fara með mér NÍSKUPÚKAR, og við ákveðum að ég sæki hana um hálf 7 svo að við verðum kominn upp í Egilshöll um 7. Það var bjartsýni. Umferðinn var stopp í Ártúnsbrekkunni og gekk ekkert. Við vorum kominn út í höll um hálf 8. Þá tekur við mörghundruð metra löng röð og ég efaðist um að við kæmumst inn áður en tónleikarnir byrjuðu, sem var auglýst á slaginu 8. En sem betur fer gekk röðinn ótrúlega hratt og við vorum kominn inn svona 5 mínútum fyrir 8. Við kaupum okkur bæði bol með mynd af Waters á 3500 kr. og bíðum svo. Á slaginu átta er tilkynnt að tónleikunum verði frestað um korter þar sem það sé svo geðveikt löng röð fyrir utan og salurinn púaði.
Korter yfir átta hófust svo herlegheitinni, þvílík snilld, þið getið ekki ímyndað ykkur af hverju þið misstuð. BRILLIANT. Bassadrunurnar voru geðveikar og jörðinn skókst undir manni en samt hljómaði þetta eins og það væri ekkert verið að reyna á hljóðkerfið, enda skilst mér að þetta sé stæðsta hljómkerfi sem nokkurn tíman hafi komið til landsins.
Hljómsveitin var þétt, 1 saxafónleikar, 2 hljómborðsleikarar (annar þeirra greip oft í gítar líka, 3 gítarleikarar, 3 bakraddasöngkonur og Waters sjálfur á bassa (hann greip stundum í gítar líka), stundum voru 5 gítarar í gangi í einu sem gaf mjög þéttan og flottan hljóm. Svo var auðvitað trommari líka. Seinni helming tónleikana kom Nick Mason (minnir mig að hann heiti) trommarinn úr Pink Floyd og voru þá 2 trommarar í einu. Þetta voru allt snilldar hljómfæraleikarar. Það var gaman að horfa á lead-gítarleikarna 2 sem voru greinilega með mjög ólíka bakgrunna, annar heavy metal hinn blús. Þeir voru oft að skiptast á að sólóa með þessum ólíku stílum sem kom mjög flott út.
Waters byrjaði á nokkrum gömlum Pink Floyd slögurum en fór svo í eigið efni úr sólóferlinu. Það var betra en ég átti von á. Að undanskildu Another brick in the Wall sem var aukalag og gerði allt vitlaust, þá var mest fagnað þegar hann tók nýlegt lag sem heitir Leaving Beirut og sagði
"Oh George! Oh George!
That Texas education must have fucked you up when you were very small"
Þá var sko fagnað. Lagið var samt reyndar það slakasta á tónleikunum. Virðist auðvelt að fá klapp með því að tala bara aðeins illa um Bush, sem á það reyndar alveg skilið.
Hann var alltaf með video í gangi í bakgrunninum sem var mjög gaman af, og spreningar og elda einstaka sinnum. Einu sinni kom líka uppblásin geimfaradúkka fljúgandi yfir salin. Mjög svalt. Waters sýndi það reyndar að hann er enginn snilldargítarleikari enn að örðu leiti voru tónleikarnir GARGANDI SNILLD og án efa með þeim betri sem nokkurn tíman hafa verið haldnir á Íslandi. Ég saknaði mest að fá ekki að heyra Hey You! en það er líka úr svo mörgu að velja þegar Pink Floyd er annars vegar.
Eftir tónleikana settumst við inn í bíl, færðum hann 2 metra eða svo, þá var ég kominn í röð. Ég drap á bílum og ræsti hann ekki aftur fyrr en um klukkutíma síðar þegar röðin byrjaði loksins að hreyfast. Svo þegar maður var loks kominn af stæðinu var maður enga stund heim.
Þið ykkar sem týmduð ekki að fara, ég hef bara eitt að segja við ykkur; Þið misstuð af miklu, þvílíkt show.
Lagalistinn:
Pink Floyd - Money
Pink Floyd - Speak to me/Breathe
Pink Floyd - Comfortably numb
Pink Floyd - See Emily Play (var reyndar ekki tekið þar sem þetta er Syd Barret lag en ekki Roger Waters lag)
Pink Floyd - Hey You! (var heldur ekki tekið eins og ég hef þegar tekið fram)
Pink Floyd - Wish You Were Here
Pink Floyd - Another Brick In the Wall (og svo mætti lengi lengi telja)
|
laugardagur, 03 júní, 2006 Ýmislegt, t.d. auglýst eftir samferðamanni á Roger Waters Tónleika!!!
Jæja þá er síðan bara að nálgast endanlega mynd, bloggið er loksins komið svona beint á síðuna svo að ég get losnað við þetta leiðinda iframe dæmi. Ég þakka Krissa fyrir ábendinguna um hvernig það skildi gert, það var einfaldara en ég hefði nokkurn tíman getað giskað á. Ég breikkaði textaramman svo að síðan væri ekki svona tómleg í 1280x960 pixla upplausninni sem ég nota, hún passar enn í gluggan á 1024x768 en er frekar klunnaleg þar. Hún virkar ekki í 800x600 upplausn enda er fólki með svo lélega upplausn engin vorkun lengur. Er samt að velta fyrir mér að mjókka þetta örlítið aftur, hvað finnst ykkur???
Síðastliðinni viku eyddi ég út í sveit að vinna, allur blár og marinn og út í sárum en djöfull sem tíminn leið samt hratt, skemmitlegra en að vinna á Hlölla, það get ég sagt ykkur. Seinasta kvöldið sem ég var þar tóku Pabbi og Helga mig út að borða, til að halda upp á afmælið mitt, og ég fékk mér hrefnu. Helvíti gott. Alveg ÓTRÚLEGA líkt nautakjöti, ekki eðlilegt.
Á öðrum nótum þá er ég enn að leita að einhverjum til að kaupa af mér annann miðan minn á A-svæði á Roger Waters og koma með mér á tónleikana 12. júní. Hann kostaði 9.000 (rétt rúmlega) en ég get lofað að þessir tónleikar eru þess virði. Það HLÝTUR einhver að vilja koma með mér. Endilega hafið samband.
Jæja, veit ekki hvað ég ætti að segja meira svo ég kveð með Lagalistanum:
Dani California - Red Hot Chili Peppers (glænýr hittari frá þeim)
Mary Jane's Last Dance - Tom Patty (Hittari frá 1995, hlustið á bæði lögin, greinilega sama lagið. Hér er útvarpsþáttur að bera saman lögin ef þið hafið ekki tök á að finna lögin annars staðar, ótrúlegt.)
Stand and Deliver - Adam & the Ants (Hittari frá 1981, samt ekkert svo eittís, reyndar heyrir maður eittís áhrif en bara skemmtilegt lag)