| þriðjudagur, 31 janúar, 2006
Áskorun.
Ég skora á hvern sem þorir í rökræður við mig að rökræða um eftirfarndi. Það mega vera allir á mót stebba eða einhverjir að hjálpa mér og aðrir að mótmæla. Þið takið bara afstöðu og styðjið mál ykkar. Það eina sem er bannað er að segja "þetta er rétt að þessu leiti en rangt að þessu leiti og því tek ég enga skoðun". Verður að velja annað hvort, rökstyðja það og rakka niður andstæða skoðunn.
Við höfum þetta bara svona óformlegt og ekkert vandað orðalag (af því að ég er svo lélegur í því).
Það sem ég var að velta fyrir mér er af hverju lýðræði er talið svona mikið betra stjórnarfar heldur en annað. Samkvæmt mínum skoðunum (og ég er ekki einn um þær) þá er fólk upp til hópa frekar heimskt og ef að Jón Jónsson sem veit ekki munin á svörtu og hvítu út í bæ á að fara að hafa áhrif á hverjir komast til valda getur það varla verið gott. Röksemdir fólks fyrir því að það kaus það sem það kaus geta oft verið með ólíkindum asnalegar. Annars hefði Bush varla unnið aftur. Hvað segir að það sem meirihluti vilji sé endilega best? Plús það að þeir sem eru kosnir eru sjaldnast kosnir út af hæfileikum sínum eða færni, frekar er það persónuleikinn, hversu góður sölumaður ertu, hversu miklu geturu eytt í auglýsingar og svo framvegis. Okey oft er þetta menntafólk en hvað veit t.d. sálfræðingur um hvaða áhrif álver á norðurlandi muni hafa? Væri ekki nær að fá menn sem hafa menntað sig um mál tengd þessu í ákvörðun? Hagfræðingin, mann menntaðan í umhverfismálum og svo framvegis.
Ég hef spurt að þessu áður og það sem fólk nefnir yfirleitt sem mótrök er "Veist þú um eitthvað skárra stjórnarkerfi?" Ég viðurkenni fúslega að ég veit ekki um neitt svoleiðis en þýðir það að við eigum bara að sætta okkur við það sem við höfum? Ættum við þá ekki frekar að setjast niður og leita að einhverju betra, gera tilraunir, koma með kenningar og svo framvegis? Það væri kannski vert að skoða fjórvaldskerfið, sem var algengt í borgum Ítalíu, bara svona til að nefna eitthvað.
Annað sem fólk nefnir oft er réttur einstaklingsins, frelsi og álíka. Það sem fólk áttar sig ekki á er að þetta getur vel farið saman með öðru stjórnarfari. Þessar hugmyndir byrja að þróast í konungsveldum og ná lengst þar sem konungarnir eru hvað næst því að vera einvaldar. Þessi stefna hét upplýsingastefna og hún kom fram í lok 17. aldar og réði lögum og lofi á þeirri 18. Mennirnir sem komu fram með þessar kenningar voru menntamennirnir sem vildi svo til að á þessum tíma voru engöngu (eða svo til) aðalsmenn. Og hverjir fengu völdinn með lýðræðinu? lýðurinn? Nei, það voru einmitt aðalsmennirnir (sem blönduðust reyndar saman við ríku borgaranna). Þannig að það að lýðræði og frelsi og menntun og svoleiðis fylgdust að er kannski meira tengt valdagræðgi aðalsins en því að lýðræðið sé svona gott.
Nú nenni ég ekki að hafa þetta lengra núna. Sjáum hvernig verður tekið undir þetta í svörunum.
|
fimmtudagur, 26 janúar, 2006
Sjáfls-sálfræðipróf! Var að taka svona net-sálfræðipróf og fékk þessar niðurstöður:
Schizoid Disorder er semsagt:
What is Schizoid Personality Disorder?
Quick Summary:
People with schizoid personality disorder avoid relationships and do not show much emotion. Unlike avoidants , schizoids genuinely prefer to be alone and do not secretly wish for popularity. They tend to seek jobs that require little social contact. Their social skills are often weak and they do not show a need for attention or acceptance. They are perceived by others as humorless and distant and often are termed "loners."
Symptoms of Schizoid Personality Disorder:
- Weak interpersonal skills
- Difficulty expressing anger, even when provoked
- "Loner" mentality; avoidance of social situations
- Appear to others as remote, aloof, and unengaged
- Low sexual desire
- Unresponsive to praise or criticism
hljómar þetta eins og ég??? Kannski eitthvað held ég, dunno annars. You tell me.
Þið verðið að afsaka að ég er búinn að vera of latur við að uppfæra bloggið, ég er búinn að gera eitthvað aukadót á síðuna en man ekki hvað það er. Ég nenni enn ekki að koma með bíómyndadóma, þeir koma einhverntíman þegar ég er ekki svona latur. Skemmtið ykkur annars. Ciao.
Lagalistinn:
Jethro Tull - Aqualung (If this isn't cool than I don't know what cool is)
ZZ Top - La Grange (Gamalt og gott)
Nick Cave and the bad seeds - Satilite of love (bara flott lag)
|
þriðjudagur, 10 janúar, 2006
Lagaleikurinn!!! Jamm jamm, þá er er skólinn byrjaður, mér líst lítið á magnið af lesefni en maður mátti alveg búast við þessu í sögu.
Það jókst ekki mikið úrvalið í lagaleiknum þó að ég hefði lengt leikinn, fimm lög (+3 bull sem ekki er vert að nefna). Allavegna þá er þetta niðurstaðan mín.
1 Roxy Music - Love is the Drug (Atli) Geðveikt lag sem ég var búinn að gleyma að væri til en þekkt sem vel.
2 Alphaville - Forever Young (Heiðar, alveg á seinasta snúning) Broslega asnalegt en samt skemmtilegt og kveikri upp minningar, eins og LITD þá þekkti ég þetta en var búinn að gleyma að það væri til.
3 Pink Floyd - Goodbye Blue Sky (Atli) Fínt lag, góður texti. Þekkti lagið og átti bæði í pink floyd og system of a down útgáfum.
4 Bob Dylan - Motorpsycho Nitemare (Heiðar) Eins og mörg Dylan-lög þá þarf að hlusta nokkrum sinnum á það og textinn er það lang besta við það. Flott lag samt. Átti það en ég á svo mörg Dylan-lög að ég mundi ekkert eftir þessu.
5 Frank Zappa - Valley Girl (Atli) Fyndið þegar maður heyrir það fyrst en mjög fljótt að verða þreytt og var aldrei nálægt því að heilla mig. Átti það.
Atli vann sem sagt og Heiðar fær hrós fyrir góðar hugmyndir. Hinir (reyndar bara Eiður sem kom með aðrar hugmyndir) fá hér með skammir fyrir að stinga upp á krappi. Ég er að reyna að ákveða hvað ég á að hafa í verðlaun, jamm, við höfum það frímiða á hvaða bíómynd sem er, svo lengi sem við erum að fara á hana þá borga ég miðan hans Atla :D Nógu góð verðlaun?
Ég er búinn að update-a niðurhalssíðuna. Mér sýnist að enginn hafi skoðað updateaða gullmola eða skýrsluna um trúmál en what the hey.
Jæja ég nenni ekki að hafa þetta lengra bíómyndadómarnir verða bara að bíða. Lagalistinn er líka kominn, hér rétt fyrir ofan, svo að ég segi bara bless í bili. |
þriðjudagur, 03 janúar, 2006
Gleðilegt ár!
Gleðilegt ár öll sömul, þakka það liðna. Vona að þið hafið skemmt ykkur vel og svona. Lítið fréttnæmt hjá mér svo sem. Horfði á örfáar myndir en nenni ekki að segja frá þeim núna. Eyddi jólunum fyrir austan en áramótunum í Reykjavík, annað skipti á ævi minni. Það eina sem ég get hugsað þegar ég sé allar þessar sprengingar er "Kann fólk í alvöru svona lítið að fara með peninga?" Segjum að þú kaupir 2 kökur og 2 rakettur, það tekur þig fimm mínútur að eiða því, svo er allt búið. Fyrir sama pening hefðir þú getað eitt viku í köben, matur og hótel innifalið.
Anyways. Ég var að eins að dunda mér við síðuna í dag.
1. Ég hennti öllum myndunum mínum út af síðunni og setti upp account hjá www.myndir.ekkert.is . Það er reyndar nokkrir dagar síðan ég setti þann account upp, en setti link hér núna fyrst. Nýtt í myndaalbúminu eru myndir frá 30 ára afmæli Gísla bróðurs og svo Skvísa mómentsins, sem var búið að stinga uppá að ég myndi gera. Í þetta sinn var það Elisha Cuthbert.
2. Ég lýsti upp bláa litinn á linkunum alls staðar svo að það yrði hægara að lesa það. Atli var eitthvað búinn að minnast á að það væri erfitt.
3. Ég kláraði að setja inn alla pisla og ritgerðir sem ég á í tölvunni í gullmolana . Veit ekki hvort fólk er að fíla þá. Endilega komið með komment um þetta allt saman, hugmyndir að betrumbótum meira en vel þeignar.
4. Ég setti upp nýja síðu, kalla hana Trúmál Íslendinga, en þar sem það var of langt fyrir hnappinn stendur á honum Trúmál okkar. Þarna birti ég það sem átti að vera úrdráttur úr skýrslu bandaríska sendiráðsins um trúmál á Íslandi 2004. Því miður fyrir ykkur fannst mér næstum ekkert hægt að taka út svo að skýrslan er þarna í næstum fullri lengd. Svo setti ég ensku útgáfuna þarna líka fyrir fólk sem kann ekki íslensku ef það er einhver.
5. Ég bætti við linkum á linkasafnið.
6. Ég bætti við örfáum nýjum quote-um, alls ekki mikið.
7. Tók teljarann út af gullmolasíðunni, hefur víst óvart lent þar inni líka.
Mig minnir að það hafi ekki verið neitt meira. Ef þið eruð með hugmyndir af einhverjum toga ekki hika við að setja þær fram.
Ég varð mjög vonsvikinn með tónlistarleikinn krakkar, þið ættuð að skammast ykkar. Þar af leiðandi ætla ég að framlengja hann til miðnættis á sunnudag 8. janúar. Ef það verður ekki komið meira úrval þá verð ég sár :'(. Hingað til hafið þið nefnt 1 brilliant lag "Love is the drug" sem ég átti, 2 sæmileg lög "Motorpsycho Nitemare" og "Valley Girl" sem ég átti líka og svo eitthvað drasl sem verður aldrei minnst á á þessari síðu framar.
Ég nenni engu að síður ekki að hafa þetta lengra núna og kveð því með lagalista. Ciao.
Lagalistinn:
Pink Floyd - Wish You Were Here (ÞVÍVLÍK SNILLD)
Peter Gunn theme (það eru svo margir búnir að gera þetta, Blues Brothers útgáfan er t.d. mjög góð)
George Baker Selection - Little Green Bag (Ef þú getur hlustað á þetta lag án þess að byrja að dilla þér með ertu ótrúleg/ur)
|
|