| miðvikudagur, 20 desember, 2006
Prófalok
Þá er prófið mitt loksins búið, ég var svo mikið að stússast í ritgerðum. Ég hugsa að ég hafi lesið svona sirka 150-200 bls af sirka 5000 :P Samt var prófið mjög auðvelt (að ég held). Svo eru enn 2 ritgerðir eftir. átti að skila annari í dag, hún verður of sein, hinni á að skila 2. jan. Þar með er búið að eiðileggja fyrir manni jólafríið :'(
Hin vegar hélt ég upp á þetta með sagnfræðifélögunum í gær, langt síðan ég hef orðið jafn slæmur. Ég var alveg venjulegur á djamminu, kem heim og er alveg eðlilegur í leigubílnum. Leggst upp í rúm og horfi á einn simpsons-þátt, átti von á að sofna yfir honum en gerði það ekki, þó hann næði varla að halda athygli minni. Fljótlega eftir að þátturinn var búinn fór ég að hugsa að ég þyrfti að æla (hefur ekki gerst síðan ég var 18). Hugsaði svo nei nei, ég þarf þess ekki. Fór samt inn á klósett just in case. Þetta hefur verið svona 6:30. Ég leggst á gólfið við sturtubotnin, af því að ég var nýbúinn að skýta og hafði því enga list að liggja við klóstið. Næsta sem ég man svo er að kl. 7 kemur mamma inn á klósett og hjálpar mér upp í rúm. :P Finnst þetta mjög spes, drakk reyndar mjög mikið en var alveg eins og venjulega á djamminu, og meira að segja eftir að ég kom heim.
Annars var ég að taka brillíant próf á netinu, www.howsexyareu.com . Gerði þetta í fyrradag og póstaði því nokkrum sinnum þá og svo reyndi ég nokkrum sinnum í gær líka en www.blogger.com er svo fokking mikið drasl að þetta er enn ekki komið í gegn. Anyways, pófið er geðveikt fyndið stöff. En ég ætla ekki að sýna niðurstöður mínar fyrr en að minnsta kosti 5 hafa kommentað niðurstöðum sínum hér. Ef þið viljið ekki að neinn sjái niðurstöðurnar en viljið fá að sjá mínar þá eruð þið aumingjar. Þetta er svo þess virði að taka. GEÐVEIKT FYNDIÐ, og reyndar nokkuð vandræðalegt líka. Allavegana, amk. fimm að taka það, okey.
Atli náði loks hvaða hljómsveit ég var að spyrja um, helsti hittarinn þeirra, Green Onions, er BRILLIANT lag. |
mánudagur, 18 desember, 2006
Spurt er um band
Þar sem Eiður gerði svona hvert er landið dæmi datt mér í hug að gera hvert er bandið dæmi. Næstum því það sama, breytti bara L-inu í B. ;) Ég set 3 myndir af meðlimum þess og bið ykkur svo að spyrja já og nei spurninga, mega vera hvernig sem er. No restictions. Byrja á einu svona semi-auðveldu. Sjáum hvernig þetta fer.



Þar sem þetta virðist ekkert ætla að ganga pósta ég hér 2 myndum til viðbótar sem eiga að gefa vísbendingu um nafn hljómsveitarinnar. Þessar myndir eru þannig séð ekkert tengdar hljómsveitinni en á einhvern hátt tengdar nafninu á henni. Þið getið þá spurt já og nei spurninga um hljómsveitina sjálfa eða þessar myndir eða bara hvað sem er sem þið haldið að muni hjálpa ykkur að einhverju leiti að fatta þetta.


Enn betra hint er samt að hljómsveitin var Instrumental, það er enginn söngvari og hún er helst í Soul-tónlistarstefnunni. Hún kom líka stuttlega saman aftur á 10 áratugnum. |
laugardagur, 16 desember, 2006
Leiðist Heiðari?
Heiðar á þann heiður að vera gestur númer 333, hann hlýtur því að vera helmingi skárri en djöfullinn. Í verðlaun hlýtur hann ekki neitt, þar sem ég þarf að spara peninginn minn er ég er að fara að flytja. Það vill reyndar svo til að Heiðar var líka gestur númer 334, og 331 og 330, og á meðan prófatímanum hefur staðið hefur hann átt sirka annað hvert hitt á síðuna mína, sem segir mér að hann sé ekki að fíla lærdóminn :D. Ég reyndar get ekki fullyrt að þetta sé alltaf hann, ég sé bara hvaða síða sendi fólk til mín og þetta er semsagt bloggsíða heiðars sem er svona dugleg við þetta. Direct hit, það að fólk skrifi sjálft inn addressuna eða hafi hana bookmarked, er ótrúlega sjaldgæft, ég sem nota það engöngu. :P
On another note, þá var ég að fá brilliant friend request á mæspeis, einn af efnilegustu tónlistarmönnum okkur tíma ;) tékkið á honum hér . |
þriðjudagur, 12 desember, 2006
Gagnrýni.
Ég fékk friend-request á myspace um daginn, sem er svo sem ekki frásögu færandi, enda gerist það oft í viku. En í þetta skipti samþykkti ég hana, sem ég geri yfirleitt ekki, því þetta var fínasta hljómsveit sem kallar sig The Realm . Þetta er linkur á myspace síðuna þeirra. Þeir eru soldið að sæla The Doors og eru hið fínasta band. Allavegana, það er ekki það sem skipti máli, ég kommenta hjá þeim, þakka fyrir requestið og svona, segi þeim að mér líki helvíti vel við þetta lag sem þeir eru með þarna, mjög gott bara, en bæti svo við að ef ég hefði eitthvað út á þá að setja þá væri það helst að það vanti smá svona edge í sönginn, hann sé aðeins og flatur og grípi mann því ekki nógu vel. Söngvarinn mætti því reyna að setja meiri kraft í sönginn. Svo sem ekkert merkilegt komment, bara smá að reyna að gefa hjálpleg ráð. Alla vegana þá var ég núna að tékka hvort einhver hefði sagt eitthvað um þetta komment mitt, en nei, þeir eyddu því út, þola greinilega ekki gagnrýni. Ég sem ætlaði bara að gefa hjálplegt tipp og fór eins fínt í það og ég gat, passaði mig svakalega að segja ekkert sem mætti túlka illa. Sumt fólk tekur bara greinilega ekki gagnrýni. Anyways, miðað við þetta eina lag sem er þarna er þetta fínasta hljómsveit og þið megið endilega tékka á henni.
Var þetta ekki ÁHUGAVERÐ bloggfærsla? Þið sjáið kannski að ég á að vera að læra en nenni því ekki :D |
laugardagur, 09 desember, 2006
Útsala, Útsala!!!
Á föstudaginn var, í gær sem sagt, þurfti ég að skutla mömmu í vinnuna því hún var að fara á fyllerí eftir vinnu, ég ákvað því að skella mér beint á bókhlöðuna. Ég var kominn þangað 10 mín yfir 8. Bókhlaðan opnar 8:15. Þegar ég kom voru svona 20 manns sem stóðu alveg ofaní hurðinni í hrúgu og enn fleirri sátu í bílum sínum. Svo byrjaði hurðinn að opnast (sjálfkrafa btw) og lyftist upp mjög hægt. Hvað haldiði að fólkið hafi gert? Það beygði sig niður og smeigði sér þannig undir hurðina sem fyrst og svo var HLAUPIÐ inn. Mér datt helst í hug að það væri í gangi útsala á brúðarkjólum í New York eða eitthvað, svo ruglað var liðið.
Ég vil svo bæta því við að ég er orðinn djöfulli pirraður á blogger.com alltaf þegar ég ætla að blogga upp á síðkastið gengur það ekki neitt, bara 0% aftur og aftur. Er jafnvel farinn að pæla í að gera þetta bara svona manual eins og Bjarki . |
fimmtudagur, 07 desember, 2006
Áfengisneysla Íslendinga, lygar???
Eins og ég efast ekki um að þið hafið öll heyrt þá er alltaf verið að tala um að Íslendingar drekki svo mikið en þegar ég var að leita að upplýsingum um drykkju skota, sem á víst að vera helvíti mikil þá fann ég þetta graf:

Eins og þarna sést þá eru einu löndin í eða kringum Evrópusambandið sem drekka minna en Íslendingar, Tyrkir og Maltverjar. Það er e.t.v. hægt að skíra þetta með hinni gömlu klisjukenndu skýringu að Íslendingar drekki sjaldan en þegar þeir drekki drekki þeir mikið. En það er bara ekki nógu góð útskýring að mínu mati, ef við drykkjum í alvöru mikið þá ættum við að skora hærra á þessu grafi þó að við gerum það sjaldan.

Það sést líka á þessu grafi sem sýnir hve stórt hlutfall karla og kvenna hefur ekki drukkið neitt seinustu 12 mánuðina. Hér eru Íslendingar frekar neðarlega, flestir hafa drukkið seinasta árið, og í raun fá lönd þar sem færri hafa ekki drukkið í ár.
Ég held sem sagt að áfengissögur af Íslendungum séu stórlega ýktar og ekki sé hægt að halda því fram að hér sé mikið áfengisvandamál. Þetta er reyndar kannski ekki réttlátur samanburður þar sem engin svæði í heiminum drekki meira en ESB-svæðið en what the hey, við erum á því svæði, svo til.
Annað sniðugt graf þarna sýnir drykkjuvenjur, hvað fólk í þessum löndum er vant að drekka;
| mánudagur, 04 desember, 2006
Ömurlegt ástand
Var upp á Þjóðarbókhlöðunni áðan, ætlaði að vera þar í allan dag að læra en því miður var það ekki hægt. Það var setið við 2 af hverjum 3 borðum sirka en það var drasl á hverju einasta borði. Það var eins með stólana sem ekki hafa borð. Ég fann eina lausa sætið á fjórðu hæð og vann í ritgerð en ég var 2 kílómetra frá næstu kló og þurfti því að fara þegar tölvan varð rafmagnslaus. :( Þetta hús er svo illa nýtt að það er ekki heilbrigt.
Annars lennti ég í soldið skemmitlegum hlut, ég var á rauðum ljósum og finn allt í einu svona titring, og aftur, og aftur, og helvíti taktfast, fyrst fór ég að hugsa "bíddu hvað er nú að gerast með vélina" en svo fór ég aðeins að heyra að titringurinn hafði tón, svo tekst mér að reikna það út að gaurinn á bílnum ská fyrir framan mig, sem var btw Hyundai Accent, var greinilega með svona svaka bassabox, heyrði enga tónlist, þetta var bara bassatromman. :P
Svo var ég líka að pæla, smá könnun hérna, hvenær eru þið búnir í prófum og svona? Málið að skipuleggja smá hitterí eftir þau? Ég er persónulega búinn 21. des, og finnst frekar líklegt að maður djammi með sagnfræðinni þá. en kannski 22???
|
|