Hinn Ótrúlegi Vefheimur Stefáns
Forsíða

fimmtudagur, 13 apríl, 2006
Nýtt templet.

Jæja, ég átti að vera að skrifa seinustu ritgerðina mína og þar af leiðandi fór ég að hanna nýtt templet fyrir heimasíðuna mína. Ég gerði allt á henni sjálfur, bjó til alla takka, teiknaði allar myndir og svona þannig að ég er ekki að brjóta neinn höfundarrétt núna. Helsti plúsinn er samt sá að núna er ég alveg laus við þessar helvítis auglýsingar sem eru einhverstaðar á síðunni en ég finn þær ekki og get því ekki tekið þær út. Templetið er svo til klárt en það virka engir takkar enn og það er ekkert á síðunni ennþá en ég myndi endilega vilja fá smá feedback, hvað á ég að gera til að fiffa hana upp, ef eitthvað. Ég vil fá öll komment sem ykkur dettur í hug, allt sem gæti gert þetta betra, eða sært mig svo mikið að ég fer að gráta, allt. www.internet.is/svalm/tilraun.htm

|


mánudagur, 10 apríl, 2006
Ritgerðaskil.

Nú er ég búinn að vera að hamast við að gera ritgerðir, enda langt á eftir áætlun með þær. Ég er búinn að vera mjög duglegur, í gær settist ég t.d. niður og var að reyna að skrifa. Þetta varð afraksturinn:

Hvað segiði, þekkiði manninn?

|


föstudagur, 07 apríl, 2006
Hugleiddi að fá mér að drekka.

Ég var þyrstur svo að ég íhugaði að fá mér að drekka. Ég stóð upp úr stólnum mínum, opnaði herbergishurðina og gekk inn í eldhús. Þegar þangað var komið opnaði ég ísskápinn og starði. Eftir nokkra umhugsun gekk ég aftur inn í herbergi án þess að drekka nokkuð.

|