Hinn Ótrúlegi Vefheimur Stefáns
Forsíða

föstudagur, 21 október, 2005
WOOOOHOOOOO!!!!!

Ég hef hér með lokið fyrsta prófi mínu í Háskóla Íslands, seinasti klukkutíminn fyrir próf er í fyrsta skipti á ævi minni sem mig kvíðir fyrir prófi. Ég er búinn að eiða allri vikunni, byrjaði á mánudag, í að lesa bókina fyrir próf og komst að því að ég les allt of hægt, var að average-a um 12 blaðsíður á klukkutíma. Ég hef ekki komið út úr herbergi mínu frá mánudegi til 11:30 á föstudagsmorgni (í morgun) nema til að fara á klóstið (tók bókina með mér), að borða eða til að taka sturtu. frá því klukkan 16 í gær (fimmtudag) til 10:30 í morgun lagði ég ekki frá mér bókina, nema til að sækja mér mat eða hvíla augun aðeins. Samt var ég ekki meira en hálfnaður með seinasta kaflan þegar ég mætti í prófið. Það eina sem ég hugsaði þegar ég var að lesa bókina var: "INFORMATION OVERLOAD" og þegar ég hugsaði til baka um hvað ég hafði verið að lesa mundi ekki neitt. Engu að síður gekk mér bara mjög vel á prófinu (held/vona ég) og ég kannaðist við allt. Þar sem þetta var svolítið mikið segðu frá þessu og hinu þá er auðvitað ekki séns á allt of hárri einkunn, sérstaklega þar sem ég var að gera svona mistök eins og að gleyma að tala um ensku kirkjuna þegar ég átti að fjalla um Tudor-a, eitthvað sem ég vissi alveg, bara geymdi að segja frá. Tímin fyrir prófið var mjög naumur. Einn (af þeim sem var í sömu stofu og ég, vorum í 4 stofum) var búinn þegar sirka 40 mín af 60 voru liðnar. svo til allir aðrir skiluðu akkurat á mínútuni, þá oft ekki búnir, eða svona 1-5 mín fyrir. Ég skilaði einni mínútu fyrir. :D

Eins og þið sáuð fyrir ofan þá er ég ekki farinn að sofa ennþá (var að lesa í alla nótt) og þar sem við erum að fara að fagna (eða drekkja sorgum sínum í sumum tilvikum) með vísindaferð á eftir þá er ég að hugsa um að leggja mig núna.

Annars er lítið búið að gerast hjá mér. Öll vikan fór í þetta próf. Á föstudaginn fórum ég Heiðar og Óli á myndina Wallace & Gromit, The curse of the were-rabbit í bíó. Þessi mynd var alveg einstaklega skemmtileg. Mun betri en t.d. Chickenrun, sem er svipaður húmor, enda sami höfundur/leikstjóri. Ég skemmti mér mjög vel og hló oft. 8.5 af 10

Eftir myndina sótti Atli okkur og við fórum á Trabant-tónleika. Þar hittum við Eið. Tónleikarnir voru góðir en mér fannst þeir svolítið væmnari núna en þegar ég sá þá á Innipúkanum. Annars veit ég ekkert um Trabant og ég myndi aldrei setja Trabantplötu á fónin svona heima. Not my cup of tea. (nema á tónleikum).

Þar sem ég er alveg að sofna ætla ég að kveðja núna. Ta.
Lagalisti:
The song remains the same - Led Zeppelin (ekki alveg að fíla laglínuna en lagið er svo geðveikt að öllu öðru leiti)
The Ocean - Led Zeppelin (ekkert ósvipað lag, enda sama plata, Houses of the Holy, en laglínan meira að mínu skapi)
All My Love - Led Zeppelin (eina lagið sem eitthvað er varið í á plötunni In through the out door að mínu mati)

P.s. ég gleymdi að minnast á að ég setti svona lítið logo við linkinn minn. Ég veit ekki hvort þetta sést með Internet Explorer en þetta sést að minnst kosti bæði í Firefox og Opera. Finnst þetta flottara en autt blað sem væri þarna annars. (fékk eið til að setja svona líka, enda kenndi hann mér hvernig ætti að gera þetta)

|


miðvikudagur, 12 október, 2005
Viðbætur við síðuna.

Nú var ég að setja upp myndasafn frá ferðinni til danmerkur auk þess sem ég setti inn nýtt lag mómentsins og nýtt forrit mómentsins. Vá ég var mikið fljótari að segja þetta heldur en að gera það :P. Allavegana, til að hafa pláss fyrir þetta á heimasvæðinu mínu varð ég að taka út gamla lagið og gamla forritið en það er hægt að senda á mig línu til að fá þetta. Annars er ekki mikið að gerast. Ég er búinn að velja ritgerðarefni í Mannkynssögu I frá örófi til 1500 og í Mannkynssögu II frá 1500-1800. Í MI ætla ég að fjalla um Saladín (gaurinn sem rak riddaramunkana út úr Jerúsalem) en í MII ætla ég að fjalla um munin á austur og vestur evrópu. Eins og þið sjáið er þetta mjög yfirborðskennt ennþá en þá á eftir að lagast í framtíðinni. Aftur á móti sagði ég mig úr Mannkynssögu IV sem er samtíðarsaga. Í fyrsta lagi voru 20 einingar bara of mikið (15 ein. er full tafla) og ég valdi það að segja mig úr þessum því hann var langsamlega erfiðastur og leiðinlegastur. Svo er bara að skella á próf núna á föstudaginn eftir viku (21. okt) sem þíðir víst að maður þarf að byrja að læra núna :P

Ég er búinn að horfa á tvær bíómyndir upp á síðkastið. Fyrst horði ég á gömlu snilldina Ghost Busters frá árinu 1984. Það ættu allir að vera búnir að sjá þessa mynd fyrir löngu síðan og ég reikna líka með því að flestir hafi gert það. Þetta er svolítið barnaleg mynd og eftir á að hugsa man ég ekki eftir að hafa hlegið oft. Kannski fannst mér hún bara góð af því að mér fannst hún góð þegar ég var krakki, ég bara veit það ekki. En mér fannst hún góð að minnsta kosti og gef henni 7 af 10.

Hin myndin var The Life aquatic with Steve Zissou frá 2004. Bill Murrey fer hér með aðalhlutverk (eins og í Ghost Busters) og í raun og veru finnst mér bara þurfa eitt orð til að lýsa þessari mynd. Skrítin. Það var gaman að horfa á hana, maður hlóg oft og svona en myndin var engu að síður mjög furðulegt. Mér fannst líka afskaplega einkennilegt rétt í endan þegar maður heyrði róandi lag og fattaði svo allt í einu að söngvarinn var að syngja á íslensku. Svona er það víst þegar Sigur Rós er að slá svona í gegn. Fín mynd en ... æ ég veit ekki. 6.8 af 10.

Ég kveð í bili.
Lagalistinn:
Young Americans - David Bowie (hann er flottur þessi, málaður og í þröngum buxum)
This is not America - David Bowie
I'm Afraid of Americans - David Bowie (smá Bowie/America þema)

|


þriðjudagur, 04 október, 2005
Hvernig manneskja ert þú???

Teacher
You scored 55% Do Gooder, 60% Drive, and 67% Intellect!

You are a smarty-pants and eager to share your knowledge with others,
while still open to absorbing everything in your environment. That is
why you are a teacher (and at the same time, a perpetual student). You
have above average intelligence and the drive to be effective in your
life and the lives of others. You are also a good person who cares
about others, but yourself as well, generally not letting people take
advantage of you. A teacher is a great thing to be and we need more
humans like you in the world.


All human being categories are: Lazy SOB, Rebel w/out a Cause, Evil
Mastermind, Henchman, Criminal, Dictator, Frat Boy, Socialite,
Philosopher, Stunt Double, Upstanding Citizen, Teacher, Cheerleader,
Sister Mary DoGood, Benefactor, Loyal Sidekick, Candy Striper, Goody
Two-Shoes.



My test tracked 3 variables How you compared to other people your age and gender :
You scored higher than 21% on Do Gooder
You scored higher than 59% on Drive
You scored higher than 53% on Intellect
Link: The What Type of Human Are You? Test written by weeredIII on Ok Cupid
Big suprise :P

Allavegana, í gærkvöldi horfði ég á bíómynd. Scarface . Hverjum datt í hug að Al Pacino liti út eins og Kúbani? Og Michelle Pfeiffer var ekki eins falleg og hún átti að vera. það eina sem ég sá var anorachiusjúklingur. Tónlistinn var alveg HRÆÐILEG, mjög eigties, enda frá 1983 en að öðru leiti var þessi mynd frábær. Skemmtilegur söguþráður vel leikið og flott. Mæli með hinn. 7 af 10.

Annars var það ekki neitt annað. Tata.

Lagalistinn:
The Wild Rover - Írskt (keltneskt) þjóðlag. Snilld á snilld ofan.
I'm The Only Gay Eskimo - Corky and the Juice Pigs (:P er það eina sem maður getur sagt)
Sunshine of your love - Cream (Clapton er alltaf jafn góður, nema upp á síðkastið því miður)

|


mánudagur, 03 október, 2005
Vikan sem leið.

Jæja, nú sit ég hérna fyrir framan tölvuna og sötra Egils Gull sem ég keypti í fríhöfninni fyrir mánuði. Ekkert búið að gerast svo sem. Á þriðjudaginn var varð ég veikur og mætti því ekki í skólan á miðvikudaginn og fimmtudaginn og treysti mér þar af leiðandi ekki í vísindaferðina á föstudeginum. Það er ekki gott að drekka þegar maður er slappur. :P Á föstudagskvöldið ætluðum ég, Eiður, Kristinn og Óli á filmfestmynd sem hét What remains of us eða Ce qu-il reste de nous. Ég og Óli keyptum miða og löbbuðum inn en þá kalla strákarnir á okkur. Þeir voru á eftir okkur í röðinni og við Óli höfðum víst keypt síðustu miðana. Við fengum þá endurgreidda og leigðum myndina Warriors of Heaven and Earth eða Tian di Ying Xiong. Hún fjallar um fyrrverandi kínverskan hermann í byrjun 8 aldar eftir krist sem óhlýðnaðist keisaranum og Japana í þjónustu keisarans sem á að elta hann uppi og drepa hann. Kínverjinn er að vernda úlfaldalest sem er að flytja mikilvægan hlut til keisaran til að endurgreiða lífsbjörg og Japaninn gerir samning við kínverjann að drepa hann ekki fyrr en lestin er komin á leiðarenda. Á leiðinni ráðast svo tyrkneskir ræningjar á lestina sem endar í alsherjarstyrjöld. Myndin var fín en maður þurfti að leggja sig mikið fram til að fylgjast með og við komumst að þeirri niðurstöðu að myndinn væri sögulega mjög ónákvæm. Ágæt skemmtun engu að síður. 6.8 af 10.

Á laugardaginn fór ég svo ásamt Eið og Heiðari á kínverska filmfest mynd, The World eða Shijie. Myndin var heilar 140 mín. og af því voru svona 130 mín sem manni fannst óþarfar og mætti klippa út. Þessi mynd er ekki um neitt. Það gerðist ekkert og enginn okkar skilur enn nokkurn skapaðan hlut í myndinni. Það eina sem var skemmtilegt við myndina var að sjá hvað kínverjar hugsa öðruvísi og hvað þeir hegða sér öðruvísi. Tæplega helmingur bíógesta labbaði út í hléinu og hátindur myndarinnar var þegar einhver byrjaði að hrjóta gífurlega hátt og allir fóru að hlæja. 1 af 10.

Eftir þetta fórum við til Heiðars og spiluðum smá Scrabble. Á sunnudeginum gerði ég svo ekki neitt og ekki heldur í dag.

Ég er ekki búin að sjá mikið af myndum heldur. Ég horfði á breska sjónvarpsmynd, The Second coming sem fjallar um aðra komu Jésu Krists. Mannkynið á að finna þriðja textamentið á x mörgum dögum, annars kemur heimsendir. Þetta er stórfurðuleg mynd sem að ekkert er hægt að segja um því að það eiðileggur þetta alls ekki fyrirsjáanlega plott. Það hvert myndin fór kom mér stöðugt á óvart og þó hún sé skrítinn og um kristni (sem ég hata) var fínt að horfa á hana. 6.5 af 10.

Ég held að ég hafi ekkert meira að segja í bili. Það kemur enginn með neitt sem þeim finnst að síðunni eða neitt þannig að ég veit ekki hvað ég á að gera meira. Sem minnir mig á það, ég setti myndirnar mínar frá Kúbu l0ksins inn, áður höfðu myndirnar hans Eiðs eingöngu verið þarna. En einhverja hluta vegna virkar ekki mynd númer 65 frá mér. Ég kíki á það einhverntíman seinna.

Þangað til næst, lagalistinn:
Bored - Deftones (ég er ekki mikill deftones maður en þetta er samt flott)
Change (in the house of flies) - Deftones (annað flott með þeim)
Vermilion part 2 - Slipknot ( ég hef mikið talað um þetta lag, mjög flott rólegt vel spilað, vel sungið lag með mjög þungri hljómsveit. Fáir sem trúa því að þetta sé Slipknot)

|