Hinn Ótrúlegi Vefheimur Stefáns
Forsíða

mánudagur, 21 nóvember, 2005
Eru stuðningsmenn Arsenal vangefnir?

Jamms og já já. Kannski varð einhver reiður yfir þessari spurning en þetta á við rök að styðjast. Ég var að keyra heim úr skólanum um 3 í dag og lendi á eftir bíl með Arsenal límmiða í afturrúðunni. Þessi gaur var að keyra á 40 á Miklubrautinni og ég var fastur fyrir aftan hann þar sem að það var of mikil umferð til að skipta um akrein. Ég hugsaði svo sem ekki meira um það en svo er ég alveg að koma heim þegar bíll treður sér fram fyrir mig með því að skipta ólöglega um akrein við útakstur á tvíbreiðu hringtorgi. Nei nei, viti menn, hann er með nákvæmlega sama Arsenalmiðan í rúðunni. En þetta var ekki nóg. Hann þurfti að keyra á undan mér restina af leiðinni heim og fór aldrei yfir 30. Því spyr ég, eru stuðningsmenn Arsenal vangefnir?

Annars var Atli bjáni að kítla mig. Ég vildi að ég gæti haldið því fram að mig kítli ekki, því ég nenni ekki að gera þetta, en það væri þá lýgi. :( Ég á að gera 7 topp 7 lista sýnist mér og þarf þá að kítla 7, sem gæti orðið vesen þar sem ég les bara 4 önnur blogg og þar af búið að kítla 2. Alla vegana hér koma einhverjir topp 7 listar:

7 tilgangslaus ártöl sem ég man (gæti haft þau nokkur hundruð þúsund en á bara að hafa þau 7)
1187 - Salah al-Din hrekur riddaramunkana úr Jerúsalem.
1492 - Ferdinand og Isabella (konungur og drottinging Spánar) hrekja Mára úr Granada (Kólumbus finnur og Ameríku)
4 f. kr. - Jésús er talinn fæðast. :)
566 f. kr. - Siddhartha Gautama (betur þekktur sem Búdda) er talinn fæðast
551 f. kr. Confucius (K'ung-fu-tzu eða Kongfuzi) er talinn fæðast
1688 - Dýrlega byltingin í Englandi (kölluð það meðal annars vegna þess að enginn dó í henni)
1770 - The Boston Massacre þar sem heilir fimm voru drepnir.

7 bestu hljómsveitirnar sem mér dettur í hug á akkurat þessu augnabliki
The Doors
AC/DC
Led Zeppelin
Deep Purple
Black Sabbath
Rage Against the Machine
System of a Down (nýji diskurinn, sem kemur út í BNA á morgun, er bara með frumlegustu tónlist sem ég hef hlustað á)

topp 7 verstu bönd sem mér dettur í hug í augnablikinu
Í svörtum fötum
Skítamórall
Á móti sól
Killers
Ashley Simpson
Ricky Martin
Britney Spears

7 skemmtilegustu löginn sem ég kann alveg að spila á gítar
Nativity in Black - Black Sabbath (erfiðasta sólo sem ég hef pickað upp)
Classical Gas - Mason Williams (flott sólógítar útgáfa)
Klassískt lag sem ég man ekki hvað heitir.
You shook me all night long - AC/DC
What's it like - Everlast (ekkert að þessum tónlistarmanni þó hann hafi einu sinni verið "rappari")
Hard as a rock- AC/DC
Highway to hell - AC/DC

7 samfélagsmyndir sem mér finnst ekki ganga upp
Kaptialismi
Kommunismi
mónarkismi
lýðræði
herstjórn (tæknilega séð gengur hún upp en er óviðsættanleg)
alræði
Anarkismi

7 snilldarmyndir
Sin City
The Deer Hunter
Apocalypse now
South Park the movie, bigger, longer and uncut.
Cannibal Holocoast
Orgazmo
Once upon a time in America

7 gömul þekkt lög (telst þá sem lagalistinn núna)
The Avarage White Band - Pick up the Pieces
Booker T. and the MG's - Green Onions
Canned Heat - Goin' Up The Country
Chuck Berry - Rock and Roll music
The Commodores - Brick House
Dave Brubeck - Take Five
Domingo Modugno - Nel blu dipinto di blu (Volare)

Nenni ekki að hafa þetta. Segi bara frá myndunum sem ég hef séð seinna, ef þið eruð fúl yfir því getið þið bara kvartað í Atla sem kítlaði mig.

|


mánudagur, 14 nóvember, 2005
Bíómyndadómar

Jæja eins og ég lofaði seinast þá koma hér nokkrir bíómyndadómar. nú man ég ekkert hvaða myndir ég er búinn að fjalla um en hér eru nokkrar sem ég er ný búinn að sjá.

UHF frá '89 er basicly bara Weird Al Yankovic að bulla í einn og hálfan klukkutíma. Hún er um George Newman, aula með meiru sem fær að stjórna lítilli UHF sjónvarpsstöð og verður svona líka vinsæll. Í myndinn er gert grín að mörgum frægum myndum, svo sem Rambo, close encounter of the third kind og fleirrum. Mjög fyndinn mynd og fær 8 af 10.

Ace Ventura: Pet Detective
er önnur gömul grínmynd þar sem einn maður er bara að bulla á skjánum. Í þessu tilviki er það Jim Carrey en þessi mynd er nú ekki nándar jafn góð. Hér er dýraspæjari að leita að höfrungi sem hafði verið stolið og finnur hann auðvitað. 6.5 af 10

Þriðja og seinasta myndin er svo March of the Penguins eða La Marche de l'empereur . Þessa mynd fórum við Eiður, Atli, Heiðar og Óli á á föstudaginn var á kvikmyndahátið. Þetta er heimildamynd um mörgæsir. Jú jú hún var svo sem með flotta myndatöku en yfir töluðu tvær "mörgæsir" og það hálfminnti mann á barnaþátt. Svo man ég ekki eftir því að hafa nokkurn tíman á ævi minni heyrt verri tónlist í mynd. Þvílík hörmung. Myndinn fékk mann alveg til að hugsa; "Af hverju í anskotanum eru þessir fuglar þarna" og lét mann vorkenna mörgæsunum en varla hægt að segja að hún hafi verið fróðleg. 4.5 af 10.

Annars er ég nú búinn að skila einni ritgerð í sagnfræði, hún var um Saladín og var mjög léleg, jafnvel verri en sumar ritgerðir sem ég gerði í menntaskóla. Veit ekki alveg hvernig þetta á eftir að fara. Í dag tók ég svo sex bækur á bókasafninu fyrir næstu ritgerð. 4 um Upplýsingastefnuna (the enlightenment), eina um John Locke og eina um Sir Isaac Newton. Vona bara að mér takist að gera betri ritgerð um þetta.

Nóg í bili. Bless.
Lagalistinn:
Should I stay or should I go - The Clash (þetta þekka allir, enda gott lag)
The Guns of Brixton - The Clash (Snilldarlag, ekki jafn frægt en talsvert betra að mínu mati)
Bankrobber - The Clash (þetta er ekki jafn frægt og það fyrsta sem ég nefndi en mjög frægt samt og mjög gott)

|


föstudagur, 11 nóvember, 2005
komment.

nú er ég búinn að skrifa frekar stutt blogg, meðal blogg og löng blogg og er yfirleitt mjög ósáttur við hversu fá komment ég fæ. Nú seinast skrifa ég lengsta blogg í manna minnum og eina kommentið er hversu langt það er. Því ætla ég að hafa þetta mjög stutt og athuga hvort það breyti einhverju. Enginn lagalisti og ekki neitt. punktum basta. :P (p.s. bíómyndadómar væntanlegir)

|


föstudagur, 04 nóvember, 2005
Email-leikur, próf og meira.

Systir mín sendi mér einhvern spurningalista sem átti að svara og senda til allra sem maður þekkti, ég nennti ekki að senda svona mail (vil ekki pirra fólk sem nennir ekki að lesa þetta) svo ég ákvað að pósta því hér.

1. HVENÆR VAKNARÐU Á MORGNANA
Það er eiginlega vandamál hjá mér hvað er lítil regla á því, þarf að vakna 7 á mið, fim og fös og hálf níu á mánudögum, á þriðjudögum þyrfti ég ekki að vakna fyrr en eftir hádegi en ég er samt oft að vakna um 2-4 leitið á næturnar og svefini er eiginlega í algeru fokki hjá mér.


2.EF ÞÚ GÆTIR SNÆTT HÁDEGISVERÐ MEÐ EINHVERJUM FRÆGUM, HVER VÆRI ÞAÐ?
H mm, góð spurning. Fyrst maður á að snæða með manninum/konunni þá þarf þetta að vera einhver hugvitsmaður sem maður getur rætt við, ekki rokkari eða leikari eða álíka. Þess vegna segi ég Kofi Annan.


3. GULL EÐA SILFUR?

Alveg sama, svo lengi sem mér finnst það flott.

4. HVAÐ VAR SÍÐASTA MYNDIN SEM ÞÚ SÁST Í BÍÓ?
Wallace & Gromit, The curse of the wererabbit. Ekki besta mynd í heimi en fínasta skemmtun engu að síður.


5. UPPÁHALDS SJÓNVARPSÞÁTTURINN?
South Park og Family guy eru í uppáhaldi.


6. HVAÐ BORÐARÐU Í HÁDEGINU ?
Ég keypti mér frosna pizzu sem ég henti í ofnin þegar ég kom heim.


7. HVAÐ LANGAR ÞIG AÐ GERA ÞEGAR ÞÚ ERT ORÐINN STÓR?
Það er svo marg að ég get varla svarað. Mig langar að sjá allan heiminn, kynnast öðruvísi hugmyndum um allt, spila á gítarinn minn og vita allt sem ég mögulega gæti vitað.

8. GETURÐU SNERT NEFIÐ Á ÞÉR MEÐ TUNGUNNI?
Langt því frá.

9. HVAÐ VEITIR ÞÉR INNBLÁSTUR?
Ætli ég verði ekki að segja gítarinn

10. HVAÐ ER MIÐNAFNIÐ ÞITT?
Hef ekkert.

11. STRÖND, BORG EÐA SVEITASÆLA?
Sveitin er best, borgin súgur súran og manni bara drulluleiðist á ströndinni.

12. SUMAR EÐA VETUR?
Alveg sama, bæði sama krappið. Sumarið er kannski ögn skárra.

13. UPPÁHALDS ÍS?
Emmess Vanilluís

14. SMJÖR, SALT EÐA SYKUR Á POPP?
Salt, þó ímynda ég mér að það gæti verið nokkuð gott að setja smjör á það.

15. UPPÁHALDS LITURINN ÞINN?
Ekki hugmynd.


16. UPPÁHALDS BÍLLINN ÞINN?
No oppinion.


17. HVAÐ FINNST ÞÉR BEST AÐ BORÐA Á SAMLOKU?
Ég fæ mér alltaf skinku og ost (skelli stundum gráðuost á líka)

18. HVERT FÓRSTU SÍÐAST Í FRÍ?
Ég skrapp í stutta ferð til Danmerkur seinast en síðast alvörufríið mitt var þegar ég fór til Kúbu. Það var sko upplifun.

19. HVAÐ LÍKAR ÞÉR SÍST Í FARI FÓLKS?
Æ ég veit það ekki, heimskt fólk sem talar eins og það viti allt.

20. UPPÁHALDSBLÓM?
Hverjum er ekki sama um blóm, hef aldrei séð blóm sem fær mig til að hugsa; “vá þetta er fallegt”. Fæ frekar svoleiðis tilfinningu frá tónlist (enda er tónlist það eina góða sem maðurinn hefur skapa, og tónlist er ekki einu sinni sköpun mannsins, hún er eldri, hvalir hafa t.d. tónlist)

21. EF ÞÚ YNNIR STÓRA POTTINN Í LOTTÓINU, HVERSU LENGI MYNDIRÐU BÍÐA ÁÐUR EN ÞÚ SEGÐIR FÓLKI FRÁ ÞVÍ?
Fjölskyldan myndi frétta það svona þegar það væri búið að skinka inn að maður hafi actually unnið og svo vinirnir bara svona næst þegar ég tala við þá.

22. SÓDAVATN EÐA VENJULEGT VATN?
Sem andkapitalisti ætti ég auðvitað að segja venjulegt en ég verð að viðurkenna að ég drekk oftar sódavatn, þoli ekki “verkjatöflubragðið” sem ég finn alltaf að kranavatninu hérna í Reykjavík. (b.t.w. andkapitalisti er ekki samasem kommúnisti þó að kommúnistar séu hörðustu andkapitalistarnir)

23. HVERNIG ER BAÐHERBERGIÐ ÞITT Á LITINN?
Gult, hvítt loft og grænar flísar á gólfinu.

24. HVAÐ ERU MARGIR LYKLAR Á LYKLAKIPPUNNI ÞINNI?
5

25. HVAR ÆTLARÐU AÐ EYÐA ELLINNI?
Eins og þeir sem þekkja mig eitthvað vita þá vil ég helst ekki þurfa að plana meira en 2 sekúndur fram í tíman.

26. GETURÐU JÖGGLAÐ?
M ig minnir að það þýði að dripla milli beggja handa, ef það er rétt munað hjá mér þá já auðvitað.

27. UPPÁHALDS DAGUR VIKUNNAR?
Dunno, they all pretty much suck the same.

28. RAUÐVÍN EÐA HVÍTVÍN?
Bæði ógeð.

29. HVERNIG EYDDIRÐU SÍÐASTA AFMÆLISDEGI?
Helduru í alvöru að ég muni það langt aftur í tímann?

30. ERTU MEÐ LÍFFÆRAGJAFAR KORT?
Nei, enda aldrei heyrt um svoleiðis prógram nema í bíómyndunum.


31. HVORT MYNDIRU VILJA EIGNAST STRÁK EÐA STELPU?
Myndi halda að það væri að mjög mörgu leiti auðveldara að ala upp strák en feðgin mynda oftar sterkari og merkari tensl svo who knows?


33. ERTU FEMINSTI?
Ég er auðvitað sammála jafnréttissinnum í flestu en ég nenni ekki að hugsa um þetta mál og ALLS EKKI að tala um það.


34. FLOTTASTI LÍKAMSHLUTINN Á HINU KYNINU?
Sko það fyrsta sem maður tekur yfirleitt eftir eru rassinn eða kannski í sumum tilfellum brjóstin en augun eru það sem geta heillað mest og eru lang fallegust. (Veit að þetta hljómar klisjukennt en sumar klisjur eru einfaldlega bara sannar)


35. ELSKARÐU EINHVERN?
Auðvitað, ef einhver er svo óheppinn að elska engan þá er mikið andlega að þeirri manneskju.


35. SEGÐU EITTHVAÐ FALLEGT UM MANNESKJUNA SEM SENDI ÞÉR ÞETTA:
Ég er ekki mjög gjarn á að hrósa fólki og kann það eiginlega ekki, mun betri að gera lítið úr þeim. Það eina sem mér dettur í hug að segja er love ya, en það er því miður ekki um neinn. Ahh, ég veit. Kristrún, þú ert bestasta besta systir mín J


35. FRÁ HVERJUM ERU MINNSTAR LÍKUR Á AÐ ÞÚ FÁIR ÞETTA SENT TIL BAKA
Ég nenni ekki að senda þetta sem email, set það bara á síðuna mína ( http://www.internet.is/svalm/ ) í staðin svo að engin sendir þetta til baka.

35. HVER HELDURÐU AÐ VERÐI FYRST/UR TIL AÐ SENDA ÞÉR ÞETTA TIL BAKA?
Sama svar og að ofan.

þið sem lesið þetta megið endilega svara þessu ef þið viljið en þið þurfið þess auðvitað ekkert frekar enn þið nennið.

Ég setti inn nýtt lag mómentsins um daginn og nýtt forrit mómentsins líka, auk þess setti ég guitarpro 4 inn aftur því Kristinn ætlaði víst að sækja það en missti af því. Ég var að reyna að láta mér detta eitthvað nýtt í hug til að setja inn á síðuna en drew a black, datt ekkert í hug.

Ég er búinn að vera á fullu í verkefnum, skilað þremur í seinustu viku og er í kafi að skrifa ritgerð núna sem ég á að skila á fimmtudaginn kemur. Þegar ég klára hana loks þarf ég að rjúka beint í næstu ritgerð. Veit eiginlega ekki alveg hvenær ég á að hafa tíma til að lesa.

Ég fékk einkunina úr prófinu sem ég talaði um í seinasta pósti um daginn. Því meira sem ég hugsa um það því pirraði verð ég, hæsta einkunn var 9.5 og meðaleinkunnin 6.3. Í stuttu máli fékk ég 77 af hundrað en þegar ég skoðaði stærðstu ritgerðarspurninguna sem gilti 20% varð ég fúll. Við máttum velja á milli tveggja, fyrra var: Segðu frá Annus mirabiles. Ég kannaðist ekki við hugtakið enda var það ekki í bókinni þrátt fyrir að kennarinn sagði að bókin væri það eina fyrir þetta próf. Þetta reyndist vera Kraftaverkaárið 1492 á Spáni. Ég vissi allt um það og hefði skorða 18-20 eins og flestir í kring um mig gerðu. Það eina sem þurfti að nefna var að á þessu ári fann Kolumbus Ameríku í umboði Ferdinands og Ísabellu, þau ráka mára loks út úr Granada og gyðinga úr spáni, þar með var spánn allur undir krisnum. Svo þurfti líka að kunna ártalið 1492 sem ég og gerði. En þar sem ég þekkti ekki hugtakið annus mirabiles skrifaði ég um seinni spurninguna sem var: Hver var aðdragandi ameríksu byltingunar. Þið sjáið strax á spurningunni hvað hún er mikið flóknara fyrirbrygði, aðdragandi byltingar er aldrei einfaldur. Þarna þurfi að nefna hvað kanarnir voru að kvarta yfir að vera ekki representaði á breska þinginu (sem ég gerði), svo voru bretar að reyna að skattleggja nýlendurnar sem þeir urðu mjög fúlir yfir (sem ég gerði) en það þurfti að taka fram hvernig þessar tilraunir fóru fram, það eina sem ég man var að 3. og seinasta tilraunin var með því að skattleggja te-ið, þetta nefndi ég ekki. Svo þurfti að minnast á upplýsinguna og John Locke sem ég og gerði en ég fékk samt bara 6 af 20 fyrir þetta svar mitt sem þýðir að ef ég hefði skrifað um annus mirabiles (mig grunaði hvað það var en vildi ekki hætta á það) þá hefði ég verið með svona 9 í einkun í stað 7.5. Mjög pirrandi.

Á fimmtudaginn fyrir viku fór ég á 10 ára afmælistónleika Dúndurfrétta, þeir koveruðu Led Zeppelin, Deep Purple og Uriah Heep á snilldarlegan hátt. Þetta voru geðveikir tónleikar og þeir ykkar sem ég hringdi í og týmduð ekki að kaupa miða segi ég: ÞIÐ MISTUÐ AF MIKLU, heck, þið misstuð af meira en miklu.

Jæja, þetta er orðið MJÖG LANGT blogg svo ég læt þetta duga. Bless í bili.
Lagalistinn:
July Morning - Uriah Heep (Snilldarlag)
Easy livin' - Uriah Heep (ekki jafn gott en samt snilld)
Sunrise - Uriah Heep (geðveikt)

|