| sunnudagur, 29 maí, 2005
F1, Animal House, Maiden o.fl.
Nú er maður búinn að vinna alla helginna og því ekkert komið í verk. Ég og Skúli erum að pæla í að skella okkur á Maiden og ég er að reyna að redda okkur A-svæðis miðum, fæ að vita á mánudag hvort það gangi. þegar ég kom heim í dag horfði ég svo á Animal House . Í dag er hún mjög klisjukennd menntaskólamynd um átök á milli 2 frat-a í skólanum, annað snobb og hitt partý/vandræða-lið. Í myndinni er fullt af frægum leikurum og margir þeirra jafnvel að stíga sín fyrstu skref, helst ber að nefna; John Belushi, Tim Matheson, Bruce McGill, Kevin Bacon (frumraun hans einmitt) Donald Sutherland (pabbi kiefer sutherland, reynslubolti með meiru og var orðinn það þarna). Myndin á að gerast 62 eða 3 en er samt frá 78 þannig að þetta hefur ef til vill ekki verið klisja þá. Ágætist mynd en alls engin snilld. 6.5 af 10.
Að myndinni lokinni horfði ég svo á formúluna, nóg af árekstrum og útafkeyrslum og svo hörkuspenna í lokinn, Raikonen (kann ekki að skrifa þetta) var fyrstur, 10 hringir eftir (1:30 per hring) og Alonso annar u.þ.b. 10 sek á eftir, Alonso er með lélegt dekk að aftan og Raikonen er búinn að hálf eiðileggja framdekkið hjá sér, það er byrjað að vípra og trufla hann mikið, næstu hringi saxar Alonso mikið á, hálf til tvær sek per hring. 2 hringir eftir rétt rúmlega 2 sek munur, það er nú frekar erfitt að ná því, 1 hringur eftir og munurinn er kominn niður í 1.5 sek, þeir eru á sirka 300km hraða og þurfa að snarnegla niður í 100 í fyrstu beygjunni í seinasta hring þegar BÚMM fjöðrunarkerfið gefur sig eftir allan vípringinn í bíl Raikonens og hann flýgur útaf og gefur Alonso sigurinn og kemst ekki einu sinni í mark sjálfur. ÞVÍLÍKUR BÖMMER FYRIR HANN MAÐUR.
Hver segir svo að f1 sé ekkert spennandi. Hvað vita þeir, örugglega aldrei horft á þetta einu sinni. anyways ég veit ekki neitt meir sem ég ætti að segja svo hér kemur bara lagalistinn.
já jú meðan ég man, ég fékk mér frí þrið, mið, föst, útaf því að á mið er spes dagur. ef þú veist ekki af hverju það er spes dagur þá þarftu ekki að vita það :D
anyways, lagalistinn:
Come on Eileen - Dexy's Midnight Runner
Sweet Dreams - Eurythmics
Movie Star - Harpo (frekar svipaðar stefnur nema hvað Eurythmics er aðeins öðruvísi, ekki það mikið samt)
|
fimmtudagur, 26 maí, 2005
Sótt um í Hí o.fl.
Í gær, miðvikudag, fórum ég og Eiður og skráðum okkur í HÍ :P tatata. Ég skráði mig bara í sagnfræði en er að velta því fyrir mér að taka almenna trúarbragðafræði sem aukafag, mér skildist á námsráðgjafa að til að fara í M.A. nám í sagnfræði þarf ég bara að taka hana sem aðalfag, 60 einingar er semsagt nóg, en auðvitað þarf maður að fá einkunnina 7.25 sem er kannski erfiðara. Eiður skráði sig í landafræði en hann er að velta fyrir sér aukafagi líka. Nú orðið eru umsóknir bara sendar á netinu og svo þarf að skila afriti af stútentsskírteniu í skólan. Nú þegar ég var búinn að þessu fór ég á Hlöllabáta og bætti við mig vöktum þar sem að eigandinn ætlar að minnka við einn starfsmanninn og átti ég að skrá mig í staðinn fyrir hann. Svo kom ég heim og lagði mig þar sem að ég er búinn að vera hálf slappur undanfarna daga, einhver helvítis hálsbólga og svona, ég sver að mér finnst ég alltaf vera veikur orðið, og yfirleitt verð ég það í fríunum mínum, skrítið það.
svo þegar ég vaknaði í nótt horfði ég á gamla mynd eftir þá Coen bræður, Blood Simple frá '84. Mjög góð mynd um hjón sem eru að skilja og eiginmaðurinn ræður einkaspæjara til að drepa konuna og kærasta hennar en allt fer anskotans til. Þetta er fyrsta myndin sem Joel Coen leikstýrir og fyrsta myndin sem þeir bræður Joel og Ethan semja. Engu að síður mjög vel gerð og ekkert út á hana að setja. 8.5 af 10 er einkunnin sem hún fær og á hana fyllilega skilið.
Annars er ekkert af mér að segja, ég er bara búinn að vera að letingjast seinustu þrjá dagana, mánudeginum eyddi ég með systur minni, við fórum í Kringluna vorum svo bara eitthvað að hanga heima hjá henni, skelltum okkur svo á stælinn og fórum svo í heimsókn til bróður okkar, kærustu hans og barns, en ég ætla einmitt að bæta við link á heimasíðu hans (krakkans) núna. Þriðjudagurinn fór bara í ekki neitt og ég er nú þegar búinn að segja hvað ég gerði í gær.
látum þetta þá bara nægja í bili
þangað til næst
Lagalisinn:
Fight for your right - Beastie Boys (svalt lag frá flottri hljómsveit)
Blowin' in the wind - Bob Dylan (af plötunni The Freewheelin' Bob Dylan frá 1963, snilldarlag og geðveikur diskur)
Nativity in Black - Black Sabbath (kom fyrst út á plötunni Black Sabbath árið 1970, þetta er flott lag maður, sjæse)
|
mánudagur, 23 maí, 2005
Heimssýn mín
Atli tók víst eitthvað próf um sýn sína á heiminn, skipaði mér að taka það líka og birta niðurstöðurnar hér, svo hér eru þær:
You scored as Materialist .
Materialism stresses the essence of fundamental particles. Everything that exists is purely physical matter and there is no special force that holds life together. You believe that anything can be explained by breaking it up into its pieces. i.e. the big picture can be understood by its smaller elements.
Ég er nú ekki alveg viss um hvað allt af þessu er en ég er viss um að Atli útskýrir ýmislegt fyrir mér um þetta þar sem þetta er meira "his thing" en mitt. Ekki alveg það sem ég er búinn að vera að kynna mér, þó það sé nú ekki óskilt þar sem ég er mest búinn að kynna mér sögu, trúarbrögð og eðlisfræði og þetta er eiginlega samanblanda af því með sjónarhorni heimspekinar. :P
jæja, að örðu leiti ekkert að frétta, ég er í fríi mán, þri, mið, aldrei þessu vant. ekkert búin að vera að gera annars, horfði á A shot in the dark , a.k.a. Pink Panther 2 um daginn og fannst hún eiginlega betri en sú fyrri, fyndnari, þó hún væri að öðru leiti alveg nákvæmlega eins, annar söguþráður reyndar. 8 af 10.
Já nóg um það, LAGALISTINN:
Alabama Song (Whisky Bar) - The Doors (GARGANDI SNILLD hér á ferð)
Roadhouse Blues - The Doors (þeir kunna sko greinilega að blúsa þessir.
Soul Kitchen - The Doors (já ég veit, var búin að taka doors þema áður en þeir eru bara svo helvíti góðir, I can't help it)
|
föstudagur, 20 maí, 2005
Löngu kominn tími á nýjan póst
Það er orðið svolítið síðan ég skrifaði eitthvað seinast enda hefur hægst aðeins á counternum sem annars ríkur alveg ótrúlega upp sem mér finnst btw frekar skrítið útaf því að ég veit ekki betur en að það séu bara Atli, Eiður og Heiðar sem séu að skoða þetta.
Jamm þannig er það nú.
Annars er mjög lítið að frétta af mér, er alltaf bara að vinna og horfi svo á klassíkar myndir þegar ég kem heim. Það er orðið það langt síðan ég bloggaði síðast að ég man ekki eftir öllu sem ég er búinn að sjá, þær sem standa helst eftir eru:
The Deer Hunter með DeNiro, Walken o.fl. ÞVÍLÍKT GÓÐ MYND, hún er um nokkra vini sem eru að fara til Víetnam, hún byrjar í brúðkaupi eins þeirra daginn áður en þeir fara og svo stekkur hún yfir stríðið að mestu leiti. Manni fannst þetta stefna í að verða fyrirsjáanlegt, sérstaklega þar sem DeNiro og Walken voru báðir hrifnir af sömu konunni en endirinn kom manni svo ótrúlega á óvart. Fullt hús stiga
Once upon a time in America með DeNiro o.fl. Snilldarmafíósamynd um klíku krakka með stæla, svo er einn sendur í fangelsi og klíkan er orðinn stór og öflug þegar hann kemur út aftur. Svo er fullt af svona drama í þessu líka. Þessi fær líka fullt hús stiga.
The Pink Panther (1). Ágætis mynd en samt ekki jafn góð og ég átti von á. Peter Sellers er auðvitað góður og eins og alltaf er karakterinn hans mjög ýktur en myndin var ekkert svo fyndin, 7 af 10.
Þetta er svona það sem ég man mest eftir fyrir utan 2 myndir sem ég sá í bíó á þessu tímabili. Ég og vinur minn úr sveitinni skelltum okkur á Sahara með Matthew McConaughey fremstan í fylkingu, en svo var lið eins og Penelope Cruz, William Macy og Steve Zahn svona til að nefna eitthvað. McConaughey er auðvitað helvíti góður en það var þannig séð ekki hægt að gera mikið úr þessari mynd, þokkaleg skemmtun og ekki margt til að setja útá en alls engin gæðamynd, 6 af 10.
Hin myndin var Star Wars ep. 3 . Kærastinn hennar mömmu gaf mér boðsmiða á sérstaka forsýningu miðvikudaginn 18 (2 dögum fyrir heimsfrumsýningu) og fór Eiður star wars frík með mér, (ég hef ENGAN áhuga á star wars, finnst það eiginlega svona krakkaefni eitthvað). Ewan McGregor var helvíti góður eins og alltaf en að mestu leiti var leikurinn í myndinni frekar lélegur, meira að segja stórleikarar að klikka og ætla ég því að giska á að það sé leikstjórninni að kenna. Myndin var fín að öðru leiti og tengdi ep. 2 og 4 alveg saman eftir því sem ég best veit (veit ekki mikið um þetta) og myndin var mjög flott og svona en leikurinn eyðilagði myndina eiginlega. 4.5 af 10.
Já er þetta ekki bara að verða gott? bíddu eitt fyrst, ég heyrði það í vinnunni í kvöld að Ísland komst ekki áfram í júróvisjon, hehe. Reyndar var ég að tala um það í gær (miðvikudag) að það væri alls ekki víst að við kæmumst áfram og var að tala um hvað það væri skrítið að engum virtist detta það í hug, Ísland er búið að gera of margt pshyco eitthvað í utanríkismálum til að vera vinsælt meðal allmennings í Evrópu.
Anyways, lagalistinn:
Lost in Hollywood - System of a Down
Old School Hollywood - System of a Down
Question - System of a Down (allt af Mezmerize sem kom út 17 maí í BNA og 18 hér. Fannst hún frekar slöpp fyrst en hún er fljót að venjast, mjög frumleg plata).
|
laugardagur, 14 maí, 2005
Hneyksli
Þetta er argasti SKANDALL. Ég var að flétta í gegnum nýja blaðið "Blaðið á miðvikudaginn. Ekki mikið varið í þetta blað svo sem en ég kom auga á eina "frétt" þar, ætla bara að birta hana hér eins og hún leggur sig:
VARÚÐ, LESTUR Á ÞESSARI GREIN OG ÞVÍ SEM ÉG BÆTI VIÐ GÆTI SAGT ÞÉR MEIRA EN ÞÚ VILT VITA UM KVIKMYNDINA KINGDOM OF HEAVEN OG EF ÞÚ VILT EKKI VITA NEITT UM HANA ÆTTIRU KANNSKI EKKI AÐ LESA EFTIRFARANDI.
Kingdom of Heaven
Umdeild stórmynd
Kingdom of Heaven, stórmynd Ridleys Scott, er umtöluð en þar eiga múslímar og kristnir í stríði. Sumir segja myndina of hliðholla múslímum en aðrir segja hana sýna þá í neikvæðu ljósi. Breskur prófessor í kristnum fræðum sagði á dögunum að myndin væri eins og löng söguskýring frá Osama Bin Laden. Kvikmyndagagnrýnandi Sunday Times er ekki hrifinn. Hann segir að dramatísk saga manns sem er að missa trúna henti vel í skáldsögu eftir Graham Greene en sé ekki heillandi í kvikmynd. Hann segir friðarboðskap myndarinnar ekki trúverðugan þar sem leikstjórinn sé annálaður fyrir að njóta þess að gera myndir um menn sem brytja hvern annan í spað. "Ef Desmond Tutu hefði gert myndina hefði ég orðin snortinn," bætir hann við. Sami gagnrýnandi segir stærstu mistök Ridleys Scott vera þau að hafa Orlando Bloom í aðalhlutverki. "Bloom á að vera í strákahljómsveit," segir hann. Á sömu síðu er Liam Neeson valinn leikari vikurnnar fyrir framistöðu sína í myndinni. Rökstuningur fyrir valinu er þessi: "Einungis stórleikari getur sagt á sannfærandi hátt; "Ég barðist eitt sinn í tvo daga með ör í eistunum"."
Það er svo margt hér sem ég er ósammála að ég veit vart hvar byrja skal. Látum okkur sjá, já í fyrsta lagi, hvaða máli skiptir hver kemur með boðskapinn, Desmond Tutu eða Ridley Scott, boðskapurinn er sá sami, djöfulsins bull. Öðru lagi, Orlando Bloom stóð sig frábærlega í þessari mynd, ég get ekkert nefnd sem var að í leik hans og held ég helst að gagnrýnandinn hafi eitthvað persónulegt á móti honum, örugglega bara forljótur og öfundsjúkur eða eitthvað. Þriðja lagi þá var þetta fínt efni í bíómynd. Svo veit ég ekki hvað þessi kristinfræði prófessor er að pæla, hann hlýtur nú vera búinn að kynna sér þetta efni vel, en það er ekki erfitt að finna út að riddaramunkarnir voru flestir (aldrei að alhæfa) SKRÍMSLI. Þeir réðust inn í stórborg, komandi úr moldarkofum, fengu sjokk þar sem þeir höfðu aldrei getað ímyndað sér nokkuð svo fagurt og bókstaflega brjáluðust. Þeir drápu allt sem þeir sáu, konur, karla, börn, múslima, gyðinga, kristna. Meðan svæðið var undir stjórn múslima lifðu þeir þar í friði með gyðingum og kristnum svo koma allt í einu kristnir VILLIMENN og drepa allt sem þeir sjá, WHAT THE FUCK??? Reyndar byrjuðu krossfarinar víst svona: Kristnir menn voru aldrei sáttir við að "helga landið" væri undir stjórn "heiðingja" en gerðu svosem ekki mikið í því, þeir máttu heimsækja landið og eða flytja þangað ef þeir vildu og var alger friður ríkjandi þarna (aldrei þessu vant). Svo kemst andlega vanheill múslimi til valda í Jerúsalem og lætur rífa Kirkju Hinnar Heilögu Grafar, sem á að vera reyst á gröf Krists. Múslimar sjálfir taka hann þá strax frá völdum fyrir að brjóta lög um að allar trúir hafi rétt á sér og ekki skuli mismuna á móti neinum og endurreisa kirkjuna (ath, heilagasta kirkja kaþólikka er semsagt reist af múslimum) en það var of seint. Einhverjir ruglaðir prestar í einhverjum krummaskurðum í Evrópu söfnuðu saman liði og sendu það til Jerúsalem til að "frelsa"/hertaka "heilaga landið" frá "heiðingjunum"/múslimum. Á einhvern ótrúlegan hátt tókst þeim það (germanskar þjóðir hafa oft unnið á móti sterkum herjum, þarna t.d. og þegar þeir stoppuðu útrás Rómverja). Múslimar voru ekki mikið að berjast við þá þar til maður að nafni Saladín (Evrópska útgáfan af nafni hans) komst til valda og sigraði riddaramunkana. Hann fór samt öðruvísi að en riddaramunkarnir sem drápu alla, eftir sigurinn leyfði hann þeim sem vildu að fara og þeir sem vildu máttu búa þarna áfram.
Myndin á hrós skilið fyrir að vera fyrsta myndin sem gerir þessi SKRÍMSLI ekki að hetjum. Tími til kominn segi ég.
nóg í bili.
Cya
P.s. ég vona að ég hafi ekki skemmt myndina fyrir einhverjum. :P
Lagalistinn:
Jeremiah was a bullfrog - Creedence Clearwater Revival
I put a spell on you - Creedence
Susie Q - CCR (allt sama hljómsveitinn semsagt, þó eitthvað af þessu séu koverlög)
|
fimmtudagur, 12 maí, 2005
The Doors tribute band
Jæja, þá var minn að koma af The Doors tribute band tónleikum af Gauknum. Þeir voru GEÐVEIKIR. Því miður mættum við ekki fyrr en um hálf 12 og tónleikarnir voru búnir hálf 1. Þetta var samt þúsundkallsins virði. Ég fór með Heiðari og við vorum sammála um að þeir hefðu náð þeim fullkomlega. Þeir eru með aðra tónleika á morgun (fimmtudag) og ætla ég að reyna að fá frí í vinnunni til að mæta, og mæta þá fyrr. ÞVÍLÍK SNILLD. Ég efast samt einhvernveginn um að það takist, en djöfull ætla ég samt að reyna.
Anyways. í gærkveldi leigðum ég, Atli, Heiðar, Eiður og Einar Valur spóluna Kids in the Hall; Brain Candy . Hún var alveg djöfulli fyndin, fjallar um vísindamann sem finnur upp lyf sem festir þig í bestu minningu þinni og gerir þig því hamingjusama/n svo er full að gerast, oft alger steypa. Frábærlega fyndið. Fullt hús stiga. Eftir það fór ég heim og horfði á mynd að nafni A fish called Wanda eftir meistara John Cleese. Hann er nú alltaf jafn fyndinn. Myndin er frá 1988 en hefur elst mjög vel og er enn jafn fyndinn og hún var þá. Aftur fullt hús stiga. Áður en ég horfi á hana horfði ég samt á Manhunter . Hún er frá 1986 og er fyrsta myndin um Hannibal Lector (Silence of the lambs) með öðrum leikurum og svo framveigis. Það skal taka fram að Red Dragon sem kom út fyrir ekki svo löngu var endurgerð á henni. Nokkuð góð mynd en samt basicly nákvæmlega sama mynd og Silence og the Lambs og Hannibal. Allt eins. Besta myndin engu að síður. Í aðal drápsatriðinu var til dæmis Garden of Eden með Iron Butterfly í bakgrunninn. það var alveg frábært. Myndin hefur samt ekki elst nógu vel og fær 8.5 af 10.
Nú veit ég ekki hvað ég á að segja meira og ætla því að slútta þessu með lagalistanum. Þangað til næst, cya.
Lagalistinn:
When the Music's over - The Doors
People are Strange - The Doors
Love me two times - The Doors (allt af plötunni Strange Days frá '67)
|
þriðjudagur, 10 maí, 2005
WOOHOO
ég var að fatta að ég passa kannski bara ekkert inn í þennan vinahóp, why?

That's why. Heiðar skoraði víst áttatíu og eitthvað, Eiður 51 en snillingurinn ég 18. Það hjálpaði reyndar mikið að ég veit sama og ekkert um tölvur :D
Take that you guys.
Annars horfði ég á What's eating Gilbert Grape og The Prince og Egypt í gærnótt. What's eating Gilbert grape er gæðamynd með Jhonny Depp og Leonardo DiCaprio í aðalhlutverkum. DiCarprio hefur aldrei leikið betur, en það er reyndar ekki það erfitt að leika þroskaheftar táning. Depp er stóri bróðir hans sem þarf að sjá um hann og safna inn pening fyrir familíuna. Gæðamynd, topp einkun. Prince og Egypt er aftur á móti disneymynd um Móses og fær 5 af 10. Ekkert um hana að segja annars, óvenju lítið farið út fyrir söguþráðinn og lítið um ástarvælu miðað við disney samt, og má hún fá plús fyrir það. þá hækkar hún víst upp í 6.5 af 10.
jæja þetta er gott, stutt gaman skemmtilegt
þangað til næst
Lagalistinn:
Renegades of funk - Africa Bambaataa (RATM coveraði þetta eftirminnilegar)
Cose Della Vita - Eros Ramazotti (ítalskt lag sem bylgjan nauðgaði í tætlur þegar ég var krakki)
It's still rock and roll to me - Billy Joel (annar bylgjutýpu gaur)
|
mánudagur, 09 maí, 2005
Helvítis helgin
Þetta var númeiri helgin. Á föstudeginum leigjum ég og Eiður Supersize me og svo bruna ég í vinnuna sem hófst klukkan 24. Nú, ég er nýmættur þegar síminn minn hringir, ég sendur heim og sagt að mæta klukkan 10 í fyrramálið. Ég keyri því heim, bjalla í Eið og Atla og fer að spila Catan, (Atli komst ekki). Eftir það fórum ég og eiður eitthvað að fikta á netinu. Ég fór svo að sofa um 5 leitið, vakna 5 tímum seinna og legg af stað í vinnuna. Ég hamast þar til klukkan 19 og bruna svo heim í sturtu og fer svo beint á myndina The Hitchhikers guide to the galaxy. Góð saga, og góð mynd að öllu leiti nema einu. Aðalleikkonan var lélegri að leika heldur en þýsk amatör klámmyndastjarna, með öðrum orðum hún gat ekkert leikið. Annars snilldarmynd. Þegar ég var á leiðina á myndina fattaði ég að ég hafði læst mig úti, það er svona að vera alltaf að skipta um buxur, og þurfti því að láta skutla mér til systur minnar sem á aukalykil. Hún keyrði mig svo heim og opnaði fyrir mér. Þá skipti ég strax aftur um föt og brunaði aftur niður í vinnu, átti að byrja aftur á miðnætti, réttslapp. Svo mætir einn gaurinn ekki í vinnuna þannig að við vorum allt of fáir, (hann var rekin fyrir það btw) en sem betur fer aldrei brjálað að gera þó að það hafi nú verið dulítið. Svo kem ég heim. skelli mér aftur í sturtu og horfi svo á seinni tímatökuna fyrir formúluna. Þegar að hún var búinn var ég að velta fyrir mér að skutlast til systur minnar og horfa á formúluna þar en vildi ekki vekja hana og fór bara að sofa. 3 tímum síðar hringir síminn og ég beðin um að mæta í vinnuna klukkan 18 sem ég og geri, næstum ósofinn. Það var bókstaflega EKKERT að gera þá sem að gerði mig eiginlega enn latari fyrir vikið. Þegar vaktinni var lokið skutlaði ég samstarfsmanni mínum heim í HAFNAFJÖRÐ og var kominn heim rúmlega 3, fór í sturtu og horði á Top Secret! með Val Kilmer. Fínasta mynd, alger steypa. eftir það vafraði ég aðeins um netið og fór að sofa klukkan 6 í morgun. Vaknaði svo klukkan sex í dag vegna þess að ég á frí í dag, á morgun og á miðvikudaginn. VÚHÚÚÚÚ. Held ég eigi það skilið.
Allavegana, ekkert meira sem ég hef að segja núna enda er þetta meira en nóg.
CYA
Lagalistinn:
Set it off - Audioslave (eina lagið þeirra sem minnir á RATM)
Rooster - Alice in Chains (sama stefna og Nirvana, bara margfalt betur gert)
The Razors Edge - AC/DC (stemmingin í þessu lagi er lygilega flott)
|
föstudagur, 06 maí, 2005
Bíóferð, linkar o.fl.
Jájá. Í gær fór ég í bíó og sá Kingdom of Heaven með Orlando Bloom sem hefur leikið í myndum eins og Lord of the Rings o.s.frv. í aðalhlutverki. Ridley Scott , gaurinn sem gerði Gladiator , svona til að nefna eitthvað, leikstýrði myndinni. Þessi mynd svipaði mjög til hennar en það sem mér líkaði einna best við myndina var samt hversu fáar greinilegar sögufalsanir voru þarna, auk þess sem Múslimarnir voru ekki gerðir að skrímslum. Loksins mynd sem kemur aðeins nær því að segja hina réttu mynd af hinum ógeðslegu villimannaflokkum Evrópu sem réðust inn í land friðsælu, fluggáfuðu og siðprúðu Múslima og drápu ALLT sem þeir sáu. Karla, konur, börn, múslima, gyðinga, kristna, ALLT. Í myndinni var orðið Mári notað sem neikvætt orð yfir múslimana en ég og Eiður, sem fór með mér, vorum ekki alveg vissir með það. Márar voru í Marokko en ekki í kringum Jerúsalem. Reyndar höfðu múslimar ekki miklar áhyggjur af þessum villimönnum og sá Saladín (þetta er Evrópska nafnið á honum) um að reka þá í burtu. Múslimar voru meira að einbeita sér að Mongólum sem komu úr austri og náðu að taka yfir alla Arabíu en gerðust aftur á móti Islamstrúar og breyttu henni til þess sem við þekkjum í dag, mest allt í steik, konur undirokaðar og svo framvegis. Ég veit að Saladín var til og hrakti burt riddarana en ég veit samt ekki með neina aðra persónu í myndinni en það er nú eitthvað sem engu máli skiptir. Mér fannst myndin mjög góð og mæli með henni.
Ps. Taktu eftir því hvað gaurinn er að kalla yfir riddarana þegar þeir lenda í Messína á leiðinni út. Besta setning myndarinnar.
Þegar þessu var lokið, klukkan að verða 2 í nótt, setti ég inn linka á þessa síðu, á eftir að bæta við fleirrum síðar og horfði svo á Der Untergang, a.k.a. Downfall. Hún segir nákvæmlega frá seinustu dögum í lífi Hitlers og miðast við lýsingar lífvarðar hans og er myndin mjög raunsæ og góð. Maður býst við að lífvörður Hitlers geti sagt rétt frá hlutunum en það kom mér svakalega á óvart hvað Hitler virtist vera búinn að missa öll tengsl við raunveruleikan, algerlega geðveikur. Mér fannst Eva Braun einnig lýta mjög súperfissjal út í þessar mynd en maður verður víst að trúa þessu því þetta eru bestu heimildir sem við höfum um þetta atvik. Það var alveg ótrúlegt að sjá yfirmenn þýska hersins drepa sig í hrönnum og stundum jafnvel alla fjölskyldu sína með sér. Maður getur ekki skilið hvað var að gerast í huga þeirra þegar þeir gerðu það. Allt í allt var þetta samt snilldarmynd, ekki mikil skemmtun í henni en fróðleikur og gífurlega átakanlegt. Þessi mynd kemur öllu til skila sem ætlast var til af henni og ætti því að fá fullt hús stiga.
Já þetta er nóg í bili. Ef ykkur dettur einhverjir sniðugir linkar í hug til að bæta við megið þið endilega posta þeim hér í kommentin. Þangað til næst, CYA
lagalistinn:
Baby Please Don't Go - Big Joe Williams (verð að viðurkenna að ég hef ekki heyrt hans útgáfu en hann á lagið, AC/DC á t.d. mjög góða útgáfu)
J0lene - Dolly Parton (tími komin á smá kántrý)
Too Ra Loo Ra Loo Ral - Bing Crosby (lagið er eftir James Royce Shannon)
|
fimmtudagur, 05 maí, 2005
SIGURVEGARI FUNDINN
Kominn heim úr vinnunni, fyrsta sem ég geri er að skoða síðunna, engar nýjar hugmyndir komið í dag svo að ég fer bara beint í að nefna sigurvegarann.
Sigurvegarinn er... (bíð eftir trommuslætti)... trtrtrtrtrtrtrtrtr, ah þarna kom hann, sigurvegarinn er enginn annar en, já meðan ég man, þessir þrír sem komu með einhverjar alvöru tillögur (semsagt allir nema skúli sig, nefndu lag sem hefði getað unnið en ég held að þetta sé besta lagið sem nefnt var.
Sigurvegarinn var WHITE ROOM með CREAM og þar af leiðandi hefur Heiðar unnið sér inn hlöllabát og kók. ég þekkti nú lagið en þar sem ég var búinn að gleyma því, átti það ekki einu sinni, þá fær hann Prince Polo líka. Hinir geta fengið hlöllabát líka ef þeir vilja. bara tala við mig áður enn þið farið niðureftir, vinnudagarnir eru svolítið óreglulegir í maí vegna þess að við vorum 3 að berjast um allar dagvaktirnar.
Allavegana. Ég var að vinna í nótt þrátt fyrir að vera veikur og með GEÐVEIKA beinverki. Ég neiddist til að nota læknadóp (verkjatöflur) til að halda mér gangandi og ofreindi bakið á mér algerlega. Mér tókst að redda mér fríi í kvöld til að getað slakað á fyrir næturvaktirnar um helgina. Annars já held ég að það sé ekkert að segja.
Til hamingju Heiðar og til Atla og Eiðs, Close call, mjög svo.+
Lagalistinn (bestu lög keppninnar):
White Room - Cream
Painted black - Rolling Stones
First it Giveth - Queens of the Stone Age
(BTW. Child in time og My friends hefðu verið á þessum lista ef ég hefði ekki verið búinn að nefna þau áður)
|
miðvikudagur, 04 maí, 2005
í gær var minns veikur :P Ég reyndi og reyndi að fá frí í vinnunni en enginn vildi leysa mig af svo ég dópaði mig upp á verkjatöflum og mætti. eftir smástund fattaði ég að ég gat varla staðið í lappirnar og stuttu seinna hringdi ég í eigandann og fékk bara að fara. smástund seinna fór ég heim og sofnaði um leið. svo vaknaði ég útsofinn á miðnætti og ákvað að horfa á nokkrar myndir sem ég á hérna. Fyrst á lista var Napoleon Dynamite, svo Cannibal - The musical og að því loknu I heart Huckabees. Mjög mismunandi myndir en allar mjög góðar. Napolean Dynamite er um dreng sem býr í sveit í Bandaríkjunum. Mig grunar að það eigi að vera svolítið um skyldleikaræktun þarna þar sem allir virtust vera þroskaheftir, myndin var helvíti fyndinn og ef þið horfið á hana þá skulið þið muna að bíða eftir kreditlistanum því eftir hann kemur eitt atriði í viðbót. Cannibal - the musical er ósköp venjuleg Tray Parker (South park) mynd, eitt af því fyrsta sem hann gerir en samt ekkert síðra en nokkuð annað sem hann hefur gert, drepfyndið semsagt. I heart Huckabees er svo stórfurðuleg mynd um fólk sem er að leita að svörum við stóru spurningunum og 2 "ditectives" sem eru að reyna að hjálpa þeim. Við fyljumst svo með því hvernig þetta gengur hjá þeim og brosum yfir allri vitleysunni sem gerist á meðan. Það er svo sem fátt annað um þessar myndir að segja really.
Í kvöld lýkur svo leiknum sem ég startaði um daginn, ég sé eitt lag sem kemur sterklega til greina sem sigurvegarinn en það eru enn nokkrir klukkutímar til að stela sigrinum. Þar sem að á morgunn er frídagur verð ég hinsvegar að vinna langt fram á morgun og tilkynni því úrslitin þá. Eigum við ekki að segja að tillögur eigi að hætta að berast á miðnætti.
Jæja, eitthvað meira að segja? hmmm.....
hmmm.....
hmmm....
Nei okey greinilega ekki.
Lagalistinn:
Girls - Beastie Boys
Judith - A Perfect Circle
Honestly - Zwan
|
mánudagur, 02 maí, 2005 Edward Scissorhands, Sideways
Jájá, hafði lítið að gera í gær þannig að ég horfði bara á tvær bíómyndir. First off var Edward Scissorhands frá 1990 ef ég man rétt. Ég man að mér fannst þetta mjög góð mynd sem krakki og já þetta er svosem mjög góð mynd. Jhonny Depp leikur Edward Scissorhands og gerir það mjög vel enda gæðaleikari þar á ferð. Wynona Ryder lék "Stelpuna" (semsagt stelpan sem aðalpersónan varð ástfangin af) (klisjan má ekki missa sín). En já það verður að segjast að ég hef oft sé Wynonu leika, þetta var nú engin leiksigur hjá henni en það er óhætt að segja að ég hef ALDREI séð hana jafn hot og í þessari mynd, þrátt fyrir alveg fáránlega hárgreiðslu. Nú Vincent Price lék ruglaða próffessorinn og Alan Arkin pabba stelpunnar og svo voru margar fleirri stjörnur þarna. Myndin var auðvitað ekki jafn góð og mig minnti en samt góð nema hvað að endirinn var misheppnaður að mínu mati. :P Það sást líka hvað þetta var gömul mynd, þegar edward var óvart að skera fólk var blóðið líkara þykkri málingu en nokkru öðru svona to name a few.
Að þessari mynd lokinni fékk ég mér afganga frá því í kvöldmatnum og horfði svo á Sideways. Þar er GÆÐAMYND á ferð. Leikari er að fara að gifta sig eftir viku og besti vinur hans, sem er búin að vera í þunglyndi vegna skilnaðar í 2 ár, ferðast um vínekrur Kaliforníu. Leikarinn er alltaf að reyna við konur því hann vill fá á broddinn áður en hann giftri sig. Myndin var vel leikinn og þessir tveir aðalkarakterar voru oft á tíðum mjög hlægilegir. best að segja ekki of mikið um þessa mynd samt þar sem hún er frekar ný og örugglega einhverjir eftir að sjá hana. Þessi mynd fór nú beint á topplista yfir bestu myndir ársins og jafnvel allra tíma og svei mér þá ef hún á það ekki bara skilið.
en já, það er enn enginn búinn að kenna mér að gera nýjan sidebar fyrir linka. :P endilega drífa sig í því.
Lagalistinn: (aldrei þessu vant bara einn karl sem ég er að hlusta mikið á núna)
Hit the Road Jack - Ray Charles (Robinson)
I've Got a Woman - Ray Charles (Robinson)
What'd I say - Ray Charles (Robinson) (btw, þessi maður á mörg önnur, þetta eru bara dæmi. Endilega tékka á honum, snillingur).
|
sunnudagur, 01 maí, 2005
Fleirri próf.
Jájá nú var ég að tékka á pólitískri stöðu minni, ekkert sem kom á óvart þar (ath. þetta er bandarískt próf)
You scored as Socialist
Svo var ég reyndar að pæla, er einhver hér sem getur hjálpað mér smá með html, mig langaði að bæta við sidebar með fullt af skemmtilegum linkum en kann EKKERT á þetta dæmi.
Hey já meðan ég man, ég fór í klippingu í gær. Það væri svosem ekki frásögu færandi nema hvað að þetta var í fyrst skipti sem ég fer í klippingu síðan áður en ég útskrifaðist um jólin, 4.5 mánuðir, samt var ég nú ekki kominn með það mikið hár en what the hey.
Annar lagalisti í dag? já já why not
Susie Q - Creedence Clearwater Revival (elska þessa hljómsveit, aftur á móti, hvernig er ekki hægt að gera það)
hallelujah - Jeff Buckley (VÁÁÁÁÁÁ er það eina sem hægt er að segja, passaðu þig að fá ekki hroll á meðan þú leggur við hlustir)
Bridge Over Trouble Water - Simon & Garfunkle (reyndu að hata þetta lag, ég mana þig)
|
Trúarbragðafræði
Jamms og jájá.
Ég var að lesa blogg vinar míns, www.internet.is/eke/ og þar benti hann á próf um hvernig trúar þú ert. Þar sem ég hef svolítið verið að velta þessu fyrir mér ákvað ég að taka þetta próf. Fyrirfram bjóst ég við að trúleysingi, Islam og Búddishmi myndu skora hæst og Kristni lægst en ér eru niðurstöður mínar:
You scored as Islam .
Your beliefs are most similar to those of Islam. Do more research on Islam and possibly consider taking the shahadah and officially becoming a Muslim, if you aren't already. Despite the actions of some - who go against the teachings of Islam - Islam is a religion of peace; the word "islam" means "peace through submission to God." "Muslim" means "one who submits to God." Islam is the third of the three Abrahamic faiths, and it shares much with Judaism in Christianity; its differences are the acceptance of Muhammad as the last and final prophet, and the oneness of God - in other words, that Jesus, though he was a revered prophet, was not in fact God, and only one God exists. Apparently the Taliban could not read (though their name means "students"), because the Qur'an states that men and women are equal as believers, and that all believers should be educated and seek knowledge. Modesty in dress and behavior is required in Islam for both men and women to preserve the values of society and move the emphasis from superificial appearance to intelligence, knowledge, and God.
Jájá, ekkert ósvipað því sem ég bjóst við, nema hvað er þetta agnosticism? Þarf að tékka eitthvað á því er ég hræddur um. Þetta próf var nokkuð gott að því undanskildu að maður þarf ekki að vita mikið um trúmál til að sjá í gegnum spurningarnar og vita hverju maður þarf að svara til að fá þær niðurstöður sem maður vill. (ég gerði það ekki btw).
Mér finnst það samt svo fyndið að í hvert skipti sem ég fer að ræða þetta við fólk sem hefur ekki kynnt sér þetta mikið og segist hafa heillast mest af Islam og Búddishma þá segir fólk ALLTAF "veldu Búddishmann". Það eru alveg ÓTRÚLEGA miklir fordómar gagnvart múslimatrú í gangi og fæstir vita hversu fögur trú þetta er, friðsæl, jafnréttissinnuð og hugsar vel um þá sem minna mega sín, (henni var reyndar svolítið spillt í byrjun með viðskiptadílum og þessháttar, en hey, jú kent hef it óll). Það sem fólk þekkir aftur á móti mest eru utanaðkomandi áhrif, Islam fór helvíti mikið anskotans til þegar Mongólar réðust inn í arabíu og tóku yfir landið (og gerðust múslimar) á hvað var það 14 öld held ég, eða var það sú 13.? En hvað um það.
Jæja þetta er nóg raus í bili.
Smá auka:
Búinn að komast að því hvað Agnosticism er, It's a concept, not a religion. It is a belief related to the existence or non-existence of God.
An agnostic is a person who feels that God's existence can neither be proved nor disproved, on the basis of current evidence. Agnostics note that some theologians and philosophers have tried to to prove, for millennia, that God exists. Others have attempted to prove that God does not exist. Agnostics feel that neither side has convincingly succeeded at their task.
Agnostics do not believe in a God, or a Goddess, or in multiple Gods, or multiple Goddesses or in a pantheon of Gods and Goddesses.
However, some Agnostics consider themselves to be Atheists. That is because the term "Atheist" has two slightly different meanings:
1. A person who positively believes that no God(s) or Goddess(es) exists.
2. A person who has no belief in a God or Goddess. Just as a newborn has no concept of a deity, some adults also have no such belief. The term "Atheist" is derived from the Greek words "a" which means "without" and "Theos" which means "God." A person can be a non-Theist by simply lacking a belief in God without actively denying God's existence. This is the definition of Atheism used by many Atheists. They use the term "strong Atheist" to refer to a person who denies the existence of one or more deities.
Já já, greinilega fullt af frægum gaurum sem voru Agnostics; Charles Darwin, Thomas H. Huxley, a well known English religious skeptic, invented the term Agnostic in the 1840's, Francois M. Voltaire og margir margir fleirri. :P
LAGALISTINN:
Pshyco Killer - Talking heads (argasta snilld)
Drift Away - Otis Redding (þvílíkur tónlistarmaður)
Don't set me free - Ray Charles (Robinson)(er það löglegt að vera svona góður?)
| |