Hinn Ótrúlegi Vefheimur Stefáns
Forsíða

fimmtudagur, 28 júlí, 2005
Fleirri linkar.

Ég var að fjölga linkum, bætti við tveim bloggum, hjá Krizza ef hann skildi blogga aftur og hjá Sjonna sem er að vinna með mér á Hlölla.
Svo setti ég inn nokkrar áhugaverðar síður og 3 teiknimyndaseríur um tölvuleiki :D

Enjoy

ps. þar sem þetta er eiginlega ekki blogg þá fáið þið engan lagalista ;)

|


Grein í Grapevine o.fl.

Ég las nokkuð áhugaverða grein um War of the Worlds í Grapevine (issue 10 fri 22 jul - thu 04 aug 2005) um daginn. Datt í hug að pósta línk á hana hérna. Hún er á ensku og inniheldur spoilera um myndina. Ef þú vilt skilja hvað ég er að tala um lestu þá greinina fyrst.

Spielberg Gets Subversive

Mér datt þetta aldrei í hug þegar ég horfði á myndina en það er svo mikið vit í því sem hann er að segja og myndin "meikar mun meira sense" núna og varð allt í einu sniðug. :D
Mér finnst mjög sniðugt að líkja árásum geimveranna við árásirnar á Afganistan og Írak af BNA her og Palestínu af Ísraelsher. Það þurfti kannski ekki mikið til að detta þetta í hug en ekki gerði ég það.

"During the first stages of the invasion of Iraq, Tim Robbins was Hollywood's face of opposition, along with his wife, Susan Sarandon. Robbins actually wrote and directed a play named Embedded, about the involvement of the media and American citizens in the war in Iraq... This play, among other things, has made Mr. Robbins highly unpopular even among left-wing New York liberals. You do not place him in a key role in the middle of a film about warfare against humanity – now – by accident."

Annað sem ég vissi ekki. Drengurinn sem skrifar þetta, Haukur Már Helgason, virðist svo viss í sinni sök að honum dettur ekki í hug Speilberg hafi ætlað að gera eitthvað annað með þessari mynd. Ég er persónulega ekki svo viss um að þetta hafi verið áætlunin en mér finnst þetta mjög skemmtileg og áhugaverð túlkun. En fyrst nærsta mynd Spielberg á að vera um Ísrael/Palestínu þá er alveg mögulegt að hann finni til með múslimum og sé að þessu í raun og veru. Hver veit?

HUGSANLEGUR SPOILER BÚINN

Á öðrum nótum þá er ég aðeins búinn að horfa á eina bíómynd að undaförnu, það var Madagaskar þar sem Ben Stiller, David Schwimmer og fleirri reyndu fyrir sér í sinni fyrstu teiknimynd. Ég verð því miður að segja að þeim heppnaðist ekki alveg nógu vel, þetta var eiginlega frekar illa leikið hjá þeim. Það var þannig séð engin söguþráður í myndinni, bara gamla klisjan, leita að betra lífi, vilja komast heim, fatta svo að allt er í himnalagi. Sumar aukapersónurnar voru nokkuð fyndar, eins og mörgæsirnar t.d. en maður var bara búinn að sjá flesta brandarana með þeim í trailernum. Brandararnir voru MJÖG misgóðir, maður hló svosem en lítið ef eitthvað sem lét mann alveg skella upp úr. 6.5 af 10

Ég keypti mér miða á Innipúkann fyrir svona viku síðan. Tónleikar með billjón hljómsveitum á laugardaginn og sunnudaginn. Dagskráinn á þeim er eftirfarandi:
Laugardagur:
15:00 Donna Mess (?)
15:30 Tonik (?)
16:00 Helgi Valur (?)
16:25 Ampop (?)
16:50 Vonbrigði (?)
17:15 Bob Justman (einhver útlendingurinn, eða þá asnalegt nafn á bandi, don't know which)
17:40 Dr. Gunni (loksins nafn sem maður þekkir, þó ég hafi ekki hugmynd um hvað hann spilar)
18:15 Rass (pönk. Platan þeirra að fá góða dóma en eina lagið sem ég hef heyrt Burt með kvótan, er HÖRMUNG af verstu gerð)
18:45 Úlpa (þetta þekkir maður, ekki alveg minn tónlistarsmekkur samt)
19:15-19:45 er pása
19:45 Cat Power (eitthvað útlenskt, aldrei heyrt um þá/þau/þær áður)
20:45 Reykjavík! (?)
21:15 Þórir (?)
22:00 Jonathan (útlendingur? who knows?)
23:30 Mugison (loksins eitthvað sem maður veit að er gott)
00:30 Apparat (þekki nafnið en er ekki að kveikja á hvernig tónlist þeir spila)
01:30 Brim (?)
02:30 Nix Nolte (?) (btw, ömurlegt knock-off nafn af Nick Nolte)

Dj Slimbuck spilar á milli

Sunnudagur:
15:00 Dýrðin (?)
15:30 Norton (Atli Bolla og félagar held ég, geta verði kúl)
16:00 Byltan (ekkert alltof góðir held ég)
16:25 Helvar (?)
16:50 Lára (?)
17:15 Bacon (?)
17:50 Skátar (lagið sem er í spilun á x-inu er amk gott)
18:15 Lake Trout (?)
18:45-19:15 er pása
19:15 Dr. Spock (þekki nafnið en er ekki að kveikja)
19:45 Singapore Sling (loksins eitthvað sem ég veit að er gott)
20:45 Hjálmar (þessir eru flottir)
21:20-21:45 er pása
21:45 Blonde Redhead (útlensk, kannast við nafnið en hef ekki hugmynd um meira)
23:15 Hudson Wayne (?)
00:15 Raveonettes (danir, veit ekki meir)
01:30 Trabant (þessir geta verið helvíti flottir)
02:30 Nine Elevens (ÖMURLEGT NAFN, hef heyrt að þeir séu samt góðir)

Dj KBG spilar á milli

Svo er ég að vinna frá 19-cirka 8 á föstudeginum og á að mæta eftir tónleikana á laugardaginn og sunnudaginn. :´(

Jæja kominn tími á fleirri sjónvarpsþætti
John Doe (ég var að fíla þessa þætti, gaur sem veit allt nema ekkert um sjálfan sig, er að reyna að fatta af hverju, ein sería, hætt framleiðslu, endað mjög spennandi 8.5 af 10
Malcolm in the Middle (allt í lagi þættir, svoldið misjafnir, 6 seríur búnar 7. byrjar í lok sept. um mjög disfunctual fjölsyldu 7.7 af 10)
The Sopranos (ekki beint eins og ég er vanur að horfa á en mjög góðir mafíósaþættir 8.7 af 10)
Titus (lala þættir um bílasmið og skrítna fjölskyldu, á sína kafla 7.9 af 10)

Á næsta bloggi mun ég svo byrja á lagalistanum aftur. :D btw. það tók mig klst að skrifa þetta helvítis blogg. þar til næst. CYA

|


miðvikudagur, 13 júlí, 2005
Trúarlega prófið.

nú er ég búinn að vera að kynna mér trúarbrögð aðeins og taldi það nokkuð víst að hugmyndir mínar hefðu breyst nokkuð mikið svo að ég ákvað að taka prófið á quizfarm aftur. það kom mér á óvart hve litlar breytingar hefðu orðið á þessu hjá mér.

Islam 96% 88%
Agnosticism 83% 83%
Buddhism 75% 54%
Atheism 75% 75%
Paganism 63% 50%
Satanism 63% 46%
Judaism 58% 42%
Hinduism 42% 33%
Cristianity 33% 29%

Linkur á Prófið

Fyrir utan það að Búddisminn stökk upp um eitt sæti þá virðast allrar trúrnar passa betur við mig, litlar breytingar :P
Annars langar mig að segja bara smá um Satanisma hérna, þetta er illa nefnd trúarbrögð, Sannur Satanismi hefur ekkert með Satan, illsku eða neitt þess háttar að gera, Satanismi er hugsað sem andsvar gegn Kristni og snýst um trá á sjálfan sig, það að svartklætt fólk með svart litað hár og hvítmálað í framan er ímynd okkar á satanistum er væntanlega af því kominn að þetta fólk er líklegast til að kynna sér þessi trúarbrögð með opnum huga. To sum up, Satanismi er ekki samasem Satan eða illska.

Þáttalistinn:
The Simpsons (Þetta þekkja allir, 16 seríur búnar, fleirri á leiðinni og bíómynd líka. 8.5 af 10)
Futurama (Sami framleiðandi, 5 seríur gerðar, þó 5. sería hafi bara verið afgangsþættir, og búið að hætta framleiðslu fyrir nokkru síðan. 9 af 10)
The Critic (Sumir framleiðandanna frá Simpsons, ágætis þættir. 2 seríur gerðar, 8 af 10)
South Park (frá snillingunum Parker og Stone, hinn uppáhaldsþátturinn minn með family guy. 9 sería hálfnuð en samt pása á sýningum. elska þetta. 10 af 10)

Þar til næst Chao

|


þriðjudagur, 12 júlí, 2005
Kominn tími á meira?

Ég ætla að segja já. Nú er minns bara í fríi, aldrei þessu vant, ég var í fríi í gær (mánudag) og í dag, þriðjudag, svo ekki aftur fyrr en á mánudaginn kemur og næst mánudaginn eftir það. Ég veit ekki hvað maður gerir svo um verslunarmannahelgina, það verður alveg örugglega suðað í manni að vinna, auðvitað nenni ég því ekki, (þó það sé góður peningur í því). Ekkert búinn að heyra í strákunum um hvað þeir ætla að gera.

Nóg um það. Nú er ég búinn að sjá fullt af myndum, ég er búinn að dæma svo margar myndir hérna að maður ætti bara að fara að gera heimasíðu www.kvikmyndabankistebba.com eða eitthvað :D Allavegana, fyrst ber að nefna Sin City . Ég komst að því að lýsingin sem þeir setja í auglýsingarnar er bara mjög nákvæm og góð: "Blóðug, Brútal og Brilliant". Þvílík mynd. Elska hana. Myndatakan er geðveik, leikurinn er mjög góður, sem er ótrúlegt því yfirleitt þegar að leikarar eru að leika fyrir framan bláskjá eru þeir hræðilegir, sjáðu bara Star Wars. Sagan er snilldar góð, allt eins gott og það gerist. 10 af 10
Næsta mynd er the Frigtheners með Michael J. Fox í aðalhlutverki. Þetta var seinasta myndin sem Peter Jackson gerði áður en hann réðst í Lord of the Rings myndirnar. Þessi mynd er um mann sem sér drauga og notar þá til að gabba fé út úr fólki, svo fara að verða bunch af morðum og hann er grunaður um verkið, svo fer hann að reyna að leysa málið. Ekkert spes við þessa mynd svosem en ágætis áhorf 6 af 10.
Fear and Loathing in Las Vegas með Johnny Depp er STÓRFURÐULEG mynd. Terry Gilliam (Monty Python) er hér að verki en ég held að hann ætti að halda sig við húmorinn, það er gífurlega erfitt að fylgjast með hvað er að gerast og öll myndin er skringileg steypa (enda um dóphausa). Þessi mynd er ágæt en ég bara var ekki í réttu skapi þegar ég horfði á hana, var ekkert að fíla hana. 5 af 10.
What the #$*! Do We (K)now!? (betur þekkt sem What the bleep do we know) er nokkurs konar fræðimynd sem notar kjarneðlisfræði og lífræði að mestu til að efast um allt sem við teljum okkur vita, það voru nokkrar áhugaverðar hugmyndir, aðarlega um hvað hugarfar getur haft áhrif á allt í kringum okkur sem og okkur sjálf en var ekki svo áhugaverð, var langdregin, endurtekningagjörn og í raun ekkert spes, til margar betri svona myndir. 5 af 10.

Ég lofaði víst seinast að fjalla um fleirri þætti sem ég er búinn að vera að horfa á svo hér kemur...
ÞÁTTALISTINN:
Allo!Allo! (Breskir grínþættir um Franskan kaffihúsaeiganda og ævintýri hans á meðan Þjóðverjar halda landinu í WWII, drepfyndið en ekkert sem gerist 8.5 af 10)
The Black Adder (Breskir grínþættir. Það voru gerðar 4 seríur af þessum þáttum sem hver fjallar um Black Adder á merkum tímapunktum í breskri sögu SNILLDARÞÆTTIR, drepfyndið og brilliant 9.5 af 10)
Black B00ks (Breskir grínþættir, talsvert nýrri en hinir tveir og talsvert slakari, fjalla um Mr. Black sem á bókabúð og hatar fólk, sérstaklega viðskiptavini. 7.5 af 10)
That '70s show (Bandarískir grínþættir um unglinga í Wisconsin á 8. áratugnum, byrja vel nema að krakkarnir eru frekar lélegir leikarar en verða smán saman betri, svo er þetta orðið að ansi miklu bulli í 7. seríu sem kláraðist í vor 7.9 af 10)

Þar til næst adios
P.s. þið megið alveg vera duglegri að kommenta, ekki nenni ég að blogga, þið bara kvörtuðuð svo mikið að ég byrjaði aftur til að þagga niður í ykkur svo að nú þegar ég er að hlýða ykkur er eins gott að þið lofið mig fyrir það :D

|


þriðjudagur, 05 júlí, 2005
Meira en vika

Nú er komin meira en vika síðan ég póstaði seinast, reyndar var ég búinn að skrifa eina grein en svo klikkaði eitthvað þegar ég ætlaði að pósta og hún hvarf, nennti ekki að skrifa það aftur. Nú er ekki mikið að frétta hjá mér, það lítur út fyrir að ég eigi ekki eftir að vinna eins brjálæðislega mikið í júlí og ég gerði í júni en ég verð víst að ákveða það núna hvort ég ætla að gera eitthvað um verslunamannahelgi því það á eftir að reyna mikið til að fá mig til að vinna. Ég er búinn að fara á tvær myndir í bíó síðan seinasta póst og horfa á eina eldri.

Hidalgo frá 2004 með Viggo Mortensen fremstan í fylkingu. Þetta er um indjána/hvítingja blending sem keppir á villtum hesti (Mustang) í langkeppnum og vinnur alltaf. Hann fer svo til Arabíu að keppa í ævaforni keppni við múslima á hinum frábæru og geðveikt flottu "Arabian Stallion". Þessi mynd er byggð á sönnum atburðum og er eiginlega ekkert um hana að segja, hún var ekki með neina galla svo sem en það var ekkert í henni heldur sem vakti áhuga, og ég er meira að segja sögunörd sem hef sérstaklega gaman af sögu Araba :P ég veit ekki einu sinni hvað ég á að gefa í einkunn þar sem ég veit ekkert hvað mér finnst um myndina. segjum 5 af 10. Ekkert að henni en ekkert við hana, alger óþarfi að sjá hana en samt allt í lagi að horfa á.

War of the Worlds , sem er byggð á gamalli sögu H.G. Wells. Ég heyrði að þetta hafi verið flutt sem útvarpsleikrit og var þá byggt upp eins og það væri verið að segja fréttir og frömdu margir sjálfsmorð þar sem þeir héldu að geimverur væru að gera innrás. Það er margt í myndinni sem passar engan vegin við söguna en sagan er samt góð, spennan er alveg gífurleg, þó ég leifi mér að efast um að þessi mynd sé nokkuð sérstök ef maður horfir á hana í sjónvarpi (nema maður eigi dúndur heimabíókerfi). þessi mynd stefndi alveg í 9 af 10 þangað til að reunionið í endan. Það var HRÆÐILEGT, auðvitað lætur Spielberg myndirnar alltaf enda vel en shit. Borgin var í rúst og engin rafmagnstæki virka, samt var þessi húsalengja í fínu standi, göturnar hreinar, ljós inni í húsunum og allt fólkið hreint og fínt eins og það hafi ekkert þurft að flýja geimverurnar eða fela sig eða neitt. Bara út af þessu fer hún í 7.5 af 10.

Batman Begins . Nú viðurkenni ég að ég veit ekkert um batman en ég er nýlega búinn að horfa á Batman frá ´89 og þessi mynd á að gerast á undan þeirri en næstum ekkert passar saman í sögunni, í þessari dóu foreldrar hans... hmm ég ætti kannski að sleppa því að segja hvernig þó það sé alveg í byrjun myndarinnar en í batman frá 89 er það Jokerinn sem drepur þau. Í þessari er batman að berjast við höfuðglæpamann borgarinnar en í gömlu drap Jokerinn hann og tók völdinn sjálfur. Ekkert passar. Myndinn er helvíti góð ef maður er ekki að pæla í þessu. Skemmtileg, flott (fyrir utan mjög tjísý effect þegar augun í Batman glóa, ég þarf ekki einu sinni að segja þér að fylgjast með því, það sést strax). Sagan er góð, þó ekkert passi, flottasti batmanbíllinn til þessa, þó að hann sé allt öðruvísi en allir hinir batmanbílarnir. Ef þú vilt sjá skemmtilega mynd þá ferðu á þessa og ætla ég að gefa henni 9 af 10. Ef þú ert sögumyndanörd þá gefur þú þessari mynd örugglega bara 0 af 10 eða eitthvað en hey, myndin er góð, that's all that matters.

Ég er búinn að vera að horfa svolítið mikið á sjónvarpsþætti að undaförnu og í staðinn fyrir lagalista ætla ég að birta lista yfir þá sem ég er mest að fíla og svona sirka meðal einkunn fyrir þá.

Family Guy . Fjórða sería í gangi í USA núna, mjög góð, enn meiri steypa enn áður. Þetta eru uppáhalds þættirnir mínir 10 af 10.
American Dad . Sami framleiðandi og að Family guy. Fyrsta sería í gangi núna. Ekki jafn góðir og Family guy en samt alls ekki slæmir. 8 af 10
Tripping The Rift . Mjög spes þættir um geimverur, vélmenni, kynlífsvélmenni og ævintýri þeirra. Ein sería búinn og önnur væntanleg í lok júli. helvíti góðir þættir 9 af 10.
Father of the Pride . Fínir þættir en búið að hætta með þá, fyrsta sería var ekki einu sinni kláruð, John Goodman með rödd í þessu og svona. Fjölskylda af hvítum ljónum sem vinna í galdrasýningu Sigmund & Roy. Snilldarhugmynd og tölvuteikningin frábærlega gerð en ekkert allt of fyndið, þetta er fyndið en gæti verið betra 8 af 10
Meira næst. Chao.

|