Hinn Ótrúlegi Vefheimur Stefáns
Forsíða

fimmtudagur, 10 febrúar, 2005
Stór dagur

Stór dagur í dag, ég tók til í herberginu mínu. Hef aldrei séð svona mikla ló og ryk yfir höfuð, samt ekki nema tæpur mánuður síðan ég gerði það seinast. Lóinn hefur örugglega vegið um 50g. Það hljómar kannski ekki mikið en ef maður hugsar um hvað ló vegur mikið þá er þetta örugglega sambærilegt magn og 2kg af sykri. En ég stoppaði ekki þar heldur rakaði ég mig í fyrsta skipti síðan á gamlárskvöld, hens nikkið sem ég nota :D Hárinn voru orðinn svo löng að rakvélin réð ekki við þau og ég varð að byrja á að klippa það grófasta af með skærum. Ekki nóg með það heldur skipti ég um á rúminu eins og mamma er búin að vera að nöldra um að ég geri í rúman mánuð. Ég var búinn að gleyma hvað það er mikið betri lykt af hreinum rúmfötum :P

Ástæðan fyrir þessu öllu, nú í fyrsta lagi þá gat ég ekki sofnað í nótt og er reyndar enn ekki farinn að sofa og hafði því næga tíma fyrir þetta og í öðru lagi þá er bróðir minn að koma í heimsókn frá Danmörku, kemur í kvöld og fer svo aftur á mánudaginn. Hann á sko þrítugsafmæli á laugardaginn og mamma ákvað að kaupa handa honum far hingað í tilefni af því.

Á öðrum nótum. Ég og Eiður félagi minn erum að velta því fyrir okkur að fara til Kúbu þann 6. mars, vikuferð. Damn það verður upplyfun. Krissi, annar félagi, er að pæla í að koma með en ekki alveg víst hvort hann hafi efni á því, það eru margir staðir ódýrari en Kúba :P Við ætlum samt þangað, við erum svo miklir anti-kapitalistar í hjarta :D

Hmm, hef ég eitthvað meira að segja??? Já ég var að horfa á videofæl af huga í gærnótt. Fuck hvað sumir þessara kana eru heimskir. Yfirleitt þegar ég sé svona verð ég svolítið reiður en þetta var bara svo úber heimskt að það var ekki annað hægt en að hlæja endalaust. Ég var reyndar búinn að sjá hann annarsstaðar en tímdi ekki að dl honum öllum þar sem það var erlent niðurhal.

Já alveg rétt við fengum okkur þrálausan router um daginn þar sem mamma var að fá sér fartölvu, ég setti hann upp sjálfur og sonna :D minns geggt stoltur. Sölukonan var svona að reyna að draga úr kjarki manns til að gera þetta en þetta var léttara en helvíti og tók u.þ.b. 15 mín. Svo þurfti ég reyndar að fá hjálp við að gera port í hann til að geta notað DC. Það var samt ekkert mál þegar það var búið að lýsa fyrir mér hvernig ég ætti að gera það.

Jæja, þetta fer nú að verða helvíti langt svo við látum þetta duga að sinni.
Þar til síðar, cya

Og svo lagalistinn að lokum:
Hotel California - Eagles (held að það þurfi ekki að kynna þetta fyrir neinum)
California Dreamin' - Mamas & Papas (snilldar hippalag)
Californication - Red Hot Chili Peppers (smá California þema í gangi)

|


mánudagur, 07 febrúar, 2005
Svolítið um liðið síðan seinast.

Jæja, nú er orðið svolítið langt síðan ég skrifaði seinast. ég biðst afsökunar á því en það er vegan þess að ég geri lítið annað en vinna þessa dagana. :(

Í den spilaði ég Eve-online svolítið en fannst það ekkert svo skemmtilegur leikur, samt tókst mér að festast svolítið í honum (hann er svolítið vanabindandi) en allavegana, ég hafði sama og ekkert spilað í nokkra mánuðu svo að ég ákvað að gefa vinnufélaga mínum accountinn minn. Vá hvað það var samt erfitt, þegar maður er búinn að eiða svona löngum tíma í að skapa karakter þá er hún orðinn hluti af manni sjálfum og liggur við að þetta sé eins og barnið manns. :P Jæja, það er búið og gert.

Ég var að kynnast svona online "leik" fyrir skömmu, NationStates , hann gengur útá að skapa þjóð og það eina sem maður gerir er að setja lög og svo kemur í ljós hvar maður stendur pólitíst séð. ekkert mikið sem maður getur gert og maður eiðir ekki nema svona 5 mín á dag í þetta en samt svolítið áhugavert. Ég kynnti Eið, félaga mínum fyrir honum, og við erum með nokkrar þjóðir þarna. Þessi "leikur" er eiginlega fullkominn fyrir mig þar sem ég er alltaf að vinna núorðið og hef engan tíma til neinns því eins og ég sagði áðan þá tekur hann engan tíma :)

Jæja, ég ætla að hafa þetta nóg í bili, fyrirgefiði að ég skuli ekki hafa sett neitt áhugavert hér, kannski næst.

og svo lagalistinn:
Wind of Change - Scorpions (flott lag en samt takí)
Rock 'n' Roll Part 2 - Garry Glitter (hey hey hey)
Three Little Pigs - Green Jelly (frábært lag og texti)

|


miðvikudagur, 02 febrúar, 2005
D&D maður

Var að taka eitthvað silly D&D próf til að sjá hvernig karakter ég er, niðurstöður:


You Are A: Chaotic Good Elf Ranger Bard
Follower Of Solonor Thelandria

Alignment :Chaotic Good characters are independent types with a strong belief in the value of goodness. They have little use for governments and other forces of order, and will generally do their own things, without heed to such groups.

Race :Elves are the eldest of all races, although they are generally a bit smaller than humans. They are generally well-cultured, artistic, easy-going, and because of their long lives, unconcerned with day-to-day activities that other races frequently concern themselves with. Elves are, effectively, immortal, although they can be killed. After a thousand years or so, they simply pass on to the next plane of existance.

Primary Class :Rangers are the defenders of nature and the elements. They are in tune with the Earth, and work to keep it safe and healthy.

Secondary Class :Bards are the entertainers. They sing, dance, and play instruments to make other people happy, and, frequently, make money. They also tend to dabble in magic a bit.

Deity :Solonor Thelandria is the Chaotic Good elven god of archery and the hunt. He is also known as the Keen Eye, the Great Archer, and the Forest Hunter. His followers respect nature, and only hunt when needed, but are quick to defend the forest from intruders. Their favorite weapon is the bow, and they tend to be extremely talented with it. Solonor Thelandria's symbol is an arrow with green fletchings.

Endum svo á því sama og venjulega, þrjú klassa lög:
For those about to rock (we salute you) - AC/DC
Purple Haze - Jimi Hendrix
Bohamian like you - Dandy Warholes

|


þriðjudagur, 01 febrúar, 2005
Jæja, er kominn tími fyrir næsta póst? Já já segjum það bara.

Ég fór á Team America: World police um daginn.
Fyrsta sem ég tók eftir var að myndin var sýnd í litlum sal og ég fór á frumsýningarnóttunni, hvað er málið með það?
Annað sem ég tók eftir var að það voru ekki 10 manns eldri en ég í salnum, hvað er málið með það? Ekkert nema einhverjar helvítis gelgjur á þessari mynd, flest strákar í sirka 10 bekk eða 1 bekk í menntó.
Jæja, þá að myndinni sjálfri, þetta er ádeila á Bandríkin og hvernig þau þurfa að ráðskast með restina af heiminum, byrjunaratriðið er til dæmis snilld og fjallar um einmitt þetta en ég ætla ekki að eyðileggja neitt með að tala um það hér. Þeir félagar Trey Parker og Matt Stone ( South Park gaurarnir) eru auðvitað snillingar og svo fyndnir að það er óskiljanlegt en ég verð samt að segja að þetta var slakast myndinn þeirra, samt mjög fyndinn.
Myndin þeirra, Orgazmo , var með því fyndara sem ég hef séð, South Park, Bigger, Longer and Uncut var líka frábær, BASEketball , snilld, þannig að segja að Team America sé slakasta myndin þeirra segir kannski ekki mikið þar sem hinar myndirnar þeirra eru svo frábærar :)
Þó að myndin hafi valdið mér vonbrigðum segi ég að allir sem fíla barnalegan "toilethumor", eins og ég geri, verði einfaldlega að sjá þessa mynd. Ekki láta það að þetta sé dúkkulísumynd hræða ykkur, það er oft mjög fyndið, t.d. kynlífsatriðið og þar fyrir utan eru þær snilldar vel gerðar og þegar þær sprynga í loft upp og blóð spítist út um allt getur maður ekki annað en hlegið.

Jæja er þetta ekki gott í bili?

Og já Klassíski lagalistinn:
Hush - Deep Purple
My Friends - Red Hot Chili Peppers
Spiders - System of a down

|


Hinn gaurinn hefur skoðanatjáningar sínar

Jæja, haldið þið að maður sé ekki bara byrjaður að blogga og það nokkrum árum eftir að allir þeir sem eru "cool" hætta því. That's me in a nutshell baby. ég hlusta á "úrelta" tónlist og byrja að blogga eftir að það fer úr tísku. Anyways, ég þarf víst að tala um eitthvað hér en ég nenni því ekki svo að ég ætla að lofa ykkur verðandi dyggu hlustendur að hér verður ekkert póstað nema crap crap og meira crap, okey og kannski smá bull every now and then.

Wow, ég var að lesa yfir það sem ég skrifaði og fékk það allt í einu á tilfinninguna að ég væri ósvöl 13 ára gelgja (enskuslettur eru svo halló, og það að stytta orð eins og hallærisleg og setja ó í endan er enn meira halló)

Jæja, við heyrumst kannski bara
Hinn Gaurinn.

eigum við svo ekki bara að byrja fyrstu hefðina.
Nokkur Klassík gæðalög með gæðahljómsveitum.

Child in Time - Deep Purple (besta lag ever)
Babe, I'm Gonna Leave you - Led Z. (með þeim betri sem þeir gáfu út)
Know Your Enemie - Rage Against the Machine (þeirra besta)

|