Hinn Ótrúlegi Vefheimur Stefáns
Forsíða

föstudagur, 23 desember, 2005
OMGWTF!!!! :P

Jæja, þá er maður búinn að kaupa allar jólagjafirnar. Reyndar er gjöfin handa Guðmundi Auðunni sú eina sem ég sá með eigin augum en samt tókst mér að eiða tugum þúsunda :P. Jamm svona er þetta bara, helvítis kapitalísku hátíðarhöld.

Í gærkvöldi var ég í afmæli/jólaboði hjá Krizza , skemmti mér konunglega og drakk of mikið. Cheers Krizzi.

Ég lofaði ykkur líka seinast að tala um King Kong . Kvöldið áður horfðum við á upprunalegu King Kong (1933) , er reyndar ekki búinn að sjá þessa frá 1976 en hún á víst að vera verst af þeim. Mér fannst ekki mikið varið í upprunalegu myndina. Jú það kom mér á óvart hversu vel hún var gerð, notaði svona leirkalla sýndist mér, svipað og Wallace og Gromit . Hún var líka skemmtilega brútal, sérstaklega fyrir þennan tíma en djöfull var handritið lélegt, karakterar slakir, hræðilega illa leikin og svo framvegis. Mig grunar að hún hafi bara verið vinsæl fyrir að vera flott og brútal en hún á líka hrós skilið fyrir að vera brautriðjandi á því sviði og gef ég henni því 6.5 af 10. Nýja myndin aftur á móti er leiðinlegasta stórmynd sem ég hef séð í háa herrans tíð. Þetta er í fyrsta sinn sem mér hefur dottið í hug að ganga út úr bíói og ég hefði gert það ef strákarnir hefðu tekið betur undir hugmyndina. Tæknibrellurnar eru jú flottar og leikararnir eru alveg að standa sig með príðum en mér fannst ekkert varið í söguna, (allt öðruvísi en í upprunalega) karakterar voru yfirleitt illa skapaðir, drógu mig ekki að sér og ég fann ekki til með neinum, hélt ekki með neinum eða neitt. Það versta við myndina var samt hvernig Peter Jackson virtist aldrei fatta að atriði væru orðin of löng. Hér kemur ef til vill smá spoiler, þetta segir þér svo sem ekki mikið en ef þú vilt ekki vita neitt um myndina ættiru kannski að sleppa eftirfarandi, hef það skáletrað. Eitt dæmi um svona atriði þar sem hann fattar ekki að hætta á réttum tíma er þegar ein manneskja er að hitta átrúnaðargoðið sitt en talar við vitlausa manneskja og átrúnaðargoðið stendur fyrir aftan manneskjuna. Þetta er auðvita gamall brandari og maður hló aðeins fyrst. Svo hélt atriði áfram og hláturinn breyttist í bros, sem svo breyttist í glott en á endanum var maður farinn að hugsa "GET ON WITH IT". Annað eins atriði þegar King Kong fer að hlæja, sætt og fær mann til að brosa, en nei, atriðið heldur áfram og áfram og áfram og áfram. Endirinn sem hefði átt að taka 2-5 mínútur tók hálftíma, bardagaatriðin voru yfirleitt að minnsta kosti helmingi of löng og svo framvegis. ÓHÆTT AÐ BYRJA AÐ LESA AFTUR. Sem sagt allt of langdregin mynd. Strákarnir sem fóru með mér voru vonsviknir en leiddist samt ekki eins og mér. Engu að síður er þessi mynd að fá mjög góða dóma, IMDB gefur henni 8.1 af 10 (notendur að dæma), Metacritic gefur henni 81 af 100 (meðaltal bíómyndagagnrýnenda) og 7.4 af 10 (notendur að dæma). Svo eru blogg hjá vinum hans Atla sem segja eftirfarandi:

http://www.leikari.blogspot.com/
"Ég fór á KING KONG í gærkvöldi og þvílík snilld........vá maður ef Peter Jacksson er ekki einn sá mesti snillingur í kvikmyndagerðð að þá veit ég ekki bara hvað...... Hún er rosaleg þessi mynd og ef þú ferð ekki og sérð hana að þá......æi þá er það bara þinn missir sko"

og
http://drweir.blogspot.com/
"Hér fylgir það gáfulegasta sem ég get sagt um King Kong:

Vávává
vá vá vá vá vá vá vá vá vá vá vá vá vá vá

Einkunn á skalanum 1-10: 73, plús þrír bananar"

Þannig að ekki allir sammála mér. Mín einkunn verður samt að vera trú því sem mér finnst, 2 af 10 og ég segi að þið ættuð að sleppa því að sjá þessa mynd, ef þið sjáið hana verðið þið verri fyrir.

Fyrirgefiði hvað þetta varð langt hjá mér enda bara á að segja stöðuna só far í lagaleiknum
1. Roxy music - Love is the Drug (brilliant lag btw.)
2-5 ekkert komið

Ef þið vitið ekki hvað ég er að tala um lítið þá á næstseinustu málsgrein(paragraph) í seinustu færslu.

Ciao

|


miðvikudagur, 21 desember, 2005
Jamms og já já.

Þá eru prófin loksins búinn og svona. Ég væri alveg sáttur við það að þurfa ekki að lesa 1 bókstaf næstu 2 árin en svo heppin er maður víst ekki. Ég held að þetta hafi allt gengið ágætlega en veit ekki hversu strangt er tekið á neinu svo að einkanirnar mínar gætu þess vegna alveg verið á bilinu 1-9 :P. Um leið og ég var búinn í seinasta prófinu fór ég heim og tók upp gítarinn og spilaði í 3 klukkutíma straight, ég er búinn að sakna þessa að hafa tíma til að spila á hann. Nú get ég kannski líka byrjað að pikka upp lög aftur og svona. GEGGT.

Ég tók próf sem á að segja mér hvernig tröll ég er. Þetta var víst niðurstaðan úr því:



Stjórnmálaþurs


Þú ert vanaföst, tilfinningarík félagsvera.

Í margmenni á stjórnmálaþursinn oftar en ekki orðið. Ef einhver hyggst grípa fram í fyrir honum talar hann bara hærra - og það virkar. Hann hefur sterkar skoðanir á flestu, hvort sem um er að ræða fjárlagahalla ríkisins eða það hvort SS eða Goða pylsur eru betri, og gerir hvað hann getur til að þröngva þeim upp á aðra. Stjórnmálaþursinn þarf að passa sig þegar hann er í nærveru þeirra sem eru ósammála honum því blóðþrýstingurinn á það til að rjúka upp.



Stjórnmálaþursinn vantar ekki nýja skó fyrr en það er komið gat á þá gömlu... sem skósmiðurinn segist ekki geta gert við. Stjórnmálaþursinn veit hvar Guðsteinn er með verslun.


Hvaða tröll ert þú?

Okey, ég skal alveg samþykkja sterkar skoðanir, en ég hvorki reiðist þegar einhver er ósammála né er ég tilfinnigarík félagsvera. Eða mynduð þið segja það? Mér fannst líka fyndið þetta með skónna, skórnir mínir eru búnir að vera ónýtir í sirka ár, kominn skekkja í botnin og svona en ég nenni ekki að kaupa mér nýja, græjurnar mínar eru líka bilaðar, geislaspilarinn virkar ekki, þá tengdi ég bara tölvuna við græjurnar og ef ég vil hlusta á geisladisk set ég hann bara í tölvuna. Ég sem sagt eiði ekki pening í sjálfan mig að óþörfu. :D

Ég fór á Narnia um daginn. Mjög góð mynd. Lord of the rings myndirnar voru nú betri en þessi var samt mjög góð. Dýrin voru yfirleitt tölvuteiknuð, ef ekki alltaf. Það var svakalega vel gert, oft var maður ekki viss en stundum var það eitthvað aðeins off. Þeir virtust líka passa sig mjög á að sína aldrei ofbeldið sjálft, einu sinni réðst t.d. úlfur á eina persónu, sem stakk hann þá með sverði, það sem við sáum var úlfin stökkva, báða detta og úlfin með sverð í sér. Svo var major bardagi og aldrei sást sverðstunga, mig minnir meira að segja að maður hafi aldrei séð ör hitta neinn. Það gæti samt verið. Þetta var annars hin skemmtilegasta mynd og það ættu allir að sjá hana. 8 af 10.

Ég er líka búinn að horfa á Ace Ventura: When Nature Calls . Sem sagt númer 2. Man hvað mér fannst hún góð þegar ég var yngri. Djöfull leiddist mér hún núna, bara Jim Carrey að láta eins og fífl. Man ekki einu sinni eftir því að hafa stokkið bros á vör. Ætla samt að gefa henni 6 af 10 en það er bara vegna góðra mynninga en ekki af því að ég hafi fílað hana núna.

Ég er líka búinn að horfa á Daredevil . Ég man þegar hún var í bíó reyndi Gísli bróðir, sem þá var á landinu, að draga mig á hana en ég neitaði, svo mikið langaði mig að sjá hana. Þarna er Ben Affleck að leika blinda ofurhetju, DareDevil. Hún er svo sem allt í lagi að horfa á, Michael Clarke Duncan (Green Mile o.fl.) er góður eins og alltaf en Jennifer Garner var frekar slöpp, eins og oftast. Meðalmynd. 5 af 10.

Einhvern tíman horfði ég líka á Ghostbusters 2 . Djöfull er hún mikið lélegri en 1. Draugbanarnir höfðu eitt öllum draugunum og því drifið sjálfa sig out of business. Svo kemur nýr draugur og þeir bjarga borinni aftur. Mun verri húmor og lítið varið í hana. 4.5 af 10.

Svo er ég að fara á King Kong í kvöld og mun segja frá henni seinna.

Í stað lagalistans ætla ég að gera keppnina aftur, hún var svo vinsæl seinast. Allir að koma með lög sem þeir halda að ég fíli og hef ekki minnst á hér áður, ég bý svo til topp 5 lista úr því og sigurvegarinn fær eitthvað skemmtilegt frá mér. Segjum að þetta verði í gildi fram að áramótum bara. Good luck og ciao.

P.s. mér finnst alveg ótrúlegt að svona fáir af ykkur skildu vilja fara á Tarantino kvöld. hefði örugglega verið geðveikt. Ég og Atli ætluðum að kaupa miða í gær en það var uppselt. Svo heyrði ég að Kóngurinn og fíflið, útvarpsþáttur um kvikmyndir á x-fm hafi ætlað að gefa miða á þetta en það var uppselt og þeir fengu ekki miða :P. Seldis upp einn tveir og hundrað. 3.500kr miðinn og þúsund miðar. 3,5 millur takk fyrir. :D

|


laugardagur, 17 desember, 2005
Sigurvegari!!!!

Hér sjáum við hinn glæsta sigurvegar, við það að borða krít áleiðinni til Kúbu :D, Eið. Hann fattaði það að maðurinn var enginn annar en Abdul Karim Qassim . Hann var forsætisráðherra eftir uppreisn í Írak sem steypti konungsstjórninni sem var komið á eftir uppreisn gegn bretum sem stjórnuðu svæðinu eftir að Ottómanaveldinu var skipt upp eftir fyrri heimsstyrjöld. Það var fyrir hans sakir að Írak lagði niður pró-vesturlandastefnu og kom á vináttuböndum við Sovétríkin. '58 var svo sett stjórnarskrá sem tryggði öllum í landinu sama rétt og frelsaði pólitíska fanga. Kúrdar (sem hafa síðan oft verið til vandræða) fengu að snúa heim og Írak byrjaði að gera kröfur á að fá Kúveit (sem Saddam réðst svo inní), enda hafði það alltaf verið sama landið. '59 réðst Qassim svo á kommúnistaflokk landsins, sem og að halda niðri stúdentahreifingum, verkamönnum og konum. Í stjórnartíð hans fór landið í stríð við Íran um landsvæði, Kúrdar gerðu uppreisn, Bretar reyndu að styðja uppreins, sem og CIA og loks Egyptaland. Þá var Qassim aflífaður ('63) og fannst líkið hans ekki fyrr en í Júlí 2004 af fréttamönnum frá Baghdad. Því má bæta við að hann er enn í dag lofaður fyrir óeigingirni sína í Írak og er sagt að hann hafi dáið eignalaus. Hann gaf víst systur sinni alltaf helming launa sinna fyrir það eitt að elda handa honum hádegismat. Merkismaður :D

P.s. ég fékk póst frá sambíóunum sem hljóðar svo:

Iceland Film Festival kynnir KVÖLDSTUND MEÐ TARANTINO. Um er að ræða þriggja kvikmynda BÍÓPARTÝ sem fer fram á einu kvöldi í Háskólabíói, föstudaginn 30. desember. Tarantino mun sjálfur velja kvikmyndirnar og senda filmur hingað til lands úr sínu einkasafni. Tarantino mun vera á staðnum allan tíman og horfa á myndirnar með fólkinu. Hann mun auk þess kynna þær og svara spurningum áhorfenda eftir þær. Fyrsta myndin er sýnd kl 21:00 og svo koll af kolli. Með kynningum og þreföldu "Spurt og svarað" er búist við að dagskránni ljúki u.þ.b. 3 um nóttina.

Almenn miðasala hefst ekki fyrr en 27. desember og netforsala hefst formlega kl. 10:00 næsta mánudag, en þar sem þú ert skráður á póstlistann okkar gefum við þér færi á að tryggja þér miða hér og nú:

Nýttu tækifærið og tryggðu þér miða strax á þennan einstaklega magnaða og eftirsótta atburð, löngu áður en almenn sala hefst.

Miðaverð er aðeins 3.400 + 150 króna miðagjald. Miðinn gildir á allar þrjár myndirnar og alla dagskrána, ekki er hægt að kaupa miða á einstakar myndir eða einstaka hluta dagskrárinnar. KVÖLSTUND MEÐ TARANTINO fer fram í Stóra sal Háskólabíós og sætin eru númeruð, en sama miðaverð er alls staðar í salnum, það er því um að gera að tryggja sér miða strax á góðum stað. Takmarkað magn miða er í boði í þessari forsölu, fyrstir koma fyrstir fá.

Gaman er að benda á það að hér eru á ferðinni allra síðustu bíósýningar ársins á Íslandi. Bíóin eru öll lokuð daginn eftir, 31.

desember, og má því segja að Íslendingum gefist færi á að enda kvikmyndaárið með miklum stæl; í þriggja mynda bíópartýi með Quentin Tarantino.

Allar upplýsingar um KVÖLSTUND MEÐ TARANTINO hér

Kær kveðja með von um góða helgi,

SAMMI

Hljómar áhugavert, hverjir eru til??? (btw. mér finnst bara fyndið að fara á tarantino kvöld eftir svona skrítin draum um hann eins og ég sagði ykkur frá)

Þess má einnig geta að Bob Geldof (hljómsveitin Boomtown Rats) er alveg búinn að vera að tapa sér í að senda mér email um eitthvað "Critical". Þar sem ég er greinilega svo merkilegur að Bob Geldof þar endilega að ná í mig þá hef ég ekki gefið mér tíma til að lesa það, ef ég er svona merkilegur getur hann bara beðið :D

|


fimmtudagur, 15 desember, 2005
Hver er maðurinn?

Þar sem ég var að klára próf númer 2 af 3 get ég gefið mér leyfi til að taka 5 mínútna hlæ áður en ég byrja að lesa fyrir næsta próf og þar sem ég er sá eini sem hef ekki gert þetta (fyrir utan Kristinn) þá kemur það hér

Hvern sjáum við hér? Hann var einn af aðalmönnunum í uppreisn og var almennt vel liðinn af almenningi og átti örugglega sinn þátt í að nýja stjórnin stóðst. (Ég ekki hvort þetta sé of erfitt, við sjáum bara til. Grunar reyndar að ég hafi gefið of góðar vísbendingar en við sjáum til)

|


laugardagur, 10 desember, 2005
Háskólapróf og draumar.

Já fyrsta lokaprófið mitt í Háskólanum var í gær, byrjar vel :P Ég mæti of snemma, alltaf að vera save svoleiðis en þegar ég er að tala við félaga mína þarna fatta ég að ég gleymdi að taka með mér reiknivél. Ég stressast allur upp, tala við prófdómara og fæ að fá lánaða tölvu hjá einhverjum. Okey svo sé ég að ég á að vera í sæti #8 svo ég sest þar. Nokkrum mín eftir að prófið hófst kemur inn stelpa sem var of sein, hún segir að hún eigi að vera í sæti nr. 8. Dang it ég fór inn í vitlausa stofu :(. Allavegna svo fer ég í rétta stofu og þarf að útskýra aftur með reiknivélina og svona, tefur smá en svo fer ég að einbeita mér að prófinu. Þetta próf var ekki nema 4 klukkustundir og ég er að skrifa stanslaust allan tíman. 3. sem fóru út áður en tíminn var liðinn, einn eftir aðeins 2 tíma, annar eftir svona 3 og sá þriðji 15 fyrir próflok. Ég reikna með að hinir 2 hafi fallið og sætt sig við það. Svo þegar ég kem heim tek ég upp gítarinn minn eins og vanalega en þá er ég svo þreyttur í hendinni eftir svona mikil skrif að ég lofta honum varla og sofna fljótlega eftir að ég kom heim. Var reyndar enn þreyttur þegar ég vaknaði í morgun :P

Í nótt dreymdi mig svo fáránlegan draum. Ég var heima í sveitinni nema að húsin voru "all wrong" Var mikið að tala við pabba þarna fyrst nema að þetta var ekki beint pabbi, einhverskonar samanblanda af pabba og Al Pacino, ég vissi til dæmis að hann væri frægur. Svo kemur einhver sýrukafli um mannshár sem ég man ekki nógu nákvæmlega en svo kemur Quinten Tarantino í heimsókn með flotta ljósku með sér. Man mjög nákvæmlega hvernig hann kemur í þyrlunni, mjög harkaleg lending. Hann er þarna að skoða húsin hans Pabba/Pacino og þeir að tala saman, skiptast á því að nota ensku og dönsku. Ég spyr af hverju þeir eru að tala dönsku og pabbi/Pacino segir að Quinten sé svo góður í tungumálum, læri þau 1, 2 og hundrað, svo stuttu seinna er örstutt kynlífsatriði með ljóskunni og Quinten, það var nú ekkert grafik neitt og hafði mikið að segja í söguþræði draumsins, bara man ekki hvað lengur. Þegar hér er komið er Quinten búinn að læra íslensku sæmilega og hann og Pabbi/Pacino farnir að tala saman á 3 tungumálum. Man að pabbi/Pacino kallar Quinten oft Kristinn sem hann er ekkert allt of ánægður með. Ég var aldrei búinn að fatta að Quinten og Kristinn væru lík nöfn, djöfull er undirmeðvitund mín gáfuð :D. Allavegana ég man ekki meira með draumin núna. Mér fannst þetta bara merkilegt þar sem mig dreymir sjaldan og man þá enn sjaldnar og þetta er í fyrsta skipti sem ég man eftir að hafa dreymt um frægt fólk. Gaman að því.

Allavegna aftur að lærdómnum. Bless í bili.
Lagalistinn:
Chicago - Hard to say I'm sorry (vá bylgjan maður, annars vekur þetta upp gamlar minningar)
Tool - Schism (mér finnst þetta óendanlega svalt lag, geðveikur stemmari í því)
Sólstrandargæjarnir - Rangur Maður (hvað maður fílaði þetta á sínum tíma, söng endalaust með því og svona. Fílaði það í tætlur þá, nú er þetta aðarlegu upp á minningar :D)

|


sunnudagur, 04 desember, 2005
Laugardagskvöld

ÉG ER FULLUR. Í dag kláraði ég seinustu ritgerðinna mína svo að ég ætlaði að byrja að læra fyrir próf en þá kom félagi minn úr grunnskóla (að austan) í heimsókn og við kíktum til annars félaga okkar úr grunnskóla sem er nýfluttur í Hafnarfjörð. Svo þurfti fyrri félagi minn að fara aftur heim að tékka á krakkanum sínum (hann er jafn gamall mér (21) og á 2) svo að ég fór heim líka. Þá settist ég með mömmu minni og við horfðum á Með Allt á Hreinu og hún sötraði gin og tonic á meðan ég sötraði vodka og ávaxtasafa. Málið er bara að á meðan hún drakk 2 glös drakk drakk ég 5, plús það að ég blandaði talsvert sterkar en hún svo að nú er ég fullur. Gaman að því, annars segi ég það gott núna og kveð ykkur því. BLESSUÐ :D

P.s. ég er mjög hneikslaður á ykkur, ég set upp quote-síðu og fæ engin komment, Atli mynnist á quote-síðuna mína og fær fullt af kommentum. 'Etta er ekki samgjarnt. :P

|


fimmtudagur, 01 desember, 2005
Uppfærslur og bíómyndir.

Nýjasta nýtt á síðunni er Quotes. Þarna er ég að safna saman heimskum eða fyndnum quote-um. Ég gleymdi líka að minnast á það í seinasta bloggi að ég setti inn gullmola úr menntaskóla, sem er kannski frekar misheppnað en what ever. Ég var líka að bæta inn tveim hnöppum (eru fyrir neðan teljarann hérna neðst. Þeir vísa á http://www.blairwatch.co.uk/node/603 og http://dontbomb.blogspot.com/ . Sú fyrri er að hvetja bloggara til að birta "Al Jazeera memo" sem á að fjalla um sprengjuáætlanir Bush á sjónvarpsstöðina en sú seinni er bloggsíða starfsfólks Al Jazeera. Viva la revolution og FUCK AMERICA. :D

Annars er skólinn að verða búinn og svona. Einn tími eftir, á föstudaginn klukkan átta. Ég er enn að skrifa seinustu ritgerðina mína en fer svo að fara að læra fyrir prófin. Fyrsta prófið mitt er 9. des en seinasta 20.

Ég er búinn að vera að horfa á slatta af bíómyndum, við skulum byrja á einni sem ég gleymdi seinast. Road to Perdition frá 2002 með Tom Hanks, Jude Law og fleirri góðum. Drengurinn sem er að segja frá er sonur manns sem er að vinni "skítverkin" fyrir stóra manninn í bænum, hóta, drepa o.s.frv. Hann neiðist svo til að flýja og fjallar myndinn um þennan flótta. Mjög góð mynd, skemmtileg og vel leikinn. Reyndar orðið svolítið síðan ég horfði á hana svo að einkunnin er kannski ekki nógu nákvæm en ég segi samt 8 af 10.

Næst skulum við taka The Princess Bride frá 1987. Maður er að lesa uppáhalds ævintýrið sitt fyrir barnabarnið sitt sem liggur veikur upp í rúmi. Það er ágætis húmor í myndinni og ef mér skjátlast ekki þá er sami aðalleikari í þessari mynd og í Robin Hood, Men in Tights frá Mel Brooks. Þessi mynd er ekkert svakalega góð en hún átti líka örugglega ekkert að vera það. Sæmilegt mynd, 6.5 af 10. (jú jú var að tékka, það var rétt hjá mér með aðalleikarann :D)

Einnig er ég nýlega búinn að horfa á Sling Blade . Hér er Billy Bob Thornton að verki, en hann samdi hana, leikstýrði og lék aðalhlutverkið. Þrusugóð mynd. Mjög róleg, hæg og íhugul þannig að mörgum myndi örugglega leiðast hún en mér fannst hún góð. Hún segir frá þroskaheftum manni sem drap móður sína og dreng sem var að ríða henni aðeins tólf ára gamall. Það var verið að hleypa honum af spítalanum og nú á hann að læra að funkera í "venjulegu" samfélagi (hillbillies). 7.3 af 10.

Svo gat ég ekki setið á mér þegar ég sá myndirnar á síðunni hans Atla svo að ég varð að horfa á Earth Girls are Easy . Hún er hálfgerð söngvamynd frá 1988. Jim Carrey, Damon Waynes og Jeff Goldblum leika geimverur sem nauðlenda á jörðinni í laug hjá naglasnyrti (Geena Davis) og kynnast aðeins lífinu á jörðinni. Stórfurðuleg mynd, fyndinn á köflum en frekar slappt handrit. 5 af 10.

Í gær horfði ég á Be Cool sem er framhald af Get Shorty . John Travolta leikur tough guy í bíómyndabransanum en núna er hann að flytja sig yfir í tónlistarbransann. Við fáum að sjá fullt af mishæfum tónlistarmönnum og lærði ég t.d. að Steven Taylor, söngvari Aerosmith, er alveg hræðilegur leikari. Uma Thurman var óvenju flott í myndinni en hún er samt of skinny fyrir minn smekk, fyrir utan það að það vantar alveg á hana rassinn. Það er ágætis skemmtun að horfa á myndina, t.d. er Rocky að leika homma, mjög gaman af því en myndin er ekkert sérstök eftirá að hyggja. 6 af 10.

Núna rétt í þessu var ég svo að horfa á American Splendor . Þetta er frekar óvenjuleg mynd um Harvey Pekar, sem er höfundur teiknimyndablaðanna American Splendor. Hann er frekar þunglyndur og skrítinn karl og er Paul Giamatti að ná honum svaka vel. Það gerist svo sem ekkert í myndinni en samt áhugaverð. 8 af 10.

Við fórum nokkrir á myndina Serenity í bíó um daginn. Þessi mynd var gerð til að enda þáttaröðina Firefly sem var sýnd á Fox en cansel-uð eftir aðeins eina seríu, mörgum til mikilla ama. Vægast sagt þá varð fólk pisst. Það eru nákvæmlega sömu leikarar í myndinni og höfundurinn, Joss Whedon (sá sama og gerði Buffy the vampire slayer, Atlantis: the lost empire, Toy Story, Alien: Ressurrection o.fl.) er mjög góður að setja húmor inn í verk sín. Fínasta mynd og mér skilst á strákunum (þar sem ég var sá eini sem hafði horft á þættina) að maður þurfi ekkert að hafa séð þá til að fíla myndina, þó það sé örugglega ekki verra. 7.5 af 10.

Fyrir þó dálitlu síðan fórum við líka á Lord of War með Nicholas Cage. Þetta er þrælgóð mynd um vopnasmyglara og eru nokkrir karakterar sannsögulegir þó að sagan sé öll skálduð. Mér fannst myndatakan í byrjunaratriðinu alger snilld og svo var myndinn ekkert síðri. Frábær mynd hér á ferð og mæli með að fólk sjái hana. 8.7 af 10.

Jæja þetta er orðið mjög langt, enda búinn að sjá allt of margar myndir nýlega en við segjum það gott í bili. Ciao.
Lagalistinn:
Þursaflokkurinn - Brúðkaupsvísur
The Who - Pinball Wizard
Doobie Brothers - Long Train Runnin' (allt saman snilldarlög þó að þau séu innbyrgðis mjög ólík)

|