Hinn Ótrúlegi Vefheimur Stefáns
Forsíða

miðvikudagur, 27 apríl, 2005
Fram skal halda.

Við skulum reyna að halda þessu við núna. Eins og venjulega er ekkert að frétta hjá mér þar sem ég vinn bara og sef :( Alls ekki snilldarlíf, það er svo mikill skortur á starfsfólki þarna að ef maður reynir að fá sér frí er næsta víst að hringt verði í mann og maður beðinn um að vinna, sem minnir mig á tvennt:
1. Það vantar starfsfólk á Hlöllabáta Ingólfstorgi, einhver sem hefur áhuga?
2. Ég fékk mér frí á fimmtudaginn, þá eru auðvitað allir að vinna á föstudeginum svo að ekki finnst mér líklegt að fólk verði til í að gera eikkað skemmtó og vaka fram eftir kvöldi.

Nóg um það, leikurinn sem ég startaði seinast gengur ágætlega, Comrade Atli er duglegastur við að stinga upp á lögum enn fjöldinn segir fæst enda stakk hann upp á Timberlake lagi og fær 2 mínusstig fyrir það :D Nei nei bara að bulla. Ég er að pæla í að láta þetta standa fram á Miðvikudaginn 4 maí. Sigurvegari verður svo kynntur aðfaranótt fimmtudagsins þegar ég kem heim úr vinnunni og getur hann þá sótt vinninginn strax á fimmtudagskvöldið (eftir 6) Nú eða fengið að eiga hann inni ef hann vill það frekar.

Þar sem ég hef svona nákvæmlega ekkert að segja ætla ég að enda þetta með karlrembubrandara.

Kona ein átti var að tala við útvarpssálfræðing og var að kvarta yfir eiginmanni sínum, þegar hann kom heim settist hann nefnilega alltaf beint fyrir framan sjónvarpið og lét hana þjóna sér. Sálfræðingurinn sagði henni að standa fyrir sínu og láta hann sækja hlutina sína sjálfan næst. Þegar karlinn kom heim um kvöldið settist hann niður að venju og bað konuna um bjór. "Sæktu hann sjálfur" svara hún. "Ef þú sækir ekki fyrir mig bjór kerling þá sérðu mig ekki næstu vikuna" sagði karlinn þá. Konan ákvað að taka sénsin og stóð á sínu. Næstu fimm dagana sá hún hvorki tangur né tetur af manni sínum, þann sjötta sá hún glitta í hann stöku sinnum og á sjöunda degi var bólgan í kringum augun hjöðnuð.

Viljiði annan eða á ég bara að halda kjafti?
Haha, bjartsýn, ég að halda kjafti, ain't gonna happen. hér kemur annar sem fæstir fatta en mér finnst hann snilld.

Einu sinni voru tveir menn og þrír svertingjar að labba niður af hæð.

Fattaru hann?
Ég skal segja þér hann aftur.

Einu sinni voru tveir menn og þrír svertingjar að labba niður af hæð.

Jæja bless í bili.

Og seinast en ekki síst, lagalisti þessa bloggs:

The Wild Rover - Dubliners (eitt besta drykkjulag allra tíma, þeir kunna þetta írarnir)
Bang Bang (my baby shot me down) - Nancy Sinatra (fólk virðist annaðhvort elska eða hata þetta lag, ég elska það btw)
Ormurinn Langi - Týr ( Færeyskt fylliríslag í frábæri útsetningu þessara færeysku snillinga)

|


mánudagur, 25 apríl, 2005
Jæja, hvað er langt síðan seinast, 2,5 mán.

Eiður var svo næs að benda mér á að fólk er að kvarta yfir skort á innleggjum hérna. Ég virðist sá eini sem tékka aldrei á þessari síðu :P allavegana, ég skal reyna að halda þessu við þá og svona. Já ég og Eiður skelltum okkur til Kúbu, það var mjög gaman en alltaf þegar fólk biður um ferðasögur dettur mér ekkert í hug að segja. Þetta svarta markaðs brask þarna er svolítið pirrandi, hvert sem maður fór var einhver að reyna að bjóða manni "Cigar", "una Chica" eða eitthvað þaðan af ólöglegra (ekki mikið um þetta enn ólöglegra samt). Maður var ekki lengi að fatta af hverju þessi lög um að Kúbverjar megi ekki hafa samskipti við túrista séu þarna, maður fékk ekki stundar frið. En þetta var samt það eina sem var að þarna, allt annað var perfect (á góðri íslensku). Við keyptum falsaðan seðil að andvirtði 6000 króna þarna úti, keyptum vindla á svörtum markaði, vorum svo skít hræddir um að það hafi verið svindlað á okkur en svo reyndist ekki, samt segja allar heimildir sem við getum fundið að ef maður kaupir vindla svona séu 99.9% líkur á að það sé eitthvað óreykjanlegt drasl. LUCKY LUCKY US. Það komu 2 hórur að reyna við okkur, tók okkur langan tíma að fatta hvað þær vildu fyrist, lélegar í ensku, við vorum bara að búast við að þær ætluðu að svindla á 0kkur. Við afþökkuðum, það hafði örugglega eitthvað að gera með að við vorum báðir þarna, hvaða heilvita maður fer með félaga sínum og fær sér hóru. Ekki ég að minnsta kosti. Annars er mjög lítið að frétta af mér, ég er bara að vinna eins og brjálæðingur og sef þess á milli. Vinna/sofa, þvílíkt líf. Ég var eitthvað byrjaður að setja inn myndir frá Kúbu á vefsíðuna http://stefanius.buzznet.com/user/ ekkert mikið samt komið inn ennþá. ég vinn í þessu svona þegar ég er ekki að vinna eða sofa, tekur bara svo fjandi langan tíma að hlaða þeim inn.

Jæja ég lofa að reyna að vera duglegri við þetta í framtíðinni.
þangað til seinna

Og að lokum 3ja laga listinn með snilldar tónverkum
Depeche Mode - Enjoy the Silence
System of a Down - B.Y.O.B
þriðja lagið verður skilið eftir autt og sá sem nefnir besta lagið fær 1 Hlöllabát og kók í boði mín :)

|