Ætlaði bara að láta ykkur vita að þessi síða fer að detta niður þar sem hún er hýst í gegnum nettenginu móður minnar og þar sem hún er að flytja til útlandsins þá segir hún henni væntanlega upp. Ég veit ekki hvort ég nenni að setja upp nýja síðu, þið verðið að suða mikið ef þið viljið það. Tekur því örugglega ekki, það er ekki eins og ég sé svo duglegur að uppfæra hana eða neitt. :P
Nú eru allir að tjá sig eitthvað um endurútgáfu bókarinnar 10 litlir negrastrákar. Fólk virðist sumt hvert vera alveg einstaklega móðgað og segja að hún byggi upp rasisma í litlum börnum. Nú verð ég að viðurkenna að ég hef ekki lesið þessa sögu en ég held að sagan sé eins og lagið og það kunni ég vel þegar ég var krakki og ég er eins langt því frá að vera rasisti og hægt er. Mér gæti ekki verið meira sama hvernig þú lýtur út eða hver húðlitur þinn er, fólk er upp til hópa fífl og húðlitur breytir engu um það. Nei ég segi svona. Vildi bara benda á að þessi texti breytti mér a.m.k. ekki í rasista.
Annað sem ég vildi benda á er orð hafa bara þá merkingu sem þú leggur í þau. Negri er bara dregið af Negro sem þýðir mjög einfaldlega svartur og var bara notað sem almennt orð yfir svertingja, það ætti því ekki að vera niðrandi nema bara ef það að vera svertingi sé niðrandi. Orðið sjálft er bara hlutlaus litur og ég hef ALDREI lagt neikvæða merkingu í það orð og finnst að það ætti enginn að gera það.
Í rauninni held ég að það séu bara 2 týpur af fólki sem leggi neikvæða merkingu í þetta orð, eða ég held það, kannski er það bara ég sem er skrítinn. Annars vegar eru það rasistar sem lýta niður á svarta manninn og þar af leiðandi er orðið negri sjálfkrafa orðið neikvætt orð í þeirra augum. Hin týpan held ég að sé sú sem má ekki einu sinni segja negrabrandara eða karlrembubrandara eða neitt þannig við af því að þá móðgast það. Ég held að báðar þessar öfgar séu slæmar. Ég persónulega elska svona brandara, ekki af því að brandarinn sjálfur sé svo fyndinn heldur af því að það eru actually til fávitar sem finnst brandarinn ekki vera brandari heldur bara heilagur sannleikur, hvernig er hægt að vera svo heimskur? Hin ástæðan, sem vegur mun meira hjá mér, er sú að sumir verða svo ógeðslega móðgaðir að það mætti halda að þú hafir farið og nauðgað mömmu þeirra eða eitthvað, og það að fólk geti orðið svona móðgað yfir heimskulegum brandara finnst mér bara æðislega fyndið.
Dæmi um svona brandara sem ég bara spring úr hlátri yfir væri til dæmis þessi:
Einu sinni voru 2 menn og 3 svertingjar að labba niður hæð...
Ég eiginlega trúi ekki hvað ég hló mikið þegar ég heyrði þessa setningu fyrst. Að vísu var ég sá eini sem fattaði þetta þá af því að hann var sagður þannig að allir voru að bíða eftir einhverju meiru og föttuðu ekki að leita að brandaranum í setningunni. En anyways, ég er kominn svoldið langt út fyrir efnið. Umfram allt finnst mér að við verðum að gera okkur grein fyrir því að 10 litlir negrastrákar sagan er bara barn síns tíma, fyrsta barnasagan til að koma út á íslensku ef mér skjátlast ekki, og það má ekki hvítþvo söguna.
Hvort þessi bók sé við hæfi sem barnabók er að vísu nokkuð vafasamt, ég skal alveg viðurkenna það, en það á við um svo ógeðslega margt annað. Über-commersialisminn í Pokemon til dæmis tel ég að sé mjög ógeðfeldur og öll þessi ofverndun barna í dag tel ég líka mjög af hinu slæma. Fyrir þá sem vissu ekki þá voru Lord of the Rings til dæmis barnabækur á sínum tíma, með allri sinni grimmd og bardögum, áfengis- og tóbaksneyslu og svo framvegis. Það besta sem Bilbo Baggins vissi um var að fá sér góðan öl og reykja pípu. Shit maður, ég er aftur kominn útfyrir efnið, enda með hita og get varla hugsað þannig að ég kannski enda bara hér með því að segja að 10 litlir negrastrákar er hluti sögunnar, negri er ekki neikvætt orð, svona bók á ekki að breyta krökkum í rasista, það er til margt barnaefni sem er jafnslæmt eða jafnvel verra, a.m.k. í mínum augum og já ég veit ekki meir. Nú bið ykkur bara um að koma með ykkar skoðun á þessari bók.
|
Fimmtudagur, 27. september, 2007 RIFF
Já í dag hefst RIFF (Reykjavík International Film Festival) og sýnist mér vera tonn af góðum myndum þarna. Ég er búinn að búa til plan sem ég ætla að reyna að halda mig við og ef einhver vill kíkja með mér á eitthverjar myndir þá er það meira en vel þegið. Planið mitt er svona:
Endilega hafa samband ef þið hafið áhuga á einhverju, ég er alltaf opinn. Anyways, later.
|
Þriðjudagur, 28. ágúst, 2007 Spekúlasjón
Ég var að velta fyrir mér eftir umræðu við Kristinn, Atla og Heiðar á kaffihúsi í gær, af hverju er betra að lesa bækur en að horfa á kvikmyndir? Er þetta ekki bara eitthvað íhald í fortíð og snobb? Hvað er betra við það að hafa lesið góðan slurk af heimsbókmenntunum en að hafa séð væna sneið af sígildum kvikmyndum og brautryðjendaefni af þeim toga. Ég er búinn að sjá ágætis magn af slíku efni en verð að viðurkenna að ég hef lítið lesið af heimsbókmenntunum. Að vísu er ég svoldið skrítin með það að ég nenni yfirleitt ekki að lesa skáldsögur, las 1984 og Animal Farm og varð fyrir miklum vonbrigðum með báðar. Hef lítið annað lesið. Ég nenni aftur á mót að lesa áhugaverðar fræðibækur, þegar sá andi leggst yfir mig, sem ég verð að viðurkenna að er ekki nógu oft. En okey, þar af leiðandi hef ég eitthvað vit á gildi meistaraverka kvikmyndasögunnar en ekki mikið vit á meistaraverkum bókmenntasögunnar þannig að ef einhver vill útskýra fyrir af hverju snobbliðið telur kvikmyndasögunna óæðri. Já meirihluti kvikmynda er sori, en á ekki það sama við um meirihluta bókmennta? Fjöldaframleitt rusl, hannað til að selja sem flest eintök. Ég veit að margir benda á að bókmenntirnar séu ekki jafn bundnar af lengd né tæknigetu eins og kvikmyndirnar en í staðinn getur kvikmyndinn stimjúlerað fleiri skylningarvit í einu, með tónum, myndum og orðum. Þannig að bæði hefur kosti og galla. Hví er þá annað talið betra en hitt.? Er einhver ósammála mér um að þetta eigi að vega jafnt? Er það ekki bara snobb, hlutdrægni og vitleysa? Endilega komið með ykkar skoðun, helst rökstudda.
|
Þriðjudagur, 24. júlí, 2007. Roskilde. Seinni færsla og eitthvað klukkvesen.
Jæja, er þá ekki kominn tími á seinni færsluna. Laugardagurinn byrjaði í smá leti, enda var maður þreyttur eftir allt of þétt skipaðann föstudag. Ég mæti ekki á tónliekasvæðið fyrr en rúmlega hálf fimm og sá Heyseed Dixie. Eins og nafnið gefur til kynna þá er þetta hljómsveit sem tekur klassísk rokk lög í countrybúningi. Það var alveg fyndið að horfa á þetta. Við stukkum samt snemma þaðan og kíktum á Aronas sem er Ný-Sjálensk modern-jazzhljómsveit. Mér fannst ekkert varið í hana og fór því fljótlega. Næst á listanum hjá mér var The Flaming Lips, sem var búið að hóta mér morði ef ég myndi ekki sjá. Showið hjá þeim var geðveikt en tónlistin ekkert spes, ég gafst fljótlega upp og fór heim í kamp. Kl hálf tíu byrjuðu The Who svo. Ég var semi-bjartsýnn en bjóst alveg við að þetta væru gamlir karlar sem væru bara að þessu fyrir peninga og nenntu þessu ekki lengur, en það var alveg þvílíkur kraftur og geðveikt stuð þarna. Á miðjum tónleikunum lennti ég í því að karl með svaka flotta myndavél stillti sér upp fyrir framan mig og tók mynd, bara af mér, ég efast um að strákurinn við hliðiná mér hafi einu sinni sést. Mér fannst það spes en pældi ekkert í því, svo svona fimm mínútum seinna snéri stelpa, sem stóð fyrir fram mig, sér við og tók líka mynd af mér. Ég er ekki alveg að fatta hvað þetta var. Það eina sem mér dettur í hug er að ég var alltaf í hreinum fötum og fór reglulega í sturtu á meðan flestir voru þakktir leðju. Annað hvort það eða þá að ég er bara svona fallegur, nú megið þið dæma um. Eftir The Who var haldið heim í kamp og svo var farið á Red Hot Chili Peppers. Þeir voru ÖMURLEGIR, ég var hress þegar ég mætti en eftir korter var ég farinn að geispa. Þeir voru hálfsofandi upp á sviði og lagavalið var hreint út sagt ömurlegt. Ég fór því fljótlega þaðan og kíkti á Kal sem spilar rokkaða sígaunatónlist, það var geðveikt stuð þar en eftir svona hálftíma þar vildi fólkið sem ég var með kíkja á Dream of an Opium Eater. Það var spes upplifun. Þetta var black metall án söngs, og ekkert svakalega skemmtileg tónlist en við hliðinna á þeim voru video sem gerðu mann skíthræddan, dó einhver í öllum videounum og svona. Og tónlistin var perfect moodsetter fyrir videoin, skemmtilega öðruvísi. svo var haldið heim að sofa.
Sunnudagurinn var svo með hálf leiðinlega dagskrá. Fyrstu tónleikarnir sem ég fór á þá voru Seun Kuti & Egypt '80. Seun Kuti er að spila tónlist eftir sig og pabba sinn, sem spila með sama bandi. Svakalega pólitískt og flott show en tónlistin bara svona lala því miður. Ég fór þaðan á Arctic Monkeys, sem eru alls ekki my cup of tea, þó að þeir séu skárri en flestir í þessu sama genre. Næst var það svo Muse, sem eru heldur ekki beint my cup of tea, en þeir stóðu sig ótrúlega vel, og það var helvíti gamann á þessum tónleikum, með þeim betri á hróa þetta árið. Eftir það var svo haldið í kamp og drukkið bjór. Á mánudeginum héldum við svo til Köben, það var ekki mikið gert þar, aðeins kíkt í Tivoli og svo strikið þrætt aftur og aftur. Ég tapaði mér algjörlega í Fona og keypti mér tonn af tónlistardvd-diskum. Svo áttum við að fljúga heim á miðvikudagskvöldið kl. 21:30, en þegar við mætum á flugvöllinn um sexleitið sjáum við að það varð sjö og hálfs tíma seinkunn á fluginu. Við þurftum samt að tékka okkur inn á réttum tíma en svo þurftum við að hanga mjög lengi. Við skruppum því bara aftur til Köben og fórum á Die Hard 4.0, fengum okkur Burger King og slökuðum á. Manni var svoldið farið að leiðast. Þegar í flugið kom var ég svo orðinn það þreyttur að ég rotaðist bara strax eftir flugtak og vaknaði rétt áður en við lenntum, það var helvíti nice.
Jæja eigum við þá að snúa okkur að þessu klukkveseni frá systur minni? Átta staðreyndir um sjálfan mig og síðan klukka 8 aðra. sjáum hvernig það gengur.
Staðreynd 1: Ég á 2 sambýlismenn (elska þetta orð).
Staðreynd 2: Ég á þrjá gítara og langar í svona 20 til viðbótar.
Staðreynd 3: Ég spila á gítarinn minn í amk klukkutíma á dag, yfirleitt meira.
Staðreynd 4: Ég elska tónlist, sérstaklega frá 7. og 8. áratugnum, og reyndar blús frá 3. 4. og 5. áratugnum.
Staðreynd 5: Ég á eitt ár eftir í BA gráðuna mína en veit EKKERT hvað ég ætla að gera eftir það.
Staðreynd 6: Ég hata blogg, ég gerði þetta bara til að læra aðeins á HTML en svo hefur mér alltaf verið bannað að hætta.
Staðreynd 7: Sagnfræðinemi er í raun samheiti fyrir alkohólista. Lærði það í skólanum.
Staðreynd 8: Þó að peningar séu oft vandamál fyrir nemendur þá væri ég alveg til í að vera eilífðarstúdent.
Jæja klukka einhverja aðra 8, og bannað að klukka fólk sem hefur verið klukkað, sjáum hvernig það gengur. Atli verður fyrstur á lista, Eiður fær líka, og Krizzi, Skúli, Dengsinn og ég ætlaði að klukka Bjarka en komst ekki inn á síðuna, lucky bastard. Læt þetta duga þar sem ég nenni ekki að klukka dauð blogg.
|
Föstudagur, 13. júlí, 2007. Roskilde. Fyrri færsla.
Eins og mörg ykkar væntanlega vita var ég að koma heim af Roskilde-festival. Ég er búinn að ætla að fara á hana í 6 ár en lét loks verða að því núna. Auðvitað rigndi eins og mothafucker. Ef þið viljið fá tölulegar upplýsingar um rigninguna þá skal ég koma með þær. Árið 2004, sem allri kvarta svo mikið yfir og var næst mesta rigning í sögu Hróa, þá rigndi heila 33mm, metið var hinsvegar sett fyrir 10 árum, árið 1997, þá rigndi 44mm. Í ár rigndi aftur á móti hvorki meira né minna en 100mm, meira en tvöfalt meira en gamla metið. Annars fór rigningin ekkert í taugarnar á mér, ég þurfti einu sinni að sofa í polli en var nokk sama. Persónulega fer vindur mun meira í taugarnar á mér í útileigu og það blés helvíti mikið suma dagana.
En Hróarskelda snýst heldur ekki um þægindi heldur tónlist og að skemmta sér og skulum við því ræða um það. Ég mætti svoldið seint á festið þar sem ég framlengdi heimsóknina hjá bróður mínum sem býr í Sönderborg (nenni ekki að leita að dönsku ö). Ég mætti á svæðið á miðvikudaginn og fór svo á fyrstu tónleikana mína á fimmtudeginum. Þar voru að spila Arcade Fire, tjaldið var fullt svo ég stóð fyrir utan í brjálaðri rigningu, það rigndi 25mm bara á fimmtudeginum. Flestum fannst Arcade Fire mjög góðir en ég bara fíla þá ekkert og fannst ekkert varið í þetta. Eftir þá tónleika hljóp ég yfir á LCD Soundsystem tónleika, þar komst ég inn í tjaldið þrátt fyrir að það væri minna. Ég verð að viðurkenna að ég var ekkert svakalega spenntur fyrir LCD en þeir komu mér mjög á óvart og stóðu sig geðveikt vel. Mjög góðir tónleikar. Næstu tónleikar voru The Killers sem ég heyrði með öðru eyranu í biðröð við hraðbanka. Ég HATA The Killers og fannst það sem ég heyrði einstaklega leiðinlegt. Svo leið nokkur tími þar til að ég fór á Bjarkartónleikana. Planið var að yfirgefa þá og fara á Mahmoud Ahmed sem byrjaði hálftíma síðar en því miður var ég of þreyttur til að nenna því. Þetta var í fyrsta sinn sem ég sé Björk live en fannst ekki mikið til koma. Á sama tíma fékk Ahmed frábæra dóma og ég sé mikið eftir þessari leti í mér. Björk fékk að vísu líka góða dóma en höfðar bara ekkert til mín. Þar með var fimmtudagurinn búinn og maður hélt heim í tjald, drakk slatta og svaf svo í polli um nóttina.
Föstudagurinn, sem var þéttskipaðasti dagurinn byrjaði starx klukkan 12. Þá sá ég Musicians of the Nile, ævaforn tónlist frá botni Nílar, alveg brilliant, skrítin hljómfæri, slatti af áhrifum frá Arabískri tónlist og geðveikt stuð. Svo þegar ég labba út úr tjaldinu stendur einn af gaurunum þar að selja heimagerða diska og auðvitað varð ég að kaupa einn. Hinsvegar tók ég báða hundraðkarlanna mína úr veskinu, rétti honum svo einn, en karlinn greip báða og rétti mér tvo diska, á enn eftir að hlusta almennilega á þetta. Eftir þetta slakaði ég á til sex en þá byrjaði Roky Erickson & the Explosives. Enginn í mínu kampi ætlaði á þetta en þegar ég útskýrði hver Roky er komu 2 með mér. Roky var semsagt söngvarinn í The 13th Floor Elevators sem er talinn fyrsta Psychadelic hljómsveit heims. Hún hætti svo þegar Roky var lagður inn á geðveikrahæli fyrir að vera með marijuana í Texas. Eftir að honum var sleppt gekk hann í The Explosives. Tónleikarnir byrjuðu frekar slappir, bara svona lala, og allir í tjaldinu voru að bíða eftir sama laginu, eina hittaranum með 13th Floor Elevator. Félagar mínir úr kampinu gáfust upp og fóru á aðra tónleika en ég varð eftir, um leið og þeir fóru jókst kraftur og tónleikarnir endu snilldarlega. Seinasta lag fyrir uppklapp var svo You're Gonna Miss me, hittarinn sem ég talaði um áðan, áhorfendur urðu trylltir og uppklappslögin voru enn betri, þó að ég hafði aldrei heyrt þau áður. Eftir þau fór bandið af sviðinu og áhorfendurnir sungu línu úr seinasta laginu aftur og aftur og aftur. Á endanum kom Roky aftur upp á svið og veifaði en mátti ekki spila meira til að klúðra ekki skipulagi hátíðarinnar. Við erum að tala um mestu fagnaðarlæti sem ég hef nokkurn tímann séð. Þaðan fór ég á Beastie Boys, sem flestum fannst frekar slappir en ég skemmti mér konunglega. Það slokkanði um tíma á hljóðkerfinu hjá þeim og allir fóru að púa. Mér fannst það asnalegt, ekki þeim að kenna að hljóðkerfið klikki. Það var einstaklega gaman að sjá hvað þeir eru að verða hallærislegir gamlir karlar. Einn leit út eins og skólastjóri, gamall og gráhærður, og lang hallærislegastur af þeim, spilaði á kontrabassa um tíma og svona. Það kom mér því mikið á óvart þegar hann fór að rappa og var að mínu mati lang besti rapparinn af þeim 3. Næst ætlaði ég á Mungal Patasar & Pantar, sem spila indverska/afríska tónlist, og vinur minn segir að hafi verið bestu tónleikarnir á skeldunni. En ég hætti við það til að reyna að hitta Kristrúnu, vinkonu mína í Sagnfræði. Það tókst ekki. Næst fór ég á Queens of the Stone Age tónleika. Þeir voru mjög góðir, spiluðu góða blöndu af plötunum og ég hefði fílað mig í botn ef mér hefði ekki verið svo illt í bakinu að ég gat vart staðið. Ég píndi mig út þessa tónleika og fór svo heim í tjald að sofa og sleppti því reggí/ska kvöldi sem var eftir QotSA tónleikana.
Jæja þetta er orðið svo langt að þið fáið upplýsingar um laugardag og sunnudag í næstu færslu.
|
Mánudagur, 28. maí, 2007 Tónlist
Eins og þið vitið flest þá er ég tónlistarnörd og ég verð að segja ykkur að á fimmtudaginn var fór ég á helvíti góða tónleika á Kaffi Hljómalind. Þar var Kristinn félagi minn að spila og var bara þvílíkt að brillera. Ég verð að viðurkenna að hann spilar tónlist sem ég myndi aldrei hlusta á en nú er ég búinn að heyra hann spila þetta og djöfull er hann fært tónskáld. Hann er tónLISTAMAÐUR, og ég var alveg að fíla þetta í botn. Takk fyrir geðveika tónleika Kristinn. Hann er með myspacesíðu ef þið viljið tékka á honum.
Á föstudaginn var ég svo niðrí bæ að skemmta mér og hitti þar vin "sambýlismanns" míns, og hann tók munnhörpusóló fyrir mig. SHITTURINN er það eina sem ég get sagt. Við stóðum á miðjum Laugarveginum og hann bara dregur upp munnhörpuna og fer að djamma í blússtíl. Það var svo mikið stuð að ég trúi því ekki. Djöfull langar mig að læra á munnhörpu, brilliant hljómfæri.
Í gær fór ég svo á Deep Purple/Uriah Heep tónleika. Uriah Heep byrjuðu á að spila í klukkutíma og þó að þetta væru einstaklega hallærislegir gamlir karlar þá skemmti ég mér konunglega. Tónlistin var góð en mér fannst að vísu vanta stemmingu í salinn. Þeir virstust nú samt vera að fýla sig þarna, enda algjörlega washed up og því örugglega ekki vanir meiri stemmingu en þetta upp á síðkastið. Svo tók Deep Purple við og þó að söngvarinn þar sé búinn að missa hæfileikann til að taka hæstu nóturnar og var aðarlega að rembast þegar hann var að reyna við þær þá var það snilld og salurinn, sem byrjaði full rólega, var kominn á geðveikt skrið undir lokinn og allir virtust skemmta sér konunglega. Gítarleikarinn var helvíti góður og sýndi það, svo kom líka hljómborðssóla, á meðan fóru hinir af sviðinu að hvíla sig aðeins, og helvítis húmoristi var hljómborðsleikarinn, tók eitthvað svona rokk/psychadelic sóló sem breyttist svo yfir í Mozart og eitthvað fleira klassískt, svo, viti menn, kom bara íslenski þjóðsöngurinn inn í þetta hjá honum, sem er að vísu lögbrot en hljómaði engu að síður mjög vel. Þegar hljómsveitinn hætti svo brutust út þvílík fagnaðarlæti í salnum og auðvitað urðu þeir að spila aðeins meira fyrir okkur. Bassaleikarinn byrjaði á bassasólói og svo allt í einu í miðju bassasólóinu fattaði fólk hvaða lag hann var að spila og byrjaði að syngja bassalínuna með, nema hvað að salurinn var svo hávær að hann náði nokkurn veginn að yfirgnæfa bassaleikarann, sem hætti þá að spila og lét okkur syngja línuna, svo join-aði hljómsveitin og geðveikt stuð. Einstaklega góðir tónleikar, þrátt fyrir háan aldur og einstaka hallærisleg 80's rokklög. Skemmti mér konunglega. Vil bara þakka fyrir mig, góð helgi tónlistarlega séð.
Í kvöld klukkan 21. verður svo hljómsveitin The Orange Affair að spila á Classic Rokk. Þetta er mjög góð classic/psycadelic rokkhljómsveit en hún verður að spila á blúskvöldinu, sem Classic rokk hefur haldið á hverjum mánudegi í vetur. Þetta er að vísu seinasta blúskvöldið í bili en ég mæli með því að allir sem geti kíki á þetta. Það vill svo til að ég þekki söngvarann, sem er einstaklega góður rokksöngvari, mikill kraftur í röddinni. Þeir eiga líka myspacesíðu en seinast þegar ég tékkaði á henni þá voru enginn hljóðdæmi inn á henni. Því miður kemst ég ekki á þessa tónleika þar sem ég er að fara að vinna klukkan 18 en ég sé þá vonandi síðar. Hmm, við nánari athugun virðist mér myspace síðan þeirra ekki vera til lengur svo að ég get þar af leiðandi ekki linkað á hana. Oh well.
Jæja er þetta ekki orðið nóg.
|
Föstudagur, 18. maí, 2007 Topp 3 leiðinlegustu myndir í bíóhúsi.
Ég er ekkert búinn að segja lengi, enda var ég bara í prófum og læti, þá vildi maður ekki gefa sér tíma í þetta kjaftæði, en nú eru þau búinn og enn vantar mig sumarvinnu. Svo er peningurinn minn líka löngu þrotinn. En nóg af kvarti. Nei veistu, ég ætla að kvarta meira. Ég fór í bíó í kvöld (það er fimmtudagskvöld), sá Spiderman 3. GUÐ MINN GÓÐUR, þetta er 3 leiðinlegasta mynd sem ég hef séð í bíó, þess vegna ætla ég að gera topp 3 lista núna og segja aðeins frá hverri mynd fyrir sig, for your enjoyment. ATH. þetta er ekki topp 3 leiðinlegustu myndir sem ég hef séð heldur aðeins þær sem ég fór á í bíó og eyddi því annað hvort 800 kr. eða 900. kr í að sjá :(
Númer 1:
Shijie (The World). Kínversk mynd sem hefur fengið mjög góða dóma. Sá hana á filmfestivali fyrir 2 árum minnir mig. Skildi hvorki upp né niður í söguþræðinum, ég þekkti ekki aðalleikarana í sundur svo ég vissi ekkert hver var hvað sem gerði söguþráðin enn flóknari og það gerðist aldrei neitt í myndinni. Í hléi löbbuðu svona 80% bíógesta út og hátindur myndarinnar var að einhver í salnum hraut eiginlega allan tímann, og það hátt, yfirgnæfði flest öll hljóð. Myndin kostaði mig 800. kr. að sjá en hún er -10.000 kr. virði, það er, það þyrfti að borga mér a.m.k. 10.000 kr. til að horfa á hana aftur, myndi ekki gera það fyrir minna.
Númer 2:
King Kong. Þá á ég við Peter Jackson útgáfuna, sem flestir voru að fýla og er líka að fá góða dóma en djöfull hata ég þessa mynd. Það gerist ALDREI neitt, það er endalaust af hallærislegri vælu og já, þrír klukkutímar af kvöl og pínu. Þetta er actually eina myndin sem ég hef stungið upp á að labba út af. Svo leiðinleg var hún. Kostaði mig 800 kr. að sjá hana en hún er -5000 kr. virði.
Númer 3.
Spiderman 3 er eins og ég sagði áðan þriðja versta mynd sem ég hef séð í bíó og það er að mestu út af sömu ástæðum og King Kong. Gerist bókstaflega ekkert í myndinni, endalaust mikið af vælu, ÓTRÚLEGA mikið af hallærislegum atriðum, sérstaklega þegar Peter Parker á að vera svalur. Það sem þessi hefur þó framyfir King Kong er að á meðan King Kong var 3 tímar of kvöl og pínu þá var Spiderman 3 bara tveir og hálfur tími af eintómum leiðindum. Ég var að berjast við að halda mér vakandi þegar svona einn og hálfur tími var búinn af myndinni, samt var ég ekki vitund þreyttur þegar ég fór á hana. Í mesta bardagaatriðinu, sem var auðvitað aðalspennuatriði myndarinnar þá var ég meira að segja farinn að hugsa, "á ég að pína mig lengur eða á ég bara að leggja mig?" Þessi mynd kostaði mig 900 kr. að sjá (meira en hinar vegna hækkunnarinnar) en er jafn mikið í mínus og King Kong -5000 kr. virði að sjá. EKKI FARA Á ÞESSA MYND Í GUÐANNA BÆNUM.
That is all, nú er bara að sjá hversu margir eru ósammála mér.
|
Laugardagur, 21. apríl, 2007 Hver skyldi lesa þetta???
Hmm, það er allt í ljúfri löð hér í Barmahlíðinni svo ég veit lítið hvað ég ætti að segja. Maður er bara að læra á fullu svo að það er lítið að frétta. Ég fór á stúdentaleiksýninguna Examinasjón í gær, það var bara helvíti fyndið og óvenju mikið plott miðað við stútentaleikfélagið. Var alveg að fíla þetta. Eftir það fór ég niðrá Hressó og lét Íslandshreyfinguna gefa mér frían bjór. Þar voru tveir uppistandarar og svo Ómar Ragnarsson, hann var þúsund sinnum fyndnari en hinir 2 til samans. :P
Annars er ég alltaf að komast að því að það eitthvað fólk út í bæ er að lesa þessa síðu, ég hélt að það væru bara þessir 3-4 félagar mínir sem actually commenta hjá mér en svo er maður kannski að segja sniðuga sögu við einhver kunningja út í bæ og hann/hún segir bara við mann "já ég las það á blogginu þínu." Því ætla ég að skora á alla sem að lesa þetta að koma með komment, amk "Ég las þetta" eða eitthvað sniðugra ef þið viljið vera sniðug. Annars ætla ég að enda þetta á videoi sem á að fjalla um sambandsslit en mér finnst það einhvern veginn fjalla bara um sambönd yfir höfuð. Enjoy.
|
Fimmtudagur, 12. apríl, 2007 Fluttur!!!
Jæja, þá er maður bara fluttur og allt í gúddý hérna á nýja staðnum. Húsgögnin mín pössuðu svo vel í herbergið að það er eins og það hafi verið smíðað fyrir þau. Það eru enn enginn vandamál komin upp, ja að því undanskildu að ég drakk allt of mikið hérna með sagnfræðinemunum og varð þunnur í fyrsta skipti á ævi minni.
Skólinn byrjaði svo aftur í dag, og þegar ég ætla að leggja af stað í hann sest ég út í bíl, en hann startar ekki, bilaður ;'( Veit ekki hvort ég eigi eftir að hafa efni á því að gera við hann, það kemur í ljós síðar.
Annars veit ég ekki hvað ég á að segja svo ég enda bara á að sýna ykkur snilldar-vídeó sem mér var bennt á, sum ykkar eru búin að sjá það hjá mér en fæst. Þetta er sketz úr norskum grínþætti. Enjoy.