Pantanir

Til panta gistingu vinsamlegast sendið okkur fyrirspurn á netfang okkar hendrik@internet.is upplýsingur um það tímabil sem óskað er eftir.  Við reynum svara öllum fyrirspurnum innan sólarhrings frá fyrirspurn. Einnig er hægt að fá fleiri upplýsingar og panta gistingu í síma 517-6200. 

Bókunarfyrirvari

Ekki er bókuð gisting til einnar nætur nema í fyrsta lagi viku fyrir áætlaðan komudag.  Enginn bókunarfyrirvari er á helgar- og vikuleigu.

 

Rétt er að benda á eftirfarandi

 

Komutími í hús

 

Vikuleiga komutími eftir klukkan 16:00 og brottför fyrir klukkan 13:00. 
Helgarleiga miðast leigutími frá 16:00 á föstudegi til 16:00 á sunnudegi.

 

Við brottför

 

Leigutaki ber ábyrgð á húsinu og öllu sem því fylgir.  Skal hann þrífa vel eftir sig, þ.m.t. ísskáp, eldavél og ofn, salerni, grill og skúra gólf. Loka skal öllum gluggum og hurðum vandlega og skila lykli á réttum tíma.

 

Taka þarf með

 

Handklæði á baðið, handsápu, diskaþurrkur og borðtuskur í eldhúsið.  Sængurver og koddaver, baðhandklæði og góða skapið.

Húsinu fylgir efni til þrifa, uppþvottalögur og burstar, gólfsápa, salernispappír og salernishreinsir.  Gólfþveglar og moppur eru til staðar svo og kústur.

 

Hafi leigutaki einhverjar athugasemdir eða vanti eitthvað í húsið þá vinsamlegast látið umsjónarmann í síma 892-5089 vita.  Einnig er hægt að hafa samband í síma 517-6200.

Leiguskilmálar

Skyldur leigutaka.

1)       Leigutaki samþykkir ákvæði leigusamnings þessa og hefur fengið afrit af honum.

2)       Leigutaki skal skila sumarhúsinu:

a.        ásamt öllum fylgihlutum í sama ásigkomulagi og það var við móttöku.

b.        Á tilskildum tíma samkvæmt samningi þessum nema um annað verði samið síðar.

c.        Lyklar þess skulu skilast á skrifstofu Höfðahrepps að Túngötu 1-3.  Utan opnunar tíma skal skila lyklunum í póstlúgu Höfðahrepps að Túngötu 1-3.

3)       Leigutaki fær húsið afhent hreint.  Skal leigutaki skila húsinu af sér hreinu.  Skal hann þrífa vel eftir sig, þ.m.t. ísskáp, eldavél og ofn, salerni, grill og skúra gólf.  Loka skal gluggum og hurðum vandlega. Ef vanhöld eru varðandi þrif getur komið til þess að húsið verði þrifið á kostnað leigutaka. Nánar skal farið eftir fyrirmælum í húsreglum í hinu leigða húsi er varðar umgengni og frágang hús.

4)       Skili leigutaki ekki sumarhúsinu á réttum tíma samkvæmt leigusamningi þessum, eða láti vita af áframhaldandi leigu er leigusala heimilt að taka húsnæðið í sína vörslu án frekara fyrirvara á kostnað leigutaka. Áframhaldandi leiga er háð samþykki leigusala. Skili leigutaki húsnæði 2 klst. Síðar eftir að samningstími rennur út er leigusala heimilt að innheimta allt að sólarhringsgjaldi samkvæmt leigusamningi þessum.

5)       Leigutaka er óheimilt að hafa í húsinu fleiri næturgesti en sem gefið hefur verið upp til leigusala og verið skráð á leigusamning.  Meiri fjöldi næturgesta en sem gefið hefur verið upp fyrir húsið er háð samþykki leigusala.   Brot á þessari reglu getur þýtt brotvikningu úr húsi.

6)       Leigusali er ekki ábyrgur fyrir hvarfi muna eða skaða á þeim, sem leigutaki, eða einhver annar aðili á hans vegum geymdi í leiguhúsnæði.

7)       Leigutaki samþykkir að greiða leigusala 25% staðfestingargjald við pöntun leigu. Skal leigusamningur undirritaður af leigusala og leigutaka eigi síðar en 7 dögum frá pöntun.  Leigutaki samþykkir að greiða leigusala:                   

a.        75% sem eftirstanda af leigu fyrir húsnæðið 30 dögum áður en leigutími hefst

b.        Hefjist leigutími innan 30 daga frá pöntun skal öll leigan greidd strax.

c.         Öll gjöld sem leigusali kann að verða fyrir vegna notkunar eða skemmda leigutaka af hinu leigða húsnæði.

8)       Afpöntun skal vera skrifleg. Afpöntun gildir frá þeim degi er hún berst leigusala. Vegna afpantanna gilda eftirfarandi reglur:

a.        Afpöntun 8 vikum áður en leiga hefst, greiðist 10% af leigufjárhæð. Aldrei þó minna en 3500 kr.

b.        Afpöntun innan 8 vikna áður en leiga hefst, greiðist 100% af leigufjárhæð.

c.        Leigutaki getur keypt sérstaka forfallatryggingu.  

9)       Leigutaka er óheimilt að láta fara fram viðgerðir eða breytingar á hinu leigða húsnæði og fylgihlutum þess án áður fengins samþykkis leigusala.

10)    Leigutaka er óheimilt að nota húsnæðið sem geymslu, lána það eða framleigja það.

11)    Óheimilt er að vera með dýr innandyra í húsnæðinu. Brot á þessari reglu getur þýtt brotvikningu úr húsi.

12)    Reykingar innandyra eru með öllu bannaðar. Reykingar eru aðeins leyfðar utandyra.               

13)    Leigusali skal í öllum atriðum fara eftir húsreglum og brjóta þær ekki. Séu húsreglur brotnar veitir það leigusala heimild til rifturnar þessa leigusamnings og brottvikningar leigutaka úr hinu leigða húsnæði.

14)    Leigutaka er ekki heimilt að tjalda eða vera með fellhýsi á lóð hússins nema með samþykki leigusala.

15)    Leigutímabil, tímabil A og B: Komutími eftir klukkan 16:00 og brottför fyrir klukkan 13:00.  Leigutímabil C.  Um helgar miðast leigutími við frá 16:00 á föstudegi til 16:00 á sunnudegi.

16)    Kvartanir undan skemmdum eða eitthvers sem vantar í húsið skulu vera gerðar skriflega til leigusala . Í lengsta lagi 24 tímum eftir komu í húsið.

 

Skyldur leigusala.

17)    Leigusali ábyrgist afhendingu húsnæðis á umsömdum tíma og að það fullnægi kröfum sem gerðar eru um það.

18)    Leigusali skal kynna leigutaka efni leigusamnings þessa og sérstaklega þær skyldur sem hann tekur á sig með undirritun sinni.

19)      Vilji leigusali takmarka notkun húsnæðis með hliðsjón af útbúnaði þess og/eða ástandi skal það gert skriflega við undirritun leigusamnings þessa.

 

Tryggingar

20)    Innifalið í leigugjaldi eru lögboðnar brunatryggingar, þjófnaðartrygging og innbús trygging.

21)    Leigutaki ber ábyrgð á húsnæðinu og öllum munum þess og tækjum. Leigutaki skal leggja fram kreditkort við upphaf leigu til tryggingar fyrir skemmdum á húsnæði og munum þess. Skal kortanúmerið ritað á leigusamning þennan og afrit af því tekið þrykkt á þar til gerð eyðublöð til tryggingar.

22)    Það sem innbús trygging nær ekki yfir er:

a.        Skemmdir af ásettu ráði eða sakir stórkostlegri óvarkárni.

b.        Skemmdir sem verða þegar leigutaki er undir áhrifum áfengis, örvunar, eða deyfilyfja.

c.        Skemmdir af hernaði, uppreisn, óeirðum, óspektum,

d.        Skemmdir af völdum dýra,

e.        Brunagöt í stólum, sófum, teppum, rúmum og mottum.

f.         Skemmdir er varða rafmagnstæki.

g.        Að öðru leiti vísar í almenna skilmála innbústrygginga.

 

Almenn ákvæði

23)    Leigusamningur þessi skal ávalt vera í húsnæðinu á meðan á leigutíma stendur.

24)    Viðaukar og breytingar á skilmálum og ákvæðum leigusamnings þessa skulu vera skriflegar.

25)    Um samninga þá sem gerðir eru á grundvelli ofangreindra skilmála, þar með talið bótakröfur sem eftir atvikum kunna að vera gerðar, fer að íslenskum lögum.  Gildir það bæði um grundvöll og útreikning bóta. Sama gildir um bótakröfur á grundvelli bótaábyrgðar utan samninga. Rísi mál út af leigusamningi þessum skal málið rekið fyrir varnarþingi leigusala.

26)    Bent skal á að skjóta má ágreiningsmálum samningsaðila leigusamnings þessa til starfsandi úrskurðarnefndar Neytendasamtakanna og Samtaka ferðaþjónustunnar.