
Við áttum frábæra daga á þessu
fallega svæði. Nafnið vísar í fimm
smábæi sem allir standa á klettabrúnum
út við sjóinn. Á milli þeirra
eru gönguleiðir, og upp fjöllin ofan við bæina
eru fleiri hundruð metrar af vínökrum.
Við gengum á milli þriggja bæja, og
lentum eina nóttina í mesta þrumuveðri
sem ég hef á ævinni upplifað. Við
viljum meina að einni eldingu hafi lostið niður
við hliðina á tjöldunum okkar.
Rosalega fallegur staður.