
Fyrst við vorum að fara yfir á frönsku
rivieruna urðum við að eyða degi í Mónakó.
Þetta er falleg borg, en þó varla staður
fyrir milliklassafólk eins og okkur. Það væri
ekki leiðinlegt að eiga lystisnekkju í höfninni
þar.
Ég náði að sannfæra fólkið
um að labba formúlu eitt brautina, sem liggur í
gegnum bæinn. Að það yrði fín
leið til að skoða hana, svo það gerðum
við. Og stoppuðum aðeins í casino Monte Carlo.
Við sáum í bæklingi hótel fyrir
80.000 kall nóttina.