Við gistum á tjaldstæði við Evrópusambandsbygginguna í tvær nætur. Við borðuðum á indverskum og kínverskum veitingastað.

Á göngu okkar um borgina fundum við gamla búð sem seldi "the finest belgian chockolate". Við keyptum okkur örfáa mola. Þeir voru rosagóðir. Um kvöldið skelltum við okkur í bíó og sáum Kalla og Sælgætisgerðina. Þar borðuðum við svo síðasta molann.