Fyrsta
sjónvarpsútsending á Íslandi fór fram
þann 30. september 1966. Á eftir ávarpi útvarpsstjóra
var blaðamannafundi sjónvarpað, þar sem fyrir svörum
sat Dr. Bjarni Benediktsson forsætisráðherra. Spyrlar
voru ritstjórar blaða stjórnarandstöðunnar,
þeir Andrés Kristjánsson og Ólafur Hannibalsson.
Hér er því stutt myndbrot þar sem Andrés
spilar veigamikið hlutverk. |
|
Talmálið
er mjög formlegt og notast er við þérun, sem varla
fyrirfinnst í dag. Allir voru þeir óvanir myndavélum,
enda blaðamenn og sjónvarp enn alveg óþekktur
miðill. Gaman er að bera þetta saman við sjónvarp
í dag því munurinn er mikill. |
|