Ævisögur
 

Andrés skrifaði þó nokkuð af ævisögum og æviminningum. Oft var það um fólk sem hann hafði kynnst persónulega, eins og Jónas Jónsson frá Hriflu, Ágúst á Hofi og Kristján Júlíus Jóhannesson, faðir hans. Þá gat Andrés skrifað út frá eigin reynslu á þessu fólki og minningum, ásamt því sem hann notaði ýmis gögn úr fórum þeirra, s.s. dagbækur og rit. Að skrifa ævisögu er því mikil heimildavinna. Eftirtaldar æviminningar skrifaði Andrés.

1969
Aldarminning Indriða á Fjalli
(Um Indriða Þorkelsson 1869-1943)
Birtist í Árbók Þingeyinga bls. 71-80

1970
Ágúst á Hofi leysir frá skjóðunni : með fólki og fénaði í öllum landsfjóðungum / Andrés Kristjánsson reiddi fram.
(Um Ágúst B. Jónsson 1892-1987)

1971
Ágúst á Hofi lætur flest flakka : með stórmennum lífsins í breiðum byggðum / Andrés Kristjánsson hagræddi.
(Um Ágúst B. Jónsson 1892-1987)

1973
Af lífi og sál / Andrés Kristjánsson ræðir við Ásgeir Bjarnþórsson
(um Ásgeir Bjarnþórsson 1899 myndlistamann)

1978
Ein á hesti : lífsreisa Jónu Sigríðar Jónsdóttur / Jóna Sigríður Jónsdóttir ; Andrés Kristjánsson endursagði.
(um Jónu Sigríði Jónsdóttur 1899-1997)

1979
Vopnaskipti og vinakynni : ævifrásögn Hannesar Pálssonar frá Undirfelli / Andrés Kristjánsson skráði.
(um Hannes Pálsson 1898-ævisaga)

1983
Iðnaðarmannatal Suðurnesja / Guðni Magnússon ; bókarauki eftir Eyþór Þórðarson og Andrés Kristjánsson.
Meðal efnis: Iðnir og handíðir á liðinni tíð á Suðurnesjum / Eyþór Þórðarson: s. [481]-500. - Iðnaðarmannafélag Suðurnesja / Andrés Kristjánsson: s. [501]-562. - Sérgreinafélög iðnaðarmanna: s. [563]-571

1983
Kristján Júl. Jóhannesson / Andrés Kristjánsson.
(Um Kristján Júl. Jóhannesson 1883-1938)
Birtist í Faðir minn – kennarinn s. 31-46

1982
Gróin spor : Jóhannes Friðlaugsson aldarminning
Útdráttur/aukafærsla: Jóhannes Friðlaugsson, kennari - Andrés Kristjánsson s. 5-15

1983
Leiftur grárra daga : ógleymanlegur maður
(Um Sigurð Lúther Vigfússon – 1959)
Birtist í Árbók Þingeyinga s. 25-31.

1983
Tryggvi Þórhallsson (1889)
Birtist í: Þeir settu svip á öldina s. 125-39

1985
Í fóstri hjá Jónasi : Halldór E. Sigurðsson rekur minningar sínar / Andrés Kristjánsson bjó til prentunar.
Aukafærsla Andrés Kristjánsson

1985
Landnámsmaður í þjóðríki íslensk sjálfstæðis / Andrés Kristjánsson.
Efni : Jónas Jónsson 1885-1968 (frá Hriflu)
Birtist í: Á aldarafmæli Jónasar frá Hriflu. S. 159-169

1985
Gísli Magnússon í Eyhildarholti / Andrés Kristjánsson
Gísli Magnússon 1893-1981
Birtist í: Bóndi er bústólpi s. 49-77

1985
Úti á hinum djúpu vötnum / Andrés Kristjánsson
Efni: Jónas Jónsson 1885-1968 (frá Hriflu)
Birtist í. Á aldarafmæli Jónasar frá Hriflu s. 193-201

1986
Halldór E. Sigurðsson rekur minningar sínar / Andrés Kristjánsson bjó til prentunar. 2, Bilin á að brúa : milli manna og málefna.
Aukafærsla Andrés Kristjánsson.

1988
Eiríkur Hjartarson rafmagnsfræðingur / Andrés Kristjánsson.
Birtist í . þeir settu svip á öldina s. 113-127 í 2.b.

1989
Vilhjálmur Þór forstjóri, bankastjóri og ráðherra / Andrés Kristjánsson
Birtist í: Þeir settu svip á öldina s. 215-233 í 3.b.