Sýslumannshúsið að Kornsá í Vatnsdal

Árið 2000 tókum við hjónin Skúli Thoroddsen og Bryndís Borgedóttir, ásamt foreldrum mínum Guðmundi H. Thoroddsen og Elísabetu Thoroddsen, gamla sýslumannshúsið  til endurbyggingar. Hafði það þá staðið autt í nær tuttugu ár, og var orðið ansi hrörlegt,  eins og sjá má af myndunum hér á síðunni. 

Lárus Blöndal  alþingis og sýslumaður lét reisa húsið árið 1879. Húsið er Norkst katalog hús.Forsmiður hússins var Björn Jóhanesson, og var hann einng forsmiður að húsinu að Hjallalandi í Vatnsdal. Stór skúr var byggður við norðurenda hússins árið 1921, sennilega af vanefnum enda hefur fólk tjáð mér sem bjó í húsinu að hann hefði aldrei haldið vatni né vindi. Hann hefur nú verið fjarlægður, enda þótti hann lýta húsið mjög. Í tíð Lárusar var séra Bjarni Þorsteinsson kennari og sýsluritari hjá Lárusi, og varð tengdasonur hans.

Þarna bjuggu meðal annara hjóninn Björn Sigfússon og Ingunn Jónsdóttir, frá 1899-1924. Björn var alþingismaður og brautryðjandi í menntamálum kvenna, Ingunn skrifaði þarna bókina Gömul kynni, sem ekki aðeins er stórt framlag til Íslenskar kvennabókmennta, heldur einnig merk heimild um lifnaðarhætti og aðstæður fólks á þeim tíma. 

Þegar ég tek við húsinu árið 1999 hafði ekki verið búið í því í 18 ár, eða síðan 1981. Á þeim árum höfðu fjöldi manna haft uppi hugmyndir um að gera húsið upp. Ég hef leitast við að gera það upp samkvæmt “bókinni” t.d. tveimur ágætis ritum sem HFRN hefur gefið út. T.d. eru allir gluggar tappaðir saman og negldir með trénöglum. Gler lagt í líolíukítti. Við allar fræsingar hef ég smíðað fræsitennur til þess að geta fræst alla prófíla nákvæmlega út.