Samvinnufélagið

 

Félag áhugafólks um miðjustefnu við Háskóla Íslands.


Stefnuyfirlýsing

Við viljum vinna að því að afla miðjustefnunni fylgis meðal nemenda og starfsfólks Háskóla Íslands, stefnu sem felst í því að vinna lausn á sameiginlegum viðfangsefnum samfélagsins með samvinnu og jöfnuð að leiðarljósi.

Jafnrétti til náms er lykillinn að lífsgæðum framtíðarinnar. Við erum framkvæmdaglöð og viljum beita okkur fyrir því að íslenskt háskólaumhverfi standist samanburð við þau bestu í heiminum. Við viljum vera í forystu þeirra sem vinna að framgangi lýðræðis og jafnréttis í samfélaginu og búa við opið, réttlátt stjórnkerfi sem byggir á lýðræði og valddreifingu. Innan ramma þess viljum við vinna að umbótum á samfélaginu.

Hægt er að kenna okkur við skynsemishyggju enda trúum við á skynsemi  mannsins þegar leita þarf lausna. Okkar lausnir byggja á hófsemi, sátt og samvinnu.

Sérhver einstaklingur á að fá tækifæri til þess að þroskast og vaxa í  samfélagi umburðarlyndis og víðsýni. Við höfnum hvers konar mismunun, leggjum áherslu á mannréttindi, jafnrétti og persónufrelsi. Við setjum  manngildi ofar auðgildi.

 

2. apríl 2008

Samvinna í Stúdentaráði ?

Einhver spenna virðist vera að láta á sér kræla í Stúdentaráði Háskóla Íslands, en þar sitja Röskva og Vaka með fulltrúa sína. Samvinnufélagið telur það mikilvægt að stúdentar allir vinni saman að markmiðum sínum til að ná árangri og rödd stúdenta sé sem sterkust. Röskva fékk 50,1% en Vaka 49,9% atkvæða. Nú hafa Vökuliðar kvartað opinberlega yfir því og skrifað í Morgunblaðið þann 30. mars sl. þar sem þeir segja að það sé algerlega gengið fram hjá þeim í málefnum Stúdentaráðs og við val á fólki til ábyrgðarstarfa fyrir ráðið. Samvinnufélagið hvetur fylkingarnar til að starfa saman að hagsmunum stúdenta því það er gamall sannleikur og nýr að sameinuð stöndum vér. Það er von félagsins að Stúdentaráð sé og verði samnefnari stúdenta við Háskóla Íslands og starfi á vönduðum og lýðræðislegum grundvelli. Greinina má annars finna hér.

 

18. mars 2008

Frábærar viðtökur !

Fyrsti opinberi viðburður Samvinnufélagsins var haldinn í gær og voru viðtökurnar hreint út sagt frábærar. Stjórn félagsins vill þakka þeim fjölmörgu sem lögðu leið sína í aðalbyggingu Háskólans og tóku þátt í fundinum okkar þar sem Helga Sigrún Harðardóttir flutti áhugaverðan pistil um miðjustefnu í íslenskum stjórnmálum og gildi og útbreiðslu samvinnufélaga í Evrópu og Bandaríkjunum. Skemmtilegar umræður fylgdu í kjölfarið.

Samvinnufélagið óskar öllum nemendum Háskólans góðs gengis í vorprófunum. Ljóst er að Samvinnufélagið hefur fengið mjög góðar viðtökur hjá nemendum Háskólans og er nú hafin vinna að dagskrá og hugmyndum næstu annar.

 

12. mars 2008

Fyrsti hádegisfundur Samvinnufélagsins verður haldinn Mánudaginn 17. mars kl. 12:15-13:00 í stofu 207 í Aðalbyggingu Háskóla Íslands.

 

„Hvernig birtist miðjustefna í íslenskri pólitík“
 


Helga Sigrún Harðardóttir, framkvæmdastjóri þingflokks Framsóknarflokksins heldur erindi um miðjustefnu og hvernig hún birtist í íslenskum stjórmálum nú um stundir. Helga Sigrún mun halda erindi sitt og síðan verður opnað fyrir spurningar og umræðu.

 

Allir velkomnir.


 


 

"Miðjustefna er ekki stefna þeirra sem vilja einfaldlega hittast fyrir á hinni breiðu miðju stjórnmálanna á hverjum stað og tíma, heldur er miðjustefna ákveðin pólitísk hugmyndafræði og aðferðafræði sem byggir á skynsemi og samvinnu"

 



 

Samvinnufélagið, félag áhugafólks um miðjustefnu við Háskóla Íslands, var stofnað þann 23. nóv. 2007 við athöfn í aðalbyggingu Háskólans. Tilgangur og markmið félagsins er að kynna og halda uppi umræðu um miðjustefnu í stjórnmálum og afla þeirri stefnu fylgis meðal háskólafólks. Tilgangi sínum hyggst félagið ná með almennu félagsstarfi, fundum, samkomum og útgáfu.

Fyrstu stjórn félagsins skipa Agnar Bragi Bragason, formaður, Inga Guðrún Kristjánsdóttir, gjaldkeri, og Gunnar Gunnarsson, ritari.


Samvinnufélagið - Félag áhugafólks um miðjustefnu við HÍ. Kt. 440208-1260, Bnr. 1158-26-61260. 

Veffang: www.internet.is/samvinnufelagid. Netfang: samvinnufelagid@hi.is