Reykjaskóli
er vel búinn og hefur rúm fyrir allt að
120 manns.
Flest
herbergin eru tveggja eða fjögurra manna.
Góðar
kennslustofur eru fyrir alla aldurshópa.
Sérstakt
bænaherbergi.
Matsalurinn
er bjartur og rúmgóður.
Gott
alrými er fyrir kvölddagskrá.
Hægt
er að fara í borðtennis.
Höfum
aðgang að sundlaug og heitum potti.
Fótboltavöllur
er við skólann.
Umhverfið
býður upp á skemmtilegar
skoðunarferðir um nágrennið.
Hvað
þarf að hafa með?
Rétt
er að benda á að allir þurfa
að hafa með sér sængur og kodda,
rúmföt og
handklæði. Þar sem allra veðra
getur verið von er nauðsynlegt að taka
með sér viðeigandi
útivistarfatnað. Og ekki má gleyma
sundfatnaði.