Fylgikvillar aðgerða á forhúð:

Sjaldgæfir og varla alvarlegir. Bjúgur í forhúð, mismikið mar og þroti alltaf fyrstu 7-14 dagana, sýkingar mjög fátíðar. Stundum erfitt að pissa fyrstu bunu eftir aðgerð. Forðast samfarir og sjálfsfróun (eldri strákar, fullorðnir) þar til sárið er gróið (3-6 vikur), jafnvel nota smokka fyrsta skeiðið. Saumar eyðast sjálfkrafa á 10-14 dögum (nema annað sé tekið fram), annars fjarlægja þegar vel gróið. Vara sjúklinga/foreldra við reðurhúfukreppu (forhúðin festist aftan við kónginn eða reðurhúfu) í fyrstu eftir aðgerð. Skurðirnir lýsast með tímanum og það tekur tíma að fá endanlegt útlit og tilfinningu. Hafa samband ef vaxandi roði, vessar frá sári eða alvarlegt mar myndast.