Upplýsingar um þvagfærarannsóknastofu á Handlækningadeild FSA
Söguleg atriði um þvagfæralækningar, blöðruspeglanir og þrýstingsmælingar
Þvagfærasjúkdómar eru jafngamlir mannkyninu. Þvagfæraskurðlækningum sem sérgrein var fyrst komið á fót árið 1890 í Frakklandi og Felix Guyon fyrsti prófessor í París. Þótt mikilvægi þeirra hafi aukist með auknum aldri fólks, þá eru meðfæddir gallar hinir algengustu er greinast í dag, sýkingar og steinamyndanir ennþá mjög algengar, blöðruhálskirtilssjúkdómar hjá körlum tíðir og krabbamein í þvagfærum meðal algengustu meina af þeim toga. Aðgerðir, rannsóknir og innlagnir tengdar þvagfærasjúkdómum teljast í dag vera meðal hinna algengustu í hinum vestræna heimi. Samt sem áður eru þessir sjúkdómar lítill “fréttamatur”.
Nokkur söguleg atriði:
Nútíma blöðruspeglunartæki af stífum toga kynnt 1879
Edison glóðarlampinn - rafmagnsperan - (1879) breytti öllu og var ríkjandi í tæp 60 ár
“Kalt ljós” kom 1960, ljós sem ekki gefur frá sér hita
Hopkins keilulinsur (1966)
Sveigjanleg tæki þróuð eftir 1980-85
Þrýstingsmælingar jafn gamlar þvagleggjum, byrjuðu um miðja 19du öldina, tölvutæknin, þrýstingsnemar og annað þess háttar breytt miklu
Almenn atriði:
Rannsóknir á þvagfærum geta aukið mjög áreiðanleika greiningar þvagfærasjúkdóma og í framhaldinu meðferðarúrræði fyrir stóran hóp sjúklinga á öllum aldri og báðum kynjum. Fram til þessa hefur einungis verið unnt að framkvæma takmarkaðan hluta þeirra hér á FSA en nýtilkominn tækjabúnaður og breytingar á starfsemi gera það að verkum að framboð rannsókna eykst verulega og stenst fyllilega samanburð við aðrar þvagfæradeildir þar sem slíkar rannsóknir eru gerðar.
Hverjar eru nýjungarnar?
Um er að ræða sérstakan útbúnað til þrýstingsrannsókna á neðri þvagfærum hjá körlum, konum sem og börnum. Í rannsóknum þessum felst að settir eru sérstakir þvagleggir inn í þvagfærin og vökva dælt þar inn. Unnt er að fylgjast með þrýstingsbreytingum í þvagfærum við mismunandi mikið rúmmál vatns í þvagblöðru og tæmingu hennar svo dæmi sé gefið. Rannsóknirnar eru notaðar hjá sjúklingum með ýmiskonar þvagfæravandamál. Þau algengustu eru fjölmargir taugasjúkdómar sem hafa áhrif á þvagblöðru og neðri þvagfæri, margskonar þvaglátaeinkenni en þó aðallega þvagtregða, þvagteppa og þvagleki af ýmsum gerðum. Við rannsóknina eru engin deyfilyf gefin, hún er óþægindalítil fyrir sjúkling og tekur yfirleitt 1-1½ klukkustund. Þvagflæðimælingar eru einnig gerðar með hinum nýja búnaði. Rannsóknir þessar eru oft á tíðum mjög mikilvægar þegar ákveða skal skurðaðgerðir við ýmsum þvagfærakvillum, svo sem þvagleka hjá konum og blöðruhálskirtilssjúkdómum hjá körlum.
Speglanir á neðri þvagfærum:
Hér er fyrst og fremst um að ræða svokallaða blöðruspeglun, en þá er speglunartæki með ljós á endanum, þrætt í gegnum þvagrásina og speglað inn í blöðru með því að dæla skolvökva inn í blöðruna samtímis. Áður fyrr hafa speglanir af þessum toga verið framkvæmdar á skurðstofu og þá yfirleitt með annars konar speglunarbúnaði. Breytingin er sú að FSA hefur fengið að gjöf og fjárfest í fleiri sveigjanlegum speglunartækjum sem gera það að verkum að rannsóknir þessar er hægt að framkvæma í staðdeyfingu með óverulegum óþægindum og ekki er þörf á verkjalyfjagjöf í æð. Þetta minnkar verulega kostnað bæði fyrir heilbrigðiskerfið sem og sjúklinga. Stærstu hóparnir sem þurfa að fara í blöðruspeglun eru þeir sem hafa ýmiskonar þvagfæraeinkenni, ekki hvað síst frá neðri þvagfærum og má þar nefna endurteknar þvagfærasýkingar, blóð í þvagi, grun um þvagblöðruæxli eða steina, þvagleka og þvagteppuástand. Með þessari nýju aðstöðu og annarri gerð af speglunartækjum verður unnt að bjóða sjúklingum upp á þjónustuna fyrr en áður, hún verður ódýrari og fyrirhafnarminni fyrir sjúklingana auk þess sem gæðin aukast.
Gjafir til Handlækningadeildar FSA
Ein megin forsenda þess að unnt var að ráðast í ofan nefndar breytingar var sú að Handlækningadeild FSA áskotnuðust gjafir 2004. Lionsklúbburinn Ösp á Akureyri og Pokasjóður verslunarinnar gáfu samtals 2.5 milljónir króna til kaupa á tækjabúnaði til að framkvæma þrýstingsrannsóknir og þvagflæðimælingar og Sjúkrasjóður Verkstjórafélags Íslands gaf 600 þúsund krónur til kaupa á sveigjanlegu blöðruspeglunartæki. Stuðningur og velvilji þessara aðila er hér með þakkaður af heilum hug. Ætíð er grundvöllur fyrir kaupum frekari búnaðar og tækja til þessara og annarra rannsókna eða aðgerða innan þvagfæraskurðlækninga.