Aðgerð á blöðruhálskirtli um þvagrás


Aðgerð á blöðruhálskirtli um þvagrás

Blöðruhálskirtillinn er valhnetulagaður kirtill staðsettur fyrir neðan blöðruopið.
Við aðgerð á blöðruhálskirtli um þvagrás er ofvöxtur í blöðruhálskirtlinum fjarlægður gegnum speglunartæki sem sett er upp í þvagrásina.

Undirbúningur
Í eina viku fyrir aðgerð skaltu ekki taka lyf sem hafa áhrif á blóðstorku s.s. Magnýl og Kóvar. Þú ferð í blóðprufur, skilar þvagprufu, ferð í hjartalínurt og e.t.v. lungnamynd. Kvöldið fyrir aðgerð ferð þú í sturtu og klæðist sjúkrahúsfötum. Þú færð leiðbeiningar/ráðleggingar varðandi föstu á mat og drykk í ákveðinn tíma fyrir aðgerð. Ekki skal nota tóbak frá miðnætti kvöldið fyrir aðgerð. Aðgerðardaginn klæðist þú teygjusokkum til að minnka hættu á blóðtappamyndun og þér er ekið í rúminu á skurðdeildina.

Hvernig fer aðgerðin fram?
Aðgerðin er oftast gerð í mænudeyfingu, stundum í svæfingu. Mænudeyfingin veldur tímabundnum dofa frá brjósti og niður í fætur, þannig að þú finnur ekki fyrir sársauka á meðan aðgerð stendur. Svæfingin slakar á vöðvum, þú finnur ekki fyrir sársauka og þér líður eins og þú sért í djúpum svefni.

Aðgerðin fer þannig fram að skurðlæknir setur speglunartæki inn í þvagrásina og upp í blöðru. Blöðruhálskirtilinn er athugaður sem og þvagblaðran. Sá hluti kirtilsins sem er stækkaður er síðan fjarlægður með því að hefla eða skafa hluta vefjarins, en stundum er beitt s. k. rafeyðingu þar sem vefurinn er brenndur niður. Vefjabútunum er loks skolað út í gegnum speglunartæki og settur þvagleggur í þvagrásina. Meðan á aðgerð stendur hvíla fætur þínir í stoðum.
Miðhlutinn er fjarlægður (hvítleitur á mynd).

Ástand eftir aðgerð
Þvagleggurinn sem settur var upp í þvagblöðru í aðgerðinni er til að skola út þvagi og hugsanlega blóðlifrum sem geta komið í kjölfar aðgerðarinnar. Þú verður með vökva í æð fyrst eftir aðgerðina til að auka þvagmagnið. Mikilvægt er að drekka a.m.k. 2-3 lítra af vökva á sólahring eftir slíkar aðgerðir til að skola vel. Þvagleggurinn er fjarlægður þegar blæðing hefur stöðvast, venjulega eftir 1-2 daga. Hafir þú farið í mænudeyfingu þá ertu rúmliggjandi í 6-8 klst. eftir aðgerðina eða þar til allur dofi er horfinn úr fótum. Ef þú varst svæfður, þá ertu nokkrar klukkustundir að jafna þig. Mikilvægt er að fá aðstoð frá hjúkrunarfræðingi eða sjúkraliða þegar farið er á fætur fyrst eftir aðgerðina því hugsanlega ertu óstyrkur á fótum og þig getur svimað. Eftir aðgerðina getur þú fundið fyrir sviða í þvagrás og óþægindum yfir blöðrustað. Mikilvægt er að láta hjúkrunarfræðing vita af þessum óþægindum og fá verkjalyf ef þörf krefur svo þú verðir fljótari að jafna þig og komast á fætur. Dvölin á sjúkrahúsi tekur yfirleitt 3-5 daga.

Ráðleggingar við útskrift
Gerðu ráð fyrir góðri hvíld eftir aðgerðina og fáðu stuðning og aðstoð við dagleg störf, eftir því sem við á. Í fyrstu eftir aðgerðina getur þú hugsanlega átt í erfiðleikum með stjórn þvaglátanna. Blóð eða blóðflygsur er algengt að sjá í þvaginu öðru hvoru og jafnvel í nokkrar vikur eftir aðgerð. Stundum getur aftur byrjað að blæða þrátt fyrir að þvagið hafi verið eðlilegt um nokkurt skeið. Stafar þetta af því að sárskorpan (hrúðrið) fellur af. Ef þetta gerist skaltu hafa hægt um þig á meðan blæðir og auka vökvadrykkjuna eftir getu. Stöðvist blæðing ekki eða erfitt verður að losa blöðruna skaltu hafa samband við lækni. Hið sama gildir ef þú færð hita. Mikilvægt er að halda áfram að drekka vel og forðast erfiði í um 3-6 vikur. Nauðsynlegt er að halda hægðum mjúkum og rembast ekki fyrst eftir aðgerðina. Ekki skal stunda samfarir/samlífi fyrr en líðan þín er orðin góð og engin blóðmiga er til staðar. Stinning á að vera svipuð og fyrir aðgerð, en flestir verða varir við það að sæðið sprautast inn í blöðru en ekki út í gegnum þvagrásina við sáðlát (öfugt sáðlát). Hafir þú hætt blóðþynningu fyrir aðgerð færðu upplýsingar hjá lækninum hvenær þú átt að hefja hana aftur. Eftirlit í kjölfar aðgerðar er venjulega 4-6 vikum síðar annað hvort hjá þeim lækni sem framkvæmdi aðgerðina eða heimilislækni.