Lykilatriði
Skurðaðgerð hefur algeran forgang ef klínískur grunur er um eistasnúning – ekki bíða.
Einkenni: Við fæðingu eða algengast hjá 12-18 ára, saga <12-24 klst., oft að næturlagi, bráðaeinkenni, ógleði, uppköst, kviðverkir, eistað hástætt og hitt oft þverstætt, þvagskoðun eðlileg. Einnig getur orðið snúningur á nára- og launeistum, sem gefur staðbundnari einkenni í nára eða kviðarholi.
Greining: Einungis þörf á ómskoðun ef greining óviss. “Eðlileg” ómun útilokar ekki sjúkdóminn og öfugt. Snúningur verður venjulegast frá miðlínu (regla Sparks). Gjarnan þverstætt eista hinum megin (Angell´s sign), sjúka eistað helaumt og oftast uppdregið.


Myndirnar sýna snúning á kólfi (til vi.), miðmyndin drep í hæ. eista, einnig drep lengst til hægri.
Meðferð: ætíð skurðaðgerð eins fljótt og kostur er – bráðaaðgerð. Undantekning er ef sjúklingur leggst inn með “svart” eista og augljóslega orðið drep í eistanu. Ekki bíða eftir blóð- eða röntgenrannsóknum. Kalla strax á sérfræðing ef grunur er um eistasnúning. Stundum er hægt að snúa eistanu til baka við svæfingu/verkjalyfjagjöf. Hitt eistað yfirleitt fest í sömu aðgerð og hægt er að setja gervieista ef fjarlægja þarf snúningseistað sökum dreps.