Nýrasig
(ptosis renis, renal ptosis, flökkunýra)
Almennt:
yfirleitt
einkennalaust og ástand fremur en sjúkdómur. Nýrað sígur í
standandi stöðu niður (skilgreining: tvær
lendaliðbolsþykktir) og hugsanlega getur komið hlykkur á
þvagál þannig að stífla myndast.
Einkenni:
verkir í síðu eða
kvið, stundum tengt daglegu lífi, íþróttum, þvagfærasýking,
blóðmiga, stífluástand, þreifanlegt og auð hreifanlegt
nýra. Oftast grannholda, hávaxnar ungar konur.
Greining:
klínískt mat auk
rtg. IVP ásamt sindurritun í liggjandi og standandi stöðu.
Meðferð:
yfirleitt engin, en
ef sterkur grunur um einkenni sökum þessa er nýrafesting
(nephropexia) ráðlögð, sem annaðhvort opin aðgerð eða með
kviðsjártækni (FSA).