Neðanrás (hypospadias)

Neðanrás þar sem
ytra þvagrásaropið opnast neðan reðurhúfu.


Einkenni: ytra þvagrásraopið situr ekki á réttum stað heldur neðan á limnum. Venjulegast rétt aftan við hefðbundinn stað, í eða við reðurhúfugrófina
eða á bolhluta lims. Getur verið hvar sem er
á hefðbundinni leið þvagrásar. Mismikið far á þeim
stað sem opið ætti að vera. Reðurhúfustrengir
(chordee) geta verið til staðar, mismikil
bognun á lim eða reðurhúfu niður á við,
þvagið frussast, bunan óstýrilát.

Meðferð: nánast alltaf skurðaðgerð. Fer eftir útliti og alvarleika hvaða agerð er gerð og þá líka á hvaða aldri drengir eru teknir til aðgerðar. Misjafnar hefðir milli staða.