Þvagrásarþrengsli (strictura urethrae, urethral stricture)

Staðsetning: fremst bæði hjá körlum og konum (meatus stenosis); lim-, himnu- og hvekkhluti hjá körlum. Muna að þreifa þvagrás (hersli, þykkildi, sár) og þá hvort aðrir sjúkdómar (BXO, bólga, vörtur, hormónaskortur) séu samfara.

Einkenni: léleg buna, treg eða mjó, teppueinkenni, hefðbundin þvaglátaeinkenni, þvagfærasýkingareinkenni, blóðmiga, leki, skipt eða dreifð buna. Einkenni sjaldan veruleg hjá fullorðnum fyrr en þvermál þvagrásar er orðið <10 Ch (French).

Fylgikvillar: þvagteppa, vatnsnýra og -þvagáll, sýkingar í þvagi og þvagrás, skert sáðlát, steinamyndun, sýkingar í þvagrásarkirtlum, flöguþekjuæxli.

Orsakir
Meðfætt
Himnuhluti (algengast)
Aftari þvagrásarlokur (posterior urethral valves)
Eftir skurðaðgerðir: aðgerðir á eða um þvagrás (transurethral surgery), þvagleggir, eftir hjartaaðgerðir.
Áverkar; skarpir, sljóir, mjaðmargrindarbrot.
Æxli (mjög sjaldgæf)
Bólgur/sýkingar
Kynsjúkdómar
Klamydía
Lekandi, herpes, vörtur.
Hersliskorpnunarhúfubólga
Kynlífsathafnir; reðurbrot (fractura penis), aðskotahlutir í þvagrás.
Þvagrásarþrengsli
fyrir (vi. m.) og eftir (hæ. m.) opna aðgerð


Meðferð
Sýklalyf
Sterar (krem, salvi)
Veirulyf
Útvíkkun þvagrásar (dilatatio urethrae, þvagrásarútvíkkun)
Málmútvíkkarar (ekki fyrir óvana að nota!)
Þvagleggir (Foley, Lofric®, Easy-Cath®)
Sjálfsútvíkkun með legg
Skurður um þvagrás (incisio transurethralis)
Almennt þarf að fylgja þvagrásarskurði eftir með reglulegum útvíkkunum í ákveðinn tíma (vikur-mánuði, ár).
Sachse: sjónrænn skurður (kaldur hnífur)
Otis-Mauermayer: blindur skurður
Rafskurður/leysigeislaskurður
Skurður + útvíkkun
Lögunaraðgerð (operatio plastica): sérstaklega styttri þrengsli, yngri sjúklingar sem eiga möguleika á góðum bata.
Stoðleggur (stent, spiral)
Stoðleggur í þvagrás.
Þvagrásarleggur