Meðferð forhúðarþrangar

Lykilatriði
Fæstir drengir þurfa á skurðaðgerð að halda sökum forhúðarvandamála.




Sterakrem
Má reyna við forhúðarþröng í 3-6 vikur í senn og endurtaka. Best reynsla af flokki III – IV. Sömuleiðis við exemi (eczema) og þá af flokki I-II.
Önnur húðkrem
Sveppakrem við sveppasýkingum og ef grunur er um blandaða sýkingu (sveppi, bakteríur) má reyna sterakrem með sýkla- og sveppadrepandi verkun eða þá blandaða meðferð.
Sýklalyf
Einungis ef um raunverulega eða blandaða sýkingu er að ræða. Krem með sýklalyfjum eiga stundum við.

Lögunaraðgerð (operatio penis plastica)


Hluti forhúðar fjarlægður (vi. m.) og lögunarskurður án brottnáms (vi. m.).


Á forhúð vegna þrengsla og stundum vegna
reðurhúfukreppu, sem er mikilvægt að laga ef veldur einkennum. Aftari skurður (“dorsal slit”) sjaldan notaður nema hjá eldri körlum sökum mögulegra lýta í kjölfarið (húðin hangir yfir eins og kápa, pilsfaldur).
Y-V- eða Z-lögun ellegar 2-3 lögunarskurðir stundum notaðir.

Umskurn (circumcisio)
Að hluta eða fullu vegna forhúðarþrengsla og BXO.

Tæki til umskurnar.

Fylgikvillar aðgerða: sjaldgæfir og varla alvarlegir. Bjúgur í forhúð, mismikið mar og þroti fyrstu 7-14 dagana, sýkingar mjög fátíðar. Stundum erfitt að pissa fyrstu bunu e. aðg. Forðast samfarir og sjálfsfróun (eldri strákar, fullorðnir) þar til sárið er gróið (3-6 vikur), jafnvel nota smokka fyrsta skeiðið. Saumar eyðast sjálfkrafa á 10-14 dögum (nema annað sé tekið fram), annars fjarlægja þegar vel gróið. Vara sjúklinga/foreldra við reðurhúfukreppu í fyrstu eftir aðgerð. Skurðirnir lýsast með tímanum. Hafa samband ef vaxandi roði, vessar frá sári eða alvarlegt mar myndast.